Taekwondo - ef einhver les....

þetta blogg og veit um málið, þætti mér vænt um að hann hefði samband.

En stubburinn minn gleymdi töskunni sinni í Holtaskóla í Keflavík, þegar við fórum heim.  Hann er alveg eyðilagður.  Hún gæti líka hafa þvælst með akureyringunum.  Allur búningurinn hans var í töskunni, sem lýtur svona út;

Úlfur með tösku.

Ég vona að einhver viti um töskuna og annað hvort hringi í mig eða sendi hana í Kúluhúsið á Ísafirði.  Númerið er 861 1444.  Það er hægt að senda, með því að viðtakandi greiði kostnaðinn.

Ég var ansi þreytt í gærdag, og gerði ekki neitt nema dúlla við litlu stelpurnar mínar.  Sem voru rosalega glaðar að fá okkur heim aftur.  En afi stóð sig líka mjög vel í pössuninni. 

Hann sagði mér að Hanna Sól fór að ræða við hann um fjölskylduna, afa gamla, ömmu og afa, pabba og mömmu og svoleiðis, það er notalegt að ræðast við meðan maður ekur gönginn.  Svo spurði hún; afi hvar eru pabbi þinn og mamma? Þau eru bæði farin til Guðs, sagði afi.

Skaut þau einhver ? spurði barnið. LoL Hún er náttúrlega dóttir verðandi dýralæknis.

Annars er lífið að færast í sinn vanagang hjá mér.  Og vorið heldur áfram að lifna og sækja á vetur konung.  Sumar er ef til vill of mikið sagt Tounge en vorið er örugglega komið.  Nú þarf að fara að huga að gróðrinum, hvernig hann hefur komið undan vetri og skipuleggja næstu skref í hreinsun og áburðargjöf.  Þetta kemur allt saman. 

En eigið góðan dag, elskurnar.  Ég ætla að setja meira inn um Taekwondomótið í kvöld.  Knús á ykkur öll, og takk fyrir að líta við og lesa það sem ég set frá mér.  Mér þykir vænt um það. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Búkolla mín, já ég vona svo sannarlega að þetta skili sér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 11:09

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vona að taskan hans skili sér.

Beztu kveðjur vestur

Hrönn Sigurðardóttir, 29.4.2008 kl. 11:13

3 identicon

Vonandi kemur taskan í ljós. Venjulega er mjög vel haldið utanum dót á svona mótum og allt reynt til að skila. Allir vita að auðvelt er að gleyma sér augnablik. En það hefur verið gaman að koma heim og sjá litlurnar og að allir voru saman aftur. Svo byrjar rútínan á ný með öllum sínum tilbrigðum til að krydda. Kær kveðja.

Dísa (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 11:19

4 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sunna Dóra Möller, 29.4.2008 kl. 11:20

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þetta er leitt að heyra ég vona svo sannarlega að taskan skili sér.

Kær kveðja Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 29.4.2008 kl. 11:26

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar, já ég vona svo sannarlega að taskan finnist.  Já Dísa mín, ég er viss um að það er haldið vel utan um svona hluti, svo er bara að vita hvert á að skila þeim.  Ég hef hringt í Holtaskóla, og vonandi er taskan þar.  Knús á ykkur allar inn í daginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 11:45

7 identicon

Ég skal renna við í skólanum í dag og gá hvort taskan er þar

Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 11:55

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vona að taskan komi heil heim. 

Yndisleg sú stutta.  Pælingar barna eru dásamlegar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.4.2008 kl. 12:01

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku Elísabet mín.

Já Jenný mín ég vona það svo sannarlega.  Þessir búningar eru ekki gefins, og allt sem þeim tilheyra.  Þó er tilfinningatjónið meira hjá stubbnum, hann var svo hreykin af búningnum og ætlaði að passa svo vel upp á hann.

Já þessar elskur eru algjörar!!! eins og Hanna Sól segir með áherslum.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 12:11

10 Smámynd: Linda litla

æi... krúttið, skaut þau einhver ?? Þessi börn eru svo saklaus og að hlusta á þau og fá beint í æð hvað veltur upp úr þeim er alveg yndislegt.

Það er svo oft að eitthvað tínist á svona ferðalögum, vona svo sannarlega að taskan skilist til stubbsins, það er greinilega allt í henni.

Eigðu góðan dag Ásthildur mín.

Linda litla, 29.4.2008 kl. 12:49

11 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æ strákgreyið, vonandi skilar taskan sér til hans!

Huld S. Ringsted, 29.4.2008 kl. 12:51

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Linda min, það var allt hans helgasta í töskunni.  Búningurinn sem hann var svo hreykin af.  Já þau eru saklaus blessuð börnin.

Já ég vona það líka Huld mín takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 13:47

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vona að taskan komist til skila.  Góðar kveðjur í Kúluparadís

Sigrún Jónsdóttir, 29.4.2008 kl. 13:52

14 Smámynd: Herdís Alberta Jónsdóttir

Gleðilegt sumar, rosalega ertu rík kona Ásthildur, þessir krakkar eru alveg frábær, bleikar stelpur með vængi og allt, líklega ljósálfar í fyrra lífi. Ég er að velta fyrir mér myndbirtingu á nöktum börnum og er verulega hugsi yfir þeim, en það fer í taugarnar á mér að þurfa að hugsa um það, nekt er eðlileg og mér finnst nauðsynlegt og heilbrigt að börnin læri að umgangast nekt sem slíka, ekki eitthvað ljótt sem þarf að fela.

Herdís Alberta Jónsdóttir, 29.4.2008 kl. 13:53

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 14:44

16 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Svona fer stundum með stubba og töskur, en vonandi finnst hún.

Ég get sagt þér að klaufdýrið mitt skildi einu sinni útivistarjakka eftir þegar hann var í skólaferðalagi í Skagafirði og viti menn hann komst alla leiðina til skila í Hveró  

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 29.4.2008 kl. 16:19

17 Smámynd: Tiger

Ussuss... það er nú bara skelfilegt þegar maður tapar persónulegum hlutum - og svona töskur með búning og allt, bara leitt. Vona að þetta finnist og skili sér alla leið til ykkar aftur. Ég mun eitthvað lítið vera á ferðinni hérna á netinu - allavega í athugasemdum - næstu daga vegna tölvukrasserís - er á lánstölvu frá árinu 1830 sem er að frjósa í öðru hvoru orði og hlutirnir hverfa líka hérna í henni ef ég er ekki fljótur að ýta á senda... en knús á þig gullið mitt og hafðu það yndislegt.

Tiger, 29.4.2008 kl. 16:38

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín.

Dísa mín ég er algjörlega sammála þér, það er ömurlegt að taka sakleysið frá börnunum með þessum hætti.  Takk fyrir að kíkja við. Alltaf gaman að hitta gamla kunningja

Knús á þig líka Solla mín.

Gott að heyra þetta Hulda mín, ég vona svo sannarlega að það gerist líka núna.  Ég er búin að hringja í bæði skólan og taekwandofélagið og þau ætla að leita að töskunni.

Elsku TíCí minn, vonandi færðu tölvuna þína sem fyrst í lag ljúfurinn minn. ég er með svona forngrip í vinnunni, og veit um hvað þú ert að tala.

Jóna Ingibjörg mín, ég held að ég þurfi svona mánuð til að sofa  en þá verð ég bara ennþá latari en ég er.  Maður er rifinn upp án miskunnar, og veistu maður lærir af þessu alveg allt upp á nýtt.  En Guð hvað ég elska þessi litlu kríli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 18:06

19 identicon

Hæ Ásthildur mín, leitt að taskan var ekki í skólanum! Húsvörðurinn talaði um að einhver Kolla hefði farið yfir salinn, hún er eitthvað á vegum taekwando félagsins hér í Keflavík, vertu í sambandi ef ég get eitthvað hjálpað, knús

Elísabet Markúsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 18:55

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já takk Beta mín, ég hrindi í forsvarsmenn félagsins, og þau voru mjög elskuleg og ætla að gera allt til að finna töskuna.  Ef hún finnst ekki þar, berast böndin að akureyri.  En hún er allavega einhversstaðar þessi taska með öllu sínu dýrmæta innihaldi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 19:58

21 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

ÆÆ leiðinlegt með töskuna vona að hún finnist.

en það er alveg dásamlegt hvað þessi börn setja út úr sér .vinkona mín var að segja ungum syni sínum að amma hans væri dáin þá sagði hann ha hver drap hana og svo eftir smá útskíringar með það þá sagði lillin og hvar verður hún gróðursett haha.

Eyrún Gísladóttir, 29.4.2008 kl. 20:34

22 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vesen að taskan skyldi týnast. Vona að hún komi í leitirnar.

Helga Magnúsdóttir, 29.4.2008 kl. 20:42

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eyrún hehehehe...

Takk Helga mín, vona það líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 20:50

24 identicon

Sæl Ásthildur .Ég var með akureyringunum á þessu móti og var viðstödd þegar það var tekið úr rútunni og það var því miður engin aukataska með en ég skal samt athuga það betur.

Elísabet Árný Árnadóttir. (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 20:50

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Elísabet mín.  Öll aðstoð vel þegin, en ég held að þið hafið verið farin með allt ykkar dót áður ein við fórum.  En það er auðvitað alltaf þessi möguleiki. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 21:42

26 Smámynd: G Antonia

aei ég vona ad hann fai toskuna tilbaka. Eg thekki thetta - ekki langt sidan madur var med drengina sina i svona ithrottaferdum ....  einnig var eg ad vinna i ithrottamidstod og nokkrar mommur sem hringdu eftir svona mot.   

Annars solarknus fra Spani **

G Antonia, 29.4.2008 kl. 21:45

27 identicon

Ég kannaði málið og það var engin auka taska.En vonandi finnst hún fljótt . Bestu kveðjur heim á vestfirðina     kv frá Akureyri.

Elísabet Árný Árnadóttir. (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 21:56

28 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig líka GAntonía mín.

Takk Elísabet mín. Þetta var aldeilis frábært mót, fannst þér ekki ? Bestu kveðjur líka til Akureyris. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 22:06

29 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Gréta mín og knús á þig líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband