Hið daglega veður, og fjölskylda hittist.

Fimmtudags morgun og allt í góðri harmoníu hjá mér.  ég heyrði í flugvél, svo það er flugfært sem betur fer fyrir fólkið sem er að koma í heimsókn.  Það er lika allt í lagi með veðrið, þá komi smá gustur annað slagið.

IMG_3533

Fánarnir komnir upp sem bjóða fólkið velkomið á dalina og skíðasvæðin.

IMG_35331

Skíðavikufánin og fleiri fánar sem blakta víða um bæinn aðallega á leiðum að skíðasvæðunum.

IMG_3534

Og þegar ég set þetta inn, þá sé ég að það birtir upp, svo það gæti orðið sól í dag.  Það væri yndælt.

IMG_3518

Systkinin stolt með afkvæmin sín, Bjössi með sitt fyrsta barn.

IMG_3519

Gaman að sjá hvað hann er duglegur og natinn við drenginn sinn, reyndar eru allir synirnir rosalega natnir og duglegir við börnin.

IMG_3522

Hér sváfu þessir piltar í nótt, vildu endilega gista.

IMG_3530

Sumir voru að hjálpast að.

IMG_3531

Aðrir bara að hafa það notalegt.

IMG_3525

Nafna mín og litli serbinn.

IMG_3529

Hér sést hvað hún er krambúleruð þessi elska.

IMG_3536

Og svo getur maður alveg leikið við litla frænku, þó maður sé töffari og íþróttahetja, en Daníel er í landsliði í Íshokkey, og hefur leikið allmarga leiki bæði í Reykjavík og Akureyri.  Hann er flottastur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndisleg börn eins og allaf, guðdómlegur þessi yngsti  Easter Bunny   Egg 4 Easter Bunny

Ásdís Sigurðardóttir, 20.3.2008 kl. 14:34

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Vona að það létti til hjá ykkur svo skíðavikan fari ekki í súginn.

Gleðilega páska

Hrönn Sigurðardóttir, 20.3.2008 kl. 15:15

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þarna er greinilega kátt á hjala.  Það getur ekki verið mjög leiðinlegt að dveljast hjá þér Ásthildur.  Þú ert með félagsheimili.  Hehe

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 20.3.2008 kl. 15:46

4 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl kæra Ásthildur. Gaman hjá þér. Þú er auðugu að eiga allan þennan fallega hóp.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.3.2008 kl. 18:16

5 identicon

Mikið er gaman hjá ykkur. Vonandi fáið þið almennilegt veður, þið eruð svo ótrúlega dugleg að búa til skemmtilega menningarviðburði þarna fyrir vestan.

Vona að þú fyrirgefir þó að ég plöggi máli hér á síðunni þinni sem er mér og öðrum sem búa í nágrenni við mig dálítið mikið hjartans mál þessa stundina:

http://anno.blog.is/blog/anno/entry/480252/

og

http://olllifsinsgaedi.blog.is/blog/olllifsinsgaedi/

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 20:47

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásdís mín hann er algjört krútt litli serbinn okkar.

Hrönn, það var ein flugvél sem komst í morgun, veit ekki hvort það verður flogið á morgunn, það er allt svo háheilagt, en ég veit að fullt af fólki sem ætlaði vestur fór á bílum, þegar óljóst var um flug.  Þar er munurinn á okkur og Vestannaeyjum.  það ER hægt að aka.

Gleðilega páska til þín líka Jenný mín.

Rósa mín já ég er reglulega ánægð með hópinn minn.  Baráttukveðjur héðan að Westan.

Gott mál Anna mín kær.  Já þetta er í Vestfirskri þjóðarsál held ég frá örófi alda, í þér líka, þar sem þú tilheyrir hópnum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 20:57

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Páskakveðja til þín líka móðir mín í kví kví

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband