6.7.2008 | 11:26
Act alone.
Ég er næstum búin að missa af þessari einstöku hátíð, sem bloggvinur minn Elvar Logi Hannesson stendur fyrir.
Hér eru nokkrar uppákomur sem hafa lifað lengi, og fengið sinn sess á Ísafirði. Þar skal fyrst nefna Skíðavikuna, sem var og er í höndum skíðafélags Ísafjarðar, svo voru hér lengi siglingadagar, hjá Sæfara, en hafa því miður lagst af, þar voru allskonar sjóíþróttir í hávegum hafðar. Vonandi byrja þeir aftur á þeim af krafti. Svo er Óshlíðarhlaup, sem var held ég á síðustu helgi, á vegum HSV held ég. Aldrei fór ég Suður hátíðin, sem Mugison og faðir hans hafa staðið fyrir ásamt dyggum stuðningsmönnum. Hliðarvegspúkamót er líka skemmtun sem haldinn er árlega, og var startað af fólki sem ólst upp á Hlíðarveginum, Upphafsmaður þar held ég var Bjarndís Friðriksdóttir orkubolti.
Act alone hátíðin er mjög merkilegt fyrirbrigði, því hún er einsdæmi á Íslandi. Vika einleikja, leiklistarveisla. Elvar Logi á heiður skilinn fyrir að koma þessu verkefni á koppinn. En það er bara þannig að það er ekki nóg að hefja veisluna, gestirnir þurfa að sýna það, að þeir vilji mæta í partýið. Ég vona svo sannarlega að vel hafi verið mætt á sýningarnar. Ég bara var svo þreytt og illa fyrirkölluð, að minn tími fór í allt annað. En ég ætla að bæta úr því, ég er ákveðin í að fara til Þingeyrar og horfa á sýningu sem þar verður í félagsheimilinu. http://www.actalone.net/index.phtml?t=news&a=show&id=95 Sjá hér. Ég ætla líka að lofa sjálfri mér það, að taka meira þátt í þessu á næsta ári. Því svo sannarlega vona ég að þessi frábæra skemmtun haldi áfram.
Nú standa yfir Dýrafjarðardagar, í Dýrafirði, glæsilegt framtak Dýrfirðinga, markaðsdagar í Bolungarvík, þeir hafa líka sína ástarviku í ágúst, næstu helgi verður svo Sæluhelgin á Suðureyri, þar er alltaf mikið um dýrðir, og svo er hátíð á Flateyri. Þeir hafa haft grænlenska daga, og grilldag, sem var á síðust helgi.
Elvar Logi, hafðu þökk fyrir þitt frábæra framtak. Ég set ef til vill inn myndir hér seinna í dag.
Knús á ykkur inn í daginn. Það er velkomið að bæta við ef ég hef gleymt einhverju.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er alltaf gaman af svona skemmtunum ég vona að þú náir þér af þreytunni elsku Ásthildur mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 6.7.2008 kl. 12:35
Nú er það komið á hreint að ekki fer ég vestur í sumar, brjósklosið mun ráða minn för. En ég get látið mig hlakka til næsta sumars og þá fer ég vestur, fylgist með hjá þér þangað til og skoða fallegar myndir. Mikið af skemmtilegum hlutum í gangi það er ljóst. Hafðu það gott kæra vinkona.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.7.2008 kl. 13:45
Það er greinilega alltaf stuð á Vestfjörðum. Alltaf þegar ég hef mætt á Víking hafa aðrar uppákomur verið í mörgum þorpum.
Helga Magnúsdóttir, 6.7.2008 kl. 14:41
Það er alltaf gott þegar fólk hefur kost á að skemmta sér. Elvar Logi hefur verið mjög virkur í menningarlífinu á Ísafirði. Enda maðurinn fæddur og uppalinn á Bíldudal eins og ég og þaðan kemur alltaf eitthvað gott. Þótt svona fuglar eins og ég séum hundleiðinlegir og getum engum skemmt.
Jakob Falur Kristinsson, 6.7.2008 kl. 17:33
Nú er það "grátt", hann spáir rigningarsudda á Sæluhelginni
. En það verður vonandi sól í vestfirskum hjörtum eins og endranær
. Sjáumst kannski í vikunni Ásthildur mín
Sigrún Jónsdóttir, 6.7.2008 kl. 18:21
Nei, ekki vantar viðburðaríkið vestra mín kæra. Og eins og þar stendur, "þá lifa menn ekki á brauði einu saman" aldrei of mikið af hinu andlega fóðri!
En var ekki um hríð eða um árabil einhver tónlistarhátíð eða slíkt af klassiskum toga tengd beint eða óbeint Ragnari H. eða eitthvað í þá áttina?
Magnús Geir Guðmundsson, 6.7.2008 kl. 18:48
Það er aldeilis líf og fjör í kringum þig Ásthildur, ég sem hélt að nú gætir þú tekið þér hvíld, frá öllum erli og látið alla þreytuna sem safnast hefur saman í líkama þínum, líða úr þér. - Þó hef ég verið að hugsa til þín, og haft áhyggjur af þér, hrædd um að þú hafir smitast af streptokokkum, því það er svo lúmskt. - En vonandi er allt í lagi hjá þér, og líklega er þetta bara spennufall eftir að litlu prinsessurnar þínar fóru, og viðbrigðin eftir því. - Kær kveðja
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.7.2008 kl. 18:49
Ég hlustaði á viðtal í útvarpinu við þann sem stendur fyrir þessari hátíð, Act Alone. Finnst þetta alveg stórmerkilegt framtak. Mér heyrðist á honum að hann væri smám saman að færa sig upp á skaftið og vera líka með tvíleik, skilst að það sé einmitt eitthvað af þeim núna.
Annars bestu kveðjur vestur
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 18:53
Innlitskvitt og bestu kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.7.2008 kl. 20:44
Knús á þig líka Linda mín
Já Anna mín, Elvar Logi er frábær drifkraftur, ég er ákveðin í að vera duglegri næst, og jafnvel taka þátt.
Elsku Lilja mín, ég var með þrautir í hálsi, svo það getur vel verið að ég hafi smitast, en það er samt allt í lagi með mig eins og er allavega.Veistu að ég sakna þeirra alveg rosalega, þó ég sé í aðra röndina fegin að vera ég sjálf. Þá hugsa ég sífellt um hvað þær séu að gera, hvort þeim líði vel og hvort allt sé í himnalagi. Ég er svoddan tilfinningavera.
Auðvitað er allt í lagi með prinsessurnar mínar.
Magnús minn alveg rétt hjá þér, Djúpið, það er enn ein hátíðin, klassisk músikk á vegum tónlistaskóla Ísafjarðar til minningar um Ragnar H. Ragnar og frú Sigríði Ragnar.
Sigrún mín við tökum bara ekket mark á svoleiðis bulli. Það er allt að verða klárt fyrir sæluheldi, ég er búin að láta mála blómakerin, og setja niður sumarblómin. Við önsum essu bara ekki elskuleg mín
Jakob, þið Elvar Logi eru bara flottastir, báðir tveir.
Já Helga mín, það er alltaf mikið um að vera hér á sumrin, þá hefur fólkið nóg af orku, og það er bara gaman.
Ásdís mín, við stefnum bara á næsta sumar, ekki spurning.
Mér gengur bara vel að ná af mér þreytunni elsku Katla mín. Knús á þif.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.7.2008 kl. 23:50
Sæl Ásthildur mín.
Fjör fyrir vestan. Það var svo gaman að sjá fréttir frá Dýrafirði. Gaman að sjá allt fólkið róa á Vesteini en það var viðeigandi nafn á skipið.
Guð veri með þér og þínum
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.7.2008 kl. 23:52
Hafðu það gott Ásthildur mín
Eyrún Gísladóttir, 6.7.2008 kl. 23:57
Já það er mikið af skapandi stuðboltum fyrir vestan.
Laufey B Waage, 7.7.2008 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.