2.5.2008 | 13:45
Mig langar að spyrja ykkur að dálitlu!
Það er svoleiðis að fólki mitt frá El Salvador sótti um ríkisborgararétt í nóvember s.l. þau greiddu svo 10.000.- krónur fyrir hvern mann, hjónin og barn sem sagt 30.000.- og munar marga um minna. Þau báðu mig svo að hringja og spyrjast fyrir um hvað þyrfti til að sækja um aftur og hvort þau þyrftu að greiða aftur fyrir þetta. Einnig var orð sem hvorki þau né ég skildum, en það er "framfærsluvottorð".
Nú ég hringdi svo í morgun og spurðist fyrir, ég fékk svör um hvað þetta framfærsluvottorð þýddi, en svo var mér sagt að þau yrðu að greiða aftur 10.000.- krónur hvert fyrir nýja umsókn. Ég kváði við, sagði að ég væri með í höndunum kvittanir fyrir að þau væru búin að greiða þetta gjald. Já, sagði stúlkan, en við erum búin að loka málinu, og þau verða bara að greiða aftur. Ég var frekar vantrúuð á þetta, og spurði af hverju?
Jú þetta er bara vinnuregla hjá okkur.
Þau hefðu getað dregið að greiða þangað til þau sóttu um aftur, hélt hún áfram.
En sagði ég, þeim var aldrei tilkynnt að það væri hægt að hafa það svoleiðis.
Svona er þetta bara sagði hún, þetta er vinnuregla hjá okkur.
Nú langar mig til að spyrja ef einhver getur svarað mér. Ég náði ekki í neytendasamtökin í morgun. Er þetta hægt, að Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafi þær vinnureglur að hafa fé af fólki með þessum hætti. Af því að þau borguðu á tilteknum tíma, þá brann féð inni. Af hverju var þeim ekki gert það skiljanlegt að þau þyrftu ekki að borga strax, og af hverju var þeim þá ekki sendur peningurinn til baka ? Og það sem meira er, þau eiga ekki að þurfa að greiða fyrir barnið. Sem sagt það átti aldrei að borga meira en 20.000.-
Ég tek það fram að þau hafa ekki hugmynd um þetta brölt í mér. Og munu aldrei rugga þessum báti sjálf. En ég er satt að segja alveg gapandi, er nema von að siðferðið sé ekki betra í landinu, þegar dóms- og kirkjumálaráðuneytið viðhefur þessa vinnureglu ?
Er þetta hægt Matthías ? Spyr sú sem ekki veit.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 2022458
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nú þekki ég þetta ekki en hefði haldið að þetta væri bæði löglaust og siðlaust! Gott hjá þér að vinna í þessu fyrir þau, vonandi fá þau þennan pening til baka.
Huld S. Ringsted, 2.5.2008 kl. 15:09
Ég á ekki orð yfir þessu verklagi. Heyrðu var ekki Össur með einhverjar heitstrengingar varðandi fjölskylduna? Getur hann ekki kippt þessu í liðinn og látið verkin tala?
Arg, ég vildi að ég gæti ráðlagt þér.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.5.2008 kl. 15:17
Ég held að þetta eigi erindi inn á borð Umboðsmanns alþingis. Er nokkuð kominn umboðsmaður neytenda eins og talað var um?
Helga Jónsdóttir, 2.5.2008 kl. 18:04
Eftir höfðinu dansa limirnir. Í eina tíð þurfti að greiða gjöld þegar birtar voru stefnur. Fyrrum samstarfskona mín vann hjá einum sýslumanna landsins og þessi stefnugjöld fóru þá í sjóð sem starfsmenn fengu til skemmtanahalds. Að sjálfsögðu voru gjöldin innheimt, því það var starfsmönnum í hag, þó sumum þætti erfitt að nota peningana. En það er spurning hvort eitthvað svipað sé með þessi gjöld. Ég hef ekki hugmynd um það, en svona páfagaukasvör eru mjög undarleg að ekki sé meira sagt. En mér finnst þurfa betri rök en að borga þurfi meira. Það er sjálfsagt að rukka fyrir þjónustu sem fólk fær, en ekki fyrir eitthvað sem kannski verður, þ´er hægt að rukka endalaust. Svona á að fara lengra. Þetta er grímulaust rán.
Dísa (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 18:32
Meiri #$%* siðleysingjarnir. Afsakið orðbragðið en mér datt ekkert fágaðra í hug.
Þórdís Einarsdóttir, 2.5.2008 kl. 20:11
Takk fyrir svörin, ég ætti ef til vill að skrifa umboðsmanni alþingis og fá botn í þetta. Mér finnst bara svo undarlegt að það skuli ekki vera á hreinu hvað á að borga og hvenær. Og að fólki sem vill borga strax sé refsað með þessum hætti. En ég skal lofa ykkur að fylgjast með þessu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2008 kl. 20:39
Þetta er fáranlegt. Vona svo sannarlega að þér takist að tala við einhvern sem er með vit á þessu. Og að þau fái ríkisborgarréttinn sem fyrst.
Knús í hamingjukúluna
Kidda (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 21:40
Hæjj.Er of þreytt til að lesa.
Knús á þig ástin
Solla Guðjóns, 2.5.2008 kl. 22:03
Þegar svarað er á opinberri skrifstofu með: - "þetta er vinnuregla hjá okkur", - Þá set ég alltaf "stanz merkið" í gang. - Og svarið er þá í beinni þýðingu: - Þetta er sem sagt hvergi í lögum, þú finnur þetta ekki í neinni reglugerð, sem útskýrir og gerir grein fyrir um viðkomandi lög. - Þetta er vinnuregla hjá okkur, sem við starfsfólkið höfum sett okkur sjálf. - Samasem - eins og vinnuhagræðing, fyrir flokkum og skilum, regluna - Skýringin á, að þessi dæmalausa vitleysa, er við lýði, er væntanlega sú, að þeir, sem eru að sækja, um "Ríikisborgararétt," vilja ógjarnan vera með eitthvað múður, og eiga þá á hættu, að vera synjað, um þann rétt, sem þau eru að reyna að fá. Skýringin á vinnureglunni gæti því verið, eins og Dísa segir hér fyrir ofan, að starfsfólkið "fái það fé í sjóð" sem, ekki er gengið eftir, að fá endurgreitt, síðan er það orðið, að vinnureglu starfsmana, að rukka, umsækjendur í hvert skipti, sem umsókn er lögð fram. Er þetta ekki Mannréttindabrot? - Skyldi Dómsmálaráðherra vita af þessu? - Allavega er þetta bull, sem ber að leiðrétta hið snarasta. -
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.5.2008 kl. 22:37
Þetta er náttúrulega fáránlegt og þarf nánari athugun. Hefur þú prófað að tala við Einar Skúlason hjá Alþjóðahúsi?
Knús í Kúluhúsið
Sigrún Jónsdóttir, 2.5.2008 kl. 22:39
Ég er á ekki til orð yfir svona og ég skil þetta ekki.
Knús til þín
Kristín Katla Árnadóttir, 2.5.2008 kl. 22:45
Sæl Ásthildur mín.
Þetta kemur mér ekki á óvart.
Þetta eru VINNUREGLUR,segir fólkið sem vinnur þarna. Miðað við fyrri atvik.þá ætti að vera búið að lagfæra þetta eftir 5 til 9 ár. Sæl í bili, og HALTU ÞESSU Á LOFTI. ÉG STYÐ ÞIG OG FÓLKIÐ. BARÁTTUKVEÐJUR.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 22:48
Já það er alltaf jafn pirrandi (vægast sagt) að opinberar stofnanir upp til hópa skuli leyfa sér að setja sér þær vinnureglur að hafa fé af fólki og lúra á því eins og ormur á gulli. Og enginn getur neitað.
Laufey B Waage, 2.5.2008 kl. 23:33
Ég kannast mæta vel við að það er eins og starfsfólk Útlendingastofu og fleiri slíkra embætta sé í vinnu við að bregða fæti fyrir nýja Íslendinga. Það er eins og allt sé gert til að gera umsókn um ríkisborgararétt sem erfiðastan.
Einn kunningi minn tók saman við útlenska konu. Það reyndist svo þungt í vöfum að fá farsæla lendingu á því dæmi að fyrir rest þurfti hann að leita aðstoðar rándýrrar lögfræðistofu til að koma málum í höfn. Dæmið var orðið of erfitt og snúið fyrir hann sjálfan að eiga við Útlendingastofu.
Annar kunningi minn hafði hug á að taka saman við útlenska konu. Hann vildi hafa þann hátt á að þau myndu taka upp sambúð og láta reyna á sambandið. Það var ekki hægt. Lendingin varð sú að þau urðu fyrst að giftast áður en þau létu reyna á sambandið. Með tilheyrandi skrifstofubáknsvandræðum.
Jens Guð, 3.5.2008 kl. 01:01
Stjórnsýslulög nr. 37/1993:
7. gr. Leiðbeiningarskylda.
Stjórnvald skal veita þeim sem til þess leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þess.
Búinn að biðja Gísla Tryggvason, talsmann neytenda, um að kíkja á þetta mál fyrir ykkur og þá sem eru í sömu sporum.
Með kærri kveðju,
Þorsteinn Briem, 3.5.2008 kl. 03:11
Þú ert algjör snilingur Steini.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.5.2008 kl. 04:38
Gott hjá þér Ásthildur, að gera eitthvað í þessu. Þetta er auðvitað bara rán og vanvirðing.
Birgitta Jónsdóttir, 3.5.2008 kl. 08:07
Frábært að sjá skilaboðin frá Steina. Vonandi kemst þá einhver hreyfing á málið. Góða helgi í Kúlunni
Dísa (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 10:00
Takk Steini minn, og þið öll. Já mér finnst þetta svo einkennilegt á allan hátt. Og einhvernveginn ráðuneytinu til vansa. Ég er með kvittanirnar og neitunarbréfin og get sent aftir hvert sem er. Tek það samt fram að blessað fólkið sjálft er ekki að rugga bátnum, heldur finnst mér þetta einkennileg afstaða ráðuneytisins. Og eina að það virðist vera svona happa glappa aðferð í vinnureglunni hjá þeim.
Lilja ég er ekki viss um að dómsmálaráðherra viti af þessu. Þetta þarf alla vega að skoða svona í heild sinni, og vita hvernig framkvæmdin er á þessari vinnureglu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.5.2008 kl. 10:34
Já, þetta kemur mér ekki á óvart. Gjald verður að fylgja umsókn og fæst ekki endurgreitt. Ef sótt er um að nýju, þarf nýtt gjald að fylgja.
"Gjald fyrir umsókn um íslenskan ríkisborgararétt er 10.000 kr.
Gjaldið skal fylgja umsókn og verður ekki endurgreitt sé umsókn um ríkisborgararétt synjað eða dregin til baka"
http://www.domsmalaraduneyti.is/raduneyti/starfssvid/rikisborgaramal/upplysingar//nr/1382
Að tala við fólkið á þessum stofnunum til að hnika eða hliðra til reglum er eins árangursríkt og tala við næsta grjót sem maður rekst á á förnum vegi. Þe. Ómögulegt.
(Svo var fólki talin trú um hér ekki fyrir löngu að umsókn um ríkisborgararétt væri svo sem ekkert mál... svona dagsverk eða svo. Hahahaha alveg hillaríus hvaða vitleysa er rekin ofan í íslenskan almenning.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.5.2008 kl. 15:26
Mikið getur þetta skrifræði verið mannvont!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.5.2008 kl. 16:34
WHAT!
Jóna Á. Gísladóttir, 3.5.2008 kl. 20:35
Þetta er nú meiri ansk... vitleysan hvað er að verða um þetta þjóðfélag ooojjjj.
Eyrún Gísladóttir, 3.5.2008 kl. 21:30
Sjálfsagt Steini (sbr. aths. 18); síminn á skrifstofu minni er 510 11 21; er við megnið af morgundeginum.
Gísli Tryggvason, 4.5.2008 kl. 20:02
Ómar, það væri fróðlegt að skoða hvort þetta er ekki lögbrot, samkvæmt opinberum lögum. Þarna er verið að hafa fé af fólki, sem ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér.
Takk fyrir innlitið Gísli, vona að þetta verði skoðað.
Jamam Jóhanna, þetta ER mannvont.
Sammála ér Eyrún.
Von að þú kváir Jóna mín. Ég gerði það lika.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2008 kl. 21:47
Takk kærlega fyrir það, Gísli minn. Þú ert öðlingur! Ég held að best sé að hún Ásthildur hringi sjálf í þig á morgun, mánudag, og vonandi kemst hún í það þá.
Með kærri kveðju til ykkar beggja,
Þorsteinn Briem, 4.5.2008 kl. 23:27
Já ég mun hringja í Gísla á morgun ef ég má. Þakka þér Steini minn fyrir þitt framlag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2008 kl. 23:29
Heil og sæl; Ásthildur mín, sem aðrir skrifarar !
Ég á ekki til orð ! Hver var svo, að tala um rentukammerið, á 18. öld ?
Sýnist; sem þú eigir ágæta Hauka í horni, sem eru þeir Steini Briem og Gísli Tryggvason, auk annarra.
Jah; það er ekki, á ráðuneyti Björns Bjarnasonar logið. Ætli lungi starfsfólks, sé álíka uppskafningar, sem hann ?
Gangi þér; sem þessu ágæta Mið- Ameríku fólki, allt í haginn, Ásthildur mín.
Með beztu kveðjum, sem fyrr, vestur / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 01:24
Það var nú lítið og auðvitað máttu hringja í hann Gísla, Ásthildur mín. Það væri nú annað hvort.
Þorsteinn Briem, 5.5.2008 kl. 10:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.