Hið daglega veður og fleira smálegt.

Við fórum í sund í dag, fjölskyldan, á Suðureyri.  Það var ágætis veður allavega fram að fimmlelyti, en þá kom einhver mugga.

IMG_4512

Svona var veðrið þegar við lögðum af stað í sundið.

IMG_4514

IMG_4516

Það stóð náttúrulega yfir keppni á skíðalandsmótinu, eins og gengur, en þau eru sennilega hærra upp í fjallinu, svo það sést ekki vel frá veginum að göngunum.

IMG_4533

En það er svo sem margt annað sem minnir á þessa ágætu uppákomu.

IMG_4518

Barnalaugin var fremur heit, og þessi litla var smeyk við vatnið, hún var því á höndum allan tímann, öfugt við stóru systur sem syndir um alla laugina, þá stóru.  Stingur sér og leikur allar listir, alveg þrælklár.  ég ætla mér samt ekki að taka myndir fyrr en fer að hlýna.

En mikið var gott að fá sér smálögg þegar hún kom uppúr.

IMG_4522

Svo fá allir ís, náttúrulega það tilheyrir.

IMG_4526

Líka stóri frændi.

IMG_4528

Allt í sómanum með það.  Hanna Sól er stúrin, af því að hún skipti um skoðun með ísinn, vildi fá vanilluís eftir að hún var komin út í bíl, og byrjuð að borða ísinn.  En það bjargaðist allt saman, því hún fékk ísinn hans afa og líka Úlfs, það sem eftir var af þeim.

 

IMG_4532

Litla Evíta er með rauðu hundana.  Hún er öll útsteypt, en er að lagast, svo pabbi fór með hana í smágöngutúr.

IMG_4529

Hér erum við stödd á Suðureyri, gegnt sundhöllinni.

IMG_4536

Þessi var rosalega þæg og góð, þegar við komum heim, dundaði sér heilmikið sjálf.  En Hanna Sólin fékk að fara til Tinnu frænku, og Úlfurinn er hjá Sóley Ebbu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þið sláið ekki slöku við með barnabörnin,hið besta mál, en bæði Hlaupabóla og Rauðir hundar gera já vart við sig!

En þú átt við Skíðalandsmótið er það ekki mín hlátumilda Cesil, varla er nú skólalandsmót líka í gangi á sama tíma eða hvað!?

Magnús Geir Guðmundsson, 29.3.2008 kl. 21:36

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.3.2008 kl. 21:38

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skólalandsmótið er eftir að koma hehehehe þetta er auðivitað skíðalandsmótið, ég bara veit ekki hvað er í kollinum á mér, ef til vill að ganga í barndóm

Knús á þig líka Anna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 21:43

4 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Mikið ert þú dugleg að snúllast í kringum barnabörnin

Eyrún Gísladóttir, 29.3.2008 kl. 21:57

5 Smámynd: Ásta Björk Solis

Thad er nu meiri dugnadurinn i ther,takandi landslagsmyndir sem alltaf gledja augun.Og barnabornin algjor krutt  

Ásta Björk Solis, 29.3.2008 kl. 22:00

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar, ég er orðin svo vön þessu að myndavélin er gripin með við hvert tækifæri. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 22:18

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Sagt & skrifað það áður.

Ísfirzkar ömmur, lángbestar.

Steingrímur Helgason, 29.3.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fallega skín sólin þarna á kúluhúsið!  .. fjör með þessa íspinna!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.3.2008 kl. 23:34

9 Smámynd: Solla Guðjóns

Frábær KÚLUMYNDIN

Svo svona kvöldknús á þig

Solla Guðjóns, 29.3.2008 kl. 23:41

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Flott myndin af kúluhúsinu þínu, svo flott stemmning í ljósi  og skuggum.  Og barnabörnin alltaf fallegust.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 30.3.2008 kl. 01:49

11 Smámynd: Helga skjol

Alltaf jafnyndislegt að kíkja á þig og alltaf jafnskemmtilegar myndirnar frá þér.

Helga skjol, 30.3.2008 kl. 06:59

12 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín. Alltaf fjör í kringum þig. Yndisleg börn.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.3.2008 kl. 08:33

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir dagsskammtin, þú bælir ekki fletið kona.  Nóg að gera.  Öfundsvert hlutverk.

Knús á þig og smáfólkið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.3.2008 kl. 10:07

14 Smámynd: Linda litla

Ég hef aldrei komið á vestfirði, en hefur alltaf langað að koma þangað. Þetta er greinilega fallegur staður sem hægt er að vera með myndavélina á lofti tímunum saman greinilega.

Eigðu góðan dag.

Linda litla, 30.3.2008 kl. 10:51

15 Smámynd: Brynja skordal

Hafið ljúfan sunnudag

Brynja skordal, 30.3.2008 kl. 11:12

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Held að þú talir af reynslunni Steingrímur minn.

Takk Helga mín, knús á þig og Grétu.

Já Solla og Jóhanna það er notalegt þegar sólin skín í heiði.

Takk Lilja mín.

Takk Helga mín.

Knús á þig til baka Jenný mín.

Það er þá komin tími til Linda mín.

Sömuleiðis Brynja mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2008 kl. 12:51

17 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flottar myndir. Hefur þú ekkert velt því fyrir þér að leggja bara ljósmyndun fyrir þig?

Helga Magnúsdóttir, 30.3.2008 kl. 14:34

18 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Ég er sko ákveðin í því að eitt af lífsverkefnum mínum verður að koma í kúlu og fá mér kaffisopa með flottustu ömmu Íslands. Mig langar alltaf að gera eitthvað skemmtilegt þegar ég er búin að skoða myndirnar þínar........Frábær dagskamtur af gleði vítamínum.....takk fyrir mig

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 30.3.2008 kl. 14:49

19 Smámynd: Tiger

  Yndislegar myndir eins og alltaf Elskulegust. Svo gaman að sjá hvað afi og amma dúlla og spilla ömmubörnunum.. Það er æðislegt að sjá hve hreint og fallegt er þegar hvítur snjór er yfir öllu, annað en í rvk þegar smá snjór er - kolskítugur og ljótur af útblæstri og saltdrullu... Æði myndirnar þínar Ásthildur mín, knús í sunnudaginn þinn!

Tiger, 30.3.2008 kl. 15:03

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Helga mín ég er að verða 64 ára sem er frábær aldur, en ekki beint svona líklegur til að byrja eitthvað nýtt.  Þó er aldrei að vita.  En ég er garðyrkjustjóri hér í bænum og rek einnig garðplöntustöð, ég elska ræktunina og ég elska bæinn minn.  Ég er búin að vinna að grænni byltingu í honum í næstum 30 ár, og ætla að reyna að hætta með reisn   Takk fyrir mig elskuleg.

Já það væri gaman að fá þig í kaffi Ella mín.  Takk fyrir mig.

Takk TíCí minn, alltaf góður eins og venjulega.  Knús á þig líka

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2008 kl. 16:37

21 Smámynd: Huld S. Ringsted

Yndislegar myndir að venju

Huld S. Ringsted, 30.3.2008 kl. 16:54

22 Smámynd: Sigurður Hólmar Karlsson

Takk fyrir bloggið þitt ekki veitir af jáhvæðni á þessum tímum

Sigurður Hólmar Karlsson, 30.3.2008 kl. 19:11

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Huld mín

Ég er óborganlega bjartsýn Siggi minn. Það er bara þannig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.3.2008 kl. 20:25

24 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Þú ert yndisleg Ásthildur mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 30.3.2008 kl. 22:19

25 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Mér finnst þær æði lopapeysurnar sem þær eru í systurnar. Sé ekki fyrir mér Báru prjónandi svo ég spyr, hver prjónaði?

Kveðjur í kúluna. 

Þ

Þórdís Einarsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:39

26 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk og knús Katla mín

Þórdís mín ég keypti báðar þessar peysur hjá Karitas föndurkonunum frábæru á Ísafirði.  Þarf að fara þangað inn og taka myndir af öllu því sem þær eru að prjóna og föndra, enda frábærar. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2008 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband