Dýrafjarðardagar.

HeartÞað fór fyrir mér eins og kerlingunni, sem fór út í búð til að kaupa brauð, og kom svo heim með allt nema brauðið. W00t

Ég fór á Þingeyri, til að sjá einleik, það var fólk að bíða við félgsheimilið, og þegar ég leit inn, voru menn að gera klárt fyrir sýninguna.

IMG_9099

Og fólkið beið fyrir utan eftir sýningunni.

IMG_9097

Þar á meðal einn flottur víkingur

IMG_9100

Í fullu skrúða. 

En svo ætlaði ég rétt að skjótast niður í bæ til að drepa, eyða, klára, vinna tímann hehehehehe, og þegar ég kom til baka, var bara allt yfirstaðið.  Ég vona að mér fyrirgefist það.  En ég er ákveðnari nú en nokkru sinni að fylgjast betur með þessu frábæra fyrirbæri Act alone á næsta ári. 

IMG_9070

Svona var veðrið í morgun, dálítið dularfullt og þoka.

IMG_9071

Hitinn dregur þokuna inn til landsins, og svo er spurning um hve duglegt sólin er að hrekja þokuna burtu.

IMG_9072

Þessi prinsessa kom til mín í gær að kaupa blóm, hún var einmitt að dansa á Act alone hátíðinni. Náttúrubarnið Anna Sigga.

IMG_9073

Flottust, og í prinsessukjól, þar sem hún kom beint úr dansinum, til mín. Heart

IMG_9076

Og lyngrósin mín, Catavbiens Grandiflora er að blómstra, ég get svo svarið það, hún er líka flott og fíin.

IMG_9084

Brandur er líka svona í einleik.  Elvar Logi heldurðu að hann fái ekki hlutverk í næstu hátíð ?LoL

IMG_9087

Þetta gerir náttúrulega endanlega út um hve mikill skapgerðarleikari hann Brandur er sko Happy

IMG_9088

En skemmtiferðaskipin eru byrjuð að koma, og ég hugsa að farþegar og áhöfn á þessu skipi, nálgist að var sama tala og íbúarnir hér. Smile

IMG_9089

Svona var útlitið fyrst í morgun.

IMG_9091

Og hér liggur óvættur yfir húsunum á Ísafirði, hann breiðir út sína köldu vængi, og þyrmir yfir íbúana.  Svona þarf að særa í burtu sem fyrst.

IMG_9092

Sjáið svo hvað er að gerast hér í Hnífsdal, þarna eiga göngin að koma til Bolungarvíkur, og það er bókstaflega verið að ryðja niður öllum jarðvegi á svæðinu, þetta eru hrikalegar gjörðir.

IMG_9094

Ekki kæmi mér það neitt á óvart, þó þessi bíll stæði í beinu sambandi við Act alone hátíðina.  Flottur er hann.

IMG_9095

Hér blasa vestfirsku alparni við.  Hrikaleg fegurð, og þarna kúrir Þingeyri undir Sandafellinu.

IMG_9096

Já við erum nefnilega komin á Dýrafjarðardaga.

IMG_9102

Þar er náttúrlega mikið um dýrðir og hoppikastalar fyrir börnin, sem ekki létu sitt eftir liggja.

IMG_9104

Og hér erum við komin í Víkingabúðir.  En hér eru þeir staðsettir.

IMG_9105

Best að fara að þeim með gát.  Reyndar eru þeir elskulegt fólk, þegar nánar er að gáð.

IMG_9109

Hér er verið að baka klatta upp á gamla móðinn.

IMG_9113

Og járnsmiður að berja til járn, með fýsibelg, þessi ungi maður var til þess ráðinn að pumpa belginn.

IMG_9115

Margir fallegir gripir voru hér á boðstólum, meðal annar rúnir og verndargripir.  Allt heimagert og fallegt.

IMG_9116

Svo og prjónales og slíkt.

IMG_9124

Mitt í öllu þessu frábæra íslenska efni, var svona suðræn rós, með ljúfan blæ frá fjarlægu landi.

IMG_9126

Flott stelpa, með flottar peysur.

IMG_9128

Allt heimagert og handskorið.  Maður fyllist aðdáun á verklagni og listfengi þessara ágætu kvenna, sem hér voru með sínar vörur.

IMG_9129

Alveg sama hvar borið er niður.  Það er virkilega gaman að þessu.

IMG_9130

Hér var sko verið að baka vöfflur, og ekki var betur séð en að menn kynnu vel að meta afturðirnar.  Þær eru flottastar.. Heart

IMG_9131

Og svo kvenfélagið að selja kökur.

IMG_9134

Já Dýrfirðingar tóku allir þátt, og það var virkilega gaman að koma þarna við og skoða það sem á boðstólum var.  Ég sá lika fullt af ísfirðingum, sem þarna voru að sækja heim Dýrafjörð, og upplifa skemmtunina með heimafólki.

IMG_9135

Varð að setja þessa mynd inn, eitthvað svo þríeykisleg. LoL

IMG_9136

Ef mér skjátlast ekki því meir, ætti margir að kannast við þessa fallegu stúlku.

IMG_9139

Og sumir vildu einfaldlega bara fara á hestbak, það er gott að riða út á þessu svæði.  Enda nóg um reiðleiðir.

IMG_9140

Þá var komin tími til að yfirgefa Þingeyri og Dýrfirðinga.  Það var virkilega gaman að líta við. Kæra þakkir fyrir mig elskulega fólk.  Og til hamingju með þessa Dýrafjarðardaga. Heart

IMG_9141

Og maran hvílir ennþá yfir Ísafirði, svei mér þá.

IMG_9142

Mitt í allri þenslunni og erfiðleikunum, er hér að rísa stórbyggð.  Þar ríkir stórhugur og enga áhyggjur af lánum, eða vaxtavöxtum.  Hér ríkir gleðin ein.  Bara að við lærðum að lifa eins og börnin, að láta hverjum degi nægja sína þjáningu.  Segir ekki einhversstaðar; verið eins og fuglar himinsins, ekki safna í kornhlöður, heldur látið hverjum degi nægja sína þjáningu.  Allt það sem þið eigið hér á jörðínni getið þið ekki farið með ykkur yfir á hinar endalausu veiðilendur. Þangað farið þið bara með ykkur sjálf....... eða þannig var inntakið, og hugsunin.  Elskuleg mín, ég átti yndislegan dag, og það var svo gaman að fara og sjá og upplifa þetta frábæra fólk og það sem það var að gera.  Ég segi bara takk fyrir mig.  Það er svo margt sem er að gerast allstaðar kring um landið, hugvit, verksvit, kærleikur og samfélög sem virka.  Það gefur manni trú á mannkynið að upplifa það.  Takk fyrir mig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk fyrir mig elsku ljúfa,alltaf jafn skemmtilegar myndirnar hjá þérknús inn í nóttina og bestu kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 7.7.2008 kl. 00:41

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það er aldeilis alltaf nóg um að vera hjá ykkur. Mann langar alltaf vestur þegar maður les bloggið þitt Ásthildur

Ragnhildur Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 00:44

3 Smámynd: Laufey B Waage

Þú verður greinilega að gera aðra tilraun til að sjá þessa sýningu.

Laufey B Waage, 7.7.2008 kl. 00:50

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Flottar myndir frá Dýrafirði. Það var svo gaman að sjá fréttir frá þeim. Engin barlómur þarna.  Glæsilegt framtak.

Þokan er duglegri hér en sólin og ég sé á myndunum frá þér að þið sleppið vel miðað við okkur og vonandi verður þokan grá ekki að bögga ykkur.

Guð veri með ykkur.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.7.2008 kl. 01:12

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er auðséð að ekki líður Brandur neinn skort.  Alltaf eru myndirnar þínar frábærar og segja meira en þúsund orð og frábær texti sem þú setur með þeim.

Jóhann Elíasson, 7.7.2008 kl. 03:20

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er búin að eyða2tímum í að skoðamyndirnar að vestan þótt ég sé ekki sérstaklega á skrá hjá þér verð ég að gera mig heimakomna og þakka fyrir þetta afbragðs efni.ER fædd og alin upp í Dýrafirði það skýrir ákafann vilja minn að ´segja þér að þetta gladdi gamalt hró!!!

Helga Kristjánsdóttir, 7.7.2008 kl. 03:40

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.7.2008 kl. 07:32

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 7.7.2008 kl. 09:39

9 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þá get ég sleppt Dýrafirðinum, nei segi bara sisvona, átti 3 yndislega vetur á Núpi hér í den, ógleymanlegar minningar, svo ég hef sterkar taugar til þessa gamla nágrannafjarðar og fólksins þar.

Legg sennilega íann á morgun ef skipulagið hjá stóru systur nær fram að ganga

Knús á þig Áthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 7.7.2008 kl. 11:29

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig líka Sigrún mín,  Já það ætti allt að vera á fullu við undirbúning Sæluhelgarinnar. 

Knús á þig Katla mín.

Og Jenný

Vertu bara velomin hingað Helga mín. 

Takk Jóhann minn, jamm Brandur er flottur. 

Rósa mín, nú er drunginn komin hingað.  Vonandi nær sólin samt að þoka þessu burtu. 

Laufey mín, já ég þarf örugglega að gera aðra tilraun til þess.

Þú ert velkomin Ragnhildur mín.

Takk Linda mín.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.7.2008 kl. 12:33

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Landið allt nánast í þoku, eða hennar gætt víðast hvar á því.

Minna varð hins vegar út hitabylgjunni sem átti víst að gleðja margan landsmanninn líka.

Magnús Geir Guðmundsson, 7.7.2008 kl. 16:41

12 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Glæsilegar myndir hjá þér og þér hefur greinilega ekki leiðst um helgina. Knús á þig.

Helga Magnúsdóttir, 7.7.2008 kl. 19:55

13 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Mér dettur bara lítill lagstúfur í hug: Það vantar spýtur og það vantar sög það vantar málningu og fjörug lög

En greinilega ekki fyrir vestan

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 7.7.2008 kl. 22:50

14 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Mér finnst eins og það sé að aukast svona alls konar menningarviðburðir um allt land (nema ég sé kannski bara nýbúin að fatta það...) og þá er um að gera fyrir fólk að taka þátt í því svo þetta verði áfram. Þetta var nú samt ekki meint sem sneið til þín fyrir að gleyma þér, hahaha, það gengur bara betur næst

Takk fyrir skemmtilega myndasögu. Knús á þig

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.7.2008 kl. 23:27

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Það er alltaf af nógu að taka hér hjá þér.Virkilega gaman að skoða þetta

Solla Guðjóns, 8.7.2008 kl. 00:36

16 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Frábærar myndir ,enn  eina ferðina og lýsingin þín á lífinu og börnunum getur ekki verið sannari.

Góðar stundir.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 04:59

17 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flott mannlíf á vestfjörðum !!!

Kærleikur yfir á mitt landið gamla

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 8.7.2008 kl. 10:20

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Magnús minn, þessi hitabylgja kom og fór. 

Nei Helga mín, mér leiddist ekki.

Nei Hulda mín.  það vantar víst hvorki sög né hamar hjá þessu unga fólki.

Takk Solla mín.

Takk Þói minn.

Já takk fyrir það Steinunn mín.   ekki veitir okkur af kærleiksóskum á þessum síðustu og verstu...

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.7.2008 kl. 11:46

19 Smámynd: Tiger

 Það er endalaust gaman að skoða myndirnar þínar elsku Ásthildur mín! Þú nærð alltaf að fanga svo lifandi og eðlilegar stundir - svo maður bara dettur inn í það sem er að gerast hverju sinni.

Knús á þig mín ljúfasta og takk fyrir mig!

Tiger, 8.7.2008 kl. 17:35

20 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Það er altaf gaman að koma hingað inn að skoða myndirnar hjá þér, myndin af Brandi í stólnum er þó lang flottust að mínu mati, enda mikil kattar kona með tvær kisur.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 8.7.2008 kl. 21:08

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku TíCí minn.  Ljúfur eins og alltaf

Hehehehe já þetta er flott mynd af höfðingjanum sjálfum, letidýrinu mikla, og félagsverunni Brandi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.7.2008 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 2023302

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband