26.3.2008 | 18:22
Söknuður í kúlunni.
Jæja þá er alvaran tekin við. Ég orðin mamma aftur með þrjú börn þar af eitt bleyjubarn og annað fjögurra ára.
Mamman og pabbinn fóru af stað suður í dag. Auperin kemur ekki fyrr en viku af apríl, svo ég hugsa að ég verði ekki mikið á blogginu þann tíma. Ég er dálítið sorgmædd inn í mér af því að Bára mín er farin, en þau skildu eftir það dýrmætasta sem þau eiga í minni umsjá. Hve mikið meira traust er hægt að sýna einni manneskju. Þó verð ég auðvitað ekki ein með þær. Afi og Úlfur eru duglegir við að hjálpa, og svo allir hinir, Tinna og Skafti, Ingi þór og Júlli og fullt af ættingjum sem eru alltaf tilbúin. Auperin er þýsk og heitir Júlía, þið fáið örugglega að kynnast henni þegar hún kemur. Ég vona bara að hún falli vel inn í heimilið. Stelpurnar verða hér fram á haust. Mamma þeirra kemur í júní, og svo verða þær allar hér einhvern tíma, geri ég ráð fyrir. Sú stutta grét alveg heilmikið áðan, þegar hún uppgötvaði að mamma var farinn. Ég var í klukkutímabasli með þennan litla ræfil, nú er hún sofnuð. Og ég vona að það versta sé yfirstaðið.
Blessunin mín hún Bára, ég vorkenni henni mest, en hennar fórn er mikil. Skólinn tekur allan hennar tíma og svo eru endalaus próf fram á vorið. Eg ákvað því að bjóða henni að hafa þetta svona til að auðvelda henni að takast á við lærdóminn og skólann.
Hér er kartöfluprinsessan, hún fékk svo rauða hunda ofan á allar flensurnar hér, og er alsett bólum, við settum hana í kartöflumjöls bað til svía aðeins á kláðann. það tókst reyndar mjög vel.
Svo er víst ágætt að hugleiða hehehehe
Þessi var samt tilbúin til að fara fram.
en svo fór amma með hana í labbitúr, þið sjáið að það er dálítið kalt og vindur í dag.
Svo þurfti að hjálpa pabba að raða í bílinn, henni var reyndar ekki alveg ljóst að þau myndu svo fara.
Þetta er nýjasta aðferðin við að fara á klósettið.
Það þurfti aðeins að leika sér með trommurnar.
með tilþrifum.
Já ég vona að brosið komi sem fyrst aftur á þessa litlu dömu. Hún er frábær og amma ætlar að líta vel eftir þeim báðum. Reyndar eru þær báðar búnar að komast að á besta leikskólann á landinu Tjarnarbæ á Suðureyri. Þar er svo gott að vera, yndislegar fóstrur og svo er hægt að fara í sund þar eftir leikskólann.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þær eru heppnar þessar dúllur að eiga svona góða ömmu
og Bára á heimsins bestu mömmu 
Gangi þér vel Ásthildur mín
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 26.3.2008 kl. 18:38
Elsku Ásthildur mín það verður nóg að gera hjá þér ég veit að þú hugsar vel um þær á meðan þangað til að mamma kemur heim aftur og ég veit að þú færð góða hjálp
Gangi þér vel með þessar fallegar dúllur
Kristín Katla Árnadóttir, 26.3.2008 kl. 18:50
Það held ég að sé leitin að annari eins mömmu eða ömmu eins og þér,ég virkilega dáist að þér í alla staði og þú ert sko ábyggilega sú manneskja sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar,þú ert bara í einu orð sagt STÓRKOSTLEG KONA.
Risa
knús til þín og þinna.
Helga skjol, 26.3.2008 kl. 19:19
Ég tek undir með þeim, sem á undan hafa talað!
Hvar færðu alla þessa orku? Eru það fjöllin? Þú ert frábær
.
Sigrún Jónsdóttir, 26.3.2008 kl. 19:32
Þær eru ekki sviknar af ömmunni sem þær eiga dúllurnar. Knús á ykkur
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.3.2008 kl. 19:42
Takk Hulda mín
Takk Katla mín
Takk Helga mín,

Jamm það eru fjöllinn Sigrún mín og svo bara þessi frekja sem hefur fylgt mér.... eða þannig
Takk Jenný mín
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.3.2008 kl. 19:58
Þú ert nú bara ofurkona Ásthildur, ofurmamma og ofuramma það verður ekki af þér skafið ....
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 26.3.2008 kl. 20:28
Þú ert ofuramma Ásthildur, svona amma vil ég einhvern tímann verða
Huld S. Ringsted, 26.3.2008 kl. 20:34
Sammála að það er örugglega mjög erfitt fyrir Báru að skilja þær efitir, en samt ekki betri staður að skilja börnin sín eftir en hjá pabba og mömmu, þar veit maður hvernig þeim líður. En líka lúxus að fá að tengjast barnabörnunum svona vel, þó það sé vinna. Maður fær það borgað seinna í ást og væntumþykju.
Mér finnst yndislegt að hitta minn 13 ára úti í búð og fá knús og koss án þess að spáð sé í hvort einhver sjái, því þetta er hún amma.
Hugsaðu þér hinn kostinn, ef allir hefðu farið í einu og orðið tómlegt eftir allt fjörið að undanförnu. Ég man að mamma talaði oft um þegar við komum öll fimm vestur hvað allt hefði orðið tómt þegar við fórum aftur, þó það hafi auðvitað verið léttir fyrir hana að hafa meira næði.
Gangi þér vel með litlu dúllurnar þínar, þarft allavega ekki að hafa áhyggjur af að leiðast.

Dísa (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 20:38
Gott að eiga góða ömmu, alveg ómetanlegt.
Kolbrún Baldursdóttir, 26.3.2008 kl. 21:10
Hallgrímur Óli Helgason, 26.3.2008 kl. 21:31
Mikið ertu yndisleg Mamma og Amma Ásthildur mín en skil þig svo vel það er nú bara svo að ekkert er betra og meira gefandi þegar allir hjálpast að það er ómetanlegt þó það sé vinna að hafa ömmugullin hjá sér þá er það bara best í heimi
gangi ykkur öllum vel og það verður gaman að fá áframm myndir af fallega fólkinu þínu knús til ykkar
Brynja skordal, 26.3.2008 kl. 21:54
Hefur þú endalaust þrek elsku Ásthildur? þú ert góð móðir og amma ekki spurning. Ég veit að þér á eftir að ganga vel með börnin þú ert bara þannig kona. Knús
Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2008 kl. 22:02
Þú ert sannkölluð ofurkona Ásthildur, mikið eru börnin heppinn að eiga svona svona ofurkonu fyrir ömmu. Gangi þér vel með litlu ömmubörnin, þær eru svo fallegar. En þetta verður erfitt bæði fyrir þær og þig og einnig fyrir mömmu þeirra, þó hún viti að þær eru í góðum höndum. - Líði ykkur öllum sem allra, allra, best.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:05
Ertu krúttlegasta Ísamman eða hvað... yndislegar myndir!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.3.2008 kl. 23:17
Þú ert dásamleg!
Frábærar myndir af fallegum börnum. Gangi þér vel
Ég er sjálf að passa talsvert einn tæplega tveggja ára sem yngsta systir mín á. Hún er að bíða eftir leikskólaplássi fyrir hann. Hann er æðislega skemmtilegur og ég get sleppt því að fara í ræktina dagana sem ég er með hann 
Margrét St Hafsteinsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:52
Það er bara eins & við hin hérna á blogginu eigum eitthvað í allri þessari fjölskyldu þinni líka, svei mér þá alla daga nema sunnudaga.
Mikið gefandi snilldar kona, Ást. Cecil.
Steingrímur Helgason, 26.3.2008 kl. 23:54
Mikið ertu yndisleg og ótrúleg mamma og amma
Tárin byrjuðu bara að streyma hjá mér þegar ég las þetta. Ég á líka tvær litlar snúllur og ég tek bara ofan fyrir Báru að hafa kjarkinn í þetta. En hún er nú líka hörkukona og á ekki langt að sækja það...
Bið kærlega að heilsa henni (Sigrún úr Mosó, nú í Grindavík)
Ég kíki öðru hvoru hingað inn en hef ekki kvittað áður. Gaman að sjá hvað þú setur upp skemmtilegar myndasyrpur frá Ísafirði og að ég tali nú ekki um myndirnar af smáfólkinu í Ævintýrakúlunni. Þið eruð nú algjör krúttfjölskylda.
Gangi þér vel með stelpurnar, þær eru í góðum höndum
Sigrún Þorbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 00:07
Sæl Ásthildur mín.
Það er greinlega ekkert þér ofviða----------------ótrúleg orka.
Kær kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 05:17
Takk öll sömul fyrir að vera svona góð við mig. Það er svo sem enginn kvöð að hafa þessa tvo yndislegu litlu engla. Þó auðvitað krefjist þær meiri tíma, og orku af mér
Bára mín er að læra til dýralæknis. Það er eitthvað sem hún ætlaði sér að gera strax þegar hún var pínulítil. Hún hefur alltaf verið dýravinur, og er ótrúlega dugleg, hún komst inn í elsta dýralæknaskóla Evrópu í Vín, og þrátt fyrir að vera einn af fáum útlendingum í skólanum hefur hún alltaf staðist öll próf, í fyrra vor svona brottfallspróf, það er margir teknir inn í byrjun en svo koma erfið próf sem ekki er hægt að taka upp, mig minnir að það hafi verið um 60% brottfall nemenda þá, núna um daginn voru svo líka erfið próf, sem hefðu kostað hana eitt ár. En hún stóð þau líka. 'Eg er mjög stolt af stúlkunni minni, og þess vegna reyni ég að gera mitt til að hún geti stundað skólann. Og bæði maðurinn minn og stubburinn eru með mér í þessu. Við ætlum að standa í þessu öll saman, og það er gaman.
Já það er satt að það hefði verið all miklu tómlegra í kotinu ef enginn hefði verið eftir. En þá hefðu þau ekki komið, því planið var að pabbinn færi út um páskana og tæki þá eldri með. Svo breyttist þetta allt, þegar maður fór að hugsa um framhaldið, því Romina hin rússneska var að fara aftur heim til Rússíá og síðan til Þýskalands. Svo hvað hefði þá verið framhaldið. Æ svona er þetta bara, lífið tekur stundum af manni ráðin, en ég held að það sé planað fyrirfram, og svo er bara að haga sér samkvæmt því og höndla aðstæðurnar eftir bestu getu. Enginn getur gert meira en sitt besta.
Gaman að sjá þig hér Sigrún mín, ég hugsa oft til þín og vona að þú sért við góða heilsu og hamingjusöm.
Þið öll hin takk fyrir að vera svona yndisleg og góð. Þið eruð góðir félagar og vinir, og ég var hrærð og glöð við að lesa innlegginn ykkar. Falleg og hlý orð enduróma frá þeim sem sendir þau, til þess sem móttekur, en svo fljúga þau frjáls til allra sem vilja taka þau inn og gleðjast yfir þeim. Og að lokum fljúga þau svo aftur heim til þess sem setti þau fram, þess vegna koma þau tífalt til baka.
Ég er að gefa þessum litlu morgunmat og er bara að stelast til að setja þetta niður á skjá, vegna bara til að segja ykkur hvað þið hafið glatt mig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 09:27
Þú ert mögnuð Cesil, frábær mamma og amma, fyrir utan að vera frábær manneskja.
En erfitt hlýtur þetta að vera fyrir Báru og pabbann, en þó huggun að gullmolarnir þeirra eru í góðum höndum.
Það verður sem sé nóg að gera í Kúlunni næstu mánuði.
Knús
Kidda (IP-tala skráð) 27.3.2008 kl. 10:26
Dóttir þín er rosaduleg og heppin að eiga þig.Það er ekkert eins erfitt og að vera svo lang frá börnunum sínum.En oft þarf að fórna smá til að vinna helling.
Knús á þig og þinnar frábæru fjölskyldu
P.S.Þú tekur þig mjög vel út með barnavagninn
Solla Guðjóns, 27.3.2008 kl. 11:22
Sæl Ásthildur mín.
Mikið er Bára lánsöm að eiga ykkur að þegar hún þarf að basla í skólanum og börnin lánsöm að vera í ´hjarta hlýjunni hjá ykkur.
Ég veit að þú breiðar vængina þína yfir sólargeislana þegar stelpurnar og öll hin barnabörnin þurfa á auka kærleika að halda.
Guð launi þér fyrir kærleika þinn við börnin og barnabörnin þín.
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.3.2008 kl. 12:37
Topp amma :)
Guðborg Eyjólfsdóttir, 27.3.2008 kl. 12:56
Hún Bára er harðjaxl og hörkutól en ég finn svakalega til með henni að þurfa að fara frá stelpunum. Finnst alveg nógu erfitt að skilja við minn gutta á leikskólanum vitandi það þó að ég sæki hann þegar vinnudagurinn er búinn.
Bið að heilsa öllum og gangi ykkur vel. Knús á línuna.
Þórdís
Þórdís Einarsdóttir, 27.3.2008 kl. 14:11
Yndislegar myndir hjá þér. Ég efast ekkert um að þú ert flottasta og besta amman.
Eigðu góðan dag.
Linda litla, 27.3.2008 kl. 14:28
Takk allar saman, já nú er nóg að gera hjá mér alla vega þangað til auperinn kemur. Svo þarf sú litla aðlögun í leikskólanum. En þetta verður allt í lagi vona ég. Þið eruð yndisleg við mig, og hlýju orðin ylja mér svo sannarlega. Velkomin til mín Linda litla. Knús á ykkur allar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 14:45
Ásthildur mín þetta er texti sem ég sendi mömmu minni einu sinni á afmælisdaginn, þú ert íslenska konan
Hún bar þig heiminn og hjúfraði að sér.
Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér.
Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf.
Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf.
Með landnemum sigld ún um svarrandi haf.
Hún sefaði harma, hún vakt´er hún svaf.
Hún þerraði tárin hún þerraði blóð.
Hún var íslenska konan sem allt á að þakka vor þjóð.
Ó, hún var ambáttin rjóð
hún var ástkonan hljóð
hún var amma svo fróð.
Ó, athvarf umrenningsins
inntak hjálpræðisins
líkn frá kyni til kyns.
Hún þraukaði hallæri, hungur og fár.
Hún hjúkrað´ og stritaði gleðisnauð ár
Hún enn í dag fórna sér endalaust má.
Hún er íslenska konan sem gefur þér allt sem hún á.
Ó, hún er brúður sem skín
Hún er barnsmóðir þín.
Hún er björt sólarsýn.
Ó, hún er ást, hrein og tær
Hún er alföður kær.
Hún er Guðsmóðir skær.
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla á fold.
Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf.
En sólin hún hnígur og sólin hún rís.
Og sjá þér við hlið er þín hamingjudís,
sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf.
Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar,
sem ann þér og helgar sitt líf.
Höfundur texta: Ómar Ragnarsson
Höfundur lags: Billy Joel
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 27.3.2008 kl. 16:29
Mikið óskaplega er þetta fallegur texti Hulda mín. Þakka þér kærlega fyrir að setja hann hér inn. Ég sannarlega hrærð yfir þessu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.3.2008 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.