Bréf frá Dísu vinkonu og skilaboð frá Lóu frænku.

Já vegna þess sem ég skrifaði um Margréti Frímanns fékk ég eftirfarandi skilaboð frá Lóu frænku minni, sem hefur oft sent mér myndir af fjölskyldunni, sem ég hef birt hér.

hæ Íja mí veistu ekki að Margrét er skild þér Elísa lángamma okkar var systir Árna lángafa Margrétar ha heimurinn er lítill kveðja Lóa Júl

Og það er einmitt það.  Ég vissi svo sem að hún Margrét var frænka mín, vissi bara ekki alveg hvernig við vorum skildar, en þarna er það svart á hvítu.  ´

Síðan fékk ég svo fallegt bréf frá Dísu vinkonu að mig langaði að setja það hér inn, og fékk til þess góðfúslegt leyfi.  En við Dísa erum búnar að vera nágrannar og vinir frá því að við vorum bara smápúkar.

Fengum alveg yndislegt veður hér í dag og ég fór í tvær gönguferðir. Geri það reyndar venjulega á laugardögum, fer fyrst með vinkonum sem eru eins og ég með vefjagigt og hittast alltaf á laugardögum kl. 11 í Laugardalnum og svo förum við í kaffi á eftir í bakaríinu Korninu í Borgartúni og spjöllum þar yfir veitingum að eigin vali. þar bætast oftast fleiri við sem ekki treysta sér í göngu. Síðan fór ég þegar ég kom heim í aðra göngu með Steinunni í Elliðaárdalnum. Hvor ganga er um þrír kílómetrar, en í morgun tóku þær lengri tíma en venjulega því ég tók með mér myndavél í bæði skiptin í dag til að geyma aðeins fegurðina sem er í náttúrunni á svona svölum sólbjörtum síðvetrarmorgnum þegar sólin bræðir nýfallinn snjóinn af trjánum. Svona stundir gera mig hamingjusamari en flest sem fæst fyrir peninga, sérstaklega þegar ég er í góðum félagsskap. á báðum stöðum gengum við um og hrópuðum upp "sjáðu hvað þetta er fallegt" sitt á hvað og nutum þess í botn hvað við eigum fallega náttúru. Mér finnst svo gaman að komast svona útúr öllum ysnum og umferðinni, að vísu var Elliðaárdalurinn eftir hádegi næstum eins og Laugavegurinn, fullt af ólki á göngu og gleðin skein úr öllum andlitum. Það finnst mér mikill munur eða þegar rignir í tíu mínútur og fólk segir "það er bara alltaf rigning" þó kannski hafi verið gott veður daginn á undan. Þessa viku til dæmis hefur verið gott veður annan hvern dag. Af hverju ekki að gleðjast yfir því frekar en sjá alltaf það lakara? En ég er bara ánægð með að vera Pollíanna því ég hef umgengist fólk sem alltaf sér dökku hliðina og er aldrei ánægt. En ég er auðvitað "þorpari" í þess orðs bestu merkingu, ólst upp við leiðbeiningar frá fólkinu í kring og nýt enn góðs af. Ég væri miklu fátækari andlega ef ég hefði ekki haft mína foreldra, þína, ömmu þína og afa og foreldra allra hinna vegapúkanna til að gera mig það sem ég er.

Kær kveðja,

Dísa

Með þessum fallega pistli kom svo mynd af þeim frænkum Ellu og Dísu, og svo bróður Dísu Óðni 

Dísa Ella og Óðinn

Flottir krakkar ekki satt ?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er svo gott að lesa þetta hjá þér Ásthildur mín já þú er svo sannarlega pollíanna og sér bara allt þetta góða hjá fólki eins og mér takk fyrir alla hjálpina sem þú hefur gefið mér.ég sendi þér stórt faðmlag

Kristín Katla Árnadóttir, 10.3.2008 kl. 11:38

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú færð líka faðmlag frá mér yndislega kona, það bætir alla að þekkja þig ekki spurning.Mega knús ínn í vikuna

Ásdís Sigurðardóttir, 10.3.2008 kl. 11:57

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskulegu konur.  Katla mín, það þarf engan snilling til að sjá hve yndisleg manneskja þú ert.  Og ef maður getur gefið smá púst, þá er það bara mikið gleðiefni.

Elsku Ásdís, sjálf ertu gefandi einstaklingur og yndislegt að hafa þig sem vin.  Sem betur fer er ég ekki hrædd við að sýna tilfinningar mínar, eða feimin, það er nefnilega svo gott að geta sagt hreint út; mér þykir vænt um þig. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 12:16

4 Smámynd: Rannveig H

'Eg þarf að fara að vitja Dísu og Steinunnar í Elliðaárdalnum,en mikið væri gaman ef Dísa ætti fleyri myndir af púkunum

Rannveig H, 10.3.2008 kl. 13:19

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Rannveig mín við skorum bara á hana. 

Peyjar og pæjur, piltar og stúlkur og púkar, þar er ekkert kynrugl, bæði stelpur og strákar eru kynlausir púkar, svona erum við nú framsýn Búkolla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 13:35

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Mín góða Ásthildur Cesil!

FAlleg skrif þín um Margréti hér að neðan og eins og fleiri hef ég mikla trú á henni. En starfið mjög vandasamt og víða pottur brotin í öllum þessum málumeins og þú veist nú og hefur skrifað um. Sjálfur hef ég smá hugmynd um þetta, á bæði frændur sem unnið hafa þarna í fangelsinu innandyra og einn sem sinnt hefur sálfræðiaðstoð.

En svo kannski til að halda öllu til skila varðandi Margréti, þá finnst mér hún hafa frekar verið sveitastjóri í sinum gamla heimabæ Stokkseyri frekar en í nágranabænum Eyrarbakka. Skiptir annars ekki svo miklu máli.

Magnús Geir Guðmundsson, 10.3.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband