Góðan og blessaðan dag.

Ég veit ekki með ykkur, sen stundum vaknar maður og finnst vera á toppi heimsins, finnst allt gott og jákvætt, það er einhver gleði og eftirvænting, þó það sé bara venjulegur dagur, og ekkert sérstakt að gerast.  Þetta er bara svona tifinning sem nærir sálina og gefur manni mikið.

Svona var morguninn í morgun, við vöknuðum öll áður en klukkan hrindi, og höfðum tíma til að vakna í rólegheitum, vorum öll einhvernveginn í rósemd og gleði.  Ekkert mál að borða morgunverð, ekkert mál að klæða sig, stubburinn þurfti að útbúa sig sjálfur og smyrja nestið, sem hann gerði með glöðu geði og reisn.  Kom sér sjálfur í skólann.

Gaman á leiðinni í leikskólann, að vísu ropaði drekinn þegar við fórum út um munninn á honum, allavega heyrði Hanna Sól að hann ropaði og ég trúi henni alveg, því hún heyrir betur en ég. 

En mig langað bara að deila þessari gleði og eftirvæntingu, ætli það sé tilfellið að vorið sé á næsta leiti? Af því að ég held að þið eigið ykkar þátt í þessu, með fallegu kommentunum ykkar og kærleikanum sem maður finnur gegnum þau.  Heart

Vor.

Nú lifnar allt og grasið grær

gleymist vetrartími.

Allt það grimmt sem var í gær

ég gref í hugans rými.

 

Eftirvænting ást og þor

eykst á þessum tíma.

Víst er komið langþráð vor

vafið ástarbríma.

 

Skýjaglenna við oss skín

Skokkar lamb í haga.

Sálin blessuð, sértu mín

um sumarlanga daga.

Ásthildur 2005

Það verða myndir í hádeginu.  Gleðilegan dag mín kæru hvar sem þið eruð á hnettinum.  Kissing

c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_cesil_img_3810_293710


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ísdrottningin

Glæsilegt, maður lifnar allur við.

Ísdrottningin, 4.4.2008 kl. 11:40

2 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Það hefur eitthvað legið í loftinu í Skutulsfirði í morgun því ég vaknaði líka óvenju lítið úrill

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 4.4.2008 kl. 11:44

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott Ísdrottning mín

Hahaha Matthildur þá er örugglega eitthvað í loftinu

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2008 kl. 12:03

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vaknaði kát og hress hér á Reykjavíkursvæðinu og veit alveg hvers vegna.  Ég er ennþá happí á hverjum degi vegna þess að ég tek allsgáð á móti honum.  Ég vona að ég haldi áfram að vakna vel.

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2008 kl. 12:23

5 identicon

Já svona morgnar eru yndislegir maður er þá yfirleitt glaður og í góðu jafnvægi allan daginn

njóttu dagsins

Eyrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 12:30

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hvað er þetta ég vaknað alltof snemma. En þú ert elskuleg

Kristín Katla Árnadóttir, 4.4.2008 kl. 12:35

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góðan dag, fallegt ljóð og fallegt veður!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.4.2008 kl. 12:36

8 identicon

svona var að vakna í Kópavoginum líka

Myndin er æðisleg.

Knús vestur í hamingjukúluna

Kidda (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 12:40

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jenný sælir eru þeir sem skynja hið einfalda í lífinu.  Ég segi það og stend við það.  Sá sem gerir sér grein fyrir því sem bara er í kring um mann, hann er sæll, því fegurðin og hamingjan er einmitt fólki í því að upplifa hversdaginn og það sem honum tilheyrir í innri kyrrð og friði.  Knús á þig.

Takk sömuleiðis Katla mín.

Takk Jóhanna mín.

Knús á þi líka inn í daginn Kidda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2008 kl. 12:48

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góðan daginn Ásthildur mín! Þessi mynd er svakalega vorleg, ég fylltist bara bjartsýni á að vorið væri að koma þegar ég sá hana..................en leit svo út um gluggann hjá mér og það var snjókoma

Eigðu góðan dag

Huld S. Ringsted, 4.4.2008 kl. 13:03

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Elsku Ásthildur mín...ekki láta svona gleði og bjartsýni út úr þínum munni kona!! Veistu ekki að það er kreppa og krepputal það eina sem er við hæfi.

...Æ nei...það er rosalega gott og gaman að lesa um svona góða hamingju sem sprettur upp úr lífinu sjálfu og kostar enga eniga meniga....PENINGA sem allir eru með á heilanum þessa dagana.

Kærleiksknús til þín og þinna. 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 4.4.2008 kl. 14:52

12 identicon

 Ja hérna svo ertu skáld líka .Þú ert fjölhæf kona svei mér þá Ég á í fórum mínum vísu sem hún Ásta amma þín orti til mín þegar við láum saman á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 1961 eða 62.

Svanfríður G. Gísladóttir (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 16:13

13 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð. Gaman af þessu og myndin er svo töfrandi.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.4.2008 kl. 17:34

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Fallegt bjartsýnisljóð hjá þér Ásthildur.

Ég vaknaði líka bjartsýn á vorið í morgun....en fór svo að hugsa um snjóinn fyrir vestan..........

Sigrún Jónsdóttir, 4.4.2008 kl. 19:26

15 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Yndisleg lesning!!! Fallegt ljóð sem fyllir mann vorilm og bjartsýni og myndin, hún er sko ekki síðri

Takk fyrir fagra færslu Ásthildur mín 

Ragnhildur Jónsdóttir, 4.4.2008 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband