Endurmenntun mömmu.

Jamm ég er að komast að því að ég þarf að ganga í gegnum nokkur skref sem voru sjálfsögð hér í denn, en var búin að gleyma.  Það eru þessi litlu atriði eins og að eiga alltaf auka snuddu Blush Keypti næstum upp apótekið. Svo er að muna eftir að blanda í pelann fyrir nóttina, ekki nóg bara með þennan sem barnið fer með í svæfinguna, heldur þarf að hafa einn auka til að stinga upp í lítinn munn eldsnemma morguns, getur gefið manni nokkrar mínútur auka í slökun hehehehe.  Síðan verður maður bara að reyna að horfa eitthvað annað þegar þau eru að subba sig út, og hugsa að föt sé eitthvað sem bara fer í þvottavélina og þvoist, og það sé til nóg af auka.  Muna að þegar þau hella niður, ekki vera reið heldur bara brosa og segja þetta er allt í lagi amma þurrkar þetta bara upp, vegna þess að stress eða óp, gera bara hlutina verri ef eitthvað er.  Þau verða sár og leið. 

Að komast á klóið krefst ákveðinnar kænsku. Ef maður er ekki súperwoman sem situr á klóinu með barnið í kjöltunni og þarf að gera allt með annari.  Annars bý ég rosalega vel að því þegar ég handleggsbrotnaði í fyrra.  Get sko notað bara vinstri við næstum hvað sem er.  Meira að segja að skrifa á tölvuna ef ég þarf að sitja með litla manneskju í kjöltunni heheheheh...

Þetta er allt að koma hjá mér.  Það læris svo lengi sem lifir. 

Bára og fjölskylda 24.1.07 023


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er nú ekki svo langt síðan ég var með lítil börn en þessi færsla rifjaðu upp ýmislegt sem ég var búin að gleyma!

Yndisleg myndin af ykkur

Huld S. Ringsted, 1.4.2008 kl. 19:47

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Fallegar myndir af ykkur. Já og dugleg ertu og frábær elsku Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 1.4.2008 kl. 20:14

3 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Já, þú ert alveg ótrúleg!  Þetta er ótrúlega fljótt að koma ef maður nær að halda rónni, þannig að börnin stressist ekki upp.  Þá m.a.s. sitja þau á gólfinu inn á klósetti á meðan maður athafnar sig þar inni, og dunda sér með bíla eða kubba og kannski syngja fyrir mann, eða með manni.  Mikið er þetta falleg mynd, ertu þarna með fallegu nöfnuna þína?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.4.2008 kl. 20:53

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð Ásthildur amma. Hvað áttu mörg ömmubörn? Ertu með 4 barnabörn í allt núna undir þínum verndarvæng? Ég er alveg viss um að þú hefur þig í gegnum þetta því það er seigla í þér.

Gangi þér vel í endurmenntunarnámskeiðinu.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.4.2008 kl. 21:32

5 identicon

Sammála, það er hollt að handleggsbrjóta sig þá finnur maður að ýmislegt er hægt með vinstri. Og smáfólkið venst og sættir sig við hlutina eins og amma gerir þegar það venst. En óneitanlega er erfiðara að sinna smábörnum en var, en þolinmæðin gerir kraftaverk. Og sjálfsstjórnin sem hefur þjálfast upp, heimurinn hrynur ekki þó eitthvað smáslys verði eins og sull. Til hvers er plast, eldhúspappír, tuskur og aukaföt að maður tali ekki um þvottavélar. Róin er mikils virði. Amma sem ekki æsir sig yfir smámunum er ómetanleg.

Dísa (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 21:51

6 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæl  kæra Ásthildur súperamma hvort þú ert.  Með góðri kveðju og sjáumst við ekki á föstudaginn?

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 1.4.2008 kl. 22:40

7 identicon

Mikið er þetta yndislega falleg mynd  ég kannast svo við þessa færni, úlnliðsbrotnaði fyrir tveimur árum

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 23:06

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Mér líst vel á þína endurmenntun og þú færð eflaust hæðstu einkunn sem í boði er

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 1.4.2008 kl. 23:12

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar hehehe..

Já ég er að springa úr monti Búkolla mín.

O ætli það ekki Huld mín.

Knús á þig Katla mín.

Já Lilja mín, þessi er tekinn fyrir rúmu ári úti í Vín, þar sem hún fæddist þessi elska, þann 23 febrúar. 

Rósa mín, barnabörnin mín öll með tölu, áunnin og blóðskyld eru orðin 18.  Og öll yndisleg.

Dísa þú ert frábær.

Góða nótt líka Helga mín.

Ásgerður, enn einu sinni kemst ég ekki, því miður.  Bundinn í báða skó, karlinn á leið til augnlæknis og enginn aupair í sjónmáli, þessi þrjú eiga allan forgang, vona að mér fyrirgefist það.

Takk Anna mín.

Takk Hulda mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 23:53

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Já það þarf sko endurhæfingu.  Ég var búin að vera með ömmustelpu í 5 ár þegar ömmustrákurinn kom.  Stuttu eftir að hann hætti með bleyju, var hann í pössun hjá mér og nú þurfti að passa að hann færi á WC þegar honum væri mál.  Ekki málið, drengur sagði til og amma kom honum fyrir á klósettinu.....en pissið kom allt upp og í fötin, amma gleymdi að þetta væri aðeins öðruvísi þegar um dreng var að ræða...það þarf aðeins að lagfæra!  Það vandræðalega er að ég á bara 2 syni, þannig að ég hefði nú átt að muna þetta, en eftir 5 ár með ömmustelpu hafði þetta einfaldlega gleymst.

Góða og væra nótt kæra Ásthildur

Sigrún Jónsdóttir, 2.4.2008 kl. 00:01

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha Sigrún, góður punktur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 00:07

12 Smámynd: Tiger

  Glæsileg mynd af þér addna stelpuskott! Tekur þig svo flott út með litla molann í fanginu. Satt að maður þarf stundum á endurhæfingu að halda því maður er svo fljótur úr æfingu ef mörg ár líða á milli barna. Þú ert sannarlega góð og sönn amma - alltaf meira en tilbúin og ætíð nóg til af öllu hjá ömmu sko! Knús á þig OfurAmma. Luv you!

Tiger, 2.4.2008 kl. 02:31

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Love you too TíCí mini

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.4.2008 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband