24.3.2008 | 13:35
Aldrei fór ég suður, daglegt veður og ýmislegt annað.
Ég er að skríða saman sem betur fer. Það er hundleiðinlegt að fá svona pest þegar maður er með fólkið sitt í heimsókn. Hanna Sól er svo með hlaupabóluna, hún fékk samt engan hita. Og er að verða góð.
Í sambandi við Aldrei fór ég suður þá voru hér margir erlendir blaðamenn, og sonur minn Ingi Þór var að aka þeim um í rútu, hann fór svo með þá suður í gær. Þetta voru blaðamenn allstaðar að, Þýskalandi, Bretlandi, Danmörku og fleiri löndum. Þeir voru mjög áhugasamir um Ísafjörð og nágrenni, fóru m.a. til Bolungarvíkur upp á Bolafjall, og í sund. En litla Evíta Cesil var hjá ömmu sinni á meðan, er búin að gista hér í tvær nætur með stóru systur Sóley Ebbu.
Maður er nú flott í snjónum.
Svo er prinsessan Hanna Sól.
Tinna tengdadóttir með litla serban okkar.
Systur í ömmutölvu, það er svo gaman.
Litlu skvísurnar Evíta og Ásthildur Cesil.
Prinsessan með afa, sem er að fara að syngja með karlakórnum Erni og Óttari Proppé.
Ævintýramynd úr kúlunni.Þarna gerast ævintýrin stór og smá skal ég segja ykkur.
Hér er Eyvör Páls á Aldrei fór ég suður. Falleg eins og venjulega.
Karlakórinn Ernir og Óttar Proppé
Flottur ekki satt?
Hér eru gulu hanskarnir komnir til sögunnar hehehehe... Og eftir lagið var þeim kastað fram í sal svona eins og sumir kasta næsbuxum til aðdáenda sinna. En þarna var allt pakkað af fólki, og mörg hundruð manns bæði inni og fyrir utan.
Ég veit ekki hver þetta er en þarna spiluðu allar helstu hljómsveitir landsins.
Þeir eru ansi skuggalegir þessir samt.
Sumir voru greinilega dressaðir upp.
Og í hjólandi stuði.
Meðan aðrir voru meira hefðbundnir og svona eins og gengur.
En það var ekkert auðvelt að taka myndir þarna inni, því það var svo margt fólk, og troðið. En þessi hátið er komin til að vera. Það var verið að ræða um að Sokkabandi kæmi fram í ár. En það er verið að spá í næsta ár. Það er aldrei að vita hvað við gerum kerlurnar.
En meðan einhverjir fóru á tónleika, voru aðrir heima og spiluðu risk. Reyndar var stubburinn niðurfrá og safnaði undirskriftum, hann var með ekki ófrægari tónlistamenn hjá sér en Dr. Gunna, Heiðu, Lay Low og fleiri. Dr. Gunni og Heiða spiluðu á dalnum á föstudaginn langa, tóku m.a. prumpulagið.
Sumir voru svo bara í rólegheitum að borða páskaegg og svona.
Einhverjir höfðu mestan áhuga á unganum ofan á egginu.
Gamli rugguhesturinn er alltaf vinsæll.
En stigin langvinsælastur, þær eru báðar búnar að kútveltast niður hann allan með tilheyrandi kúlum og marblettum, en alltaf skulu þær fara upp aftur.
Upp og niður.
Niður og upp
Hehehe það er bara svoooo gaman.
Svo borðuðum við saman fjölskyldan á Páskadag og pabbi gamli með. það var voða ljúft.
Páskaskraut ég hafði náttúrulega gleymt að kaupa svoleiðis, svo það var notast við það sem hendi var næst, skírnarkertið hennar Ásthildar og páskaungu úr eggi.
en það er líka hægt að nota það á ýmsa vegu sko.
eða þannig
Þessi prinsessa er flottust.
Fallega serbneska prinsessan okkar. Hún hefur lent í ýmsu m.a. að missa aleiguna í stríðinu, þurftu að flýja, og það mátti ekki taka neitt með sér. Allt horfið búið að stela öllu innan úr húsinu þeirra, þegar þau komu aftur, meira að segja fjölskyldumyndirnar voru horfnar. En hún horfir bara fram á veginn. Hún sagði að fólki hefði ekki einu sinni vita sjálft hvort þau voru serbar eða króatar. Þau þurftu að spyrja foreldra sína, hvaða kynþætti þau tilheyrðu. Svo þetta var alveg fáránlegt stríð.
Þessi er sett inn fyrir Ínu mömmu hans Bjössa.
Withney Huston ? Nei Bára með hárkollu.
Eins og sjá má var veðrið yndislegt í gær. það var smá mugga í morgun, en er nú aftur orðið bjart.
Svo er ein hér að lokum, hún er bara einhvernveginn svo fyndin, sérstaklega þegar haft er í huga að hér er þurrkari á heimilinu. En svona er þetta bara. En er þetta ekki bara sætt ?
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Ásthildur mín, mikið er leitt að heyra, þú í flensu og allir þessir gestir. Aldrei fór ég suður er frábær uppákoma, mikið langaði mig vestur. Erlendu blaðamennirnir muna bera hróður ykkar víða um heim sem mun draga ferðamenn til ykkar vestur, ekki veitir af. Myndirnar hjá þér eru yndislegar.
Láttu þér batna og farðu vel með þig.
kkv.
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir, 24.3.2008 kl. 13:44
Takk mín kæra Ásgerður
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 13:50
Flottar myndir
Hallgrímur Óli Helgason, 24.3.2008 kl. 13:59
Mikið er gaman að skoða myndirnar. Þá er þú eins og ég veik af mjög slæmri flensu þó ég ætti lífið að leysa gæti ég ekki tekið á móti fólki mikið ertu dugleg Ásthildur mín láttu þér batna fljótt knús á þig
Kristín Katla Árnadóttir, 24.3.2008 kl. 14:13
Ég get svarið það, kúlan er geggjuð á myndinni. Allir hinar myndirnar æði eins og venjulega.
Gleðilega páskarest.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.3.2008 kl. 14:47
Gott hjá ykkur og gleðilega páska vestur!
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 24.3.2008 kl. 15:07
Takk Hallgrímur minn.
Katla mín, við hjálpumst bara að við að láta þetta ganga.
Jamm lofa því Búkolla mín.
Já Jenný þetta er dálitið súrrealískt ekki satt
Takk Guðmundur minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 16:06
Gott að heyra, að þú ert á batavegi, það er í raun merkilegt, eftir allt sem á daga þína hefur drifið um helgina, að þú skulir vera skárri af flensunni. En farðu samt vel með þig, svo þér slái nú ekki niður. Kv. Lilja
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 24.3.2008 kl. 16:07
Takk Lilja mín, ég var einmitt að hafa áhyggjur af því að ég virðist vera lengur að ná mér en tengdasonur minn. En þetta er þá bara eðlilegt eftir allt saman
Knús á þig.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 16:14
Mikið fjör og mikið um að vera á Ísafirði þessa dagana, eins og síðasta myndin ber með sér, mér finnst hún mjög sæt.
Greta Björg Úlfsdóttir, 24.3.2008 kl. 16:44
Yndislegt Ásthildur mín, sérstaklega síðasta myndin sem segir svo margt!
Magný Kristín Jónsdóttir, 24.3.2008 kl. 16:45
Jamm hjehehe Gréta mín, segir ýmislegt.
Já Magný mín, knús á þig elskuleg mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 16:51
Neðsta myndin er frábær, og að sjálfsögðu fékk Eivör að koma vestur
Takk fyrir frábærar myndir
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 24.3.2008 kl. 17:13
Gott að þú ert að hressast. Sófinn þinn lítur út eins og stundum hjá Svövu. Tengdasonur minn kallar það dýrasta þvottahús í heimi.
Auðvitað hjálpast allir að, eins hjá mér. Núna felst reyndar hjálpin í að koma saman og reyna að klára matinn úr fermingarveislunni, allir fúsir til þess líka. Hjálpin berst vestan úr bæ, sunnan úr Hafnarfirði og Njarðvík. Og að sjálfsögðu hér úr Breiðholtinu.
Gaman hjá þér að hafa alla krakkana, þó betra hefði verið að sleppa við pestina. En þær bíða ekki eftir boði.
Dísa (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 17:19
Hvar fær maður betri fréttaannál af viðburðum Skíðaviku/Aldrei fór ég suður, en á síðunni hennar Ásthildar?
Takk fyrir Ásthildur mín og ég vona að þú sért búin að ná þér af pestinni.
Myndin af Kúluhúsinu er hreint út sagt frábær, einhver ævintýralegur töfrablær yfir öllu!
Sigrún Jónsdóttir, 24.3.2008 kl. 17:24
Dýrasta þvottahús í heimi
Mikið rétt Dísa mín. Alveg get ég trúað að fólk sé fúst að "hjálpa" til við klára fermingarmatinn. Enda bara gott mál. Jamm þessi pest var alveg óþarfi.
Takk Sigrún mín. Jamm ég er alveg að ná mér elskuleg.
Jóna Ingibjört ég hefði vilja sjá hann sjálf, þetta var frábært framtak hjá þeim, og ég sé á körlunum að þeir njóta sín í botn, með þessa gulu hanska.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 18:00
Sófinn þinn er ekki ósvipaðir útlits og borðstofustólarnir mínir elskan.

Heiða Þórðar, 24.3.2008 kl. 19:09
Hahahaha Heiða frábært, þetta gæti ef til vill orðið nýjasta tíska

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 19:42
Elsku bloggvinkona Ásthildur!
...ég skil Marjönnu svo vel þegar hún veit ekki fyrir stríð hvort hún er serbi eða króati og ég vildi að "gamla júgoslavía" hefði orðið LYÐRÆÐISRÍKI með mörgum þjóðum, sem var grundvöllur fyrir, en auðvitað var Tito búin að eyðileggja það með valdagræðgi (og hann var króati) og þess vegna eru serbar núna til dæmis að missa Kosovo, bara vegna stefnu Tito...en besti vinur minn er serbi og pabbi átti serbneska vini. Þetta er sama tungumálið með sterkum, öðruvísi áherslum. Mér finnst svo sorglegt að lesa um Marjönnu og fjöldskyldu hennar og veit að svona var þetta eftir fyrri og seinni heimstyrjöld hjá pabba, en nú ekki. Þætti voða vænt um að tala saman og veit að friður á milli Króatíu og Serbíu er að skapast vegna kærleika kvenna á börnum sínum og forfeðrum. Allavega þá átti ég yndisleg sumur hjá afa í Króatíu frá 10 ára aldri (þótt pabbi væri aldrei velkomin, enda flúði hann).
Stríð er aldrei fyrir venjulegt fólk, aðeins fyrir pólitíkusa til að fá eða halda völdum!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 25.3.2008 kl. 00:11
Alltaf eru myndirnar þínar frábærar og ég er alveg ákveðinn í því að leita þig uppi ef ég kem til Ísafjarðar.
Jóhann Elíasson, 25.3.2008 kl. 00:31
Jeminn eini eða...Jesús minn eini sanni töffari..hversu mikið líf getur rúmast í einni kúlu???? Ef þetta er ekki ævintýri lífsins og þess að láta sér þykja vænt hverju um annað....þá veit ég ekki hvað. Ég er alltaf rikari að kíkja í kúluna þína Ásthildur min. Innilegar hamingjuóskir með þetta allt saman.
Ertu til í að vera amma mín í næsta lífi???
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.3.2008 kl. 00:46
Anna ég veit að Marjanna vill hitta þig og spjalla. Það var dálítið raunarlegt að heyra hennar sögu af stríðinu, og hvað þau gengu í gegn um. Eitthvað sem ég mun aldrei skilja, vegna þess að við lifum hér á þessu skeri þar sem friður ríkir allavega núna. Við verðum að líta í allar áttir og láta okkur þykja vænt um fólk, af því að það er fólk. Manneskjur með tilfinningar, kærleika, vonir og þrár. Mitt í öllu þessu útlendingahjali, þá eigum við fullt af yndislegu fólki sem hefur komið hingað og vill sameinast okkar þjóðarsál, auðga líf okkar og menningu. Ég þakka fyrir hvern og einn sem kemur og vill vera hér hjá okkur.
Jóhann minn vertu ævinlega velkominn.
Hehehehe Katrín mín elskuleg, veistu að það rúmast ótrúlega mikið í einni kúlu. Og hún hefur reyndar minnsta yfirborð, en er samt með mesta rúmmálið. Þetta eru opinberu tölurnar, hinar liggja ekki alveg á lausu, en það eru tölurnar um hvernig orkan þéttist og eykst inn í svona kúlu, hvernig hitinn leitar bæði upp og niður vegna lögunarinnar, og svo bara vættirnir sem gera sig heimakomna í svona híbýli vegn lögunarinnar. En þú átt örugglega eftir að sitja hér i eldhúsinu hjá mér og finna þetta í þinni sálu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 01:04
Gleymdi því Katrín, já ég er alveg til í að vera amma þín, ég hreint og beint elska það hlutverk.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 01:05
Fyrsta myndir er auðvitað bara alveg sérstök en auðvitað allar myndirnar skemmtilegar en hún bara snart mig svo mikið. Lítil stúlka að bograst í öllum klæðnaðinum sem hún verður að vera í því hún býr á toppi alheimsins.
Halla Rut , 25.3.2008 kl. 01:22
Ásthildur mín...þetta stríð situr í okkur sem eftir lifa...ég fékk hótanir um að vera skorin á háls (í síma) og pabbi stólaði mikið á mig á þessum tíma(1990 til 1995) svo má segja að ég hafi gefist upp og flutt til Danmerkur.....en ég fékk 2 taugaáfölll á þessum tíma og var úrskurðuð "þunglynd" af ísl. geðlækni....og er eitthvað sem ég er enn að berjast við eða með síðan!?
Bjó í Dk í 6 ár og Hollandi í 2 ár og var gift góðri hollenskri konu.....svo varð ég ólétt ( vinur okkar í Rotterdam hjálpaði okkur með sæði) og hafði heimsott pabba og mömmu í Nóvember. ég vissi að eitthvað var að... alla leiðina "heim" til Hollands í járnbrautalestinni til Groningen í Hollandi! Svo Hringdi síminn, og ég var að koma ferðatöskunum fyrir! Systir mín sagði að Pabbi var með ólæknandi krabbamein. Daginn eftir fór ég á spípala í Hollandi, með of háan blóðþrýsting. Eg var með meðgöngueitrun....og pabbi var að deyja. ....
Tómas, sonur minn (eina barn, enda orðin 39 ara) fæddist 1 janúar eftir 3 daga hríðir og pabbi dó 6 janúar. Pabbi beið og beið....
Pálu, konunni minni hafði tekist að senda netmynd af Tómasi Mikael og systir mín prentaði hana út...seinustu orð pabba voru "fallegur strákur". Hann dó, og besti vinur hans Marijan Krajacic, sagði að pabbi hefði beðið með að deyja þanngað til að hann sæji son minn!
Samband okkar pabba var óhemju náið, en um leið óhemju erfitt, en pabbi var alltaf heiðarlegur og ég vil meina að það sé ég líka?
Sonur minn, Tómas fékk þennan málshátt í páskaegginu sínu.... "EF ÞÚ ERT GÓÐUR ÞEGN, ÞARFTU ENGA FORFEÐUR!"!!!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 25.3.2008 kl. 01:44
Elsku Anna mín þetta er hjartnæm saga. Erfið reynsla, hvað getur maður sagt. Við sem búum hér í öryggi, getum aldri ímyndað okkur hve margvíslega reynslu fólk gengur í gegnum í stríði, þar sem mannslífin skipta engu máli, og allir verða óvinir, og enginn veit almennilega af hverju. Mér finnst þú hafa unnið þig vel út úr þinni reynslu, þá ég geri mér grein fyrir að sumt er aldrei bætt. Knús á þig mín kæra. Ég vona að þið hittist og eigið góða stund saman, Marjanna er yndæl og góð, eins og þú.
Málshátturinn er góður, og segir margt. Það er nefnilega svo að við erum oft dæmt af forfeðrum okkar, hljótum umbun hafi þeir staðið sig vel, en útskúfun ef þeir hafa orðið undir, og skiptir þá ekki máli af hverju. En hver einstaklingur ber alltaf ábyrgð á sjálfum sér. Og ég er viss um að litli Tómas fær leiðbeiningu frá móður sinni, og stuðning til að verða góður þegn..
Hann fær allavega mikið af því sem ekki er sjálfgefið ríkulega móðurást.
Já Halla mín litla skottið vill bara vera frjáls, og hún er sterkur karakter.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 09:08
Það var eins gott að við vorum ekki bókaðar á aldrei fór ég suður fyrst þú fékst þessa flensu. En við stefnum á næsta ár.... er það ekki?
Ofurhetjan sem kom á eftir karlakórnum og Óttari er Mysterious Marta, stelpan okkar sem vinnur dags daglega í Blómaturninum.
Helgin var æðisleg. Ég skemmti mér alla vega konunglega.
Gló Magnaða, 25.3.2008 kl. 10:27
Jú auðvitað stefnum við á næsta ár, það er alltaf verið að skora á okkur Gló mín. Byrjum bara nógu snemma að æfa.
Takk fyrir þessar upplýsingar, Mysterious Marta, hef heyrt það nafn oft nefnt. Hef bara ekki séð hana á sviði. Ég var þrælleið yfir að komast ekki.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 10:57
Ég rakst nokkrum sinnum á Ásdísi Guðmunds meðan á tónleikunum stóð og í hvert einasta skipti sagði hún við mig "áttum við ekki að vera að spila á þessari hátíð?"
Gló Magnaða, 25.3.2008 kl. 11:35
Já ég veit, stjórnendur hátíðarinnar voru líka búnir að minnast á þetta, og við vorum að spá mannstu. En svo vantaði bara framkvæmdina, ég var líka svo upptekin í ferðalögum og slíku. Okkur vantar að finna Oddnýju. Ég þarf að leita hana uppi. Við verðum bara að vara í sambandi og fara að vinna að þessu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 12:01
Rosalega er Eyvör lík Báru systur.
Skafti Elíasson, 25.3.2008 kl. 12:04
Já þegar þú segir það, þá eru þær ekkert ólíkar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 12:41
Sæl Ásthildur mín
Gaman að skoða myndirnar þínar og myndin af þeim sem er uppáklæddur er Fóstursonur minn og spilar með Skátunum
kveðja Siggi
Sigurður Hólmar Karlsson, 25.3.2008 kl. 13:18
þetta virðist svo huggulegt allt saman. þú ert svo dugleg að taka myndir og setja inn, takk fyrir það.
Blessi þig kæra kona
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 13:34
Guð hvað þetta eru gjeggjaðar myndir, yndislegir páskar eins og hjá okkur. Hafðu það sem best kæra vinkona.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 14:05
Takk Steinunn mín.
Já Hallgerður mín ætli það sé ekki þannig. Mér líður allavega vel að vita að blessaðir ungarnir mínir þrífast vel hér hjá mér.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 14:06
Ásthildur Cecil Þórðardóttir - þekkirðu ekki hljómsveitina Hraun og Svavar Knút hinn unaðslega?
Laufey B Waage, 25.3.2008 kl. 16:05
Laufey ef ég hefði verið á staðnum og heyrt í þeim hefði ég áttað mig, því ég þekki lögin þeirra. En ég þekki þá ekki í útliti. En gott að nafnið er komið á þá líka.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 16:11
Tiger, 25.3.2008 kl. 17:53
Mín Hágöfuga Cesil!
Árans óheppni já að verða lasin einmitt núna, hefði viljað heyra þig lýsa söngnum hjá kórnum og Óttari!
En ég vil nú draga í efa að karlakórar, kraftrokkarar eða þá kvennpoppstjörnur yðki nokkurs staðar þá "list" að afklæðast næhöldum sínum og kasta þeim út í æstan aðdáendaskaran! Hitt er aftur margfrægt með hinn "Krúttlega kolanámutenór" frá Wales, Tom Jones, að hans óteljandi fylgismeyjar á öllum aldri er flyggst hafa á hans tónleika, afhjúpast sínum og kasta til hans í sæluvímu! En hanskakastið hjá kórnum auðvitað skemmtilegt, ekki vantar það nú!Þú verður bara að lokka Jens vestur næst til að segja þér allt um rokkið á hátíðinni, auk þess sem það hlýtur nú að teljast meiriháttar aðdráttarafl fyrir næsta ár, að þú sjálf bomban og stallsystur þínar í þungarokkssöngsveitinni ætlið að koma fram þá!?
En eigum við svo ekki frekar að segja að ungi maðurinn hafi verið að safna eiginhandaráritunum frekar en undirskriftum mín kæra? Þyrfti allavega ekkert að biðja hvorki Gunnar Lárus eða Ragnheiði um að skrifa undir t.d. mótmæli gegn kvótanum haha!
Bestu batakveðjur!
Magnús Geir Guðmundsson, 25.3.2008 kl. 18:05
Hafðu það gott líka Ásdís mín.
Takk TíCí minn ég hef saknað þín líka, með þinn skemmtilega húmor og elskulegheit.
Magnús minn þakka þér fyrir ábendinguna. Ég er næstum viss um að bæði doktorinn og Ununinn eru nógu miklir rebellar til að skrifa undir slíkt, góð hugmynd
Svona getur manni orðið fótaskortur á tungunni, eða í þessu tilfelli puttunum.
Takk líka fyrir leiðréttinguna með Tomma Jones, ég var að vísa í hann náttúrulega, þar sem ég kannaðist vel við þessar uppákomur hjá honum, þó ég hefði aldrei gert slíkt hvorki af sjálfsdáðum né ótilneydd.
Jú ég skora svo hér með á Jens til að vera á næstu rokkhátíð alþýðunnar, það er eiginlega merkilegt að hann skuli láta sig vanta á þessa stærstu rokkhátíð landsins og þó víðarværi leitað. HA JENS!
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 18:41
Hahahaha enn ein vitleysan hjá mér. Þetta skrifast á flensuna. Af sjálfsdáðum né tilneydd á þetta að vera held ég
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.3.2008 kl. 18:43
Ónei mín kæra, þitt "Innra sjálf" talaði þarna, ert nektardansmey næst hjarta og ekki skrítið, hver maðurinn af fætur öðrum keppist við að segja mér hvað þessi bloggvinkona mín sé falleg!
En, "sjálfviljur eða ótilneydd" hljómar nú annars alveg rökrétt, þýðir þó eiginlega hið sama.
Og ekki fer ég að mótmæla því!?
Magnús Geir Guðmundsson, 25.3.2008 kl. 19:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.