Rólegheit hjá kúlubúum.

Dagurinn í dag hefur verið rólegur hjá mér.  Algjör afslöppun, ósköp notalegt.  kl. eitt þarf ég að fara upp á lóð, ef einvher skyldi líta inn til að kaupa sér plöntur. 

Loksins kom rigninginn.  Það var þungbúið í gær, en hún lét á sér standa.  Nú vökvast alt og það eykur á mína vellíðan. 

IMG_9262

Sigurjón Dagur og Ólöf Dagmar litu við hjá ömmu í gær.  Það gengur vel með sýninguna hans Júlla, hún stendur til 4 ágúst.  Og hann er að betrumbæta aðstöðu sína tól og tæki, fyrir næstu sýningu. Þetta er bara gott mál.

IMG_9265

Hann Sigurjón var náttúrulega búin að bleyta sig, með því að vaða í sjónum.

IMG_9264

Ömmurúsína, ef hann hverfur þá byrja ég að leita að honum hjá Hrönn LoL

IMG_9260

Vinir, saman í haga.

IMG_9267

Og þungbúin Ísafjörður.  Samt alltaf jafn magnaður.

IMG_9268

Alejandra og Eva Rut eru svo í heimsókn hjá Úlfinum núna.  Jamm, rólegheit, afslöppun alveg eftir bókinni eins og þið sögðuð mér að gera Tounge Hlaða batteríin, og bara vera það er líka gott.

Eigið góðan laugardag öll sömul. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Njóttu kyrðarinnar  og þess að láta rigninguna vökva fyrir þig

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 12.7.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hulda mín.  Það er sannarlega notalegt

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 13:08

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Hér var líka hellings demba í morgunn en byrjað að þorna. Við aftur á móti erum búin að fá helling af rigningu og nú væri flott að fá sól. Þú hlýtur að vera byrjuð að sakna stelpnanna og fjörsins með þeim.

Njóttu rólegheitanna.

Guð blessi ykkur

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.7.2008 kl. 13:14

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Rósa mín, ég sakna þeirra reyndar alveg heilmikið.   en á meðan nýt ég þess að slaka dálítið á.  Vonandi færðu sól mín kæra.  Hér er líka hætt að rigna, stóð ekki lengi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 13:34

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rigningin er svo sannarlega góð.  Njóttu dagsins elsku Ásthildur. 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.7.2008 kl. 14:24

6 Smámynd: Tiger

Já elsku Ásthildur mín, loks kom rigningin - líka á höfuðborgarsvæðinu. Ég er búinn að þrá alveg bleytuna, enda gróðurinn alls staðar alveg steindauður af þurrki.

Það er gott að vita til þess að þú eigir örlítið rólegri stundir núna, þú átt það svo sannarlega skilið mín elskulegasta!

Frábærar myndir hjá þér eins og ætíð, takk fyrir þær ljúfust.

Hlýjar kveðjur að sunnan yfir í Vestfjarðaríki!

Tiger, 12.7.2008 kl. 15:02

7 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Rigning er góð . Ilmurinn af gróðrinum berst að vitum okkar, allur gróður nýtur hennar og reisir sig. Allt verður svo hreint og tært. Njóttu helgarinnar mín kæra.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.7.2008 kl. 15:05

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Núna rignir sko heldur hressilega, á maður ekki að segja þá að þetta sé gott fyrir gróðurinn?  Er það veðrið eða eitthvað annað ég er alveg að drepast úr leti, nenni ekki að gera nokkurn skapaðan hlut og ég sem ætlaði að gera svo mikið um helgina.

Jóhann Elíasson, 12.7.2008 kl. 15:27

9 Smámynd: Lena pena

Njóttu helgarinnar

Lena pena, 12.7.2008 kl. 15:56

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.7.2008 kl. 16:02

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sömuleiðis Ásdís mín

Það er gott að þið fenguð líka smá vökvun þarna fyrir sunnan.  Þetta er nauðsynlegt fyrir gróðrinn TíCí minn.  Og takk fyrir að senda þetta yndislega fólk til mín.  VIð erum sko búin að skemmta okkur vel saman og hlæja mikið.

Já einmitt Ólöf mín, allt verður svo hreint og tært og ilmar af sumrinu. Sömuleiðis knús til þín

Það er örugglega veðrið Jóhann minn, þegar regnið streymir niður, og maður hefur notalegt húsaskjól, þá á maður að njóta þess að vera til og liggja í leti.  Knús á þig.  Maður þarf að læra að leyfa sér að vera latur.

Sömuleiðis Lenapena mín.

Knús á þig Jóhanna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 18:03

12 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Yndislegar og afslappaðar myndir, mikið er litli prinsinn með koparlituðu lokkanna fallegur, ekki bara að hann hafi fallegt hár og fallegan háralit, heldur er hann með svona geislandi falleg augu og bros í stíl. - Sigurjón Dagur falleg nöfn á fallegum dreng, svo er hún sysir hans líka voða falleg.  - Að ég tali nú ekki um Úlfinn þinn, er hann enn í Karate ?  Eða var það "Tai kwon doe" ? - En hvað það er gott að heyra að þú fáir örlítinn tíma til að slappa af í dag, ég vona að þú hafir getað notið þess í botn, mín kæra.  -

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 12.7.2008 kl. 20:09

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tai Kwon doe er það mín kæra.  Takk fyrir hlý orð.  Sigurjón Dagur er lítill skæruliði, en alveg yndislegt barn.  Mamma hans veit bara ekki af því

Já ég er að slaka á, það er rigning, og við grilluðum hálfan hrygg, nutum hans í botn, en fyrr í dag kíkti mamma hans TíCí við bróðir hans og unnusta hans, sem reyndar er stórfrænka mín, og svo er líka um Tigercopper.  Það var mikið gaman og mikið hlegið.  Og svo eftir matinn var kom Guðjón Arnar inn úr dyrunum, eins og hann gerir svo oft, þegar hann er á ferðinni.  Og alþingismenn eru sko oft á ferðinni í sínum kjördæmum, sér í lagi Addi Kitta Gau, fermingarbróðir og nágranni frá barnæsku.  Annars allt í róleg heitum á vesturvígstöðvunum.  Knús á þig elskuleg

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 20:34

14 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Sigurjón litli þinn á eftir að bræða mörg hjörtun með augunum sínum

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 12.7.2008 kl. 20:55

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir myndirnar og hvenær koma hinir tveir krúttmolarnir heim?

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2008 kl. 20:57

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hulda mín, já ég er einmitt viss um það.  Og þá verður amma ef til vill ekki þar til að hugga brostin kvenhjörtu Vona bara að mér takist ásamt móður hans og yndislegum föður að búa hann undir það að kærleikurinn, kurteisin og væntumþykjan sé sterkasta aflið fyrir alla.

Elsku Jenný mín, ég veit það ekki.  Dóttir mín er búin að fá verkefni hjá einhverjum auðjöfri amerískum, sem á merar hér, til að skoða þær og fylgjast með í einhvern tíma hmpr... það er alltaf þessi ameríska innrás allstaðar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 22:38

17 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Kærleikur til Ísafjarðar Cesil mín

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.7.2008 kl. 02:58

18 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Finnur hann pottþétt hjá mér! Barnið er eins og klippt út úr krútti! Ég steinligg fyrir honum

Hrönn Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 09:41

19 Smámynd: Huld S. Ringsted

Hann er nú meiri krúttmolinn þessi drengur Eigðu góðan sunnudag Ásthildur

Huld S. Ringsted, 13.7.2008 kl. 10:05

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Gmaría mín.

Hehehe Hrönn mín, ég veit, hann er algjör litla skottið. 

Takk sömuleiðis Huld mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2008 kl. 10:19

21 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

alltaf jafn huggulegt, við jóna ingibjörg spjölluðum um þig í fyrrakvöld, hehehhe

knús

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.7.2008 kl. 10:49

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Aha nú verður maður forvitinn hehehe... annars þið eruð báðar svo yndælar, að það hefur verið eitthvað uppbyggilegt og fallegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2008 kl. 11:24

23 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Auðvitað var það Tai kwon doe sem Úlfssnáðinn er að æfa, og syngur hann svo líka ?., mikið er það gaman. - Vonandi gengur honum vel. -

 Sjarmurinn Sigurjón Dagur hefur vakið verðskuldaða athygli hér, það skil ég vel, og hann á áreiðanlega eftir að vekja enn meiri athygli síðar, syngur hann ekki líka. - Það er svo góð útrás í söng, - sérstaklega fyrir litla skæruliða, senda þá í söng og dans..

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 13.7.2008 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband