2.4.2008 | 14:34
Hið daglega veður, vorboðar og nostalgía frá fyrri dögum.
Það er fallegt veður á Ísafirði núna. Sú stutta átti að vera í aðlögun í morgun, en það voru nokkrar fóstrur veikar, svo hún var bara smástund og fór svo með ömmu heim. Hún hefur ekkert fengist til að sofa, en er samt mjög róleg.
Lagt af stað í leikskólann.
Þær eru voða þægar í bílnum, og þegar við förum gegnum göngin, þá förum við fyrst inn í rassinn á Drekanum, svo um magann og síðan gegnum hálsinn og svo út um munninn. Þá er eins gott að hafa ekki hátt svo við vekjum hann ekki.
Hún veit sko alveg hvar krakkarnir eru, og bankar á dyrnar til að komast inn.
svona var veðrið í morgun.
Það er eins og himininn brosi við Ísafirði.
Svona var veðrið í hádeginu, allt baðað sól.
Veðrið er reyndar svona enn.
en hún Ásthildur er búin að vera að dunda sér í sandkassanum sem afi kom með fyrir hana.
Hér má sjá snjóþotur, hjól og síðan páskaliljur komnar að því að blómstra, þannig er kontrastinn í kúlunni.
En það er að koma vor í kúlunni, brumin þanin og blómin að því komin að springa út. Það er alltaf fallegasti tíminn hér.
Mandarínurósin mín svo falleg.
Kamelíufrúin, yndæl.
Kirsuberjaknúpparnir komnir að því að springa út.
Og rósamandlan verður falleg líka.
Zakúrakirsuberinn verða stórglæsileg.
Prímúlurnar brosa glaðlega.
eins og sjá má eru rósirnar komnar á fullt, þetta er hún Pernille, hún er á stofni og er mjög flott í blóma.
Smá nostalgía, hér er hún Dísa æskuvinkona mín. Dísa ég er viss um að þú hefur ekki haft hugmynd um að þessi mynd væri til. Manstu nokkuð hvar hún var tekinn ? Er þetta heima hjá þér ?
Á einhverjum aldrei var ég ferleg með að klippa myndirnar út, og setja þær þannig inn í albúm. Hér er mynd af Dísu mömmu hennar og sennilega Snorra bróður hennar í vagni. Allt klippt og skorið hehehe
Hér er hún Dísa með pabba mínum, mömmu og Gunnari og Hjalta bræðrum mínum, þessi er tekinn inn í Hattadal minnir mig og við vorum að fara til berja.
Hér er einn skólabróðir okkar, held að þetta sé Kitti Muggs, en er ekki viss.
En á páskunum droppaði inn til mín glaðleg og falleg stúlka. Hæ manstu nokkuð eftir mér, ég er dóttir hennar Klöru vinkonu þinnar, sagði hún. Og mikið rétt ég sá svipinn. Mamma hennar er nú dáinn blessuð sé minning hennar, en hún kom oft í heimsókn með börnin þegar þau voru lítil. En hér er hægt að sjá svipinn.
Eva.
Klara Margrét. ef ykkur finnst búningurinn skrýtin þá er það af því að hún er í búningi sem við gerðum okkur þegar við vorum vinsælt tríó, 12 - 16 ára og komum fram á skemmtunum víðs vegar um bæinn, það var skemmtilegur tími. ´
Klara Margrét, ég og Matthildur Herborg í fullri múnderingu. Þetta var mjög skemmtilegur tími og við vorum mjög vinsælar.
Jamm maður hefur nú ýmislegt brallað um ævina.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fallegar myndir af elsku börnunum og blómunum svo eru þetta svo flottar skvísur mikið er gaman að sjá svona fallegar myndir.
Knús á þig elsku duglega Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 2.4.2008 kl. 15:31
Yndislegar myndir, lífið er á lífi í kúlunni þinni það er alveg ljóst. Kær kveðja vestur og ég gleðst fyrir þína hönd með að au pair stelpan fari að koma, þú virðist geta allt án þreytu og alltaf tilbúin með myndir til að skreyta daginn. Yndislega manneskja


Ásdís Sigurðardóttir, 2.4.2008 kl. 15:38
Já Íja mín, hvort ég man eftir þessarri mynd, hún var tekin heima hjá Ellu uppi í Norska bakaríinu þegar við vorum að hafa okkur til á ball. Ég man líka vel eftir ferðinni í Hattardal með nesti í yndislegu veðri. Ég yngist upp aftur við að sjá þessar myndir, ekki síst af Klöru blessuninni, ég held ég eigi enga mynd af henni. Hlakka til að koma aftur heim og skoða bloggið þitt. Kveðja.
Dísa (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 15:48
Dísa þú ert hafsjór af fróðleik. Já auðvitað var hún tekin hjá Ellu. Það eru sennilega ekki til margar myndir af Klöru.
Takk Ásdís mín.
Ásdís mín er er oft dauðþreytt en ég get sagt þér að bara að setjast niður og lesa skrifin ykkar og setja inn nýjar myndir fylla mig af orku, og láta mér líða svo vel, að það er ótrúlegt. Og svo auðvitað að lesa það sem þið hafið fram að færa. Karlkjáninn minn er reyndar dálítið abbó 
Takk Katla mín og knús á þig líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 16:58
Sit hérna græn af öfund yfir gróðrinum í kúlunni
En hugga mig við það að snjórinn er farinn hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu
Knús vestur
Kidda (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 17:35
Knús á þig líka Kidda mín. Já það er gaman að gróðrinum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 18:01
Frábært að skoða. Takk.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.4.2008 kl. 20:00
Skemmtilegar myndir og æðislegir búningar!
Anna Lilja, 2.4.2008 kl. 20:41
Sumarlegt að verða hjá þér í kúlunni, það lá við að ég fyndi gróðrailminn!! en myndin af ykkur þremur í lokin er æðisleg
Huld S. Ringsted, 2.4.2008 kl. 21:17
Þið eruð ekkert smá flottar í tríóinu
En takk fyrir myndirnar
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 2.4.2008 kl. 21:30
Knús Jenný min.
Takk Anna Lilja mín.
Takk Huld, við vorum ekkert smástoltar af að hafa saumað þetta sjálfar. vorum bara þrettá og fjórtán ára.
Takk Hulda mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 21:46
Hot Myspace Glitters - Dezrum.com
Sæl og blessuð besta amma í heimi.
Takk fyrir fallegar myndir og fyndna lýsingu um göngin.
Gaman að sjá gróðurinn vera að gægjast út hjá þér.
Baráttukveðjur/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:01
Fallegar myndir af snúllunum þínum. Greinilegt að þeim líður vel hjá ömmu og afa. Það sést greinilega hvernig kúlan lengir sumarið, bara allt farið af stað hjá þér. Ég vildi hafa smá af grænu fingrunum þínum
en það er nú einu sinni svo, að þú hefur haft ótrúlega mikil áhrif á líf mitt, þó langt sé um liðið. Ég held ég hafi einhvern tímann smitast af blómaáhuganum þínum og er alltaf að rembast eitthvað með garðinn minn
Og þú ert sannarlega persóna sem ég lít alltaf upp til og örugglega fleiri sem gera það 

Flott gamla myndin af ykkur. Það er fátt sem þú hefur ekki brallað.
Knús til ykkar
Ps. Takk fyrir að hugsa til mín. Ég er mjög ánægð og hef það gott. Heilsan mín er öll að koma til eftir lyfjameðferð á síðasta ári.
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:02
Takk Rósa mín og baráttukveðjur héðan.
Sigrún mín, gaman að heyra að ég hafi smitað þig af grænu veikinni. En við áttum samleið, af því að við erum sennilega andlega skyldar. Þannig fólk einhvernveginn dregst hvort að öðru, þó stundum sé aðeins um stutta stund. Mér þykir alltaf vænt um þig síðan þá.
Gott að heilsan þín er betri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 23:09
Hot Myspace Glitters - Dezrum.com
Sæl aftur.
Mátti til að setja inn þennan texta líka. Afi er örugglega líka alveg frábær.
Gangi ykkur vel í barnauppeldinu. Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:10
Æðislegar myndir takk Góða nótt mín kæra
Brynja skordal, 2.4.2008 kl. 23:15
Barnabörnin þín eru náttúrulega "bara" yndisleg! og keyra í gegnum drekann er held ég sú alflottasta lýsing sem ég hef heyrt á svona göngum. Ég mun bara hreinlega hugsa það öðruvísi næst þegar ég keyri göng, sennilega Hvalfjarðargöngin
Þessi gróður þinn er algjörlega himneskur! Í fyrra byrjuðum við að endurgera litla garðinn okkar fyrir framan húsið. Þar settum við niður allskyns runnarósir (ég bara elska runnarósir) og eitt kirsuberjatré. Það er farið að sjást í brum út um allt en langt frá því sem gerist hjá þér inni í skjólinu. Nú er bara að fara að safna fyrir gróðurskála, ég sé að það er málið
Takk fyrir yndislegar myndir og sögur
Ragnhildur Jónsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:34
Það er sko vor í lofti hjá þér, allt að búa sig undir að springa út, og ekki síst þú, sem virðist blómstra, þrátt fyrir þitt stóra heimili, þá ertu sem óþrjótandi orkubolti, við að umvefja litlu stúlkurnar þínar ást og umhyggju. - Skemmtileg sagan ykkar af drekanum, og hvernig þið fljótið í gegnum hann. Og frábærar myndir. - Já, svo þú hefur unnið fyrir þér sem skemmtikraftur, það er gaman að heyra. Þú ert alveg stórkostleg Ásthidlur.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.4.2008 kl. 23:42
Mæðgurnar eru ekkert smá líkar vá....
Þegar ég sé að það er komið nýtt blogg frá þér þá verð ég spennt eins og barn á jólunum, af því að ég hlakka svo til að skoða myndirnar hjá þér. Ömmustelpurnar þínar eru svo sætar og Ásthildur litla alltaf jafn dugleg að leika sér í kúlunni.
Ég væri alveg til í að sjá kúluna þína ef að þú átt mynd af henni, er ekki alveg yndislegt að búa í kúlu ??
Kveðja inn í nóttina frá Linda litlu.
Linda litla, 2.4.2008 kl. 23:42
Góða nótt á þig líka Brynja mín.
Já Ragnheiður mín, þetta er svona leikur hjá okkur, gegnum tíðina með börnin. Það verður að hvísla um leið og maður fer út um munninn, svo drekinn vakni ekki. Og ef maður fer út um rassinn þá er eins gott að hann prumpi ekki
Takk Lilja mín. Þær gefa manni einhverja auka orku þessar elskur. Þó ég verði að segja að stundum er maður alveg á síðasta snúning, en það er bara eðlilegt með heilbrigð og dugleg börn.
Skemmtikraftur, við sungum í u.þ.b. þrú ár á skemmtunum, það var rosalega gaman. Svo hef ég verið í LL Litla leikklúbbnum frá 1965, lék meira að segja einu sinni í Gamla bíó, það var skemmtilegt og spennandi. Og svo hef ég líka sungið með hljómsveitum í mörg ár. M.a. stofnuðum við kvennahljómsveitina Sokkabandið. Svo ævintýrin hafa fylgt mér bara heilmikið 
Takk Linda mín. Já ég hef sett inn nokkrar myndir af Kúlunni, eg ég skal setja inn fleiri bara fyrir þig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 23:59
Góða nótt Helga mín, já ég hef víst alveg nóg að gera.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:00
Vá hvað ég hlakka til að sjá myndir af þessum gróðri eftir ca. mánuð
, þótt nýja brumið sé náttúrulega yndislegt líka, endurnýjað líf-ný von.
Drekasagan í göngunum er frábær, verð að muna hana þegar ég fer þarna næst í gegn.
Vildi að ég hefði upplifað það að sjá þetta flotta tríó, en það voru náttúrulega engin göng þá, þannig að samgöngur milli fjarðanna var bara ef brýn nauðsyn bar til.
En söngst þú ekki einhvertíma með B.G. Ásthildur, eða er það rugl í mér??
Sofðu rótt
Sigrún Jónsdóttir, 3.4.2008 kl. 00:00
Þið eruð ótrúlega flottar í þessum búningum vinkonurnar. En ég er alveg græn af öfund yfir öllum grængróðrinum heima hjá þér, Kirsuber og allt maður
Svala Erlendsdóttir, 3.4.2008 kl. 00:21
ég kom nokkrum sinnum fram með B.G. En ég var með Geira Sig, Ásgeir og félagar, hét hún einu sinni, og svo hljómsveit Ásgeirs Sigurðssonar seinna. við spiluðum víða og mikið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 00:21
Þegar ég skoða drenginn nánar þá held ég að þetta sé Samúel en ekki Snorri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.4.2008 kl. 10:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.