Knúsídúllur og 1. maí.

1. maí 2008.  Dagur verkalýðsins, og einnig uppstigningardagur sem tilheyrir kirkjunni.  En hefur sennilega tilheyrt fornum trúarbrögðum, þar sem kirkjan tók yfir flesta helgidaga heiðinna manna, meðan þeir voru að ná fótfestu.  Nóg um það.  Þetta er allavega fallegur dagur.  Elli minn er bæði að spila í lúðrasveitinni og syngja með Karlakórnum, en ég kemst ekki til að hlusta, þar sem ég er nú þriggja barna móðir og kemst ekki fet Tounge En það er furðulegt hvað maður er fljótur að gleyma öllu svona stússi, þegar börnin stækka og fara að heiman.  En það rifjast svo allt upp aftur, þegar maður kemst í sömu spor aftur.  En eins og Elli minn segir, ætli þetta sé nú ekki enn eitt yngingarmeðalið.  Heldur manni allavega á tánum.

Ég var nú bara að spá í hvort ég ætti ekki að fara út í dyr og berja pottana mína með sleif, til að mótmæla þessu háa matvælaverði.  Eins og konurnar gerðu í Chile á sínum tíma.  Ætli það væri ekki áhrifaríkara en allar göngur og mómæli, ef við tækjum okkur saman húsmæður og herrar og sameinuðums um að slá taktinn með pottum og pönnum hver við sínar útidyr.

IMG_5942

Svona var veðrið í gærmorgunn, dálítið hráslagalegt svona snemma morguns, en birti til, þegar á daginn leið.

IMG_5943

Sólin gægist á kubbann.

IMG_5939

Systurnar bjuggu sig á leikskólann, og þetta er systraknús.

IMG_5941

 

IMG_5944

Skáparnir hennar ömmu eru mjög áhugaverðir, og þetta gula teppi er ómissandi hjá Ásthildi litlu.

IMG_5948

Hún druslast með það um allt hús, og getur ekki farið að sofa án þess að knúsa það.

IMG_5951

Haha amma BUUU!

IMG_5957

Þessi skápur er alveg mátulegur fyrir mig.

IMG_5970

Og svo er hann fullur matar líka.

IMG_5961

Og Hanna Sól hjálpar ömmu að leggja á borðið.

IMG_5963

Svo er það hann Brandur.  Hann týndist í viku, og það kom í ljós að hann hafði lokast inn í gámi sem við geymum ýmislegt í.  Hann hafði þvælst þangað inn þegar Elli var að ná í eitthvað, forvitnin drap köttinn, samt ekki Brand, því hann hefur sennilega lifað á músum í þessa viku.  Hann var vel haldinn kattarkvikindið, en mikið var hann samt feginn að komast heim aftur Smile Þó hann þurfi að þola heilmikið knús.

IMG_5965

Kvöldið er fagurt.  Það var flogið langt fram eftir kvöldi í gær, hér er að fara fram blakmót öldunga, hingað koma um 700 manns hef ég heyrt, svo nóg er um að vera.  Svo hér er margt um manninn. 

IMG_5971

Hanna Sól er komin í 1. maí fötin sín, og stillir sér upp fyrir ömmu að taka mynd.

IMG_5974

Sú stutta er líka búin að klæða sig upp á, eins og hennar er von og vísa LoL

IMG_5975

Júlli og Sigurjón Dagur eru í heimsókn, og Sóley Ebba gisti í nótt.  Þau hafa það bara notalegt.

IMG_5976

Prinsessan mín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er hægt að fara með potta og sleifar í kröfugöngur dagsins.  Baráttukveðjur í Kúluhús

Sigrún Jónsdóttir, 1.5.2008 kl. 12:29

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er alveg hárrétt hjá þér Sigrún mín.  Við hefðum átt að fatta þetta fyrr.  Það hefði nú verið táknrænt ekki satt.

Búkolla það er gaman að því hvað þarf oft lítið til að barn festi trúnað við eitthvað.  Krakkarnir mínir áttu hann Óla, hann var tuskudúkka, prjónaður, og þegar annar fóturinn datt af og týndist, var saumaður á hann ullarsokkur öðrumeginn.  Þegar Júlli minn lærbrotnaði sennilega um 9 ára aldur, og þurfti að liggja í margar vikur í strekk, þá var það hann Óli sem var beðið um að fá á sjúkrahúsið.  Og Óli lá með honum allan tímann á sjúkrahúsinu.   Knús á þig líka Búkolla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 12:52

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2008 kl. 13:05

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mikið væri æþað flott að fara út í dyr með pottana og pönnurnar og gera ærlegan húsmæðrahávaða

Skemmtilegar myndirnar eins og alltaf..ég er líka heima að passa barnabarnið sem nú býr hjá ömmu og afa ásamt mömmu sinni meðan mamman safnar peningum fyrir íbúð og kjarki til að takast á við snarklikkaðan húsðismarkað. Mamma litla...mamma barnabarnsins... átti líka hana Stínu dúkku þegar hún var lítil. Á hana vantaði tvær hendur, einn fót og hausinn.. en það breytti engu um ást stelpunnar litlu á Stínu sinni....Móðurástin sér bara allt það fallega í sínum

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 1.5.2008 kl. 13:40

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo satt Katrín mín, útlitið skiptir engu máli, það er ástin sem skiptir máli

Það er annars ekki svo vitlaus hugmynd að berja í potta og pönnur, þó við séum orðnar of seinar núna 1. maí, þá má miða við næstu verðhækkanir.  Við ættum að láta verða af þessu einn góðan veðurdag.  Ég mæli allavega með því.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 14:01

6 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 1.5.2008 kl. 14:10

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

rosalega er mikið fjör hjá þér !!

sætar stelpu í bleiku með fullt af slefi.

hérna hækkar líka verðið á mat, en ég heyri engan mótmæla, ekki enn

Bless

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 17:37

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús Helga mín

Spáum í það, ef allar húsmæður kven-og karlkyns myndu berja pottana sína um heiminn, ætli það myndi heyrast frá einum stað til annars? Knús á þig Steinunn mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.5.2008 kl. 17:40

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 1.5.2008 kl. 20:29

10 identicon

 "En eins og Elli minn segir, ætli þetta sé nú ekki enn eitt yngingarmeðalið."   Þetta er algjör snilld hjá Ella manni þínum að skilgreina þessa ofurgóðmennsku svona.  Það er meira en að segja það að taka þrjú lítil börn að sér í nokkra mánuði ,  já þó það séu barnabörnin yndislegu.  Þú ert nú meiri súperamman, Ásthildur mín!  Og Elli þinn ekki síðri í afahlutverkinu.  Og takk fyrir fallegar myndir.  Kær kveðja.  Auður

Auður Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 21:39

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Knús á þig elsku Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 1.5.2008 kl. 21:59

12 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Ég sé fyrir mér endalausa ást og hlýju í kúluni.
Knús á ykkur öll dúllur

Eyrún Gísladóttir, 1.5.2008 kl. 22:01

13 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Sonur minn fer um allt með koddann sinn. Það má náttúrulega ekki vera hvaða koddi sem er og alls ekki hvaða koddaver sem er. Mjúki bíbíkoddinn skal það vera. Sem betur fer á ég tvö koddaver sem eru eins svo það er hægt að skipta reglulega til að þvo. En það fer allt í voða ef koddinn gleymist heima.

Knús í kúluna.

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:37

14 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Pottar og pönnur líst vel á það, mótmæli með þér  Fallegar myndir að vanda hjá þér og gaman að sjá hvernig þetta lítur út á Ísafirði núna foreldrar mínir voru einmitt að koma þangað í kvöld til að vera við jarðarförina hennar Helgu Maju sem er systir hans pabba

Guðborg Eyjólfsdóttir, 2.5.2008 kl. 00:10

15 Smámynd: Karl Tómasson

Taskan komin og kisan og öll fallegu börnin þín eru svo falleg og fín.

Getur þetta verið betra.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 2.5.2008 kl. 00:14

16 Smámynd: Tiger

Já, ég er sammála húsbandinu þínu um að börnin blessuð séu bara yngingarmeðöl. Og svo eru náttúrulega blásturshljóðfæri og söngfuglakórar líka yngjandi og ótrúlega skemmtilegt að stunda. Þú ert endalaus uppspretta af gleði og ástúð mín kæra Ásthildur!

Ég styð sannarlega þessa frábæru hugmynd þína um að berja í potta og pönnur til að mótmæla, ef það virkar ekki - þá notum við bara pottana og pönnurnar tli að berja á ráðamönnum þjóðarinnar. Knús á þig ljúfust og eigðu yndislegan föstudag.

Tiger, 2.5.2008 kl. 02:55

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul mín kæru

Knús Huld mín

Takk Auður mín, ég verð alltaf glöð þegar ég sé að þú kíkir við

Knús á þig Katla mín.

Takk Eyrún mín, já það var fljótt um hana Helgu Maju blessaða.  Knús á þig

Já Þordís min, koddar, sængur eða teppi, og svo bangsar og dúkkur, það væri gaman að setja upp svoleiðis þráð um hvaða dýr og muni börnin okkar og barnabörnin taka ástfóstri við.

Hanna Birna, við þurfum bara að samræma stundina, og svo öll sem eitt gera alls herjar hávaða.

Nei Kalli minn það getur ekki betra verið svei mér þá

Takk TíCí minn, ef þetta er svona þá hallar á mig og manninn, annað hvort verður hann að hætta að syngja og spila eða ég að fara af stað

Við förum öll út að slá potta og pönnur, og jamm lýst vel á þetta síðara, það er gott að nota pönnurnar í það

Yndislegan föstudag til þín líka með von um að Tölvan þín komist sem fyrst í lag.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.5.2008 kl. 12:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband