Smáfrí á barnapössun og gróður beint í æð.

Elsti sonur minn Ingi Þór hringdi í mig í gær og sagði að hann skyldi taka stelpurnar í pössun í gær, og jafnvel í nótt líka.  Ég varð auðvitað mjög glöð yfir hugsunarsemi hans.  Hann er pabbi hennar Evítu litlu, og er grasekkjumaður eins og er.  Honum fannst ekkert mál að taka þær litlu líka, og þær eru þar ennþá.  Við vorum sem sagt ein í kotinu í gær, Úlfur hafði boðið frænku sinni Sóley Ebbu út að borða í afmælisgjöf, grand á því drengurinn, og gisti svo hjá annari frænku, Evu Rut. 

Það var ljúft að vera bara tvö svona smátíma.  En Ingi Þór hringdi svo í morgun og spurði mig hvort ég hefði vitað að Ásthildur væri komin með hlaupabóluna ? Nei sagði ég, ég var samt að spá í það í gær, vegna þess að ég sá eina bólu á hálsinum á henni í gær morgunn.  Jamm hún er öll útsteypt núna sagði hann. 

En ég notaði tækifærið og fór að prikla í morgun upp í gróðurhúsi. 

IMG_4753

Þau eru mörg orðin myndarleg blómin mín.

IMG_4754

eins og sjá má.

IMG_4755

IMG_4756

Það er samt heilmikil vinna eftir, við vorum óheppin og fengum svepp í sáninguna, svo við urðum að endursá eiginlega öllum plöntunum.  Við höfum grun um að moldin sem við fengum, hafi verið ónýt.  En það er bara að byrja aftur og gera enn betur.  Svo fauk plastið af stóra húsinu, svo við verðum í vandræðum með pláss, en vonandi verður fljótlega hægt að setja plast á aftur, og fara að nota húsið. 

En veðrið er ágætt núna, það er hlýtt og bjart, þó sólin nái ekki fram ennþá.

IMG_4752

En ég segi nú bara takk elsku Ingi Þór minn, fyrir að vera svona hugsunarsamur við hana mömmu þína.  Knús á þig Heart

Og knús á ykkur öll inn í daginn.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það var nú gott að þú fékkst smá frí en slæmt að hún fékk hlaupabólu.

Alltaf eru nú blóminn þín falleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 6.4.2008 kl. 13:57

2 identicon

Frábært hjá syninum að hvíla ykkur aðeins og gea ykkur færi á að vera ein í kúlunni.

Öfundin grasserar þegar ég sé þína plöntur

Líður hengfjólunum ekki bara vel, ætla nefnilega að panta 4 stk

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 14:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú þarna plöntufrömuður, ég á ekki orð, af aðdáun.  Vá ég get ekki haldið gyðingnum á líf, jösses.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.4.2008 kl. 14:39

4 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Nú er ég bara klikkaðslega öfundsjúk...

Á ekki konan gróðurhús og alles. Allt blómstrandi og fínt

Svala Erlendsdóttir, 6.4.2008 kl. 14:54

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Katla mín ég er rosalega ánægð með smá frí, en ég sakna þeirra samt strax.

Hehehe Kidda mín, ég held alveg örugglega að ég muni eiga hengifjólu í sumar fyrir þig.

Takk Jenný mín,  þetta bara æxlast einhvernveginn.

Já konan þessi á gróðurhús, og það er yndislegt Svala mín  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 15:30

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

   Þú ert nú alveg ótrúleg Ásthildur !  Þvílíkt gróðurhús!  Og, hvernig ferðu að því, að anna þessu öllu, með þetta stóra heimili að auki?  Svo virðist allt blómstra í höndunum á þér. 

   Þessi sveppur er mjög varhugaverður, og það þarf víst að sótthreinsa vel ílátin og svæðið þar sem hann hefur reynt að koma sér fyrir.  Ertu með lífræna ræktun þarna?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 6.4.2008 kl. 16:06

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég er ekki beint með lífrænaræktun, en ég nota samt mest þaraáburð Glæðir, sem er náttúruvænn, og svo þvoum við húsið með grænsápu.  En við komumst ekki hjá því að eitra fyrir lúsinni og allskonar sníkjudýrum í svona ræktun því miður.  Ég held að tíminn sé afstæður hehehehehe   Annars hefur vinnan mest lent á manninum mínum í vor. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 16:13

8 Smámynd: Tiger

  Var að renna yfir síðustu færslur og skoða myndirnar þínar. Líkt og ætíð er ég svo mikið hrifinn af því hve glæsileg og hraustleg börnin eru hjá þér elskulegust! Það er líka svo mikið greinilegt hve ánægð og hamingjusöm þau eru, enda ertu stórkostleg amma og þar að auki með gígantískt stórt hjarta. Frábær sonur þinn að gefa ykkur obbólítið frí frá öllu, alltaf gott að geta slakað aðeins á svona af og til þó blessuð börnin séu mikil Guðsgjöf.

Mér finnst myndirnar af bryggjunni alveg frábærar, svo skýrar og skemmtilegt að sjá svona daglegt eitthvað úr mannflórunni. Einnig frábært að sjá plönturnar þínar, systir mín er einmitt með gróðurhús en hún er þó með Gúrkur og slíkt dót þar en ekki plöntur.. Myndirnar af gæsunum eða öndunum eru líka flottar, og mikið fallegir fuglar (endur var það ekki?) .. Svo er líka æðislegt að sjá bara myndir úr kuldalegu vestfjarðaríkinu. Takk æðislega fyrir skemmtilegt ferðalag um ríki þitt ljúfust og eigðu góðan sunnudaginn og góða viku framundan. Mikið og stórt knús á þig skottið mitt!

Tiger, 6.4.2008 kl. 16:45

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þetta TíCí minn, þú ert svo yndæll að það hálfa væri nóg.  þú ert hlý manneskja sem gefur mikið af þér.  Takk fyrir mig.

Takk Helga mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.4.2008 kl. 17:04

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl kæra Ásthildur.

Frábærar plöntur og sonur þinn er til fyrirmyndar.

Baráttukveðjur fyrir Vestfjörðum/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 6.4.2008 kl. 20:27

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Halló Ásthildur. Segðu mér eitt, hvað er að prikla?

Helga Magnúsdóttir, 7.4.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband