Afmæli.

Veðrið í dag er búið að vera dásamlegt.  Isobel Liv litla varð 4 ára í dag, svo við Hanna Sól og afi fórum í afmæli. Það var hið mesta fjör.

IMG_3355

Það voru flottar og girnilegar kökur á borðum.

IMG_3354

Afmælisbarnið bíður eftir að fá að blása á kertin.

IMG_3357

Og þarna blæs hún á kertin fjögur.

IMG_3365

Amma hafði komið með sælgætisbrúðu frá El Salvador og nú áttu krakkarnir að slá sælgætið úr henni.

IMG_3368

Sumir voru mjög spenntir.  Það voru trúðar sem hjálpuðu til við undirbúningin.

IMG_3376

Og þau eru greinilega spennt, nema ein lítil hehehe sem dundar sér við að taka brúðurnar sínar úr pakkningu, hún fékk nefnilega líka gjöf.

IMG_3381

Afmælisbarnið byrjaði auðvitað.

IMG_3389

Hér er Hanna Sól, og svo koll af kolli.

IMG_3397

En það var svo öruggast að sitja hjá abolidu ömmu, þegar stóru krakkarnir byrjuðu að slá um sig.

IMG_3401

Sumir voru sniðugir og drógu sig í hlé með nammið og blöðrurnar, og svo auðvitað dúkkurnar sínar, bak við sófa.

IMG_3402

ein mynd svo í lokin, ég ætla að kalla hana leikur ljóss og skugga.  Hún er tekin nú fyrir tuttugu mínútum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Greinilega mikið fjör í þessu afmæli til lukku með daginn.

Eyrún Gísladóttir, 16.3.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Eyrún mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2008 kl. 17:47

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Rosalega er þetta björt og falleg íbúð hjá fólkinu þínu.  Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.3.2008 kl. 18:11

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú verður Rolando glaður, hann er einmitt nýbúin að mála allt hvítt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2008 kl. 18:14

5 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Gleðilega helgarest til þín sömuleiðis.

Magnús Paul Korntop, 16.3.2008 kl. 18:31

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 16.3.2008 kl. 20:17

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bara "Afmæli um afmæli" hjá þér frú Cesil þessar vikurnar!

Og svo ætlar þú aldeilis að rokka á næstunni og kyrja með karlakórnum, góð blanda!

Magnús Geir Guðmundsson, 16.3.2008 kl. 21:01

8 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Til hamingju með daginn flottar myndir að vanda

Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.3.2008 kl. 21:26

9 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Flottar myndir, inn í nóttina

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.3.2008 kl. 22:15

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Eru alltaf endalausar veislur í þínum ættlegg ?

Steingrímur Helgason, 17.3.2008 kl. 00:10

11 Smámynd: G Antonia

kvitt og kveðja og gaman að skoða myndirnar hjá þér *

G Antonia, 17.3.2008 kl. 01:22

12 Smámynd: Tiger

  Ohhh.. það er endalaust gaman í barnaveislum - mikið nammi og mikið af súkkulaðikökum .. *slurp*.

  Tala nú ekki um ef það eru trúðar sko! .. Þetta eru frábærar myndir og greinilega hafa allir skemmt sér vel. Glæsilegur hópur og síðasta myndin var æði, svo yndislegt umhverfið þarna. Knús á þig ljúfust mín og kveðja inn í vikuna þína framundan.

Tiger, 17.3.2008 kl. 02:19

13 identicon

 Sæl Ásthildur mín.

Blessuð börnin.

Engan er hægt að gleðja á svo einlægan hátt sem þau.

Þetta er ekta afmæli.

sæl að sinni.

Ef að þú ert með e-mail má ég senda þér svolitla fyrirspurn.Mitt er á síðunni minni.Þói.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 03:07

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul.

Knús á þig Anna mín og Korntop.

Jamm Magnús minn það er eitthvað með tímasetninguna að gera. 

Takk Guðborg mín og Hulda.

Þetta er svoddan risaættleggur Steingrímur minn.

Kveðjur til ykkar líka móðir og Antonía.

Hehe TíCí minn, nóg af nammi, knús á þig líka.

Já Þói minn ég skal senda þér emailinn minn.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 08:34

15 Smámynd: Helga skjol

Vá auðsjáanlega verið frábær veisla og ekkert smá flott nammidúkka og alltaf jafngaman að skoða myndirnar hjá þér,eigðu góðan dag.

Helga skjol, 17.3.2008 kl. 08:56

16 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Fjör í afmælinu, ... líf og fjör í kringum þig, það er frábært og kannast aðeins við það!   .. Dóttir mín keypti einmitt svona dæmi til að slá niður í Ameríkunni, það var bíll fyrir frænda hennar sem verður fullur af nammi. Falleg afmælisstelpan og ég óska þér til hamingju með hana.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.3.2008 kl. 09:11

17 Smámynd: Laufey B Waage

Alltaf stuð og stemmning í barnaafmæli.

Laufey B Waage, 17.3.2008 kl. 09:20

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha Hallgerður mín, já það er svona þegar margir eru í fjölskyldu. 

Já Helga mín, þetta er sniðug skemmtun, þau höfðu mjög gaman af þessu krakkarnir.

Einmitt Jóhanna mín, spurning hvort ekki mætti setja ávexti inn i hana í staðinn, frekar en nammi.

Já Laufey mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 09:29

19 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingju með elsku barnið Ásthildur mín alltaf stuð og skemmtilegt hjá þér kær kveðja mín elskuleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.3.2008 kl. 10:07

20 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús og kossar til þín Ásthildur mín!  Ég sé að við höfum varið deginum á svipuðum nótum.

Sigrún Jónsdóttir, 17.3.2008 kl. 10:58

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús og kveðja til þín líka katla mín.

Já Sigrún mín, vel varið líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2008 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband