10.7.2008 | 23:02
Daglegt veður á Ísó og ýmislegt.
Sólin braust fram í dag, en í morgun var þokan niður undir jörðina.
Samt svolíltið rómó.
Og gömlu bátarnir kúrðu svo friðsælir í logninu í höfninni.
Þetta er svona sjokkaðvörun fyrir þá sem koma heim í sumar, og vita ekki neitt, en hér er risinn glæsibygging við hliðina á gömlu Björnsbúð, sem núna er dótabúð.
Og til að glöggva sig ennbetur, þá sést hér í gamla barnaskólann, heheheh.
En pápi minn elskulegur verður níræður í byrjun ágúst, og ég á að sjá um skemmtiatriðin, svo mér datt í hug að heimsækja nýja hafnarstjórann í Bolungarvík til að vita hvort hann væri til í smá gig, en svei mér þá, verslunarmannahelginn er eina helgin sem þessi piltur ætlar sér að vera burtu, nánar til tekið á Austfjörðum, svo það gekk ekki upp. En þetta er sum sé nýji hafnarstjórinn í Bolungarvík.
Sjáið bara hrikalega fegurð Bolungarvíkur.
en þar sem ég ók inn Seljalandsveginn, þá byrjaði að rofa til, þessi mynd sýnir birtuna vel.
Og loks hafði sólin betur í baráttunni við mistrið, og skein á rangláta og réttláta, eins og hún hefði aldrei gert neitt annað.
Ef þið viljið blóm, sem er bæði harðgert og duglegt, getur bæði verið í bleytu og þurrki, þá er þetta plantan sem þið viljið. Apablómið stórkostlega, sem breiðir sig út yfir heilu skurðina, en getur alveg eins staðið og blómstrað, norðanundir vegg, í þurrki, þá hafði þið það hér minulus frábær harðgerð planta sem þolir nánast hvað sem er, og svo er hún líka svo dómdags falleg.
Og ísafjarðarbörnin á kajaknámskeiði. Það skortir ekki verkefni fyrir börnin okkar hér, það er öruggt mál.
Þessi fallega sýrena, sem líklega er fagursýrena Bogarsýrena, blómstarði og brosti við mér niður í Kínahverfi, sem svo er kallað hér.
Þau eru búnir að vera þvílíkir vinir í fleiri daga, Sóley Ebba og Úlfur hér í kúlu, en í kvöld fengu þau að sofa í tjaldi hjá Ólöf Dagmar.
En í kvöld átum við Hrefnuket. Ég get alveg sagt ykkur það, að réttmeöhöndlað hrefnuket er BETRA en nautakjöt. Ég keypti marinerað hrefnuket í Samkaup, og steikti það samkvæmt ráðleggingum Magga Hauks, súperkokks, steikt í smjöri, það verður ekki gefið upp nánar hér, nema eftir sé leitað, og soðnar kartöflur, með sultu. Algjört sælgæti. Allir tóku vel til matarins, og hrefnan var uppétin á nóinu. Reynið sjálf, passið bara að steikja hana ekki lengur en 2-3 mín. á velheitri pönnu, og hún bráðnar upp í ykkur..... nammi namm.
Meiri háttar steik.
Hér er kvöldmynd, þar sem sólin hefur unnið sigur á mistrinu. Æ það er bara yndælt.
Og börnin að fara að heiman Til að sofa í tjaldi, með allar sínar græjur í kerrunni hennar Ásthildar. Svo við erum ein í kotinu. Það er auðvitað bara notalegt, en samtvantar eitthvað. Ég segi bara góða nótt elskurnar mínar og takk fyrir öll fallegu komentinn ykkar. Ég nýt þeirra í botn, nota mér þau mér til sáluhjálpar, og geymi þau í hjartanu, og læt þau ylja mér endalaust gegnum daginn og kvöldið. Ég held að þið áttið ykkur ekki einu sinni á hve gefandi þið eruð, með svörum ykkar. Það er bara þannig. Knús á ykkur. Og Sigrún mín, það var rosalega gaman að hitta þig í dag, og ég vona að þú gefir þér tíma til að koma við, og þiggja kaffi eða eitthvað. Knús á þig mín kæra.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svakalega flottar fyrstu tvær myndirnar..........
Hrönn Sigurðardóttir, 10.7.2008 kl. 23:20
.....og knúsaðu Sigrúnu frá mér! Hún er meiriháttar
Hrönn Sigurðardóttir, 10.7.2008 kl. 23:22
Og þið hjónakornin þá bara ein í kotinu? Sæt litlu krílin að fara að tjalda með dótið í kerrunni, skemmtileg mynd. - En ég er nú kannski hlutdræg, en mér finnst nýji Hafnarstjórinn flottur, ég þekki nú nokkra hafnarstjóra hér á Faxaflóasvæðinu, og hér í Reyjavík, og nú sé ég ansi kunnuglegt blik í auga nýja hafnarstjórans í Bolungarvík, sá er flottur, bið alveg rosalega vel að heilsa honum, frúnni hans og fjöskyldu allri.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 23:24
Krakkarnir eru svo kát og glöð á myndinni. Greinilega skemmtilegt að skreppa í "útilegu" og bralla eitthvað
Ég hef einu sinni smakkað hrefnukjöt og þótti það gott. Takk fyrir apablóma-hugmyndina, ég ætla að segja mömmu frá henni. Öll sumarblómin hennar í sumarhúsinu voru gjörsamlega skrælnuð og horfin eftir tvær vikur í burtu 
Eigið ljúft kvöldið hjónakornin
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.7.2008 kl. 23:33
Hafnarstjórinn.
Var þetta ekki hann Pálmi Gunnarsson, úr Spaugstofunni?
Sigurður Þórðarson, 11.7.2008 kl. 00:13
Sæl Cesil.
Frábærar myndir og gaman að sjá hinn annars mikla ofurspaugara sem hafnarstjóra í Bolungarvík.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 11.7.2008 kl. 00:50
alltaf fallegar myndir á blogginu þínu.......takk fyrir að deila þeim... knús og kvitt
G Antonia, 11.7.2008 kl. 03:00
flottar myndir að vanda, átti ekki orð þegar ég sá sírenurunna, garðurinn minn er fullur af honum. ég vissi bara ekki að það væru svona runnar á íslandi.
knús á frúnna
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.7.2008 kl. 07:46
Gott að fá aðvörun um hús sem spretta upp allt í einu. Legg af stað eftir hádegið og samkvæmt veðurspá kem ég líklega með rigninguna með mér. Veit að bændur í Djúpi gleðjast við hana og kannski þú, en vona að ég fái minnsta kosti einn-tvo bjarta daga svo ég sjái fjörðinn minn í réttu ljósi.
. Sjáumst 


Dísa (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 07:57
Ég mun gleðjast yfir rigningunni Dísa mín, ég er vaðandi með slöngur út um allt, til að vökva.
Það verður gaman að hitta þig. 
Fagursírenan þrífst vel hér fyrir vestan og blómstrar árvisst Steinunn mín. Reyndar eru gljásýrenurnar mínar og dúnsýrenurnar farnar að blómstra líka, þær byrja ekki fyrr en eftir langan tíma, þær eru orðnar gamlar hjá mér þessar elskur.
Takk G.Antonía mín. Og knús á þig.
G.María mín Pálmi er einstaklega ljúfur og góður drengur, hann var að hjálpa mömmu sinni að búa til sólpall sýndist mér.
Jú nákvæmlega Siggi minn, hann verður hafnarstjóri í Bolungarvík í sumar.
Sigrún mín, ég þarf að segja henni mömmu þinni frá vatnskristölunum. Waterworks, maður setur það í bottana og beðin, kristalarnir geyma í sér vatn, og miðla því svo til plantnanna, þegar moldin verður of þurr. Upplagt að nota þá, þegar fólk ætlar sér í frí. Má líka setja í stofublómapottana. Þetta eru korn, eins og gróft salt, og hvert og eitt korn stækkar fimmhundruðfalt, svo maður verður að láta þá sjúga í sig vatnið áður en maður setur þá í moldina. Þeir fást allavega í Garðheimum, og örugglega á flestum stöðum, sem selja blóm og runna. Þetta er algjört undraefni.
Lilja mín, ef ég hitti þennan flotta hafnarstjóra aftur skal ég skila kveðjunni þinni.
Já við vorum ein í kotinu í gærkvöldi og nótt. Það gerist ekki oft. En getur líka verið notalegt. 
Takk Hrön mín, já ég skal skila hveðju til Sígrúnar. Ég á von á að hún kíki við hjá mér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2008 kl. 08:51
Flottar myndir enn einu sinni, alltaf meiriháttar að fara inn á síðuna þína. Ég er sko alveg sammála þér með það að hrefnukjötið er eitthvað það albesta sem maður fær, annars fékk ég saltað hrefnuspik hjá Hrefnu-Konna og það er eitthvað það albesta sem ég hef smakkað.
Jóhann Elíasson, 11.7.2008 kl. 09:11
Takk Jóhann minn. Já hrefnan er ótrúlega bragðgóð, ég hef ekki smakkað saltað hrefnuspik, en get alveg ímyndað mér að það sé gott. Þarf að fá að smakka hjá Konna.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2008 kl. 10:35
Takk fyrir góð ráð. Ég er búin að láta mömmu vita og þetta verður græjað
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 11.7.2008 kl. 11:33
Hún á ekki eftir að sjá eftir því Sigrún mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.7.2008 kl. 12:37
Sæl Ásthildur mín.
Mér fannst merkilegast við þessa færslu þína að í stað míns gamla heimilis míns er kominn kassi stór og ljótur
milli Björnsbúðar og Barnaskólans.
Svona gerast hlutirnir! Og minningarnar á fullu !.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 04:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.