13.7.2008 | 11:37
Sunnudagsmorgun í kúlu.
Yndislegur kyrrlátur fallegur sunnudagsmorgun. Hreinn og tær eftir rigningu gærdagsins og næturinnar.
Ég en í kotinu, því afi skutlaði Úlfinum til Suðureyrar á æfingu, nú á að taka þátt í söngvarakeppninni, hann er búin að vera að æfa sig og æfa sig í allan gær og fyrradag. Vonandi gengur honum vel.
Það er auðvitað logn. Og ég er viss um að sólin brýst fram um hádegið.
Vitiði nú hvað. Mér finnst það algjör forréttindi að hafa pollinn svona dag eftir dag, eins og eitt stórt málverk. Hugsið ykkur, það er engin myndlistarsýning sem toppar þetta.
Það sést líka vel hve úthaginn hefur grænkað í úrkomunni undanfarið. Allt svo hreint og fallegt, og mikill friður.
Alveg einstakt að mínu mati. Ég er reyndar búinn að fara upp á lóð og taka upp plöntur fyrir bæjarstjórann. Hann er að fara að planta út í dag blessaður með sinni konu. Það er ekkert uppbyggilegra fyrir samlíf en einmitt það.
Hér sést vel hve allt hefur grænkað, og sennilega verður mikil berjatekja í ár.
Hehehe ég stend á sama blettinum og sný mér bara í ýmsar áttir.
Á svona morgni er svo gott að vera til. Allt hjálpast að að setja frið í sálina, fuglasöngurinn, kyrrðin og maður heyrir plönturnar stynja af vellíðan vegna rakans. Fjrðurinn glitrar af spegilmynd fjallanna.
Hélurifsið brosir við manni.
Fjólurnar hafa greinilega stundað stóðlíf hehehehe.
Vestmanneyjabaldusbráin skartar sínu fegursta. Mér þykir vænt um hana, eins og alla vini mína hér frá eyjunni grænu.
Én í þessu heyri ég að krúttmolinn minn Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra eru að koma inn úr dyrunum. Það þarf að gefa kaffi, og jafnvel einhvern morgunmat. Sé ykkur. Eigið góðan dag, og vonandi jafn fallegan og yndælan og þessi sem hér er.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 13.7.2008 kl. 11:56
Rigningin er góð og nauðsynleg bæði til að vökva og hreinsa. Hérna rignir enn svo að ekki verður farið út í garð að vinna í dag.
Spegilsléttur fjörður er alltaf jafn yndilegt að horfa á, aldrei hægt að verða leiður á þeirri sjón.
Knús í kúluna
Kidda (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 12:52
Já fegurðin í logninu og meðfylgjandi spegilmynd á pollinum er eitt af því fáa sem ég sakna frá Ísafirði.
Laufey B Waage, 13.7.2008 kl. 15:18
Það er eitthvað svo mikið leyndó í logninu
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 13.7.2008 kl. 15:59
Hreint yndislegar myndir.
hér er rok og rigning.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 16:16
Núna ætla ég að segja þér þrennt mín kæra.
Nr 1. Þú hefur örugglega ekki hugmynd um hversu oft það hefur fullkomnað daginn minn að lesa bloggið þitt+ skoða myndirnar
Nr 2. Það sem ég elska mest við þig og þína, myndirnar og bloggið er hvað það er mikill friður yfir ykkur öllum og kærleikur
Nr 3. Þú lætur heimilislíf, uppeldi, matargerð og önnur heimilisstörf verða svo einföld að þegar ég er búin að skoða bloggið þitt þá verð ég alveg trallandi glöð og það liggur við að ég syngi ;Ég er að þrífa klósett tralalala....;
Þú ert blessun inn í líf mitt. Þúsund þakkir og risaknús í kúlu, sem ég hlakka svo til að fá mér kaffisopa í einhvern daginn. Ég skal láta verða að því

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 13.7.2008 kl. 16:49
Alltaf jafn fallegar myndirnar thinar
Ásta Björk Solis, 13.7.2008 kl. 16:59
Knús Jenný mín
Knús á þig líka Kidda mín.
Eitt af því fáa mín elskulega Laufey ?
Og ég sem hélt að við værum svo frábær. 
Huldan góða, já það er dulmagnað stundum á morgnana og á kvöldin, þetta logn, þegar manni finnst eins og allt sé á innsogi, því ekkert haggast, það er stundum alveg ótrúleg upplifun.
Elín mín, þú hefur glatt mig rosalega með þessu innleggi. Ég held að ég lifi á því alla vega í viku, og örugglega lengur.
Innilega takk fyrir þessa færslu, og knús á þig. Endilega kíktu í kaffi þegar þú ert á ferðinni hér. 
Takk Ásta Björk mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2008 kl. 19:12
Takk kærlega fyrir þessar myndir yndislega Ásthildur mín!
Tiger, 13.7.2008 kl. 19:58
Risa knús á þig þú STÓRKOSTLEGA kona
Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 20:00
Takk TíCí minn. Þetta er svo sannarlega tilkomumikið
Og mín heppni að vera einmitt hér á þessum stað til að geta miðlað fegurðinni 
Takk og þúsund kossar og knús Elísabet mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2008 kl. 21:44
Já, ég meðvirknast með í því að dittóa á allt ofangreint.
Steingrímur Helgason, 13.7.2008 kl. 22:24
Það er engin kúluskítur hjá þér mín kæra.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 13.7.2008 kl. 22:58
HEhehe takk Steingrímur minn
Nei ekki skúluskítur, hver fann eiginlega upp þetta fáránlega nafn. En kúla er það samt og græn eru hún, þó ekki þaragræn,
Knús á þig líka minn kæri 
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2008 kl. 23:34
Ég elska landsbyggðina........Af hverju í ósköpunum er ég þá á malbikinu???? Hér er bara menningarnótt með allt of mikið af fólki. En öll landsbyggðin virðist orðið eiga sínar hátíðir, sína daga. Á Eyrarbakka er það Jónsmessuhátíðin. Ég verð ekki í Reykjavík á næstu Menningarnótt heldur á Eyrarbakka að gifta mig. Knús
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 14.7.2008 kl. 11:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.