Krúttfærsla og hið daglega veður of kors.

Jamm þessi sunnudagur leið bara nokkuð vel, Veðrið var ágætt. Og Sigga mín kom í heimsókn með ungana sína.

IMG_4537

Hér er Ólöf Dagmar í tölvunni hennar ömmu.

IMG_4541

Sigga með Sigurjón Dag og Ásthildi.

IMG_4539

Stubbar að láta sé líða vel, Sóley Ebba að skoða steinana hennar ömmu.

IMG_4540

Úlfur að útbúa morgunverð fyrir sig og fröken Sóleyju.  Það eru nú ekki allir ungir ellefu ára guttar sem meika það að útbúa slíkan flottan morgunverð.

IMG_4542

Hér kemur svo hið daglega veður.

IMG_4543

Það var kalt en bara samt allt í lagi veður.

IMG_4545

Hér kemur svo krúttfærslan.  Þetta er Ásthildur sem klæddi sig í sundbolin hennar ömmu, ég held að hún verði svona tískudama fatahönnuður, því hún vill klæða sig í hin ólíkustu föt og fá nýtt lúkk.

IMG_4546

Hún er ótrúlega flott.

IMG_4547

Sama hvar á er litið ekki satt. +IMG_4549

Útspekulerað þema, sundbolurinn hennar ömmu LoL

IMG_4550

Svona alveg ný sýn á sundbolinn hehehehe.

IMG_4551

Hún gerði þetta alveg sjálf ég get svo svarið það.

IMG_4552

Þetta er hið nýja andlit 2008 hehehehe

IMG_4553

ekki spurning.  Góða nótt elskuleg mín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... hún er yndisleg alveg hreint! Svo bjartur og hamingjusamur svipurinn og svo greinilegt hvað henni líður vel þarna hjá ömmu sinni, enda hvernig annað hægt þegar amman er svona mikill ljúflingur sjálf! Yndislegt að sjá þetta Ásthildur mín, takk fyrir þetta og mikið knús á þig inní nýja viku.

Tiger, 31.3.2008 kl. 03:25

2 Smámynd: Linda litla

Góðan daginn hér.

Ekki lítur nú morgunverðurinn hjá Úlfi illa út, væri sko alveg tilbúin í að mæta í breakfast hjá honum, Yndisleg syrpa af Ásthildi litlu, hún er nú alveg fyrirsæta ársins 2008.

Eigðu góðan dag og njóttu ömmubarnana.

Linda litla, 31.3.2008 kl. 08:22

3 identicon

Flottar myndir. Sú litla á eftir að verða góð ef áhuginn á tísku heldur áfram. Gleðilegt að sjá að þó ungunum þínum líði vel hjá þér er ekkert ofdekur, hann tekur sig vel út í eldhúsinu og bjargar sér vel þegar á þarf að halda.

Dísa (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 08:23

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hún er fottust.  Það þarf ákveðna hæfileika til að geta "endurnýtt" föt.  Hehe.  Stelpan verður fatahönnuður, sannaðu til.

Annars hlýtur að vera yndislegt fyrir mömmuna að geta loggað sinn inn á bloggið og fengið dagsskammt af börnunum sínum.  Það dregur væntanlega úr söknuðinum (æi eða eykur hann, þetta er aldrei auðvelt).

Knús og takk fyrir yndislegu myndirnar þínar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2008 kl. 09:33

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég tek undir með Jenný.  Mér varð hugsað til mömmunnar.  En hún hefur auðvitað vitað manna best að Ásthildur amma er best

Knús á ykkur öll inn í daginn.

Sigrún Jónsdóttir, 31.3.2008 kl. 09:56

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Krúttlegar myndir enda góð amma.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2008 kl. 10:16

7 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

ahaha... Ótrúleg flottir krakkar og krúttkellingin litla algjör rúsínubolla 

Svala Erlendsdóttir, 31.3.2008 kl. 10:22

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk TíCí minn

Úlfur verður montinn að heyra þetta Linda mín.

Já Dísa mín, hann á eftir að spjara sig hann Úlfur, sem betur fer. 

Já Jenný hún gerir þetta iðulega tekur einhverja flík og klæðir sig í hana.  Ég held að bloggið gleðji mömmuna, allavega veit ég að þau nutu þess bæði foreldrarnir að fylgjast með þeirri stóru, meðan hún var ein hér.  En auðvitað kemur söknuður líka. 

Hæ Jóhanna mín.

Knús á þig líka Sigrún mín. 

Takk Katla mín

Jamm Svala mín hún er sko rúsína þessi litla dama.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2008 kl. 14:27

9 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Krúttkvitt !

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 31.3.2008 kl. 14:43

10 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Takk fyrir að deila þessum myndum með okkur krúttð börn

Eyrún Gísladóttir, 31.3.2008 kl. 16:20

11 Smámynd: Brynja skordal

Duglegur að búa til morgunverð ekki amalegt það En je minn krúttið í sundbolnum hennar ömmu og myndirnar æði hafið það gott

Brynja skordal, 31.3.2008 kl. 17:30

12 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Mátti til með að koma við hjá þér Ásthildur. Kær kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 31.3.2008 kl. 18:25

13 Smámynd: Huld S. Ringsted

Hún er algjör ljósmyndafyrirsæta litla skottið!! þvílík dúlla

Huld S. Ringsted, 31.3.2008 kl. 19:07

14 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

hrein og klár heimilishugga og dagbókar blaðsíða úr lífi þínu, takk fyrir það.

Bless inn í nóttina

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.3.2008 kl. 19:32

15 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Hahahah algjört krútt! þessi litli tískuhönnuður. Oh og svipurinn! ahah algjör dúlla.

Já, það er svo notalegt að kíkja við hjá þér Ásthildur, þó það sé bara í gegnum tölvuglugga

bestu kveðjur 

Ragnhildur Jónsdóttir, 31.3.2008 kl. 21:03

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.  Þið eruð yndæl.  Ég er satt að segja alveg búin á því hehehee.... það tekur á að vera orðin ungamamma svona allt í einu.  En þetta lagast allt saman og ég verð hressari en nokkru sinni fyrr, þegar ég næ að höndla þessar tvær litlu skvettur, sem eru alveg yndislegar, en ótrúlega fyrirferðarmiklar samt sem áður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2008 kl. 22:12

17 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

takk

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband