9.7.2008 | 20:57
Dagar vonar.
Ég var að lesa í dagbókinni 2008, en það eru málshættir neðst á hverri síðu. Dagurinn í gær var dálítið táknrænn því þar stóð;
Leitaðu ekki hættunnar, svo að þú farist ekki í henni, en gakk hugaður á móti henni, þegar þú getur ekki flúið hana. þetta er frábær tilvísun í Júlla minn.
Og í dag er þessi frasi; Móðir er barni best.
En það hefur verið þoka í dag og fremur kalt. En mér sýnist vera að létta til. Samt var svo sem ágætt fyrir mig að hafa ekki of mikla sól í dag, ég var allan daginn að burðast með vatnsslöngur, til að gefa blómunum að drekka. Og er því töluvert þreytt, eins og venjulega á þessum tíma reyndar.
En hér eru smá krúttmyndir, það fór aldrei svo að ég fengi ekki litla skottu i heimsókn, reyndar er Sóley Ebba og Úlfur búin að vera hér í tvo daga, eða Sóley að leika við Úlfinn. En Evíta litla kom í dag, og það var notalegt að heyra ungbarnahjal. Reyndar sakna ég telpnanna mikið.
Halló amma ég er að koma!!!
Ég þarf reyndar ennþá að skríða upp tröppur og stiga.
Jæja þá getur maður aðeins stoppað og pósað fyrir ömmu.
Úbbs, dálítið völt
Best að fara bara að vökva.
Hjartanlega takk fyrir mig og Júlla minn, það hefur svo sannarlega yljað mér fallegu hlýju orðin ykkar og góður hugur. Það skilar sér áfram til hans. Bestu kveðjur og knús inn í nóttina.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með Júllann þinn í gær
Þú hefur fengið þokuna sem hefur marað hér hjá okkur í tvo daga, en hún yfirgaf okkur í dag
Orkuknús til þín
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 9.7.2008 kl. 21:56
Algjört krútt! og hrikaleg "dama" í gallapilsinu sínu

Huld S. Ringsted, 9.7.2008 kl. 22:08
Sæt lítil snúlla mér finnst fátt leiðinlegra en þoka
Eyrún Gísladóttir, 9.7.2008 kl. 22:41
Falleg snúlla elsku Ásthildur mín nú er maðurinn minn staddur í þínum heima bæ Ísafirði með erlenda gesti á hótel Ísfjörður. Hann veit hver þú ert, hann sagði að þið hafið verið saman á leiklistar námskeiði í Danaveldi getur það verið rétt.???? knús á þig
Kristín Katla Árnadóttir, 9.7.2008 kl. 23:09
Krúttmoli
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.7.2008 kl. 23:35
Yndislegar myndir að vanda hjá þér elsku Ásthildur mín, þú ert einstök hlý og góð og gefur hlýja strauma frá þér
elsku Ljúfust
takk fyrir mig,mín kæra og knús inn í nóttina góðu
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 10.7.2008 kl. 00:04
þvílík Dúlla sú litla knús inn í nóttina Elskuleg
Brynja skordal, 10.7.2008 kl. 00:22
Magnaðir málshættir. Eiga sannarlega við. Falleg litla krúttírúsínan. Hafðu góðan dag mín kæra
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 10.7.2008 kl. 11:51
Sæt stelpa sem þú átt þarna. Vonandi rignir bara í nótt á meðan þú sefur svo þú losnir við riginguna en þurfir samt ekkert að vökva.
Helga Magnúsdóttir, 10.7.2008 kl. 12:51
Yndislegar myndir mín ljúfasta Ásthildur, eigðu dásamlegan dag!
Tiger, 10.7.2008 kl. 16:26
Dásamlega falleg litla ömmustelpan þín. - Skil vel að þú saknir systranna, þetta eru mikil viðbrigði. En þær koma fljótt aftur er það ekki?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 10.7.2008 kl. 20:03
Jú einmitt Lilja mín, mamma þeirra kom með Norrænu upp í dag, er svo sennilega komin til þeirra í kvöld og kemur vændanlega eftir helgi hingað heim, með litlu dúllurnar hennar ömmu sinnar
Ég væri alveg til að vera mamma þí TíCí minn, jafnyndæll og þú ert, og jafnvel amma því ef því væri að skipta knús á þig ljúflingur
Takk Helga mín, já mikið væri það gott ef það rigndi bara í nótt, og svo sól aftur á morgun. Knús á þig
Takk mín elskulega Sigrún, knús á þig líka.
Knús á þig líka Brynja mín
Knúsíknús elsku Linda mín
Knús Jenný mín.
Katla mín, vonandi hefur hann samband. Ég var á ótal námskeiðum hér áður og fyrr, bæði í Svíþjóð, (Gotlandi), Noregi Tromsö, Finnlandi og svo Danmörku. Það var frábær tími, hvað heitir þinn elskulegi eiginmaður ? Við höfum örugglega verið saman á námskeiði fyrst hann segir það
Tall Guðlaug mín
Já Eyrún mín, þoka er BARA leiðinsleg sko !
Huld hún er þvílíkt krútt í þessu pilsi

Takk Hulda mín, já sem betur fer hafði sólin betur í dag. En þessi þoka er leiðinleg og köld. Knús á þig
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.7.2008 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.