Hið daglega veður og undirbúningur fyrir helgina.

Já lognið er víst eitthvað að flýta sér í dag, og ekki hefur verið flogið.  Það eiga að koma hingað 17 aukavélar yfir páskana, svo það er eins gott að veðrið lagist, eða menn sendi rútur vestur svo allir komist sem ætla sér. 

Tengdasonur minn tók tvo puttalinga upp í við eitt Hringtorgið í Mosó, þau ætluðu bara eitthvað út á land yfir páskana, bara þangað sem þau fengju far.  Og hann skilaði þeim niður á Silfurtorg á Ísafirði, vonandi fá þau gistingu.  Flippdýr sýnist mér, mér líkar vel við svoleiðis fólk.

IMG_3502

Já það hefur leyst heilmikinn snjó, það er nefnilega hlýjindi úti og vindur, sem er ákjósanleg skilyrði fyrir leysingum.  Það er samt nógur snjór á Dölunum tveimur.

IMG_3503

Vonandi lægir í dag.

IMG_3504

Sú stutta er farin að gera sig heimakomna í kúlunni, fiktsöm er hún LoL var búin að krækja sér í pennaveskið hans stóra frænda þar var límtúpa sem hún hafði mikinn áhuga á að opna, amma sá samt við henni í það skiptið.

IMG_3506

Svo eru tvær duglegar stelpur komnar í heimsókn til að hjálpa til að passa og laga til. 

Sonur Ella kemur í kvöld akandi með sína konu og barn, og það þarf að koma þessu öllu heim og saman.  En það er bara skemmtilegt. 

Vonandi eigið þið góðan dag. 

Einn smábrandari upp úr kryddbókinni.

Guðrún Erlendsdóttir, hæstaréttardómari og áður kennari við lagadeild Háskóla Íslands, var einu sinni þulur hjá Útvarpinu.

Helgi heitinn Hjörvar var feikilega mikill íslenskumaður og var honum mikill ami af því ef fólk talaði slæmt mál eða framburði þess væri áfátt.  Honum fannst Guðrún  ekki bera stafinn "æ" fram á réttan hátt, sagði að hún talaði um Granland, segði harra, lagra og svo framvegis.

Helgi minntist oft á þetta við Guðrúnu en fannst hún ekki taka leiðbeiningu og héldi áfram að bera æ-ið rangt fram.

Svo gerðist það að Guðrún datt í húsakynnum Útvarpshússins og handleggsbrotnaði.  Þegar Helgi frétti þetta spurði hann aðeins;

000, og gat hún þá loksins sagt "Æ" ? LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kærasta cesil, ég sé nú ekki framá að komast í kaffi í þessarri ferð. sá þó húsið itt í gær og hugsaði til þín. ég hef ekki verið héna í 10 ár hjá systur minn. og svo á ylfa heima við hliðina þannig stutt er að skjótast til hennar.

ljós og knús til þín

steina álfur

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.3.2008 kl. 12:56

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki  málið Steina mín, njóttu þín bara vel.

Já Búkolla það er alveg rétt hundleiðinlegt að eyða tímanum á flugvöllum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2008 kl. 13:22

3 Smámynd: Brynja skordal

vonandi koma allir vestur sem ætla þangað og flugið verði hagstætt já svona litlir puttar eru forvitnir og oft erfitt að hemja sig En hafið yndislega páska fyrir vestan og góða skemmtun til ykkar páskakveðjur

Brynja skordal, 19.3.2008 kl. 13:34

4 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

já vonandi skila sér alli á áfangastað og já ég þekki svona litla putta á nokkra svoleiðis og er svo að fá fleyri en það er ömmu puttar þeyr fyrstu ég er bara spent

Eyrún Gísladóttir, 19.3.2008 kl. 14:10

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég vona það líka að allir komi vestur

Kristín Katla Árnadóttir, 19.3.2008 kl. 14:20

6 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Ásthildur. Þessi var magnaður. Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.3.2008 kl. 18:44

7 Smámynd: Ester Júlía

Sniðugt með puttalingana :D. Líst mér vel á fólk sem lætur hlutina bara ráðast í rólegheitunum. 17 aukaflug ..það er ekkert annað! Já vonandi komast allir á áfangastað. Veðurspáin er nú ekki of góð fyrir morgundaginn að minnsta kosti fyrir norðan. Páskaknús. Ester.

Ester Júlía, 19.3.2008 kl. 19:53

8 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Góður með Guðrúni og Helga Hjörvar haha já það er nú óskandi að veðrið verði í lagi þannig að sem flestir komist vestur

Guðborg Eyjólfsdóttir, 19.3.2008 kl. 19:56

9 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

það er lýsandi hversu góða umhyggju börnin í kringum þig fá Ásthildur mín...bara blómstra og eru hetjur með bleyjur...eða þannig. Takk fyrir fjörðinn , sem ég er farin að elska!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.3.2008 kl. 20:13

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mér líst vel á þessa puttalinga, minna mig á sjálfa mig fyrir ca 20 árum   vonandi komas allir vestur sem ætluðu sér það.

Ætli Guðrún hafi bara hrópað aaaaaaaa þegar hún datt

Huld S. Ringsted, 19.3.2008 kl. 20:14

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Brynja mín sömuleiðis ósk um góða páska til þín.  Já þessir litlu puttar þeir fara víða um helg vé ömmu.

Til lukku Eyrún mín, það er alltaf spennandi að fá litla putta í heiminn, ásamt öllu sem þeim fylgir.

Katla mín það var loftbrú nú undir kvöldið, svo það hafa  margir komist af þeim sem lögðu á sig að bíða.

Já Hallgerður mín, það er oft gaman að þessum sögum sem hafa nöfn og kennitölu. 

Já Rósa mín, hehehehe.

Páskaknús á þig líka Ester mín.  Já mér lýst líka vel á svona flippdýr, vonandi hafa þau fengið gistingu einhversstaðar. 

Já Guðborg mín, ég held að þó nokkrir hafi komist núna seinnipartinn

Takk Anna mín svartfuglin viðkvæmi.

Já Huld mín, ævintýri það er það sem býður fólks sem þorir.  Hehehe Guðrún hefur örugglega hrópað AAAA

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2008 kl. 20:21

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Kveðja í fjörið hjá þér sem er greinilega að skella á, göfuga frú Cesil!

Ætlaði nú einmitt að stinga því að, að ég hefði heyrt að rofað hefði til fyrir flugið vestur.

Annars er jú stundum leiðinlegt að bíða á flugvöllum, en gæti nú alveg beðið í svona tvo tíma í fanginu þínu volduga haha!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.3.2008 kl. 20:28

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Magnús.  Þakka þér fyrir það.  En já fjörið er að skalla á allt klárt í kúlunni.  Og allt með ró og spekt í augnablikinu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.3.2008 kl. 20:30

14 Smámynd: Halla Rut

"fiktsöm" Aldrei hef ég heyrt þetta orð áður en gæti notað það yfir nokkra stuttar verur sem ég þekki.

Skemmtilegar myndir að venju.  

Halla Rut , 19.3.2008 kl. 21:37

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki er ég komin vestur enn, en ég sé að það er farið að hlána, allavega er ég viss um að með hverjum deginum sem líður styttist í að ég komi í kúluna  Bunny Face  Easter Bunny  Chick

Ásdís Sigurðardóttir, 19.3.2008 kl. 22:39

16 Smámynd: Tiger

  Alltaf svo gaman að sjá myndirnar þínar Ásthildur mín. Fallegar veðramyndir og yndisleg börn + fjölskyldur.

Ég er sammála þér með Flippdýrin, er sjálfur svona þegar ég er að ferðast erlendis stundum og ótrúlegt hvað maður kynnist miklu og skemmtilegu fólki á svona flippferðum.

  Ég óska þér elskulegust Gleðilegra Páska og bið algóðan um að gæta þín og þinna alla páskahelgina, sem og áfram auðvitað. Knús á þig Queený..

Tiger, 20.3.2008 kl. 00:51

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha Halla Rut mín, skil það vel. 

Ásdís mín það verður gaman þegar þú kemur. 

Jamm TíCí minn flippdýr eru og verða flippdýr, og ég er ein af þeim  Takk og gleðilega páska til þín líka og takk fyrir alla hlýjuna og fallegu orðin.  Knús á þig til baka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 00:55

18 Smámynd: Laufey B Waage

Frábært með puttalingana. Þeir fíla sig örugglega á Ísafirði.

Laufey B Waage, 20.3.2008 kl. 10:00

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já mér skilst að þau séu listafólk, svo það er af nógu að taka, hún hefur eitthvað með Hljómalindarhúsið að gera, en hann er franskur.  Einhver hér kannast ef til vill við þau. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband