Dagurinn í dag.

Var einkar gleðilegur fyrir mig, fyrir margra hluta sakir.  Fyrir nákvæmlega í dag fyrir 38 árum fæddist mér sonur númer tvö.  Hann var baldinn í skóla, þurfti mikla athygli og átti oft í erfiðleikum vegna þess að hann var álitinn svo óþekkur.  Ég hygg að í dag væri hann talinn með athyglisbrest og hefði örugglega verið settur á rítalín.  Skólastjórinn og flestir kennararnir stóðust ekki prófið um að hlú að nemenda sínum.  En aldrei klagaði minn drengur þá fyrir illa meðferð.  Það var ekki fyrr en foreldrar annara barna fóru að segja mér frá því hvernig hann væri meöhöndlaður í skólanum, af skólastjóra og ýmsum öðrum kennurum, þegar öðrum börnum var farið að ofbjóða, að mér varð ljóst að sonur minn átti við erfiðleika að etja.  Enda lauk hans skólavist í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði með brottrekstri, sem í raun og veru átti ekki að vera hægt.  Ég sendi hann svo í skóla á Klúku í Bjarnarfirði, þar sem hann átti skemmtilega og góða daga í grunnskólanum þar.  Það sama var uppi á tengingnum í Gagnfræðaskólanum.  Það endaði á því að hann fór í Laugaskóla, þar sem hann hreinlega blómstraði.  Hann hefur átt í allskonar erfiðleikum þessi drengur minn.  Og m.a. orðið fyrir allskonar niðurlægingu af mörgum, alls ekki öllum.  En sér í lagi sýslumanni sem hér var, og þegar ég dey, ætla ég að biðja þennan gráhærða skeggjaða þarna uppi um að gera mér þann greiða að koma því svoleiðis fyrir að slík fyrirbæri komist aldrei í aðstöðu til að deila og drottna yfir brotnu fólki.  Þó er þetta freak enn að, bara annarsstaðar sem betur fer.  Ég get sagt ykkur það, að á tímabili var ég eina manneskjan í heiminum, sem trúði á þennan dreng. Og fékk skammir frá mörgum, m.a. mér nánum, fyrir að gera sjálfri mér það að halda í vonina um að hann næði einhverntíman áttum.

Ég er ekki að segja þetta fólkinu til lasts, það meinti vel.  Ég er að segja þetta fyrir þá sem eru í sömu sporum og ég var þá.  Það er ENGINN VONLAUS, og það er alltaf til von um bata, ef kærleikur er til staðar. 

Þess vegna er þessi dagur svo mikilvægur bæði fyrir hann og mig.  Dagurinn hans.  'Eg er ennþá meö kökkin í hálsinum af þakklæti, til þeirra sem stuðluðu að þessari sýningu, og svo vegna hans sjálfs, sem hefur sýnt hve frábær hann er, og líka systur minnar sem gaf honum tæki og tól til að skapa það sem hann hefur gert.

IMG_9158

Komið að þessu minnsta galleríi á Íslandi, og þótt víðar væri leitað.  Reyndar sagði eigandinn að hún gæti ekki kallað þetta gallerí, en ég geri það samt.

IMG_9160

Og rosalega vel við hæfi að það skyldu einmitt vera fiskar hér á annari sýningu þessa gallerís.

IMG_9168

Hér er hann að bæta einum fiski við, hval sem trónir yfir fiskunum.

IMG_9179

Hér eru svona hitaplattar fyrir potta og pönnur á borði.  Sannarlega flott gjöf.

IMG_9181

Hér getur hver panta sinn fisk.

IMG_9185

Galleríis eigandinn Lisbet. 

IMG_9188

Pabbastubbur var auðvitað með til að halda upp á daginn með pabba sínum.

IMG_9192

Júlli minn með drengina sína báða.

IMG_9206

Þetta er hápólitísk sýning sagði safnvörðurinn, þegar hann afhenti þeim báðum blómvendi.  Fyrsta sýning Fiskabúrsins var með lifandi fiskum, sem dóu einn af öðrum, og svo var komið að einungis lifðu steinfiskar, sem þó eru ef til vill meira lifandi en venjulegir fiskar.  Þetta er kvótakerfið í hnotskurn.

IMG_9214

Listamaðurinn og galleríeigandinn með blómvendina sína.  Þau eru tvær hæfileikaríkar manneskjur sem eru ekki sporgöngufólk, heldur halda ótrauð á ótroðnar slóðir.  Tvær yndælar manneskjur, sem við hin mættum læra mikið af. 

Innilega til hamingju bæði tvö, með það sem þið eruð að byrja með.  Megi gæfan fylgja ykkur báðum, og lyfta ykkur þangað sem þið eigið skilið.

IMG_9216

Bræður í léttum leik.

Ég er stolt af öllum mínum börnum.  Og ég hef reynt að innprenta þeim kurteisi, kærleika og að umgangast allt með virðingu, bæði menn, dýr og plöntur.  Í dag var einn áfangasigur á þeirri braut, með ungann minn, sem ég hef þurft að leggja hvað mesta vinnu í.  Og ég er full af þakklæti, til hans, og til þeirra sem komu í dag til að heiðra hann, og allra þeirra sem gerðu þennan dag mögulegan.  Vini hans, sem hafa hjálpað honum gegnum svo margt.  Þarf ekki að nefna nein nöfn, þeir vita við hverja ég á. Hvar værum við stödd í lífinu, ef við ættum ekki góða vini, sem væru til gegnum súrt og sætt, og ættingja sem alltaf eru tilbúnir til að fyrirgefa og hlú að.  Og samfélag sem er tilbúið að gleyma gömlum syndum, og gefa nýtt tækifæri.  En fyrst og fremst, er það vegna þess að viðkomandi einstaklingur er svo mikill ljúflingur og svo saklaus sál, þrátt fyrir allt, að þess vegna standa vegir opnir.

Takk fyrir þennan dag, takk fyrir mig, og takk fyrir elskulega drenginn minn. Heart Ég er alveg viss um að hér hafa orðið vatnaskil. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú ert yndisleg Ásthildur og ég meina það.  Til hamingju með strákinn þinn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 21:48

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert dásamleg elsku Ásthildur mín ég var klökk þegar ég las þetta um  strákinn þinn.og til hamingju með hann.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.7.2008 kl. 22:19

3 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Innilega til hamingju með son þinn Ásthildur mín og til hamingju júlli með árangurinn og að eiga þessa mömmu að greinilega gullmoli þessi konaÉg hef aldrei hitt þig ásthildur en bara það sem ég hef fylgst með á blogginu þínu myndirnar hvað þú ert natin við börn og barnabörn þá verð ég að segja þér að ég ber mikla virðingu fyrir þér .

Eyrún Gísladóttir, 8.7.2008 kl. 22:38

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð kæra Ásthildur.

Mikið var og er hann Júlli lánsamur að eiga móður sem stóð með honum í gegnum súrt og sætt. Móðir sem missti aldrei trú á drengnum sínum.

"Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera." Þetta á við hvort sem það er til góðs eða ills og allir sem hafa gert í því að meiða aðra munu hljóta sinn dóm. Við verðum öll að svara fyrir gjörðir okkar, líka þeir sem gjörðu rangt gagnvart syni þínum.

"Sá sem sáir sparlega mun og sparlega uppskera, og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera." Þú sáðir og sáðir og uppskeran er rífleg og þú átt svo sannarlega skilið að vera glöð í dag.

Til hamingju með soninn.

Guð blessi ykkur öll

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.7.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Karl Tómasson

Þú þarft ekkert að innprenta mín kæra. Það kemur bara með umgengni við þig, það er ég nokkuð viss um. Til hamingju með allt.

Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 8.7.2008 kl. 23:33

6 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Þetta sannar hvað móðurástin er sterk. Og það er rétt hjá þér, að enginn er vonlaus og ég er svo sammála því að allir eiga skilið annað tækifæri.

Innilegar hamingjuóskir með daginn þinn, Júlli og Ásthildur mín, þú getur sko verið stolt af stráknum þínum. Takk fyrir að deila þessu með okkur, yndislega kona

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 8.7.2008 kl. 23:47

7 Smámynd: Laufey B Waage

Til hamingju með Júllann þinn elsku Ía mín. Hann er flottur listamaður og yndisleg manneskja með virkilega góða nærveru. Mér finnst gaman að hafa átt þátt í hugmynd að þessari sýningu (hugmyndin fæddist þegar ég var að dáðst að fiskinum sem hann gaf mínum strák í afmælisgjöf). Nú vildi ég vera á staðnum. Kysstu hann frá mér.

Laufey B Waage, 8.7.2008 kl. 23:55

8 Smámynd: Brynja skordal

Innilegar hamingju óskir með Júllann ykkar Ásthildur mín takk fyrir þessa lesningu þið eruð yndisleg knús vestur í Fjörðin Fallega

Brynja skordal, 9.7.2008 kl. 00:21

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Mig langar að skrifa svo margt núna.Mig vantar orð yfir þetta allt saman.Eitt er víst að þið eruð bæði sigurvegararMér þykir innilega vænt um þig.

Solla Guðjóns, 9.7.2008 kl. 01:05

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heill þér Móðir og amma, meira þarf ég ekki að segja!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.7.2008 kl. 01:34

11 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

VÁ!!!! Æðislega flott hjá Júlla.....Ekkert smá töff

Elsku Ásthildur mín, hjartans hamingjuóskir með daginn og elsku Júlli, til hamingju með þetta allt saman

Ég þekki vel að vera misskilinn sem barn og unglingur og þá líka af kennurum og fullorðnu fólki........Ég hefði líka fengið viðeigandi hjálp ef að það hefðu verið komnar greiningar eins og í dag. Í dag er búið að greina mig með ADHD og ég er á lyfjum við því og aldrei gengið betur.......við Júlli höfum greinilega verið misskildir listamenn sem á þeim tíma áttum betri skólagöngu skilið

Knús í kúlu og gefðu afmælisbarninu knús frá hinum athyglisbrestinum hinumegin á landinu

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 9.7.2008 kl. 02:27

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Innilega takk öll sömul.

Elín mín svo sannarlega skal ég knúsa hann frá þér.

Takk Magnús minn, nei það segir eiginlega það sem þú ert að meina, takk fyrir mig.

Solla mín, takk sömuleiðis

Knús á þig til baka Brynja mín.

Laufey mín, já þú átt þinn þátt í þessu ævintýri.  Takk fyrir það.  Þetta gerir honum líka svo mikið gott.

Mín er ánægjan elsku Sigrún mín.  Takk .

Þetta var fallega sagt minn elskulegi Kalli Tomm  Takk fyrir mig.

Takk Helga mín.

Rósa mín, það er alveg víst í þessum heimi að við uppskerum eins og við sáum.  Takk fyrir mig mín kæra.

Takk fyrir þetta Eyrún mín.  Ég verð hrærð þegar þig eruð svona góð við mig.

Takk Katla mín.  Knús til þín

Takk Jenný mín.  Þú hefur varðað þennan veg miklu meira en þú getur ímyndað þér.  Undirbúið akur, sem mun blómstra lengi.   Það þarf fólk eins og þig, sem þorir að koma fram fyrir alþjóð, eins og þú hefur gert.  Og sýnt fram á að þú átt virðingu fólks.  Það fólk sem á eftir þér kemur, fyllist hugrekki og þori við að lesa þig.  Þannig kortleggur þú hinn langa veg margra til endurkomu til mannheima.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.7.2008 kl. 08:39

13 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er hrikalega flott hjá honum!

Hrönn Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 09:00

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hrönn mín.  Ég er rosalega stolt af honum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.7.2008 kl. 09:20

15 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Þetta ætla ég sko að kíkja á, til hamingju með drenginn, afmælið hans og sýninguna.

Kveðja úr þokunni.

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 9.7.2008 kl. 09:20

16 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 9.7.2008 kl. 14:14

17 identicon

Sæl Ásthildur. Ég óska þér til hamingju með strákinn, og eins með daginn. Þetta er flott framtak hjá honum. Sé hann fyrir mér enn sem EMIL í Kattholti, var oft uppátækjasamur. Skemmtilegur strákur var hann, og er enn. Bestu kveðjur. Auður Matt.

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 15:40

18 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Hjartanlega til hamingju með strákinn þinn, þetta eru glæsileg verk sem hann gerir. Hann hefur greinilega verið "diamond in the rough" og þurft sinn tíma og væntumþykju mömmu sinnar til að blómstra. 

Helga Magnúsdóttir, 9.7.2008 kl. 16:30

19 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...gleymdi að segja enn og aftur að hann þarna litli rauðhaus er algjört krútt! Ég gæti hugsanlega rænt honum ;)

Hvað kosta svona fiskar á borð? Veistu það? 

Hrönn Sigurðardóttir, 9.7.2008 kl. 16:49

20 Smámynd: Tiger

  Það verður aldrei af þér skafið mín stórkostlega kona - að þú varst, ert og verður alltaf stórbrotin og dásamleg. Sannarlega eru þínir afleggjarar - og þeirra afleggjarar - heppin öll sömul að hafa verið sáðkornin þín, og þú garðyrkjumeistarinn þeirra. Þú hefur alltaf verið stórkostleg í mínum augum - alveg frá því fyrst ég las þig hérna á blogginu - og ekki versnaði nú í því þegar ég fann út að þú værir nú ekkert rosalega langt í burtu frá mér hvað skyldleika varðar!

Þú ert yndisleg í alla staði elsku Ásthildur og heimurinn væri glaðari, hreinni og beinni - með meiri hlýju og virðingu um allar grundir - ef heimurinn hefði fleiri stórbrotin eintök af þér um allt!

Þú hefur sýnt mikla hetjudáð þegar þú sýndir fram á að sönn og fögur móðurástin yfirstígur alla erfiðleika og tekur yfir allan vafa þegar börnin eru annars vegar. Þú ert ekkert annað en yndisleg mín elskulegasta Queen of Vestfjarðaríki. Til hamingju með strákinn þinn sem þú barðist svona hetjulega fyrir á sínum tíma, vonandi var afmælisdagurinn hans gleðilegur. Mér finnst æðislegt að sjá það sem sést af sýningunni hans! Var að benda móður minni á sýninguna hans - en hún er á ferðalagi þarna nálægt þér.

Knús og fallegar hugsanir í þína átt ljúfa og hjartahlýja Ásthildur mín!

Tiger, 9.7.2008 kl. 17:09

21 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er með því fallegasta og besta sem ég hef lesið.  Hann Júlli þinn er fæddur undir gæfustjörnu, að hafa átt þig að og alltaf hlúðir þú að honum, nú hefur hann endurgoldið þann mikla kærleik og ástúð sem þú veittir honum og sýnt svo ekki verður um villst að það fræ sem var sáð er orðin stór og falleg planta.  Listaverkin hans eru mjög falleg ég er þess fullviss að hann á eftir að gera mikið meira eða eins og er sagt einhvers staðar "You ain't seen nothing yet".

Jóhann Elíasson, 9.7.2008 kl. 17:43

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þið eruð æði öll sem eitt.  Ég er farin að blómstra hér við lesturinn  

Jóhann minn, víst er drengurinn minn fæddur undir heillastjörnu.  Þegar ég bar hann undir belti, dreymdi mig afa minn, Júlíus Geirmundsson, þann sem togarinn heitir eftir.  Hann sagði við mig, ef þú lætur drenginn heita eftir mér, mun ég vernda hann.  Og víst hefur hann fengið allskonar vernd, annars væri hann ekki hér, svo langt leiddur sem hann var.  En ég er óendanlega þakklát.  Takk

TíCí minn þakka þér innilega fyrir þessi hlýju og fallegu orð, edilega láttu mömmu þína hafa samband.  Knús á þig elskulegastur

Hahaha Hrönn, ég veit þá hvar ég á að leita hans, ef hann týnist, krúttapúttið.  Ég veit ekki hvað þeir kosta, en ég veit að hann hefur selt fiska á 6000kall, sem er lítið miðað við hvað þetta er glæsilegt.  Það getur verið viðmiðun, þá er ég að tala um plattana undir heitar pönnur, sem eru algjörlega að slá í gegn. 

Takk Helga mín.

Auður mín já Emil í Kattholti, ekki slæm samlíking

Kveðja til þín líka Linda mín.

Vertu velkomin Þórdís mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.7.2008 kl. 20:41

23 Smámynd: Rósa Harðardóttir

Til hamingju með drenginn.  Þetta er ekki spurning um hvað við getum kennt þeim heldur hvað þau geta kennt okkur, það gleymist oft.

Rósa Harðardóttir, 9.7.2008 kl. 21:46

24 identicon

Kæra fallega mamma

Til hamingju með guttann þinn.

minn gutti er erviður þessa mánuðina og fólk í kring um mig verður fljótt pirrað á honum, en ég horfi á hann og sé orkumiklan engil sem einn daginn á eftir að virkja þessa orku.

það var svo gott að lesa að einhver annar sér birtuna í gegnum ringulreið barnsins.

Hólmfríður Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 23:48

25 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Dásamleg færsla Ásthildur ég sit með tárin niður kinnarnar. Innilega til hamingju með drenginn þinn og hjartanlegar  hamingjuóskir til hans, listamannsins.

Knús til þín, sterka fallega kærleiksríka kona 

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.7.2008 kl. 10:18

26 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Gleymdi að taka það fram: Þessir fiskar eru heillandi! Kraftmiklir en bera mjúka tilfinningu með sér. Það segir heilmikið um lífið og tilveruna að spá í fiska í búri.... en þessir fiskar eru miklu sterkari en búrið sjálft. Ég bara vildi að ég gæti skroppið að sjá sýninguna með eigin augum. knús aftur

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.7.2008 kl. 10:21

27 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já alveg rétt Rósa mín, og takk fyrir innlitið

Takk Ragnhildur mín, þú hefur rétta nefið fyrir listinni elskuleg

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.7.2008 kl. 22:29

28 Smámynd: lipurtá

Glæsilegir fiskar hjá Júlla. Til hamingju. Þú ert líka alveg einstök Ásthildur guð sé með þér og öllu þínu fólki. Kveðja frá lipurtá

lipurtá, 12.7.2008 kl. 17:08

29 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Lipurtá mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 17:57

30 identicon

Kæru kúlubúar og afkomendur. Við Steini sendum ykkur öllum innilegar kveðjur og óskum ykkur til hamingju með allt. Ég veit það Ásthildur mín að ástin og trúin á að hlutirnir geti lagast getur fleytt okkur yfir ótrúlegustu hindranir. Bestu kveðjur úr Andakílsárvirkjun í Borgarfirði. Dísa Gests

Arndís Ásta Gestsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband