Ís og ís.

Þá er kvöldið komið, og aðeins tími til að slaka á.  Sú litla var frekar erfið í dag, hún svaf illa í nótt, vaknaði svo kl. hálf átta, þegar allir voru að fara á fætur, ég fór með hana í aðlögun, en þá voru veikindi, svo ég fór með hana heim aftur.  Þrátt fyrir svefnleysið um nóttina sofnaði hún aðeins um hálftíma seinni partinn.  Svo það var lítið um hvíld.  Ótrúlegur orkubolti.  Þær sofnuðu svo ekki fyrr en hálf tíu í kvöld.  Svo þetta var langur dagur.  Elli minn er í Reykjavík, svo ég er ein með þessa orkubolta.  Stubburinn átti líka góðan dag, hann fór heim veikur úr skólanum í gær, en átti svo stefnumót við tvo sála í dag.  Ekki af því að hann væri neitt trylltur, heldur er þetta apparatið, sem heldur utan um hans aðstæður, sem er mjög gott.  En það var orðin ansi stuttur í mér kveikjuþráðurinn í kvöld. 

IMG_4629

Þessir yndislegu feðgar kíktu við í dag, eins og svo oft.  Minn flottur svona nýklipptur.

IMG_4630

Þeir fóru svo í heita pottinn og Hanna Sól fékk að fara með.

IMG_4634

mmm notalegt.

IMG_4636

Og svo hoppa hehehehe.

IMG_4637

Og svo var fengið sér ís á eftir, ekki nóg með ísinn utan, heldur líka innann. 

IMG_4640

Allir fengu ís þ.e. smáfólkið. 

IMG_4641

Svo kom Sigga og hafði með sé pylsur, það var nú ekki dónalegt að fá svoleiðis.

IMG_4642

Já og Úlfurinn fékk líka frænku sína í heimsókn og vinkonu hennar, þær Sóley Ebbu og Birtu. 

En ég segi bara góða nótt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú hefur nóg að gera.  Úff, gaman en krefjandi.  Knús í nóttina.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 00:41

2 identicon

Segi eins og Jenný: þegar ég sé alla þessa aksjón í myndunum þínum velti ég fyrir mér hvað þú hlýtur að vera orkumikil, það er alltaf svo mikið að gerast í kringum þig - Knús til þín

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 00:48

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar, ég verð að segja að ég er alveg til í að skríða í bólið nákvæmlega núna.  Knús á ykkur báðar Jenný og Anna og góða nótt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:53

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Vona að þú getir fengið aupair svo þú gerir ekki út af við þig.

Frábærar og mjög fallegar myndir.

Sofðu rótt/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.4.2008 kl. 00:55

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Rósa mín og sömuleiðis.  Já ég vona líka að ég fái aupair.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:59

6 Smámynd: Katrín

Vona að nóttinn hafi náð þreytunni úr líkama ömmu sem stendur sig frábærlega eins og ávallt

Katrín, 3.4.2008 kl. 08:19

7 Smámynd: Linda litla

Góðan daginn Ásthildur. Það er alltaf svo mikið að gera hjá þér og það er svo mikið líf í kringum þig, þú hlýtur að vera þreytt en hamingjusöm kona í lok hvers dags. Ég vona svo sannarlega að nóttin hafi verið þér góð hvíld.

Eigðu góðan dag.

Kv. Linda

Linda litla, 3.4.2008 kl. 08:27

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Elsku Cesil mín....vona að næturblundurinn hafi gefið nýja og litfagra orku fyrir enn einn hamingjudaginn í lífi þínu OG ÞINNA!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 08:42

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gaman að fá að fylgjast með lífinu í kringum þig Ásthildur, því vissulega er mikið líf ... yndisleg börnin og ummmmm gott að fara í heita pottinn!  ... skrítið annars að vera komin í svona ,,kunningsskap" á blogginu - þetta er eflaust hinn nýi heimur. Kynntist manninum mínum í gegnum netið, mér fannst það svo gott að geta ,,yfirheyrt hann" og vitað svona ,,næstum allt" áður en við hittumst í eigin persónu. Höfum síðan ekki litið af hvoru öðru síðan við sáumst fyrst! ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.4.2008 kl. 09:09

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er þú dugleg Ásthildur mín  og mikil orkubolti vont að þú sért ein að passa börnin en ég vona að þú getir náð þreytunni úr þér.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.4.2008 kl. 09:51

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Frábær myndin með barninu í vagninum.Ég man að yngri systkynin mín af okkur eldri systkynunum voru í svona vagni

Solla Guðjóns, 3.4.2008 kl. 10:20

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Ég er náttúrulega komin fram úr mér kommentið að ofan á tti að vera við síðustu færslu

Solla Guðjóns, 3.4.2008 kl. 10:22

13 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þessir dagar hjá þér hljóta að vera mjög blandaðir mikilli hamingju og rosa þreytu. Ég bara vona að þú sofir vel á milli... og að leikskólinn fari að komast í fullan gír   Dásamlegt að sitja hér í fjarlægð og lesa um allt yndislega fjörið í kúlunni hjá þér. Það er greinilega mikið lán að eiga þig fyrir ömmu

Ragnhildur Jónsdóttir, 3.4.2008 kl. 10:40

14 Smámynd: Ísdrottningin

Varstu að kalla

Ísdrottningin, 3.4.2008 kl. 11:30

15 Smámynd: Brynja skordal

Oh en huggulegt í heita pottinum hjá þeim hafið góðan dag fyrir vestan

Brynja skordal, 3.4.2008 kl. 11:57

16 identicon

Ef ég man það rétt þá lengist smátt og smátt á kveikjuþræðinum

Knús í hamingjukúluna

Kidda (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 12:14

17 Smámynd: Huld S. Ringsted

Greinilega nóg að gera á stóru heimili, þú ert nú meiri dugnaðarkonan Ásthildur!

Huld S. Ringsted, 3.4.2008 kl. 13:03

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Katrín mín, já ég var endurnærð í morgun sem betur fer.  Takk

Takk Linda mín, já ég kom bara vel undan nóttinni

Takk Katrín mín, já ég held bara að svefninn hafi gert mér gott.

Sammála Jóhanna, það er skemmtilegt hvað maður hefur kynnst mörgum á svo góðan hátt, þó maður hafi ef til vill aldrei séð viðkomandi, en finnst maður þekka þá út og inn.

Katla mín, orkan dvín hratt svona þegar fer að kvölda, en svo næ ég mér vel yfir nóttina.

Solla mín það er gaman að þessum gömlu vögnum og kerrum, ég held líka að þeir hafi verið þægilegri en nútíma vagnar.  Ég átti alltaf gamlan vagn sem ég lét þau sofa í, og svo annan sem ég fór með þau í bæinn í.  Þetta var algengt þegar ég var að ala upp mín börn

Þetta er allt að koma í leikskólanum sem betur fer Ragnhildur mín.  Og jamm þetta er ágætis lýsing hjá þér.

Hæ Hó Ísdrottning mín.

Takk Kidda mín, það væri óskandi, hann var orðin ansi stuttur í gærkvöldi, en ég var líka ein með þær, þar sem Elli er í Reykjavík.

Takk Huld mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 14:12

19 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Sendi þér orku  þér veitir ekki af í amstri dagsins

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 3.4.2008 kl. 15:36

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Hulda mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 15:37

21 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Guð blessi þig Ásthildur mín. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 3.4.2008 kl. 17:23

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk sömuleiðis Guðsteinn minn

Takk fyrir það Matarfíkill mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 19:02

23 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á þig Ásthildur mín.  Hvenær færðu Aupair stúlkuna?  Það mun væntanlega létta þetta, þótt hún þurfi væntanlega einhverja aðlöðun sjálf.   Gangi þér vel.

Sigrún Jónsdóttir, 3.4.2008 kl. 19:23

24 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Kær kveðja Ásthildur!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.4.2008 kl. 19:44

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég held að það fari að styttast í aupair, það koma til greina núna ein frá Króatíu og önnur frá Marocco, báðar rétt undir þrítugu, svo þær eru veraldarvanar.  Þetta kemur í ljós á allra næstu dögum.  Takk fyrir að spyrja Sigrún mín.

Knús á þig líka Gréta mín.

bestu kveðjur til þín líka Lilja mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 21:00

26 Smámynd: Karl Tómasson

Flottur pottur og örugglega flott mamma og amma.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 3.4.2008 kl. 22:07

27 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk heillakarlinn Kalli

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 22:24

28 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segi nú bara eins og áður, þú rekur heilt félagsheimili eða þjónustumiðstöð, einstök manneskja í alla staði  Beating Heart  Beating Heart 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2008 kl. 22:34

29 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig Ásdís mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 22:54

30 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 4.4.2008 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband