Daglegt líf og veður.

Nú er allt að færast í samt líf hér á heimilinu.  Hanna Sól er að ná sér eftir rauðu hundana.  Og litla skottið er kát og glöð.  Hún svaf í vagninum sínum í þrjá tíma, og ég endaði með að vekja hana, svo hún myndi sofna í kvöld.  Hún hefur greinilega haft gott af svefninum.  Heima hjá sér í Vín gat hún ekki sofið úti, þar sem íbúðin er á áttundu hæð.   Svo það er ekki vegur að koma því við.  Enn eitt góða við að vera í tæra loftinu á Ísafirði.

IMG_4460

Hér er verið að horfa á Dóru, á morgun fer hún á leikskólann sinn, og þá byrjar rútínan hjá henni.

IMG_4462

Ásthildur fór í náttakjólinn hennar systur sinnar, og auðvitað beint í tjörnina.

IMG_4465

Úbbs potturinn datt og hvarf í kaf.  Amma náði honum uppúr, og þá reyndi hún ekki aftur að fylla hann sjálf, heldur lét ömmu um það heheheeh...

IMG_4466

Jamm svo er að fara með hann og vökva auðvitað.

IMG_4468

Svona þetta er fínt.

IMG_4463

Veðrið er að lagast, það hefur verið ágætt en nú er sólin að brjótast fram, það er notalegt.

IMG_4464

Svona fínt.

Svo vil ég bara endurtaka þakkir mínar til ykkar allra og hlýju og fallegu orðin, þau eru geymd í hjartanu, og þegar amma verður pirruð eða er alveg að springa þá tek ég þau fram og hugsa um þau og þá mun allt verða gott aftur.  Þannig er eðli góðra orða. 

Þetta ljóð var á blogginu hans Þóa vinar míns, mér finnst það algjör snilld, og set það hér inn.

Gildi orðsins.

Af gnægðum hjartans mælir munnur,

mynda orðin sálargerð

Öll þau speglar andans brunnur.

eru þau hugans dýra sverð.

 Orðin birta eðli manns,

illt og gott í fari hans.

Góður maður gott fram setur

góðum sjóði hjartans frá.

Göfugleikans gull hann metur

grandvör orð og sannleiks-þrá.

 Tungan hlýðir hugsun manns,

hún er lykill sálar hans.

Vondur maður orðin illu

ávallt lætur fús í té.

Sína eykur syndavillu

saurgar heilög andans vé.

Hver sem iðkar orðin ljót,

allri blessun vinnur mót.

 

Því er vert að vanda tungu,

varhyggð rétta temja sér.

Gróðursetja í eðli ungu

allt,sem manni þroska ber

Orðsins gildi gullvægt er,

ef göfug hugsun saman fer!

 

Höfundur

Ingibjörg Sigurðardóttir skáldkona,

frá Kálfshamarsvík.

 

Knús á ykkur öll elsku vinirnir mínir. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ligg í kasti yfir verklaginu hjá þeirri litlu.  Þvílíkt skott ómæ.

Hanna Sól er yndisleg líka.

Knús á ykkur.  Þú rokkar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.3.2008 kl. 18:03

2 Smámynd: Linda litla

Þvílíkar dúllur eru stelpurnar og sjá bröltið með blómapottinn hehehe

Fallegt ljóðið.

Linda litla, 27.3.2008 kl. 18:11

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð. Sú stutta er flott í að vökva og sinna verkunum. Gott að Dóra er að hressast.

Kær kveðja á fallega Ísafjörð/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.3.2008 kl. 18:12

4 identicon

Snemma beygist krókurinn, sú stutta er búin að sjá að ef allir hjálpast að ganga hlutirnir. Amma þarf ekkert að gera allt sjálf . Sumstaðar er svona hjálp vanþökkuð og manni bannað, en ef hjálpin er boðin af góðum huga á auðvitað að þiggja hana. Ef maður afþakkar aðstoð smáfólks þarf ekki að gera réð fyrir að hún sé boðin aftur. Hún á einhvern tíma eftir að taka til hendinni. .

Dísa (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 18:51

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe Jenný þetta var skemmtilegt að sjá.  Og hún svo áhugasöm með pottinn, og fékk sér sopa sjálf svona til öryggis.  Takk.

Takk Linda mín.

Takk Rósa mín.

Jamm það er alveg hárrétt Dísa mín, maður verður að þiggja hjálpina þegar hún býðst.  Hún er nú þegar farin að taka til hendinni

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 19:08

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig líka Búkolla mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 20:08

7 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Fallegri fjörkálfa er vart hægt að hugsa sér, got að heyra að Hönnu Sól er að batna.  Og litla skottan, hún Ásthildur sú er aldeilis dugleg. Hún hefur náttúrulega verið endurnærð eftir 3ja tíma lúr í fjallaloftinu fyrir vestan, hjá ömmu. Það væsir ekki um þær,  það sér maður á þessum myndum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 27.3.2008 kl. 22:58

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Það er spes að vita til þess að þessar myndir séu teknar á nánast sama augnablikinu.........sumar/vetur

Solla Guðjóns, 27.3.2008 kl. 23:21

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Lilja mín, hún var miklu glaðlegri í dag en hún hefur verið lengi hún Ásthildur litla og auðvitað er það fjallaloftið

Solla mín, já það sem einkennir þessar stemningsmyndir mínar er einmitt að þær eru teknar sama dag og þær birtast og stundum bara nokkrum mínútum eftir að þær eru teknar.   En ég var að finna albúm, ég man ekki hvernig það barst til mín, en það er frekar gamalt með fullt af myndum af sjómönnum og skipum, og ég ætla að skanna þær inn og setja á bloggið mitt svona í nánustu framtíð, það verður gaman að sjá hvort þar koma einhverjir fram sem fólk þekkir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.3.2008 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband