Fólkið mitt.

Ég er að vona að ég sé ekki að ofgera ykkur með þessum myndum af mér og mínum.  Ég er stolt af þeirri veröld sem ég hrærist í, og ég er eins og aðrir sjálfhverf mest megnis, og vil miðla af þeirri hamingju sem umvefur mig.  Ég er líka að vona að það geti verið smá leiðarljós um forgangsröðun í okkar villta og tryllta samfélagi.  Það sem skiptir svo óendanlega miklu máli er fjölskyldan, börnin okkar og umhverfið.  Einhversstaðar langt þar aftan við er fjárhagur, peningar og allra neðst eru völd og frægð.  Það er sennilega það sem er mest fallvalt af öllu því sem hægt er að sækjast eftir.

IMG_3545

Hér er hún Tinna tengda og Evíta.  Við áttum öll saman góða stund í kúlunni í dag.

IMG_3548

Það er svo notalegt að hafa alla fjölskylduna í kring um sig, og finna bara hvað allt er gott og svo mikil vænt um þykja.

IMG_3549

Frábærir feðgar.

IMG_3550

Flottar mæðgur.

IMG_3552

Fólk segir hvað þeir séu líkir þessir feðgar.  Málið er að sú líking er á andlega sviðinu því þeir eru ekkert blóðskyldir, en eiga saman gott fjölskyldulíf.  Segir svo margt um lífsins skrýtna tilgang.

IMG_3561

Maríubæn ? nei bara barnaskapur eins og allt hitt.

IMG_3566

Súpermódel ? nei elskuleg tengdadóttir mín.

IMG_3583

Jamm það var sko grillað, þarna eru feðgarnir að grilla úti við.

IMG_3593

Gættu vel að því hvar þú gengur Kristjan minn segir stjúpinn, sem er frábær pabbi.

IMG_3597

Umm maður getur nú borðað sér til ánægju sko, ef maður er svangur.

IMG_3600

Tvær barnsmæður og tengdadætur kúlunnar.

IMG_3602

Já litli Arnar Milos og mamma hans, hún er frá Serbíu og er ekki hress með sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo.  Hún segir að við megum aðeins líta í eigin barm hvað það varðar.  Þetta var serbneskt land þar sem innflytjendur bókstaflega tóku yfir í krafti þess að eignast fleiri börn og verða að lokum í meirihluta.  Við fáum stundum bara hálfa söguna af atburðum frá útlandinu, þangað til við hittum fólkið sem kemur þaðan.

IMG_3608

Knúsí krúsí.

IMG_3610

Töffarinn Ólöf Dagmar, flott ömmustelpa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta eru alla vega skemmtilegar myndir. Gleðilega páska.

Jón Magnússon, 20.3.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Stolt eiginkona, mamma, tengdamanna og amma. Við erum nú oft stolt yfir minna en svona flottum hóp.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.3.2008 kl. 22:06

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir Jón minn og gleðilega páska til þín líka.

Rósa mín, fólkið okkar eru ræturnar, framtíðin og nútíðin, án þeirra væri lífið tómlegt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 22:15

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Er nú ekkert að ofgera einum eða neinum með því að deila myndum af þinni famelíu með okkur hinum, alla vega hef ég bara gaman að fylgjast með, & einstakar myndir af snjóalögum til fjalla eru ekkert að skemma fyrir heldur.

Steingrímur Helgason, 20.3.2008 kl. 22:42

5 Smámynd: Tiger

  Já sko.. ég er alveg sammála Steina kút hérna fyrir ofan - þú ert sko ekki að ofgera neinum hérna, frekar hitt sko! Allavega finnst mér yndislegt að sjá myndirnar þínar, bæði af fjölskyldunni og veðramyndir úr borg og bý - eða þannig.

Mér finnst endalaust gaman að sjá myndir af því hve ljúfa og yndæla fjölskyldu þú átt - þvílík kátína og gleði sem frá öllum geislar sko! Þessi gleði og kátína sýnir - líkt og ég skrifaði annars staðar - bara hve mikill gullmoli þú sjálf ert! Gleði og ástúð, kátína og hlýleiki berast okkur frá myndunum þínum og segir mér ekkert nema bara hve dásamleg mamma, tengdó og amma þú ert - og bara stórkostleg kona! Góða Páska elskulegust.

Tiger, 20.3.2008 kl. 23:04

6 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Flott fjölskylda  og það er svo gott að vera umvafinn

Knús í nóttina og góða páskahelgi

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.3.2008 kl. 23:05

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú ert rík! Njóttu daganna með allri fjölskyldunni.

Sigrún Jónsdóttir, 20.3.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: Laufey B Waage


Þú ert náttla bara yndisleg að deila þér og þínu lífi með okkur. Takk sæta.

Laufey B Waage, 20.3.2008 kl. 23:36

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 21.3.2008 kl. 00:00

10 Smámynd: G Antonia

Mér finnst þetta bara yndisleg hugsun, og óskandi að fleiri settu forgangsröðuðu eins og þú.....enda bara gleði og meiri gleði að horfa á þitt ríkidæmi....eigið yndislega páska öllsömul

G Antonia, 21.3.2008 kl. 00:41

11 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Skemtilegar myndir og flott fjölskilda sem þú átt og mátt vera stolt af gleðilega páska.

Eyrún Gísladóttir, 21.3.2008 kl. 09:48

12 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Það er nú bara þannig Ásthildur að ef að okkur fyndist þú vera að kæfa okkur þá kæmum við ekki á síðuna þína til að skoða myndirnar. Perónulega finnst mér rosalega gaman að skoða myndir bæði af fólki og fallegu landslagi. þannig að síðan þín er á topp 10 hjá mér. Gleðilega páska mín kæra

Guðborg Eyjólfsdóttir, 21.3.2008 kl. 10:03

13 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hjá þínu fólki ríkir greinilega botnlaus gleði! Þú ert yndisleg Ásthildur

Heiða Þórðar, 21.3.2008 kl. 11:05

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þakka þér Steingrímur minn.

Þú ert algjört yndi TíCí minn.

Knús á þig líka Hulda mín.

Knús á þig líka Sigrún mín.

Þúsund kossar Laufey mín.

Knús Hrönn mín.

Takk og gleðilega páska til þín líka Antonía mín.

Takk Adda mín.

Já ég er stolt Eyrún mín.

Gott svar Guðborg mín, ég hafði ekki hugsað út í það. Gleðilega páska til þín líka.

Takk Heiða mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.3.2008 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband