Hið daglega veður og smá mömmó.

Back to normal.  Hehehehe... þá er komið að því hversdagslega í lífinu.

IMG_5923

Þetta eru fimm og sex ára krakkarnir sennilega á Eyrarskjóli, sem eru í kynningu á skólanum, þar sem þau ætla að setjast á skólabekk í haust, þá fá þau að kynna sér skólann, og íþróttaaðstöðuna, sund og leikfimi.  Ég held að þetta séu krakkar af Eyrarskjóli út af fóstrunum sko!

IMG_5925

Þetta eru ungir töffarar.  Og þeirra bíður spennandi skólastarf í haust.

IMG_5926

Þessi er fyrir fjallafólkið mitt, Snæfjallaströndinn í sínu fegursta pússi, dularfull, hrein eins og fjallkonu einni sæmir.

IMG_5927Þ

Þá er það góðurhúsið, það grær og stækkar gróðurinn þar alltaf meira og meira.

IMG_5928

Þetta eru strákarnir mínir Jarek og Marío. Þeir koma frá Póllandi og eru rosalega duglegir.  Með betri verkamönnum sem ég hef haft, að öðrum ólöstuðum.

IMG_5929

Móðan er út af hitanum.

IMG_5931

Veðrið í dag var bara mjög gott, og sólin skein og það var bara þó nokkuð hlýtt.

IMG_5933

Eins og sjá má.

IMG_5934

Það er alveg með ólíkindum hvað smálaukarnir eru fljótir að koma upp, þegar snjórinn fer, og hvað þeir lífga upp á vorið, þessar elskur.

IMG_5936

'Eg vona að börnin séu nógu siðsamlega klædd.  Blush

IMG_5937

Hanna Sól var það hins vegar ekki, því hún var farin úr öllum fötum, svo ég þorði ekki að setja inn mynd af henni.  Gæti misskilist.  LoL

IMG_5938

Og sumir hafa ótrúlegan áhuga á öllu sem er hættulegt.  Kallast það ekki áhættufíklar, eða er það bara saklaus ungbarnaforvitni Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

Alltaf jafngaman að kíkja á þig mín kæra.

Knús

Helga skjol, 30.4.2008 kl. 06:15

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vorið er greinilega að koma hjá þér.  Sjá þessi krútt.  Almáttugur, svo mikið að gerast.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.4.2008 kl. 08:13

3 identicon

Faðir minn hefði sagt þetta vera fróðleiksfýsn , hann vildi ekki nota forvitni. En maður lærir aldrei neitt nema skoða og spyrja, svoþetta er grunnurinn undir framtíðina. En gaman að sjá þau litlu endalaust að. Ég skil alveg að þig langi til að leggjast útaf og sofa nokkra daga, en það er samt ótrúlegt hvað orkan treinist. Farðu samt vel með þig þegar augnablik gefst til þess.

Dísa (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 08:18

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskulegu, það er sennilega alveg rétt hjá þér Búkolla

Já Jenný mín alltaf nóg að gerast.

Faðir þinn vissi hvað hann söng Dísa mín.  Auðvitað er fróðleiksfýsn rétta orðið yfir þetta.  Takk ´Dísa mín, já ég reyni að loka augunum þegar tóm gefst til, en orkan eykst alltaf meira og meira eftir því sem dagurinn lengist.  Við þurftum reyndar að setja teppi fyrir gluggan í svefnherberginu, því það var aldrei komin nótt að mati þeirra litlu, heima hjá þeim í Vín er komið myrkur kl. 6.  Þær eru ekki vanar því að fara í rúmið um hábjartan daginn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 09:15

5 Smámynd: IGG

“Home sweet home“ í tvennum skilningi og yndisleg börnin þín.

IGG , 30.4.2008 kl. 09:23

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Ingibjörg mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 09:27

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Já það var sko STÓR stund að byrja í skóla.  Maður bar lotningarfulla virðingu fyrir öllu í skólanum og kennarinn var hálfgerður guð hjá manni og svoleiðis er það örugglega ennþá hjá krökkum í dag.  Ég sakna þess svolítið að þegar ég var ungur og fór fyrst í skóla, þá byrjaði maður í svokölluðum vorskóla, sem var einskonar "aðlögun" og svo byrjaði alvaran um haustið, þess í stað fá blessuð börnin allan "pakkann" beint í hausinn að hausti til í dag.

Jóhann Elíasson, 30.4.2008 kl. 09:31

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Man eftir þessari sundhöll, held ég hafi bara farið í hana einu sinni að vísu. Fórum einu sinni í 10 daga ,,bíltúr"Mamma, pabbi, börn og bíll - og hundur að vísu líka,  um Vestfirði og þræddum allar laugar sem við komumst í.

Æðislegt gróðurhúsið hjá ykkur!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 30.4.2008 kl. 09:36

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóhann hvort ég man eftir vorskólanum, man eftir veðrinu þegar ég var að fara, finn meira að segja lyktina.  Eftirvænting og forvitni, fékk bækur, nýjar fróðlegar það var gagn og gaman, og svo reiknisbók og svei mér þá líka skriftabók. 

Þau fá einn dag, svona í kynningarferð hér, fá að fara inn í kennslu, og svo að skoða sundlaugina og íþróttaaðstöðuna. 

Jóhanna mín, þetta hefur verið skemmtileg ferð hjá ykkur.  Það er enn þann dag í dag vani fólks að þræða sundlaugarnar.   Þess vegna er mikilvægt að þær séu opnar á sumrin.  Það hefur stundum verið brögð að því að svo hafi ekki verið hér.   Sundlaugin var alltaf tekin í gegn í ágúst, sem er aðalferðamannatíminn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 09:46

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er svo spennandi hjá þeim þegar þau fá að fara í kynnisferð í skólann, því fylgir mikil lotning og spenna Þau eru svo miklar dúllur ömmubörnin þín, alltaf gaman að sjá hvað þau eru að bardúsa

Huld S. Ringsted, 30.4.2008 kl. 11:13

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er alt svo nýtt fyrir þessum ungum.Ömmubörnin þín eru svo mikið krútt

Knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 30.4.2008 kl. 11:32

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar.  Já þetta er stór stund hjá þeim.  Litli töffarinn minn hann Óðinn Freyr er að fara í skólan í haust.  Sá verður montinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 11:51

13 Smámynd: Tiger

Mín kærleiksríka og ljúfa Ásthildur, svo mikið gaman alltaf að koma í heimsókn hérna. Hér er allt innan réttra siðsemismarka náttla, ekki spurning sko. Hahaha....

Spurning hvort sú stutta sé framtíðar rannsóknatæknifræðingur - einhver sem þarf að rannsaka alla skapaða hluti, þannig séð.

Mikið knús á þig skottið mitt og eigðu ljúfan dag.

Tiger, 30.4.2008 kl. 11:53

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hæ minn ljúfi, er eitthvað að frétta af tölvumálum hjá þér ?

Jamm rannróknartæknifærðingur hehehe litla stúlkan með stóra nafnið eða þannig.  Knús á þig til baka og góðan og blessaðan dag til þín líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 11:57

15 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Einn af fáum stöðum í bloggheimum í dag, sem veitir manni vellíðan Takk Ásthildur mín

Sigrún Jónsdóttir, 30.4.2008 kl. 15:10

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jóna Ingibjörg, það situr örugglega í mörgum þessi fyrsti skóladagur.

Mín er ánægjan Sigrún mín. Nóg er af þrautum, leiðingum og ergelsi í heiminum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 15:20

17 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 30.4.2008 kl. 16:49

18 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ó, þetta er svo stór dagur í lífi hvers barns, fyrsti skóladagurinn.  - Og með öllu ógleymanlegur.  M.a.s. ég man minn fyrsta skóladag, það var einmitt að vori til á Akranesi.  Þá vorum við í skólanum í tvær vikur.  - Og þeim vikum gleymi ég aldrei.  Þær vour svo dásamlegar. -  En forvitnin rekur mig til að spurja þig Ásthildur, hvort íþróttakappinn þinn hafi fengið töskuna sína?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 30.4.2008 kl. 17:58

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég ætlaði einmitt að fara að tala um það.  Það var hringt núna rétt áðan frá Keflavík og taskan er þar, sem betur fer.  Foreldrafélagið tók hana í sína vörslu.  Það er mikill léttir.  Takk fyrir að spyrja Lilja mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 18:23

20 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ef þú ert ekki forvitinn...þá færðu aldrei að vita neitt

En mikið er ég ánægð ykkar vegna að taskan er komin í leitirnar

Góða nótt

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 30.4.2008 kl. 23:21

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt Hulda mín, það er alveg laukrétt.  Takk og góða nótt á þig líka

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 23:28

22 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Svona eiga börn að vera, Ásthildur. Eðlileg og njóta lífsins, fá að forvitnast og prófa. Hvað er yndislegar en glatt, forvitið barn sem býr við ástúð og öryggi? Ekkert held ég. Mér finnast myndirnar þínar alveg yndislegar, þú nærð þeim á svo skemmtilegu augnabliki. Knús frá mér.

Sigurlaug B. Gröndal, 30.4.2008 kl. 23:50

23 Smámynd: G.Helga Ingadóttir

Alltaf fjör á Ísafirði og vissulega er vorið komið þarna undir snjónum. Yndisleg krútt þessi barnabörn þín. Mikið ertu nú dugleg að taka myndir og setja þær inn á bloggið. Maður finnur nú bara stemmninguna hingað suður.

Kveðja og knús -

G.Helga Ingadóttir, 1.5.2008 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband