Mömmublogg, Tjarnarborg og hið daglega veður.

Jæja þá var annar í aðlögun á Tjarnarborg.  Við vöknuðum snemma fjölskyldan og fengum okkur morgunverð saman.  Veðrið er aðgerðarlítið en gott bara.

IMG_4554

Notaleg stund í  morgunsárið.

IMG_4555

En svo var haldið á Suðureyri til að fara á leikskólan Ásthildur er í aðlögun og gengur rosalega vel.

IMG_4559

Jamm hún virkar ekki stór, en dugleg er hún.

IMG_4561

Þessi ungi maður er kúabóndi, minnir að hann heiti Sverrir, flottur.

IMG_4562

Þessi ungi maður heitir Gunnar og var eitthvað stúrinn yfir morgunmatnum.

IMG_4565

en það rjátlaðist nú strax af honum, og hér er hann að hjálpa Sverri með kýrnar.

IMG_4563

Hér er svo verið að hleypa út tuskudýrunum, þau þurfa að fara að leika sér við krakkana.

IMG_4564

Annar stúrinn stubbur, mig minnir að hann heiti Stanislaw, vildi ekki borða heldur.

IMG_4566

hann tók samt fljótt gleði sína, enda ekki annað hægt á þessum frábæra leikskóla, þar sem allir eru vinir og góðir hver við annan.

IMG_4567

Hér eru Rakel og Mónika, Rakel situr, Mónika er dálítið abbó út í Ásthildi, eltir hana og reynir að klípa eða hrinda, en hún er skynsöm lítil stúlka og ég veit að þær verða góðir vinir.

IMG_4569

Eins og sjá má fellur mín litla vel inn í hópinin og viðurkennir fóstrurnar sínar.

IMG_4570

Hahahaha þau eldri hér eru að hlaupa fyrsta apríl.  Fóstrurnar sögðu þeim að það væri lítið folald í garðinum, og þau hlupu til að gá.  LoL

IMG_4572

Líka skottan mín.

IMG_4574

Svo fóru þau í samverustund, þar sem er lesið fyrir þau og svo syngja þau.  Hver vill koma með mér heim í Kúluna mína, sagði Hanna Sól, þegar ég gekk framhjá LoL

IMG_4575

en það var meira að gerast í dag á leikskólanum, þessi unga fröken á nefnilega afmæli í dag, og hún fékk að velja veitingarnar, hún valdi poppkorn.  Þetta er Sara og hún er fimm ára í dag.

IMG_4577

Hér er hún að fara með poppið inn í veislusalinn.  Aldeilis hróðug.

IMG_4578

Hér er verið að undirbúa veisluna.

IMG_4580

Já þau eru að verða spennt að bíða eftir að veislan hefjist.

IMG_4581

Allir að setjast og bíða.

IMG_4582

Já þau eru þæg og góð þessir krakkar.

IMG_4584

Undirbúningurinn í hámarki.

IMG_4585

en fyrst þarf að gera smá serimoníur, taka myndir af afmælisbarninu til að setja á heimasíðuna.

IMG_4587

Svo þarf að tollera hana og auðvitað syngja afmælissöngin, hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag.... hún á afmæli hún Sara, hún á afmæli í dag.

IMG_4589

Þá var komið að því, allir fengu poppkorn, og það var nammi namm.  Það þarf ekki alltaf að vera eitthvað ríkulegt eða kostnaðarsamt til að gleðja litlar sálir, þetta einfalda er bara best, af því að því fylgir ekkert stress, bara gleði og ánægja.

IMG_4590

Já þetta litla hversdagslega dugir alveg svo vel.  Það er bara að koma auga á það.

IMG_4591

Þetta gerði alveg sama gagn og tertur eða ís.  Nema minna maus og sullumbull.

Við Ásthildur héldum svo heim á leið.  Hún var ekkert sérlega spennt að yfirgefa samkvæmið.  Enda þessi fína veisla í boði.  Hún reyndi því að banka á hurðina eftir að við vorum komnar út hehehe.. En svo fékk hún pelann sinn og sofnaði í bílnum á leiðinni heim, ég kom henni svo í vagninn sinn og þar sefur hún nú.  En á morgun fer vagninn hennar með, og síðan fær hún sennilega að vera allan tímann. 

Hér er svo hið daglega veður, tekin á Suðureyri í þetta skiptið.  

IMG_4592

Eigiðið góðan dag, og takk fyrir mig.  Mér þykir rosalega vænt um svörin ykkar hér á undan og ævinlega.  Takk fyrir mig. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Mikið hefur þetta verið gaman og spennandi fyrir litlu Ásthildi það sést á myndunum fjör að lenda í Afmælisveislu og fá popp fallegar myndir hafið ljúfan og góðan dag

Brynja skordal, 1.4.2008 kl. 13:40

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Rétt að kasta kveðju og þakka fyrir kveðjuna hjá mér ! Takk fyrir skemmtilegar myndir, þær eru sannarlega fullar af lífi !

Sunna Dóra Möller, 1.4.2008 kl. 13:54

3 Smámynd: Sæþór Helgi Jensson

já hvað er gaman hja ykkur hvar búið þið á landinu ?

takk fyrir að commenta á síðunni minni kveðja sæþór helgi. 

Sæþór Helgi Jensson, 1.4.2008 kl. 13:59

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Brynja mín hún fylgdist með öllu af áhuga.

Takk Sunna Dóra mín.

Við erum á Ísafirði Sæþór minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 14:03

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman af myndunum eins og vant er hjá þér Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 1.4.2008 kl. 14:26

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk og knús Katla mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 14:50

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Alltaf gaman á leikskólanum, skemmtilegar myndir af fallegum börnum!

Huld S. Ringsted, 1.4.2008 kl. 15:02

8 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vá, maður fékk "fjölmenningarsamfélagið" beint í æð með þessum myndum þínum Ásthildur.  Siggar og Gunnur ekki í meirihluta þarna.  Þetta virðist vera fallegt samfélag og öðrum til eftirbreytni.

Takk fyrir að fá að kíkja með þér "heim" í dag.

Sigrún Jónsdóttir, 1.4.2008 kl. 15:02

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Huld mín, og eins og Sigrún segir þetta er fjölmenningarfélag eins yndislegur og hann getur orðið.  Öll sem eitt bara börn

á Sigrún mín samfélagið okkar er skemmtilegt og fjölbreytilegt.  Knús á þig

Já Takk Gréta mín, hún unir sér vel og á örugglega eftir að líða vel þarna hjá kerlunum á Suðureyri. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 15:35

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir þessar myndir.  Það er svo ljúft að koma á síðuna þína og rúlla í gegnum myndirnar.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.4.2008 kl. 15:52

11 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

æææ hvað þau eru miklar dúllur alltaf jafn veik fyrir litlum börnum

Eyrún Gísladóttir, 1.4.2008 kl. 17:27

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar.  Mín er ánægjan Jenný mín. 

Já börn eru frábær, þó stundum geti þau reynt á þolinmæðina, en þarf ekki að æfa hana eins og allt annað ?

það er að minnsta kosti til dauður tími í minni veröld.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 17:59

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Thumbs Up  Langar bara að senda smákveðju. Er að hressa mig við á smá blogg lestri.   Double Kiss takk fyrir mig síðustu daga elskan

Ásdís Sigurðardóttir, 1.4.2008 kl. 18:32

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál elsku Ásdís mín að þú ert að lagast.  Knús á þig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 18:42

15 identicon

Einmitt, þolimæði er eitthvað sem lærist. Mér líst mjög vel á þennan leikskóla hann minnir mig á leikskólann sem Siggi minn var í hér í Reykjavík. Þar var bara ein deild með öllum aldurshópum og börnin aðeins 17, allir þekktu alla og voru eins og ein fjölskylda og stóru börnin hjálpuðu þeim litlu eins og á venjulegu heimili. Ekki flokkað í aldurshópa eins og oftast er núna. Honum fór líka eins og nöfnu þinni, eftir tveggja daga aðlögun neitaði hann að fara heim fyrr en hin. Tjarnarborg hljómar mjög vel í þinni lýsingu og er örugglega staður sem börn læra að umgangast alla eins. Börnum finnst allt eðlilegt sem er í kringum þau nema talað sé um annað.

Það var leikskóli hér í borg sem tók fötluð börn sem fengu ekki annars staðar inni og lengi var talað um að nú kæmi nýtt fatlað barn. Svo var hætt að tala um fötlun og eitt barnið sagði mömmu sinni að nú kæmu ekki lengur fötluð börn. Þegar mamman spurði í leikskólanum var henni sagt að víst kæmu ný fötluð börn, það væri bara hætt að benda á það. Nú var bara sagt að nýja barnið gæti ekki þetta eða ætti erfitt með hitt. Það var bara staðreynd fyrir börnunum, ekki fötlun. Þegar upp er staðið erum við misgóð í því sem við getum.

Dísa (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 18:42

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Dísa mikið er það frábært þetta með "fötluðu" börnin.  Við erum öll eins hvernig sem útlitið er, þá erum við öll eins inni í okkur, alveg eins og við erum sömu stelpurnar og við vorum þegar við vorum í grunnskólanum og vorum að takast á við skólan, aðra nemendur og svo bara alla í kring um okkur. 

En við stóðum alltaf saman þú og ég, hvernig sem allt áraði.  Og það lýsir stundum bjart í endurminningunni, við vorum stundum kallaðar duflið og ankerið, en þegar upp var staðið, þá vorum við sigurvegaranir, vegna þess að við vorum sterkar meðan sumir skólafélagar okkur hlupu eftir vinsældum og útliti.  Ég bý að þessu ennþá, knús á þig elsku æskuvinkona mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 19:04

17 Smámynd: Linda litla

Hæ hæ. Það er greinilega að það er stuð og gaman á þessum leikskóla, Ásthildur hlýtur að vera ánægð, gengur ekki vel með hana í aðlögun ? Þetta eru skemmtilegar myndir sem þú hefur tekið þarna hjá þeim, það er líka alltaf gaman að skoða myndirnar hjá þér, mér finnast eiginlega myndabloggin skemmtilegust. Fólk er svo spennandi myndefni, við erum svo misjöfn eins og við erum mörg, og eitthvað varið í okkur öll. Mér finnst ofsalega gaman að velta fólki fyrir mér.

Eigðu góðan dag Ásthildur og njóttu kvöldssins.

Linda litla, 1.4.2008 kl. 19:10

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Linda mín, jú það gengur vonum framar með hana.  Og léttir mikið á mér með það. Takk sömuleiðis

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband