Smá pæling um miðborg Reykjavíkur, Vatnsmýrina og Hannes.

Ég hef verið að spá í hlutina svona innra með mér.  Það eru þrjú málefni sem ég hef tekið eftir að eru efst á baugi, svona burt frá einkaþotubusiness þeirra Ingibjargar og Geirs.  Það er flugvallarmálin í Vatnsmýrinni, miðborgin og svo Hannes Hólmsteinn.

 

Ég ætti svo sem ekki að vera að skipta mér að þessum málum, því þau káfa ekki upp á mig, nema flugvöllurinn, og þó mjög takmarkað því ég flýg helst ekki.  Ég ek suður ef ég þarf að fara þangað. 


En það er ljóst að öll þessi mál eru einhvernveginn á röngu róli.  Meðan til dæmis ráðamenn í borginni eru að spá í flugvallarsvæðið með húsbyggingar í huga, og láta fara fram hugmyndasamkeppni um það svæði, þá er ekkert gert í miðborginni, og hún bara látinn drabbast niður.

Þar virðast byggingarverktakar geta hagað sér eins og svívirðingar, keypt hús, látið þau drabbast niður til að geta rifið þau, og jafnvel hrekja fólk úr húsum sínum, með því að leigja misindisfólki og veikum einstaklingum íbúðir og hús, og hóta fólki að húsin þeirra og íbúðarhúsnæði lækki í verði, svo betra sé að selja þeim strax.  Þetta hefur að því að mér virðist verið látið átölulaust, og ekkert gert til að koma í veg fyrir það.

Skrýtið, því í öllum höfuðborgum reyna menn að vernda miðbæinn, þann hluta sem hefur mesta sögu og nauðsynlegt að hafa einhverja yfirsýn yfir hvernig líti út.  Til dæmis í París, þar má ekki hrófla við neinu í miðborginni.  Ekkert rífa og engu breyta.  Ef nauðsyn ber til að breyta, þá er skilyrði að framhlið hússins haldi sér, svo myndin sé hin sama. 

Hvar er metnaður borgarfulltrúa Reykjavíkur gagnvart miðborginni ?  Og þá er sama hver er í forsvari, því ekkert hefur breyst, þó borgarfulltrúar séu eins og jójó úti eða inni. 

Svo er rifist um keisarans skegg, hvort þetta hús eigi að fara, eða hitt húsið, og hvort rétt hafi verið að kaupa þetta húsið eða hitt. Hvort eigi að skikka menn til að mála og halda við húsum, sem er bara kúkur á priki miðað við það sem raunverulega þarf að fara fram.

 

Þarna hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera skipulag um hvaða götumynd fólk vill sjá í miðborginni, og hvað má missa sig.  Fara í hugmyndasamkeppni  um skipulag þar frekar en í Vatnsmýrinni, um hvernig á að standa að uppbyggingunni.  Því miður virðist þetta hafa verið bara happa og glappa, og byggingarverktakar bara byggt ljót háhýsi af ódýrustu gerð, til að hámarka gróða sinn og út úr korti við öll hús í nágrenninu.  Þar kemst engin fagurfræði að, eða umhyggja fyrir því sem fyrir er.  Af hverju þarf þetta að vera svona.  Ætli það geti verið að við séum ennþá með annan fótinn í moldarkofanum, og höfum aldrei almennilega yfirgefið hann ? Það er meiri reisn yfir Súðavík en miðborg höfuðstaðar okkar. 

 

Svo er Hannes.  Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.  Þetta er svo týpiskt fyrir íslenska þjóðarsál.  Nú finnst fólki hann hafa komið svo vel út úr viðtölum í sjónvarpi og blöðum, nýr Hannes, auðmjúkur og góður.  Hversu mikil flón getur fólk verið ?

Getur fólk ekki séð mun á falsi og fláleika og svo almennilegri iðrun ?

Nú segist hann vera bara eins og venjulegur verkamaður með 500 þúsund á mánuði, og spyr hvernig hann eigi að komast fram úr því.  Hannes Hólmsteinn hefur aldrei verið venjulegur verkamaður, hann hefur alla tíð verið í faðmi Sjálfstæðisflokksins eins og bómullar ungi.  Það er líka hans akkilesarhæll, því hann hélt að hann kæmist upp með hvað sem var.  Og sennilega kemst hann upp með það á endanum, því Sjálfstæðiflokkurinn sér um sína, sama hvað á dynur.

Allur málflutningur hans segir mér að hann er að klóra í bakkann, hann er auðvitað í vandræðum, sem hann hefur sjálfur komið sér í, einn og óstuddur.  Og þegar herðir að og buddann orðin tóm, þá eiga aðrir að koma að og bjarga honum.  Er ekki komin tími á að maðurinn bjargi sér sjálfur.  Hann er orðin nógu gamall til að vita að ef maður gerir eitthvað af sér, þá þarf maður að standa fyrir því.  Ég sá enga iðrun, ég horfði mann sem sá fram á alvöru lífsins, og vill nú láta bjarga sér úr snörunni.  Meðulin eru sýnileg öllum sem vilja sjá.  Nei sorrý ég held að Hannes blessaður hafi bara gott af því að standa skil á því sem hann hefur gert.  Standa frammi fyrir sjálfum sér og standa fyrir málum sínum.  Hann yrði maður að meiri í mínum huga.  Það eru svo margir á undan honum sem ég myndi leggja lið til dæmis.  Ég er sannfærð um að það mun þroska hann mikið sem manneskju að þurfa einu sinni að klóra sig út úr sínum eigin gjörðum.   En þetta er nú bara svona pæling dreyfbýlistúttu.  En ég held að fólkið sem kallað er í daglegu tali 101liðið eða eitthvað álíka, mætti aðeins fara að hugsa sinn gang.  Við segjum að ameríkanar viti ekkert lengra en í sínum eigin nafla, þeir sjái ekkert utan síns heimabæjar.  Þetta er svo sannarlega að heimfærast upp á það fólk sem hrærist hvað mest í miðborg Reykjavíkur og heldur að landsbyggðin taki við upp við Elliðaár. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já mikið rétt Búkolla mín. Það er eins og okkur skorti alla innri sýn á menn. Sjáum bara það sem þeir vilja að við sjáum.  Og allof margir falla fyrir þessu.  Og svo þessi fjölmiðla hrina í kring um karlinn.  Sérhannað beint úr Valhöll, það er mín ályktun.  Það á að bjarga þessum syni Sjálfstæðisflokksins eins og svo oft áður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 18:16

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Ég hef verið að spá í hvort hann Hannes hafi leitað ráða hjá Pétri Blöndal alþingismanni  

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 6.4.2008 kl. 18:32

3 Smámynd: Linda litla

Venjulegur verkamaður með 500.000 á mánuði ? Í hvaða landi er hann ? Ég bara spyr.

Linda litla, 6.4.2008 kl. 19:20

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð. Held að Fjölskylduhjálp Frjálslyndra hjálpi Hannesi ekki heldur Fjölskylduhjálp Sjálfstæðisflokksins. En svona í alvöru þá er Fjölskylduhjálpin ekki tengd einhverjum ákveðnum flokk þó að fólk í Frjálslyndaflokknum hafi verið beðið um að hjálpa við úthlutun fyrir páska.

Ég bráðnaði nú ekkert að sjá viðtalið við Hannes Hólmstein. Var þetta ekki bara útpælt til að fá samúð þjóðarinnar?

Við myndum hafa það gott ef útborguð laun okkar væru 250.000 kr. á mánuði en það er sko langt frá því.  500.000 þúsund á móti 125 .000 kr. sem er nær lagi en það eru laun öryrkja, ellilífeyrisþega og þeirra sem minnst hafa launin. Dálítið skondið að tala um hálfa milljón sem verkamannakaup. Þarna er Hannesi best lýst. Sjálfumglaður og hefur alltaf verið frekur og með yfirgang.  Úff.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.4.2008 kl. 20:46

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já hann var góður þessi með 500 þús kr. á mánuði.  Hvar hefur maðurinn alið manninn?  Venjulegur launamaður.  OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.4.2008 kl. 21:16

6 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

500 þús haha ég myndi alveg vilja vera sá verkamaður. Nokkuð góður

Guðborg Eyjólfsdóttir, 6.4.2008 kl. 22:28

7 identicon

held að hann og hans vinir viti lítið hvað verkamaður hefur í laun. Kannski væri honum hollast að gerast venjulegur hafnarverkamaður, eða Strætóstjóri. Þar getur hann sýnt farþegum þessa nýtilkomnu auðmýkt.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 23:03

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hörkuflottur pistill hjá þér vinkona að vanda, enda sé ég alveg vanda í þeim vanda að ég geti ekkert vandað til um við þig um innihald hans, enda alsammála.

Steingrímur Helgason, 6.4.2008 kl. 23:08

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég yrði nú aldeilis óvenjuleg ef ég hefði svona flott laun.  Annars er ótrúlegt hvað maður getur stundum teygt lopann.  Eigið ljúfa viku saman í kúlunni. 

Ásdís Sigurðardóttir, 6.4.2008 kl. 23:31

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður pistill hjá þér Ásthildur.....og auðvitað er meiri reisn yfir Súðavík en miðbæ höfuðborgar nú um stundir.....og reyndar allar stundir.  Vona að hvíldin hafi gert þér gott.

Sigrún Jónsdóttir, 7.4.2008 kl. 00:06

11 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Fín hugleiðing Cesil.

Auðvitað hefðu menn átt að vera fyrir löngu síðan búnir að festa í sessi hugmyndir um hvað skal standa og hvað ekki til langframa varðandi götumynd miðbæjarins.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 7.4.2008 kl. 01:03

12 Smámynd: Tiger

  Alveg stórkostlegur pistill hjá þér Ásthildur mín, eins og þér einni er lagið að skrifa þá. Ég er algerlega sammála þér með þau atriði sem þú telur þarna upp og hef t.d. ekki farið leynt með að ég hef ekki mikið álit á Hannesi og trúði svo sannarlega ekki á grímuna sem hann bar í viðkomandi kastljósi. Hann er bara kominn út í horn og á kaf - svo hann reynir nú að teygja anga sína ofaní vasa þeirra sem síst ættu að hjálpa honum núna. Honum var nær, sló á allar sáttahendur og óð áfram í hroka sínum, nú uppsker hann ríflega það sem hann hefur alla tíð sáð vel fyrir. Venjulegur verkamaður þarf að borga sekt sína ef hann er sektaður fyrir eitthvað - það á Hannes líka að geta gert - jafnvel þó hann sé á fátækralaunum ... þannig séð!

Ég er líka sammála því að ráðamenn í borginni ættu að einbeita sér meira að vandanum innan miðborgarinnar frekar en að vera reyna að færa út kvíarnar á kostnað naflans. Nú veður meirihlutinn upp í háls í því að reyna að ganga í augun á landanum - með því að ausa fé í allar áttir - nema þangað sem raunverulega er þörf á fénu! T.d. hefði verið miklu nær að byggja gott heimili fyrir allavega eitthvað af þessum 60 sem þurfa að liggja á götunni - frekar en að henda öllum þessum hundruð milljónum í kofaræsknin á laugarveginum. En svona er pólitíkin - valdabrölt og sýndarmennska. En frábær pistill Ásthildur mín og góðar pælingar - knús í nóttina og nýja viku hjá þér elskulegust.

Tiger, 7.4.2008 kl. 02:11

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góðan daginn Áshildur mín. Ég mundi að þiggja 500 þús kr  á mánuði.Góð grein hjá þér.

Eigðu góðan dag.

Kristín Katla Árnadóttir, 7.4.2008 kl. 11:08

14 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Frábær pistill. Er eins sammála þér og hægt er að vera.

Helga Magnúsdóttir, 7.4.2008 kl. 11:37

15 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Hæ Cesil, ég staldraði við þennan kafla hjá þér: "Er ekki komin tími á að maðurinn bjargi sér sjálfur.  Hann er orðin nógu gamall til að vita að ef maður gerir eitthvað af sér, þá þarf maður að standa fyrir því.  Ég sá enga iðrun, ég horfði mann sem sá fram á alvöru lífsins, og vill nú láta bjarga sér úr snörunni.  Meðulin eru sýnileg öllum sem vilja sjá.  Nei sorrý ég held að Hannes blessaður hafi bara gott af því að standa skil á því sem hann hefur gert.  Standa frammi fyrir sjálfum sér og standa fyrir málum sínum."

Eins og fjölmörgum öðrum Íslendingum er þér umhugað um höfundarrétt og rétta notkun gæsalappa, ég efa ekki að þú hafir velt þessu mikið fyrir þér. En ég  velti fyrir mér hvort þú hefðir brugðist eins við ef glæpir Hannesar hefðu verið á öðru sviði t.d. varðandi eiturlyfjaneyslu og hann hefði haft fé út úr vinum sínum og fjölskyldu til að fjármagna vímu sína og framið afbrot í vímu og valdið öllum í kringum hann djúpri sorg og erfiðleikum. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 7.4.2008 kl. 13:01

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Salvör mín, bara að vara þig við, þú ert að ávarpa lífsreynda konu!

Fyrirgefðu Ásthildur mín, ég bara gat ekki stillt mig.

Sigrún Jónsdóttir, 7.4.2008 kl. 13:47

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Salvör ertu virkilega að bera saman fíkil og bróður þinn ?  Ég hef lengi barist við fíkniefnadjöfulinn.  Í núna yfir 30 ár hef ég þurft að berjast, ekki bara við fíkilinn heldur kerfið.  Ég hef skrifað margar greinar og reynt allt sem hægt hefur verið til að bjarga þessum syni mínum.  Loksins hillir undir að það ætli að takast, með sameiginlegu átaki margra aðila, en fyrir þrautseigju og baráttu mína. 

Fíkill er í raun og veru ekki sjálfráður gerða sinna.  Hann er í annarlegu ástandi þegar hann fremur afbrot sín.  Ég hef lengi barist fyrir því að slíkir séu ekki settir í fangelsi, heldur verði dæmdir á lokaða meðferðarstofnun, líkt og er gert á hinum norðurlöndunum.  En til dæmis í Danmörku er sérstakur fulltrúi á vegum fangelsismálastofnunar sem tekur viðtöl við fíkla, og greinir ástand þeirra, og eftir hennar tilhlutan eru menn oft dæmdir í svo og svo langa meðferð, á stofnunum sem taka inn slíka.   Og ég veit allt um hvað fíkill eyðileggur út frá sér, Ég veit allt um sorg og örvæntingu ættingja fíkils, og ég veit allt um hvernig er að kalla út í tómið, þar sem ætti að vera björg, sem sagt á vegum ríkisins, en þar hefur ríkt þögnin ein, þangað til loksins núna að aðeins birtir til, ef til vill í og með vegna skrifa minna og baráttu við kerfið.

En aldrei hélt ég að þú legðir bróður þinn svo lágt að líkja honum saman við það blessað fólk sem í þannig ástandi fremur afbrot.  Hannes gerir þetta allt saman vitandi vits, hann er prófessor í þeim fræðum sem hann braut af sér í.  Er hægt að segja að hann hafi ekki vitað betur ?  Ég held ekki.  Með meiðyrðamálið, þá er það líka þannig eftir því sem ég hef heyrt að Jón Ólafsson bauð honum að taka orð sín til baka og biðjast afsökunar.  Hann gerði það ekki, svo Jón hélt áfram með málið. 

Ég skil vel að Hannesi líði illa í dag, og að hann sé svekktur yfir því hvernig spilast hefur úr hans málum.  En hann getur engum kennt um nema sjálfum sér.  Ef hann hefði ekki verið svona yfirlætisfullur og sannfærður um að hann kæmist upp með þetta hvort tveggja, þá væri hann örugglega í betri málum.  Ég stend því við þau orð mín, að ég held að hann hafi gott af að taka ábyrgðina á sig, og taka afleiðingum gerða sinna.  Ég held að hann standi sterkari eftir.

Fíklar þurfa líka að taka afleiðingum gerða sinna, og það er enginn söfnun í gangi þar.  Og þegar þeir loksins sjá ljósið og vilja fara að lifa normal lífi, þá er allt í rúst, fjárhagurinn í rúst, og endalausar kröfur á kröfur ofan.  Þeim er gert næstum ómögulegt að hefja nýtt líf.  Láttu mig vita það. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2008 kl. 14:41

18 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Kæra Frænka. Sannleikanum verður hver sárreiðastur. Gott hjá þér.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 7.4.2008 kl. 18:47

19 Smámynd: Halla Rut

Ég legg til að allir leggi eina krónu inná Hannes.

Halla Rut , 7.4.2008 kl. 22:35

20 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Elskulega Ásthildur! Takk fyrir frábæran pistil.   Þú þarft sko, ekki, að afsaka þennan góða og málefnalega pistil. -  Ég get tekið undir, eiginlega allt, sem þú segir og hélt reyndar að ég hefði gert það strax í gær, en eitthvað klikkaði hjá mér í tölvunni því ég sé að kommentið, hefur ekki náð hér inn. 

   Semsagt,  það er aðeins það, sem þú segir í lokin, um þá sem búa í 101 Reykjavík, sem ég er ekki alveg sammála. -  Því það er einmitt það fólk sem hefur verið, hvað duglegast, að berjast fyrir uppbyggingu gamalla húsa, og hreinni og fagurri borg.  Og hafa lagt fram mjög eftirtektarverðar tillögur.  Eitt má segja R-listanum til hróss að hann tók til í borginni, og það ætlaði meirihlutinn sem þá tók við líka að gera.  Þá brunnu húsin á horni Lækjargötu og Austurstrætis, og þá gerði þáverandi borgarstjóri þá stóru skyssu að lofa uppbyggingu á ný upp á sína.

  Og kveikti þar með á því, að aðrir eigendur líkra húsa, og þarna fóru, hugsuðu sér gott til glóðarinnar og borgin var lent í spennitreyju braskara gamalla húsa..... þá kom "100 daga borgarstjórnin" og sú 100 daga borgarstjórn var búinn að leggja fram áætlun að uppbyggingu miðbæjarins og nákvæma áætlun um, hvernig, unnið skyldi eftir áætluninni. - Þegar Villi og Ólafur F. ákváðu að bjóða betur, og Óli bauðst bara strax til að kaupa kofana, fyrir hvað sem þú segir þá borga ég betra verð.

- Og það gerði hann, en girti um leið fyrir aðra uppbyggingu í miðbænum, því nú láta húseigndur eignir sínar bara grotna niður  og bíða bara rólegir eftir boði frá Ólafi F. & Co. -  Og nú virðist planið, hótun um leggja miðborgina í rúst, svo braskarar geti keypt hana fyrir slikk, á brunaútsölu ef ekki vill betur.  

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 7.4.2008 kl. 23:03

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lilja það er alveg rétt hjá þér, að þetta síðasta skot var út úr korti.  Ég veit að einmitt fólkið í miðbænum, ekki síst listafólk hefur unnið gott starf í að krefjast verndunar miðbæjarins.

Ég var reyndar að tala almennt um það sem kallað er 10l liðið, en er raunar bara hugartákn fyrir fólkið í Reykjavík sem vill afnema dreyfbýlið, getur búið hvar sem er raunar, og náttúrulega helst í ríkmannlegri úthverfum.  Þessi orð eiga við um þá sem þannig hugsa en ekki, fólkið sem hefur barist fyrir friðun og endurbyggingu miðbæjarins.  Tek þetta því til baka. 

En ég er sammála því að ekki hefur verið staðið rétt að málum eftir brunan.  Eflaust hefur Ólafi gengið gott til, en hann hefur ekki hugsað málin til enda. 

Ég skil bara ekki af hverju er ekki lögð meiri áhersla á HEILDARLAUSN í miðbænum, í stað þess að taka hvert hús fyrir sig.  Það er bráðnauðsynlegt að setja þeim stólinn fyrir dyrnar, sem ætla sér bara að hafa stundargróða af uppbyggingunni, og hugsa hvorki um útlit né vandaðar byggingar.   Á þessum stað ætti einmitt að byggju upp fallegu húsin og reisa byggingar í stíl við þau á auðum lóðum, reyna að fá heildarsvip, sem sómir þessari borg okkar, sem er raunar einstæð í veröldinni ef menn hugsa málin.  Synd hve skammsýnin er mikil hjá ráðamönnum. 

En eins og ég sagði þá sé ég þetta utanfrá.  Mér svíður samt að heyra af því að óprúttnir menn nota sér ástandið sjálfum sér til framdráttar og eru líklegir til að fremja glæpaverk eins og íkveikjur til að ná fram markmiðum sínum.  Við slíka menn dugir ekkert annað en harkan sex, og það strax. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.4.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband