Sæluhelgi, og annað á döfinni hér vestra.

Já þau komu í heimsókn, Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra.  Það var fjör í krökkunum, eins og gengur.

IMG_9282

Hann var fljótur að bleyta sig, og svo endaði þetta allt með að Ólöf Dagmar datt í tjörnina hehehehe

IMG_9290

Hér eru svo bæjarstjórahjónin að sækja plönturnar sínar, til að fara með þær inn í Djúp til gróðursetningar, og ég sé ekki betur en kajakarnir séu með í för.

IMG_9291

Og tími fyrir smáspjall um landsins gagn og nauðsynjar.

IMG_9293

Jamm smá systkinametingur eins og gengur, ég er með meira en þú.

IMG_9294

Já tjörnin gerir sitt.

IMG_9296

Það var svo skömmu síðar sem stóra stúlkan okkar datt í tjörnina LoL

 IMG_9297

en það hafði verið ákveðið að fara á Sæluvikuna á Suðureyri í dag, og við stóðum við það.

Súgandafjörðurinn langur, hlykkjóttur og fagur.

IMG_9304

Þar var auðvitað elskuleg bloggvinkona mín Sigrún ásamt vinkonu sinni, sem búsett er í svíþjóð.

Flottar saman.

IMG_9309

Ég er nokkuð viss um að hér voru ekki undir þúsund manns í dag þegar mest var, rosalega vel sótt.

IMG_9317

Og sumir klæddu sig upp á í tilefni dagsins.

IMG_9318

Og sumir einfaldlega vildu frekar leika sér á róló heldur en í hoppiköstulum.

IMG_9320

Sem auðvitað stóðu öllum til boða.

IMG_9321

Hér er mitt fólk á ferð.

IMG_9323

Ömmu í kúlustrákar í leik.

IMG_9325

Hér voru líka ýmsir aðrir, sem ekki eru algeng sjón hér.

IMG_9328

Það var hægt að fá góðan Tailenskan mat.

IMG_9329

En svo reyndar líka pylsur, harðfisk og annað góðgæti. 

IMG_9333

Bikarar fyrir sigurvegara voru þarna til staðar.

IMG_9336

Börnin máluð fagurlega.

IMG_9345

Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.  Súgfirðingar hafa alltaf verið skemmtilegt fólk sem hefur gaman að að koma saman og skemmta sér.  Ég man hér í den, þegar ég var í hljómsveitarbransanum, og eins í leiklistinni, að það var alltaf gaman að koma á Suðureyri bæði til að halda böll og svo með leikrit.  En, málið var að það þýddi ekkert að byrja giggið fyrr en um miðnættið, bæði vegna þess að þeir unnu svo lengi fram eftir, og svo að þeir fóru einfaldlega ekki út á lífið fyrr en eftri miðnætti. Það voru partý í heimahúsum, og þeim var ekki rótað fyrr.  Stunum voru böllin frá eitt til sex um morguninn, því þegar þeir loksins komu á böllin, vildu þeir einfaldlega ekki hætta fyrr en í fulla hnefana.  Súgfirðingar eru dásamlegt fólk.

IMG_9347

Þessi unga stúlka er að syngja sæluvikulagið í ár.

IMG_9348

Gríðarlega margt fólk var hér samankomið, bæði súgfirðingar, fólk af fjörðunum í kring, og svo brottfluttir og aðrir gestir.

IMG_9350

Stemningin lá í loftinu, og veðrið var dýrðlegt.

IMG_9353

Þessi unga snót opnaði svo söngvarakeppnina, hún var dálitið feimin, enda erfitt að byrja, og frábært hve margir tóku þátt í keppninni.

IMG_9357

Þessi ungi maður tók Stál og hnífur með stæl.

Hér er verið að keppa um bronsbarka, silfurbarka og gullbarkabikara hvorki meira né minna.

IMG_9358

Það var ellefumanna dómnefnd og áhorfendur fylgdust spenntir með.

IMG_9360

Mér fannst þessi góð, sviðsframkoman hennar var frábær.

IMG_9362

ég held að við séum að horfa á framtíðar performans.

IMG_9363

Ömmur fylgjast vel með afkvæmunum, þegar þau eru að koma fram.  Tounge

IMG_9365

Sól sól skín á mig, söng þessi litla stúlka, og svei mér þá sólin kom fram í smástund.

IMG_9366

Glæsileg ekki satt ?

IMG_9368

Litla Evíta hafði líka gífurlega áhuga á söngvakeppninni ætli hún verði ekki með eftir nokkur ár ?

IMG_9369

Hann er bara þriggja ára, og hann söng Bahama öll erindin, og ég er ekki að ljúga Heart FYndið að heyra þetta litla skott syngja um veistu hve mörgum konum hann hefur sofið hjáLoL ég er enn að brosa.

IMG_9374

Þessar skottur sungu saman.

IMG_9376

Þessi á undan voru Bronsbarkarnir frá 0 upp í tíu, svo komu silfurbarkarnir, frá 11 upp í 15 minnir mig, hér er Sóley Ebba komin, margfaldur sigurvegari, ég held að hún eigi þrjá bikara nú þegar.

IMG_9379

Stubburinn minn tók þátt, hann söng This is my live, og gerði það bara rosalega vel.

IMG_9380

Svo voru það gullbarkarnir,, þessi var flottur á því og tók Queen.

IMG_9382

en þessi unga kona, var aldeilis frábær, þarna stóð hún ólétt eins og ég veit ekki hvað, og söng! Sister, svo frábærlega að ég fékk gæsahúð.  Mikið rosalega var hún flott.

IMG_9384

Það var þröngt setin bekkurin á Suðureyri í dag svomikið er víst.

IMG_9387

Það var keppt í fótbolta, brottfluttar og heimakonur, sleggjukasti kvenna og karla, snúðabökun og ég veit ekki hvað og hvað, gefinn verðlaun fyrir flottasta garðinn og snyrtilegustu eignina. 

IMG_9390

Og stráksi sem söng stál og hníf, varð bronsbarkinn í ár.

IMG_9393

Og Sóley Ebba fékk sinn fjórða bikar, enda flott.

IMG_9395

Gullbarkinn Syster hampaði sínum bikar.

IMG_9400

Þessi unga kona var kjörin bjartasta voninn, og fékk farandbikar; Rabbabikarinn í minnigu Rafns Jónssonar, það er ekkjan hans hér lengst til vinstri sem afhenti hann. 

IMG_9403

Hér er enn og aftur mitt fólk, ég á tvær tengdadætur héðan frá Suðureyri.  Svo fyrir utan góðar minningar fá Suðureyir i denn, kátt er í Kongó og svoleiðis, þá hefur hún öðlast öðruvísi stað í mínu hjarta fyrir utan leikskólann og skotturnar mínar tvær sem þar eru.

IMG_9404

Síðast á dagskránni var að vígja minnismerki súgfiskra sjómannskvenna.

IMG_9405

Eins og hér kemur fram er það hugmynd frá Lilju Rafney.  Frábært framtak, það vill oft gleymast þeir aðiljar sem ekki eru í sviðsljósinu, en taka allan þátt í ævintýrinu.  Vonir ótti, sorgir og tár.  Það vill svo oft gleymast, það sem þykir sjálfsagt, en er það bara alls ekki.

IMG_9406

Hér stendur hún og horfir til hafs, bíður eftir bónda sínum og fyrirvinnu, kemur hann heim í kvöld?

IMG_9408

Hún horfir til hafs bíður og vonar að hann komi heill heim.

IMG_9410

Hér er verið að undirbúa vígsluna, en ég varð að fara heim, til að setja steikina í ofninn, því faðir minn elskurlegur kemur í mat á sunnudögum, og það þarf tíma til að elda læri eins og allar konur vita.

IMG_9411

Lífið gengur sinn vanagang, og þýsku veiðimennirnir koma af hafi, glaðir með feng sinn, en alls utan við gleði og hátíð þorpsbúanna.  Ég vil þakka ykkur kæru Súgfirðingar fyrir frábæran dag, og góða skemmtun.  Það er nauðsynlegt hverju samélagi að eiga svona helgi þar sem allir leggjast á eitt við að gera sér dagamun.  Þið eigið líka gott að eiga ykkur sterka, bæði andlega og fjárhagslega einstaklinga, sem elska samfélagið sitt og leggja sitt af mörkum til að gera þessa Sæluviku svona frábæra eins og hún er.  Það myndi aldrei ganga öðruvísi.  Því segi ég, ekki gleyma að klappa þeim  á bakið sem svo mikið lögðu á sig til að gera þessa hátíð svo glæsilega.  Það þarf ekki að nefna nein nöfn, það vita allir við hverja er átt.  Hafið hjartans þökk fyrir.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Glæsilegt minnismerki

Takk fyrir innsýn á Suðureyri

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.7.2008 kl. 23:33

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Rosalega skemmtileg frásögn, og myndirnar frábærar. - Falleg Minningin til heiðurs Súgfirskum sjómannskonum. - Einhvernveginn finnst mér ég hafa séð teikningu af þessu verki eða mynd áður,  hefur hún hlotið verðlaun fyrir þetta verk áður. - Mér finnst að svona verk, eða þetta verk, eigi að standa í stafni og taka á móti sjómönnum um land allt, um alla framtíð. - Því það sem sjómannskonur hafa þurft að standa fyrir í gegnum árin án þess að nokkur hugsaði út í hvað þær lögðu að mörkum til samfélagsins. - Því finnst mér þessi heiður sem þeim er þarna sýndur fallegra en orð fá lýst.  -  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.7.2008 kl. 23:56

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 00:20

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk fyrir mig,yndisleg að vanda og skemmtilegar myndirnar

knús á þig elskuleg og góða nótt mín kæra

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 14.7.2008 kl. 01:12

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góður þriggja ára kvennabósinn, út af fyrir sig er það afrek hjá svona ungum krakka að læra allan textann hvað þá að syngja þetta allt saman fyrir framan fjölda manns.  Jæja mér hefndist heldur betur fyrir letina á laugardaginn ég varð að vinna eins og andskotinn væri á eftir mér á sunnudeginum og náði ekki alveg að klára, ætti að klára upp úr hálf átta, byrjaði rúmlega fjögur.

Jóhann Elíasson, 14.7.2008 kl. 06:53

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég þarf ekkert að hreyfa mig frá tölvunni, ég fer bara inn á síðuna þína og ferðast með þér í myndum og máli.

Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.7.2008 kl. 09:40

7 Smámynd: G Antonia

Frábærar myndir hjá þér og lesefni eins og ævinlega.....Ég er dolfallin yfir minnismerkinu sem Lilja Rafney hannaði um sjómannskonuna sem bíður ástvinar síns .... ég er nefnilega sjómannskona og hef verið í rúm 27 ár og þekki þessa tilfinningu að bíða!!  Það voru ekki símar eða annað í "den" ... þá var það eina sem hægt var að gera að bíða!.
þær vilja nefnilega svo oft gleymast, þessar sjómannskonur. !!  Frábært framtak húrra fyrir því!!!!! 
Ég segi oft svona í gamni frekar en alvöru ; ég er í sjómannsbandi en ekki hjónabandi, því það er nefnilega mjög ólíkt hjónaband að vera gift sjómanni ... En! aftur flott minnismerki!  knús og kveðjur til þín í Kúluna**

G Antonia, 14.7.2008 kl. 11:14

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Alltaf jafnmikið stuð hjá þér. Gaman að sjá myndirnar þar sem verið er að undirbúa Víking. Fór ekki núna þar sem frændi minn var ekki að keppa.

Helga Magnúsdóttir, 14.7.2008 kl. 11:17

9 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég elska landsbyggðina........Af hverju í ósköpunum er ég þá á malbikinu???? Hér er bara menningarnótt með allt of mikið af fólki. En öll landsbyggðin virðist orðið eiga sínar hátíðir, sína daga. Á Eyrarbakka er það Jónsmessuhátíðin. Ég verð ekki í Reykjavík á næstu Menningarnótt heldur á Eyrarbakka að gifta mig. Knús

Úpps!!! Þetta komment fór óvart á síðustu færslu.

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 14.7.2008 kl. 11:53

10 identicon

Takk fyrir að taka okkur með á Sæluvikuna. Það er alltaf líf og fjör fyrir vestan, fyrir utan að það er alltaf gott veður þar.

Fyndið hvað þetta lag Bahama er vinsælt hjá litlu krökkunum, þau báðu um það sem óskalag í útilegunni hjá minni fjölskyldu og sungu með og virtust öll kunna textann. Verð að viðurkenna að ég heyrði þetta lag í fyrsta skipti þá og það voru svona blendnar tilfinningar um hvort innihald hans ætti erindi við svona ungt fólk

Knús vestur í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 12:08

11 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 14.7.2008 kl. 12:21

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Líf og fjör á landi voru lokka hal og sprund. Á góðum degi með glöðu fólki vil ég vera um stund. 

Knús og takk fyrir allar þessar yndislegu myndir, söngvararnir lofa góðu og kunna sko að standa á sviði 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.7.2008 kl. 13:18

13 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Frábærar myndir og frásögn. Falleg sjómannskonan. Ég er mjög hrifin af þessu framtaki, að heiðra minningu sjómannskvenna. Flottir allir þessu ungu söngvarar.

Knús í kúluna

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 14.7.2008 kl. 13:48

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk og knús á þig líka Sígrún mín.

Takk Ásdís mín, já þau lofa góðu þessir krakkar, og gott fyrir þau að fá að spreyta sig.

Knús á þig líka Helga mín.

Já Bahamalagið hefur slegið í gegn.  Enda tóku margir undir með litla manninum, þegar hann söng Bahama EÓ Bahama EÓ hehehehehe. Knús á þig líka Kidda mín.

Elín mín, frábært, gaman að heyra það elskulegust.  Já það verður örugglega gott að gefast sínum ástvini á Eyrarbakka

Skil þig Helga mín, maður fylgir nú sínu liði ekki satt

G.Antonía mín, ég er viss um að Lilja Rafney verður glöð að fá viðbrögð ykkar við þessu.  Já þetta er sannarlega frábært framtak, og hennar styrkur að bæði láta sér detta þetta í hug, og svo framkvæma hugmyndina, því það vill oft brenna við að fólk láti hugmyndina nægja.  En ekki hún Lilja Rafney.

Mín er ánægjan af félagskapnum Jenný mín, svo sannarlega

Æ Jóhann minn, það var leitt að þú skyldir þurfa að vinna svona mikið.  En það er víst einhvernveginn svoleiðis að hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér, og ef maður leyfir sér leti einn daginn, þá kemur það niður á þeim næsta.  En ég er viss um að laugardagurinn var aldeilis frábær hjá þér

Knús á þig líka Linda mín.

Knús Hrönn mín

Takk fyrir það Lilja mín, og ég er sammála þér í því, að konurnar fóru einhvern veginn og lágu milli hluta.  Það var alltaf talað um hetjur hafsins, og svo framvegis, og ekki ætla ég mér að gera lítið úr þeim.   En þær eru ekki síður hetjur konurnar, því það liggur á þeirra herðum að halda heimilinu saman, plús að hafa áhyggjur af velferð manna sinna ef veður eru válynd.  Þetta er því frábært framtak.

Knús á þig Hulda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.7.2008 kl. 19:56

15 Smámynd: Laufey B Waage

Hittirðu Mallý systur mína (eða mannstu kannski ekki eftir henni)? Hörður maðurinn hennar er frá Suðureyri. Þetta er ömmustelpan þeirra, glæsilega söngstúlkan á bleiku peysunni og síða pilsinu, með ljósa síða hárið.

Laufey B Waage, 15.7.2008 kl. 09:12

16 Smámynd: Lilja Einarsdóttir

Takk fyrir frábærar myndir og fréttir af Sæluhelginni.  Þær sýna vel hversu skemmtileg stemmingin var og hvernig fólk lét veðrið ekki trufla sig heldur söng bara inn sólina.  Ein lítil athugasemd um næst síðustu myndina... þar er verið að undirbúa slúttið á Sælu, þar sem kveikt er á blysum (21 í þetta sinn) á sama tíma og þau látin "brenna út" hátíðina.  Mjög mikil stemming sem fylgir því og synd að þú hafir ekki náð að sjá það... 

Takk takk aftur

Lilja Einarsdóttir, 15.7.2008 kl. 20:02

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Laufey mín, nei eg man ekki eftir henni, en þessi stelpa var svo sannarlega athygliverð, flott og söng vel.  Það er gaman að hvað þau eru klár og yndisleg.

Takk fyrir þessar upplýsingar Lilja mín.  Ég hefði sko örugglega verið lengur, ef ég hefði ekki þurft að fara heim að elda, reyndar varð maturinn ekki tilbúinn fyrr en hálf níu, því ég kom svo seint heim.  En eins og pabbi gamli sagði; ég hef nægan tíma.   Þið eruð frábær.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband