Hið daglega veður og ýmislegt.

Jæja aðlögunin tókst vel í dag, þær fóru á leikskólan og ég var með þeirri litlu smá tíma, fór meðal annars með henni í samverustund, sem er höfð daglega.  Það var virkilega gaman, þau syngja vísu fyrir hvern mánuð, og fóstran sagði mér að þegar þau væru búin að syngja sama söngin um mánuðinn nokkra daga, væru þau orðin fær í textanum.  Svo var boðið góðan dag á íslensku, thailensku, pólsku, áströlsku(ensku), og þýsku, hefði mátt bæta við slavnesku.  Hvernig segir maður góðan daginn á þýsku Hanna Sól spurði fóstran ?  Guten morgen, svaraði barnið.  Ó ég hélt að það væri guten tag, sagði fóstran.  Já sagði ég - eftir hádegið, núna er morgun.  Hanna Sól talar nefnilega perfekt Vínarþýsku með skrolli og alles. Sú litla sat og hlustaði og dillaði sér með söngnum, og söng svo frá eigin brjósti.  Þetta ætlar að ganga mjög vel.  Á morgun má hún vera allan tímann. 

En það var skafrenningur og leiðindafærð í dag, svo ég sótti þær báðar á sama tíma, þó Hanna Sól mætti vera lengur. 

Ég held að það sé eitthvað að bögga hana stóru mína.  Hún er búin að láta hálf einkennilega í allan dag.  Ætli henni finnist sú stutta vera að fá meiri athygli ?

Þegar ég ætlaði að fara að skipta á henni var baðið læst.  Þar var engum til að dreyfa nema Hönnu Sól.  Ég kallaði til hennar hvað hún væri að gera.  Það var nefnilega steinhljóð inni á baðinu. 

Hvað ertu að gera Hanna Sól mín ?

Ekkert amma. (skurk í stól)

Viltu ekki hleypa mér inn ég þarf að skipta á barninu, og svo ætla ég að setja hana í bað.

Ég er alveg að koma.  (Þó nokkur tími)

Hanna Sól mín, amma er að bíða.

Ég er að koma.

Þegar dyrnar opnuðust kom í ljós hvað hún hafði haft fyrir stafni hehehehe.

IMG_4645

snyrtidótið hennar ömmu, sem er hátt hátt uppi á skáp. 

IMG_4647

Sumir eru bara einfaldlega prinsessur.  og hún vildi endilega fara í þessum kjól á leikskólann, og silfurskóm, hjúkket.

IMG_4644

Sú litla fór í baðið sitt.

IMG_4648

Það er voða gaman, stóra systir setti sápu í vatnið, ég sagði að ég vildi það ekki, en stóra mín var ákveðin á svip og setti sápuna í vatnið.  Enn eitt merki um að eitthvað angaði hana.

IMG_4650

Sú stóra fékksk nú samt til að fara líka ofan í vatnið, en hún vildi bara fara í sundbol.

IMG_4652

Þetta þvoðist nú framan út henni í baðinu LoL

IMG_4654

Sigurjón Dagur kom og vildi ofan í líka.  Hann fékk að fara ofan í með stelpunum, og ég tók mynd, en einhverra hluta vegna er hún ekki með.  En svo beit stóra stelpan mín litla dýrið svo að það kom tannafar allan hringinn. 

IMG_46441

Ég hef aldrei spáð í hvernig vatnið fellur ofan í baðkarið.  Það sýnist renna í beinni bunu, en þegar ég stækkaði myndina hér að ofan, þá kemur þetta mynstur í ljós.

Þegar ég svo var búin að setja þá litlu í rúmið sitt, og bað þá stóru að koma fram á meðan hún sofnaði, þá var ekkert nema mótþróinn, og svo fór hún upp í rúm systur sinnar. 

En við náðum samt að sjatla málin fljótlega, með að semja við stóra stubbinn um að hún mætti skoða mynd í tölvunni hans um Dóru.  En svona er nú lífið á þessu heimili Smile Málamiðlanir stórar og smáar. 

En veðrið í dag var svo sem ágætt, nema það var mjög blint á leiðinni niður Súgandafjörðin.  Svo var dálítið hvasst.  Nei annars lognið var dálítið á hraðferð segjum við hér. LoL

IMG_4643

ekkert svo slæmt veður.

En Alejandra og Úlfur komu heim, það hefði verið einhver skólakeppni í gangi, og þau voru með hvatningarspjald, sem á stóð Áfram Ísó, og Gí!!  Alejandra hefur örugglega búið það til.

En ég segi bara góða nótt elskuleg öll. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið að gera á stóru heimili.  Býð ykkur líka góða nótt elskuleg  Beating Heart  Beating Heart 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2008 kl. 23:00

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Alltaf fjör hjá þér elsku Ástildur mín góða nótt hjartað mitt

Kristín Katla Árnadóttir, 3.4.2008 kl. 23:12

3 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Ekkert smá aktív amma ,góða nótt

Eyrún Gísladóttir, 3.4.2008 kl. 23:21

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Æi hvað Hanna Sól er flott eftir meiköppið. Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 23:29

5 Smámynd: Linda litla

Oh, hvað hún var nú heppin að komast í snyrtivörurnar hennar ömmu. Hún er líka svo vel máluð að það  er eins og hún sé vön

Góða nótt mín kæra.

Linda litla, 3.4.2008 kl. 23:53

6 Smámynd: Jens Guð

  Mikið sem var gaman að lesa þessa færslu og svona skemmtilega myndskreytta.  Það er alltaf hin mesta skemmtun að kíkja á bloggið þitt.

Jens Guð, 4.4.2008 kl. 00:34

7 Smámynd: G Antonia

Gaman að kíkja hér við og skoða myndasyrpuna og bloggið þitt... enda ofuramma hér á ferð, ekki spurning með það!!!   Þú ert rík af stórri fjölskyldu kæra Ásthildur...   sendi gút næt bros og klem!!!

G Antonia, 4.4.2008 kl. 01:45

8 Smámynd: Tiger

  UR þurfa náttúrulega að komast í snyrtibuddur sko! Hún er endalaust glæsileg sú stóra sko - sú held ég að eigi eftir að bræða mörg hjörtun á lífsleiðinni sko...

Frábært hvað börnum finnst það óendanlega gaman að fara í bað og bussssla. Það er svo auðvelt að halda þessum orkuboltum hreinum því þau fagna því oftast þegar á að henda þeim í karið .. mikið ljúft sko! Yndislegt að sjá myndirnar þínar Ásthildur mín - eins og alltaf auðvitað! Mikið, stórt og hlýtt knús vestur í ríki Queen Ásthildar.

Tiger, 4.4.2008 kl. 02:22

9 Smámynd: Tiger

  Og já, auðvitað - frábært að vel gengur á leikskólanum. Alveg frábært að kenna börnunum að segja sjálfsagða hluti á fleiri tungumálum, þau læra mikið af svona og fjölmenningalegir leikskólar stuðla að fordómaleysi í börnum og unglingum síðar meir. Til mikilla fyrirmyndar.

Tiger, 4.4.2008 kl. 02:25

10 identicon

ÉG get sagt ykkur það að hún lafði Hanna Sól er sko þaulvön málningardóti! ég er enn í dag að finna ummerki (slæm flest öll ónýtir penslar og augnskuggar) þess að lafði lokkaprúð hafi heiðrað snyritbudduna mína með nærveru sinni, auk þess sem lafðin hafði með sér fram í stofu bleikan glimmer gloss sem hún bætti stöðugt á (um 5 mín fresti) og að sjálfsögðu rautt naglalakk við :):)

hún er yndi :)

Tinna tengdó (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 02:26

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Snemma beygist krókur........mér finnst þetta svo krúsílegt og fyndið þegar litu ladyin fatta snyrtidótið

Solla Guðjóns, 4.4.2008 kl. 03:06

12 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Greinilega mikið fjör á ömmu heimili og stóra skvísan algjör pæja.

Rak augun í þennan líka flotta fæðingarblett á skvísupæjunni. Mínir báðir strákar voru með svona. Annar eins og dropi og hinn eins og hjarta

Svala Erlendsdóttir, 4.4.2008 kl. 09:54

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín elskuleg ég býð ykkur góðan dag.  Hér er fegusta veður, og allt gekk vel í morgun að koma þeim á leikskólann.  Vinnan kallar og ég er í góðu skapi, við vorum allar í góðu skapi þegar við vöknuðum í morgun.

Góðan daginn elsku Ásdís mín.

Góðan daginn til þín Katla mín.

Góða og fallegan dag á þig líka Eyrún mín.

Góðan daginn Jenný mín, jamm hún er algjör ekki satt

Linda mín, svei mér þá HÚN ER VÖN hehehehe

Takk Jens minn og góðan dag á þig.

Góðan dag og knús á þig líka G.Antonía mín

Einmitt TíCí minn, og svo táknmálið sem þau nota.  Þær tala við börnin og nota táknmál um leið.  Mér finnst það algjörlega frábært.

Hehehehe einmitt Tinna mín, hún er sko þrælvön, og elskar málningabuddurnar okkar.

Helga mín, ég er alveg viss um að þú myndir gera alveg það sama og ég, ef þú værir komin út í svoleiðis.  Við vitum ekkert hvað við getum, fyrr en við komum okkur í hlutina.  Knús á þig inn í daginn.

Já einmitt Solla mín. 

KNús á þig líka Gréta mín, inn í daginn og alla helgina.

Já Svala mín, hún hefur þennan fæðingarblett.  Ég hugsa að hún muni vilja láta taka hann, þegar hún hefur vit til.  Hann er á frekar óheppilegum stað og svona stór.  En hann er hennar  Knús á þig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2008 kl. 11:14

14 Smámynd: Ísdrottningin

Prinsessan mín (nafna þín ) gekk einmitt í gegnum svona tímabil á þessum aldri.  Harðneitaði að fara í leikskólann án þess að setja á sig varalit  
Ég reyndi svo aðeins að draga úr þessu þegar hún var búin að vera rúmt ár í leikskóla og það kom annað barn að máli við mig og spurði hvort hún ætti bara kjóla til að fara í...

Ísdrottningin, 4.4.2008 kl. 11:18

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Ísdrottning, þau eru frábær á þessum aldri.   Gaman að eiga nöfnu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2008 kl. 11:34

16 Smámynd: Ísdrottningin

Eftir þrjá stráka var reyndar himneskt að fá prinsessu...

Ísdrottningin, 4.4.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband