Börn og bura, skíði og dagsendi.

Ég hef ekki komist nema brot af blogghring í dag.  Hef svo sem reynt, en það kemur alltaf eitthvað eða einhver sem þarf athygli, og það verður ekki við gert nema að sinna því.  Nú er sú litla sofnuð hin að horfa á Bamba, strákarnir í sundi og svo Úlfur í ThaiKvan Do. 

Það er smánæði en þá er orkan farin Smile Sú litla saknar mömmu mest á kvöldin þegar hún á að fara að sofa.  Þá endar með að ég leggst með henni niður og bía henni.  Það er dálítið raunarlegt, en við því er ekkert að gera.  Hún hefur að öðru leyti alveg samþykkt ömmu sína, sem aðal, og á enn svolítið í land að samþykkja afa.  Þó er hún eins og aðrar dömur, þykist ekkert vilja við hann tala, en horfir svo á eftir honum þegar hann fer, og vill að hann komi aftur, svo hún geti þóst ekki sjá hann LoL

Mér brá verulega í dag, þegar þessi eldri kom með bleyju og sagði amma viltu binda hana á mig, ég ætla að vera með hana alltaf Undecided

IMG_4500

Jamm.

IMG_4502

Ekki veit ég hvaðan hún hafði þessa hugdettu.

IMG_4499

En hún gaf ömmu sinni blóm í dag, prímúlur úr garðkálanum.

IMG_4504

Hér eru fánarnir uppi á leið upp á Seljalandsdal, þar sem göngukeppninn fór fram. 

IMG_4505

Á Tungudal var verið að sækja keppendurnar, eftir erfiðan dag.

IMG_4507

Einhverjir örugglega lúnir og til í að hvíla sig fyrir sigra morgundagsins.

IMG_4509

Séð af Tungudal yfir fjörðin.

IMG_4510

Sólarglætur hér og þar.

IMG_4511

Líka niður í bæ. 

En dagurinn í dag er á enda runninn, og á morgun er nýr dagur.  Dagur til að vinna sigra og standa sig í hlutverkinu sem maður hefur tekið að sér.  Reyna allavega allt sitt besta.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var að reyna að fara blogghringing en það er eins og ég komist það ekki annað hvort er tölvan  mín er svona slóv eða það er mikið álag á allt þó komst ég til þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.3.2008 kl. 22:00

2 Smámynd: Linda litla

Stundum fær maður bara ekki frið til að fara blogghring, þannig er þetta bara, en þú átt samt örugglega eftir að ná að klára hann, Flottar myndir hjá þér eins og alltaf.

Góða nótt

Linda litla, 28.3.2008 kl. 23:42

3 identicon

Sæl. - Ég hef nú eiginlega bara samband hérna af því að ég veit ekki hvar ég næ annars sambandi við þig. Þetta er útaf upptöku með Allsherjarfríkum sem mér skilst að þú eigir. Gætirðu sent mér slóð á hana eða haft samband í gegnum tölvupóst til frekari skýringa?

Takk fyrir fram,

Magnea.

Magnea (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 23:45

4 Smámynd: Helga skjol

Innlitskvitt á þig mín kæra,knús inní helgina

Helga skjol, 29.3.2008 kl. 09:07

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan dag Ásthildur ofur-kona.  Sendi þér knús og kveðjur inn í helgina

Sigrún Jónsdóttir, 29.3.2008 kl. 10:27

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál Katla mín

Veistu Búkolla þetta get ég alveg trúað.  Það er eins með hjólahreyfingar ungbarna, hvað ætli fullorðin manneskja myndi endast lenti

Takk Linda mín, já ég verð að finna mér tíma fyrir ykkur.

Kveðja til þín lika Helga mín.

Knús á þig líka Sigrún mín.

Nei Hallgerður, hún hefur ekki séð neina slæðukonu hér.  Þetta er eitthvað sem henni hefur dottið í hug, eða séð í sjónvarpinu eða slíkt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 11:56

7 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Bestu kveðjur Ásthildur, þú ert algjör kraftakona og börnin yndisleg

Ragnhildur Jónsdóttir, 29.3.2008 kl. 12:56

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Úff dálítið kuldaleg fjallasýnin þessa dagana en afskaplega falleg.  Það eru börnin líka.

Knús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.3.2008 kl. 13:04

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða helgi Ásthildur mín

Kristín Katla Árnadóttir, 29.3.2008 kl. 13:38

10 identicon

Sæl Ásthildur mín.

Já,svolítið kuldalegt,en flott.

Ég var að setja inn síðasta ljóðið hennar Ingibjargar á síðuna mína núna í bili,vona að þú eigir eftir að njóta þess

Kær kveðja, Þói Gísla.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 13:40

11 Smámynd: Brynja skordal

Hafið ljúfa helgi í kúlunni ykkar knús

Brynja skordal, 29.3.2008 kl. 13:45

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Kveðjur til þín líka Ragnhildur mín.

Já Jenný mín, það er dálítið kuldalegt hjá okkur núna..

Góða helgi til þín líka Katla mín.

Takk fyrir það Þói, mér fannst hitt ljóðið um orðið alveg dásamlegt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 13:48

13 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Semsagt brjálað að gera hjá þér.

Eyrún Gísladóttir, 29.3.2008 kl. 13:51

14 identicon

Ég er Ísfirðingur í aðra, og mjög oft komið heim og fynnst mér þessar myndri mjög flottar, svona eiga vetrar myndir að vera.

Elísabet Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 14:23

15 identicon

Sennilega er það fyrirkomulag best sem náttúran hefur á barneignum, að þau fæðist á fyrrihluta ævi okkar. Þau eru svo orkumikil að þau reynast ofjarlar okkar með tímanum. Við sjáum líka þá tilhögun náttúrunnar að við konur getum gert og hugsað um fleira en eitt í einu framan af aldri, en ég er löngu farin að sjá að é er að breytast í kall og get bara eitt í einu. Sennilega hefur náttúran gert okkur svona úr garði til að geta hugsað um börnin og gert allt annað á sama tíma. En óneitanlega ertu nú rosalega dugleg þó þú finnir fyrir þreytu. Og þegar frá líður verður ómetanlegt fyrir litlu dúllurnar þínar að hafa fengið að vera hjá ömmu þennan tíma, og sér í lagi fyrir þá stóru, hún á eftir að muna það betur. Góða helgi.

Dísa (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 18:29

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Eyrún mín.

Gaman að heyra það Elísabet mín.

Hehehe Dísa, þú kemur inn á skemmtilegan punkt, þú ert að breytast í karlmann, þar sem þú getur bara gert eitt í einu núna.  Já Dísa mín ég vona að við afi setum okkar mark á þessar stelpur, þ.e. að vísa þeim veg kærleika og umburðarlyndis, ekki það að foreldrarnir eigi ekki nóg af slíku, heldur höfum við ef til vill meiri tíma til að gefa þeim eins og málins standa alla vega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 19:10

17 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 29.3.2008 kl. 20:17

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2008 kl. 21:21

19 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 29.3.2008 kl. 23:40

20 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur mín.

Mögnuð setning: "Þó er hún eins og aðrar dömur, þykist ekkert vilja við hann tala, en horfir svo á eftir honum þegar hann fer, og vill að hann komi aftur, svo hún geti þóst ekki sjá hann."  Og sjá svo skvísuna með slæðuna. hm.

Ég vona að þú áorkir þessu öllu að halda utan um allan þennan barnahóp og gerir ekki út af við þig.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 30.3.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband