Góða nótt.

Vil bara segja góða nótt.  Tók nokkrar frábærar myndir í dag, en komst svo að því að ég var ekki með kortið í vélinni hehehe.... Svona er þetta bara.  Ég er í smá upprifjun.  Það rifjast nefnilega upp fyrir mér hvernig það var hér í denn að vera með smábörn, hafa lítinn tíma fyrir sjálfa sig, og endalaust að reyna að gera allt í einu, hafa unga á handlegg annan í togi, hræra í pottum.  Komast ekki á klóið nema með klókindum Blush ég er ekki að kvarta, þessar elskur gefa mér óumræðilega mikið.  En það er vinna að vera með börn, ég var bara búin að gleyma því svona í praktíkinni.  Verða að semja við manninn um að koma fyrr heim til að komast í búð.  Vinnan fer að mestu leyti fram líka hér heima, þ.e. undirbúningurinn undir sumarið. 

En ég er viss um að ég er að höndla þetta miklu betur núna með alla reynsluna, áunnu þolinmæðina og vissuna um hvað skiptir máli í lífinu, og það eru ekki peningar heldur tíminn sem maður gefur sínum nánustu og þeim sem mest þurfa á manni að halda.

En nú er ég búinn að komast nokkurnveginn skammlaust blogghringinn og er að fara að halla mér, og ég get sagt ykkur að tilhugsunin um koddann minn og sængina er sæt. 

Þau fóru í sund í kvöld Elli, Úlfur og Hanna Sól, hún var svo stolt þessi elska að fá að fara með strákunum, af því að hún var svo stór.  Litla skottið var hjá ömmu, hún fór í bað, og ég slefaði tölvunni inn á kló til að sitja það með henni í baðinu, meðan ég las innlegg og fylgdist með á netinu.  Svo þurfti hún aðeins að fá að striplast og þá var hún tilbúin í holuna sína. 

Ég fór með hana í aðlögun í morgun.  Hún er eins og hún hafi alltaf verið á leikskólanum, en lítil stúlka Mona er dálítið afbrýðisöm og kleip hana og hrinti.  En hún tók bara á móti sú stutta, það verður sennilega líf í tuskunum meðan þær eru að ákveða goggunarröðina á deildinni þessar tvær hehehe.  Hanna Sólin var ánægð að komast á leikskólann eftir veikindin sín. 

Svo allt er að færast í betra horf.  En ég segi bara GÓÐA NÓTT TIL YKKAR ALLRA VINANNA MINNA ÞARNA ÚTI. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Knús á þig forkurinn þinn og á stelpurnar líka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 23:36

2 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það var ekki af ástæðulausu að mamman bað til Guðs og sagði:Góði Guð gefðu mér þolinmæði-STRAX

Góða nótt vestfjarðarmammamma

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:41

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það þarf ekki alltaf allar þessar frábæru myndir þínar til að njóta þess að lesa & skoða færslurnar þínar, þessi sannar það.

Góða nótt, vena.

Steingrímur Helgason, 31.3.2008 kl. 23:43

4 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég segi það satt Ásthildur, að ég get ekki hætt,að dáðst að þeim, sem Skapaði okkur, fyrir útjónarsemina. -  Maður skilur svo vel í dag, þegar maður stendur með  þrjú lítil börn frá 9 mánaða til 2ja ára, og reynir að sinna þeim öllum í einu. Hversvegna Skaparinn hannaði okkur eins og við erum, lætur okkur vaxa upp úr barneignum, og þá getum við, reynslunni ríkari, gefið þessum litlu ljósum lífs okkar alla þá umhyggju, og ást ,sem þau þurfa, og notið samvista, þessara litlu anga. En getum svo líka, skilað þeim,  i fyllingu tímans, til yndislegra foreldra sinna, sáttum og glöðum.  Ég er mjöööög sátt við, að vera vaxin upp úr hinu og þessu.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:43

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ásthildur, ég hef sagt það áður, er það ekki?  þú ert hetja.  Ég held við ömmurnar vitum allar hvað þetta getur verið erfitt þótt þetta sé á sama tíma yndislega gefandi.  Góða nótt og ég vona að þú hvílist vel, ekki veitir af.

Sigrún Jónsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:49

6 Smámynd: Brynja skordal

sá einmitt í þættinum ísland í dag viðtal við 2 konur sem eru að fara halda námskeið fyrir nútíma ömmur kannski eitthvað fróðlegt sem kemur þar framm veit ekki ekki ætla ég á það og ætla svo sem ekki að dæma þetta neitt heldur tímarnir breytast og mennirnir með ef allar ömmur eru eins og þú ásthildur mín þá er lífið yndislegt ekki satt hafðu ljúfa nótt mín kæra

Brynja skordal, 31.3.2008 kl. 23:57

7 identicon

Góða nótt á móti mín kæra

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 01:47

8 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Ég veit að það er seigla í þér.

Góða nótt og góða drauma um Frí-ríkið Vestfirði.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.4.2008 kl. 02:20

9 Smámynd: Tiger

  Þú mín ljúfa stúlka - ert með endalaust fallegt og himneskt hjartalag! Ég er mikið stoltur af því að tengjast þér, þó dálítið langt sé, því þú ert stjarnfræðilega stór gullmoli sem hinn hái herra gaf frá sér til að dreyfa gleði og ljúfleika á meðal okkar. Mér finnst yndislegt og aftur yndislegt þegar ég heyri sögur af ömmum sem hlú að börnum og barnabörnum - gera svona mikið með þeim eins og þú gerir - og alltaf með gleði í hjarta. Ef bara ég hefði átt svona dásamlega ömmu ... *dæsss*... en það er önnur ella sko. Knús í nóttina til þín elskulegust og ljúfa drauma.

Tiger, 1.4.2008 kl. 03:04

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góðan dag, tek undir orð Tigercoppers um yndisleika þinn!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 1.4.2008 kl. 08:08

11 identicon

Stóra atriðið sem gerir gæfumuninn er þolinmæðin sem maður öðlast á lífsleiðinni, það er hún sem heldur vitinu í kollinum á manni þegar við virðumst vera að missa tökin. Þolinmæðin hefur líka kennt okkur að kaupa tíma með skemmtilegum rökræðum við smáfólkið. Það er fátt skemmtilegra en að fílósófera við litla manneskju sem oftast finnur skýringu á málinu, oftast aðra en við, en ekki síður rökrétta þegar maður skoðar frá þeirra hlið. T.d. þegar dóttursonur minn stóð með móðursystur sinni utan við blokkina sína og sagði "ég sé langömmu" (hún dó nokkru áður). Móðursystir sagði "nú, ég sé hana ekki". "Nei hún er að ganga þarna uppi, ég sé fæturna". -Gott fólk fer til himna- svo þetta er mjög rökrétt ef maður hugsar. En mér finnst yndislegt að kúra hjá kríli sem er að fara að sofa og vill ræða málin. . Gangi þér sem best með alla ljúflingana þína. 

Dísa (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 08:10

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða dag Ásthildur mín þú er yndisleg og mér finnst þú dugleg að fara blogghringinn ég veit hvað er mikið að gera hjá þér með elsku börnin. Knús

Kristín Katla Árnadóttir, 1.4.2008 kl. 10:46

13 identicon

Góðann daginn mín kæra

Soldið skrýtið að sjá engar myndir, hefði viljað sjá svipinn á þér þegar þú ætlaðir að taka kubbinn úr myndavélinni. 

Vonandi gengur vel svo að sameina dúllurnar og gróðurstöðina.  Annars veit ég að þér tekst að sinna þessu öllu saman vel.

Knús inn í daginn

Kidda (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 11:03

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul, ég er ekki bara rík af börnum og barnabörnum heldur líka bloggvinum, þeim bestu ever öruggleag

Takk Jenný mín öll knús vel þegin á þessu heimili.

Nákvæmlega Hulda mín, þolinmæði STRAX

Takk Helga mín.

Takk minn kæri Steingrímur.

Flott innlegg hjá þér Lilja mín og svo rétt, það er gott að vera vaxin upp úr þessu og hinu, og geta gefið smáfólkinu okkar hýju og nægan tíma. 

Takk Sigrún mín, já við ömmurnar eigum margt sameiginlegt, og ég held að svona flestum okkar þurfi ekki að kenna neit sérlega mikið

Brynja mín, ég held frekar að ömmur ættu að halda námskeið fyrir mömmur.   Fólk er alltaf að læra eitthvað af bók um mannleg samskipti, það er nú einu sinni þannig að reynslan er besti kennarinn.

Knús Anna mín.

Já einmitt Rósa mín, svona með öðrum verkum, þá er alltaf tími til að hugsa og senda út hugsanir, þær virka líka.

Takk Elsku TíCí minn, þú ert flottur eins og venjulega.  Knús á þig fyrir öll fallegu orðin þín og góðar hugsanir elsku frændi

Takk Jóhanna mín

Dísa það er alveg rétt að það er gaman að rökræða við þau litlu.  Og svo sjá þau sum ýmislegt sem aðrir sjá ekki.  Og maður getur svo sem séð þó maður eldist, ég gleymi aldrei þegar ég sá hana Rikku úti við garðvegginn hjá Ástu, og fannst hún horfa eitthvað svo undarlega á mig, þegar ég minntist á það við ömmu, sagði hún, Íja mín hún Rikka er búin að vera dáin í heila viku. 

Takk katla mín.

Hahaha Kidda já ég held að ég hafi verið dálítið skrýtin á svipinn en um leið svekkt hehehe... vill til að ég svekki mig aldrei að óþörfu.  Ef hluturinn er búinn og gerður, þá er hann það bara, og þá er að gera betur næst.  Knús á þig líka

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2008 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband