Hið daglega veður furðufatadagur og grill á dalnum.

Föstudagurinn langi, og veðrið er yndislegt, það hefur verið stanslaust flogið í morgun.  Ég var að prikla en svo fór dóttir mín með Úlfinn og  Hönnu Sól á bretti upp á dal svo ég tók að mér að hlusta eftir nöfnu minni.  Bjössi og Marjanna ætla í labbitúr með sinn litla stubb.  Og veðrið er bara þvílikt yndi.

IMG_3611

Eins og sjá má, þá verður ekki á betra kosið.

IMG_3612

Í dag er furðufatadagur upp á dal, og sælgætisregn fyrir krakkana.

IMG_3613

Sólin gægist yfir Ernirinn.

IMG_3614

Og skíðasvæðin böðuð sól.

IMG_3615

ég sé að Elli hefur snappað af mér mynd, ég var svo upptekinn að ég tók ekki eftir því fyrr en ég setti kubbinn í tövuna Tounge

IMG_3616

Farið á dalinn.  Þar verður fjörið í dag.  Og svo Dimmalimm niður í tjöruhúsi kl. tvö.

IMG_3618

Arnar Milos strax farinn að kunna bara vel við ömmu í Kúlu.

IMG_3622

Og mamma fær að vera með á mynd líka. 

Eigið þið góðan dag elskurnar mínar.  Hamingjutilfinning send héðan úr blíðunni.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alltaf jafn gaman að kíkja hingað.

Teppið yfir vagninum er það ekki frá Mexíkó? Á eitt svona teppi en miklu fíngerðara.

Gott hjá Ella að ná einni af þér að prikla

Knús vestur í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 12:36

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Adda mín hér er svona mikill snjór ennþá.  Kveðjur til þín líka

Jú einmitt Kidda mín, ég keypti mér þetta teppi í Mazatlán í Mexico.  Þeir nota þetta yfir öxlina.  Það er mjög gott og hlýtt.  Hehehe já hann hefur læðst til að taka mynd.  Knús til þín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2008 kl. 12:41

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hafðu það gott í dag sem og alla aðra daga.  Þú með öllum þínum myndum sýnir okkur svo vel hvílík fegurð er á Vestfjörðum.  Það er sama hvort það er sumað eða vetur.  Alltaf jafn fallegt.

Jakob Falur Kristinsson, 21.3.2008 kl. 13:10

4 Smámynd: Helga skjol

Þú ert sko kona sem auðsjáanlega elskar að hafa fólkið sitt í kringum sig,alltaf jafngaman að kíkja til þín,knús á þig og alla þína yndislegu fjölskyldu.

Gleðilega páska til ykkar allra

Helga skjol, 21.3.2008 kl. 13:14

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Jakob minn.  Já ég elska þetta land og fjöllin mín.  Þess vegna vil ég berjast með þér við að bjarga þeim frá glötun. 

Takk Helga mín.  Gleðilega páska til þín líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2008 kl. 13:25

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég elska að kíkja á þig Ásthildur og fylgjast með myndasögunum þínum, sem segja meira en þúsund orð.  Þú ert yndisleg og það er veðrið líka, hér fyrir sunnan. Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.3.2008 kl. 13:38

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Bestu kveðjur til þín líka Búkolla mín Já það er lognið á EFTIR storminum hehehe...

Takk Jenný mín, já sennilega er veðrið bara svona gott um allt land.  Það er sífellt verið að fljúta, endalaust, veit ekki hvað margar vélar hafa komið í dag, svei mér þá, og allar fullar hingað og tómar burtu.  Tra lala og ég í svoooo góðu skapi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2008 kl. 14:00

8 Smámynd: Svanfríður Guðrún Gísladóttir

   Gleðilegar páskakveðjur vestur til þín og fjölskyldu þinnar og til hamingju með mikla,, SNJÓINN"Mikið hlýtur að vera gaman hjá ykkur í Kúluhúsinu að vera svona mörg saman.Megið þið ganga á Guðs vegum.Bið að heilsa vestur  .   Þín gamla vinkona Svanna

Svanfríður Guðrún Gísladóttir, 21.3.2008 kl. 21:57

9 Smámynd: Tiger

  Veistu, það er sjaldan sem maður sér svona lifandi og heila ömmu eins og þig! Það er allt heillandi við þig bara. Mikið vildi ég að ég hefði átt ömmu sem var lík þér, en reyndar á ég mömmu sem er svo ótrúlega mikið lík þér að ég hef svo sem ekki langt að sækja svona yndisleika eins og geislar af þér ljúfust! Í kringum móður mína er einmitt sami andinn og er í kringum þig, alltaf kátína og gleði - ástúð og hlýleiki framar öllu. Hún elskar líka landið, veðurskipti græðlinga og bara allt sem gefur lífinu eitthvert smá gildi. Enda kannski ekki svo langsótt í frænkuleggnum. Systkynin sem tengja ykkur eiga bara afa og ömmur ykkar - og foreldra ykkar svo komið þið! Alls ekki svo langt í það... finnst endalaust fallegt andrúmsloftið í kringum þig kærust! Knús á þig.

Tiger, 21.3.2008 kl. 22:47

10 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl frænka. Frábært að sjá frændfólkið og yndislega Ísafjörð.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.3.2008 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband