Daglegt veður og líf í kúluhúsi.

Það er sól og blíða á Ísafirði í dag, og mikil umferð.  Það ók einhver á bílinn hans Bjössa þar sem hann var kyrrstæður við apótekið og ók í burtu án þess að athuga hvort hann hefði skemmt eitthvað, Marjanna sat inn í bílnum og var alveg gáttuð. 

í kvöld er seinna kvöld rokkhátíðarinnar aldrei fór ég suður.  'Eg ætla að fara og hlusta á hann Ella minn syngja með karlakórnum Erni, þar sem Óttar Proppé er einsöngvari og svo verður flutt frumsamið lag eftir Mugison.  Ég hugsa að það verði hátindur hátíðarinnar.  Annars er bara gaman að sjá öll nýju andlitin og svo alla brottfluttu ísfirðingana, gaman að heilsa og hitta fólk sem maður þekkir, kannast við og er farið héðan.  En koma nú sem gestir. 

ég sé að Dimmalimm verður sýnd á morgun kl. 14.00 þá ætla ég að fara með litlu stelpurnar mínar, og leyfa þeim að sjá Komedíuleikhúsið og Elvar Loga.

IMG_3895

svona var veðrið í morgun, en nú er komin sólin, og allt bara svo ljúft.

IMG_3871

Þessi kom af dalnum í gær, þá voru börnin máluð, sælgætisregnið og furðurfatadagur.

IMG_3872

Þessi ungi maður var alveg gjörsamlega búin á því, eftir ferðina á dalinn.

IMG_3875

Litli serbinn með pabba og mömmu sinni.  Hann er voða ánægður, og drekkur mjólk sem aldrei fyrr.  var ég búin að segja ykkur að börnin fá rosalega góða matarlyst þegar þau koma til ömmu í kúlu, það er greinilega ekki bara eldamennskan, því hann er á brjósti.

IMG_3884

Júlli minn svo flottur og fallegur, hann er að fara að halda AAfund, hátíðarfund.  Ég er stolt af honum.

IMG_3888

Lifðu í lukku en ekki í krukku, gæti þessi mynd heitið hehehehe... hún ér nú samt bara alveg ánægð í krukku hún Hanna Sól.

IMG_3889

Stoltur afi með Arnar Milos, minnsta barnið á heimilinu.

IMG_3896

Tóta litla tindilfætt, tifar hún um gólfið. 

Sendi ykkur dash af hamingju og góðri tilfinningu, ég á svo mikið af því að ég get alveg miðlað.  Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Ásthildur.

Það er greinilega gaman hjá þér núna. Og njóttu vel.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 15:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sigrún mín og sömuleiðis.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með Júlla þinn.  Hann ER flottur.  Hátíðarfundurinn í Laugardalshöll í gær var hreint yndislegur.  Þrjúþúsund manns eða svo.  Er þetta ekki æði??

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.3.2008 kl. 15:25

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú Jenný mín þetta er æði algjört.  Og bara svo gott að vita að fólk getur staðið saman hjálpar hvort öðru og verið þarna fyrir hvort annað.  Þið eruð hetjur, svo sannarlega

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2008 kl. 15:58

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góða skemmtun í kvöld og gleðilega páska

Alltaf jafn skemmtilegar myndirnar hjá þér

Huld S. Ringsted, 22.3.2008 kl. 18:45

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús Hallgerður mín.

Takk Huld mín, ég komst svo ekki á tónleikana, því að ég er komin með einhverja leiðinda magakveisu.  En dóttir mín var send með myndavélina til að taka myndir. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.3.2008 kl. 22:05

7 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Arnar MIlos minn, "dorbro dosi, i ljep ziv"...tvoja Baka je odlicna i ti si jako ljep, mala babica! i cela tvoja familija!..ljep pozdrav.

Vasa Ana i Tomas u Kopavogur

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.3.2008 kl. 22:37

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Gleðilega páska

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 22.3.2008 kl. 23:02

9 Smámynd: Solla Guðjóns

 

GLEÐILEGA PÁSKA......

Solla Guðjóns, 23.3.2008 kl. 03:42

10 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég sá flotta kúluhúsið þitt, en hafði ekki tíma í kaffi. en næst kæra kona ! það er svo flott fyrir vestan.

Blessi þig

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 08:50

11 identicon

Gleðilega páska elsku Ásthildur ...

Maddý (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 10:04

12 identicon

Gleðilega páska, mín kæra Cesil.

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 12:24

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Alltaf fjör hjá þér elsku Ásthildur mín. Gleðilega páska

Kristín Katla Árnadóttir, 23.3.2008 kl. 12:53

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Cao Ana. Hvala puno :). Bas nam je drago sto si se javila. Bilo bi lepo da se sretnemo nekad i popijemo kafu zajedno. Puno toplih pozdrava od nas.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2008 kl. 13:17

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðilega páska Hulda mín.

Gleðilega páska Móðir góð.

Gleðilega páska Solla mín.

Sömuleiðis Steina mín, blessun til þín.

Sömuleiðis mín kæra Maddý.

Kær kveðja til þín líka Jóna Ingibjörg mín

Sömuleiðis kæra Kidda mín.

Já Katla mín, hér er alltaf mikið fjör.

Innleggið til Önnu var í boði Marjönnu. 

Takk fyrir allar góðu kveðjurnar elsku bloggvinir mínir.  Ég er svolítið máttfarin ennþá af þessari fjandan ælupest sem ég náði mér í. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2008 kl. 13:30

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kúlu unaður  alltaf til staðar  Easter Bonnet  Innilega gleðilega páska til þín og þinna.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.3.2008 kl. 13:35

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæri bloggvinur, ég óska þér og þinum gleðilegra páska.

Sigurður Þórðarson, 23.3.2008 kl. 14:03

18 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

takk og Ásthildur mín láttu þér batna! ...i DA...Ja isto mislim bilo bi lepo da  popijemo kafu zajedno.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 23.3.2008 kl. 14:10

19 Smámynd: Solla Guðjóns

Þetta verður spennandi dagur á Ísafirði í dag

Solla Guðjóns, 23.3.2008 kl. 15:21

20 Smámynd: Helga skjol

Það fer um mann hamingjutilfining þegar alltaf þegar ég kíki í heimsókn til þín,þú ert bara YNDISLEGUST.

Eigðu góðan páskadag mín kæra .

Helga skjol, 23.3.2008 kl. 17:25

21 Smámynd: Halla Rut

Ertu farin að rækta börn? (stúlkan í blómapottinum)

Ég óska þér og þínum gleðilegra páska.

Halla Rut , 23.3.2008 kl. 18:25

22 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Sæl Ásthildur
Gleðilega páska
Baráttukveðjur
Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.3.2008 kl. 20:20

23 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

hátíðarkveðjur vestur til þín! Áreiðanlega mikil skemmtun að sjá drengin Óttar þenja sig með karlakórnum!

Magnús Geir Guðmundsson, 23.3.2008 kl. 21:34

24 identicon

Loks er ég búin að finna leið til að senda athugasemd á minitölvunni minni. Gekk illa. Vona að þér batni sem fyrst svo þú getir haldið áfram að blogga og senda flottar myndir. Arnarmyndirnar voru frábærar. Verst að þú komst ekki á tónleikana svo við hér úti gætum fengið að vita hvernig var.

Dísa (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 21:34

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

takk og Ásthildur mín láttu þér batna! ...i DA...Ja isto mislim bilo bi lepo da  popijemo kafu zajedno

e cao Ana.

ako zelis javi se  na e-mail. marijana.cumba@gmail.com. puno pozdrava,

Marijana

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2008 kl. 22:09

26 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þið eruð öll yndisleg.  Ég hef ekki haft orku til að blogga í dag, en það kemur allt á morgun.

Sömuleiðis elsku Ásdís mín

Sömuleiðis gleðilega páska Sigurður minn.

einmitt Solla mín.

Takk Helga mín.

Já Halla mín það er unaðslegt að rækta lítil börn.

Gleðilega páska til þín líka mín kæra Rósa.

Jamm mér er sagt svo Magnús minnn. Ég missti af honum vegna flensunnar, en dóttir mín tók mynd sem ég á eftir að setja inn heheheh.. Og þeir í karlakórnum voru með gula hanska. 

Takk Dísa mín, ég sendi Báru til að taka myndir á bara eftir að finna orku til að senda þær inn.

Takk öll yndislegust mín, þar er rosalega notalegt að finna svona hlýju og góðan hug, sérstaklega þegar maður er lítill og lasinn.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.3.2008 kl. 22:17

27 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Aldeilis falleg fjölskylda, sem þú átt,  til hamingju með það,  og ekki síst hann Júlla son þinn.  Páskakveðja Lilja

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 24.3.2008 kl. 02:57

28 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gleðilega páskarest kæra Ásthildur, það hlýtur að vera svo góður andi í húsinu þínu þar sem allir fá svo góða matarlyst!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.3.2008 kl. 08:28

29 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flottur strákur hann Júlli þinn sem og allt þitt fólk!

Hrönn Sigurðardóttir, 24.3.2008 kl. 10:08

30 identicon

Vonandi ertu laus við pestina og getur notið þess að fullu að vera með fólkið þitt hjá þér.

Knús

Kidda (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 11:55

31 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar, og velkomin í vinahópinn minn Lilja mín, já það hefur verið mikil barátta með hann blessaðan.

Takk Jóhanna mín, Já það er eitthvað gott hér, enda var hér fyrir álfkona sem hefur samlagast okkar heimili.

Takk Hrönn mín.

Ég er að skríða saman Kidda mín. Takk.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.3.2008 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband