Kvöldverður með pabba mínum.

Já það var mjög skemmtilegt kvöld sem við áttum með pabba.  Ég eldaði svo áttum við yndislega stund saman fjölskyldan.

IMG_3232

ein svona til gamans um leið og við fórum þá flaug flugvélin yfir til að lenda, og ég smellti af mynd.

IMG_3233

Svo lögðum við af stað.  Það þurfti náttúrulega að flytja hinn bráðnauðsynlega barnastól milli bíla.

IMG_3234

Þessar elskur heilsuðu okkur þegar við komum á Hlíf, óþekkar angar sem ekki fóru á Hlífarsamsætið af ýmsum ástæðum, en ein hafði pottþétta afsökun hún hafði lærbrottnað.

IMG_3236

Steikin komin á borðið. Og allir njóta.

IMG_3237

Og svo pabbi minn glaður og sæll kominn í stólinn sinn, saddur á ánægður.  Hann er bara frískur og hefur það fínt fyrir ykkur elsku lesendur ættmenni mín hér og þar.  Ég þurfti aðeins að setja nokkra dropa í eyrað á honum.  Stera segir hann stoltur, af því að eyrað er bólgið eftir heyrnatækið.  En hann pabbi er bestur af öllum og ég bara elska hann rosalega mikið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ein flottasta flugvélamynd sem ég hef séð

Varð nú bara svöng á að sjá steikina.

Sem betur fer eru flestir pabbar bestir í heiminum

Kidda (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 21:08

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín, og jamm pabbar eru bestir.  og mömmur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Ásthildur, ég fæ að stela þessari flugvélamynd frá þér við tækifæri.  Næsti pistill frá mér verður um flugvöllinn.  Ætli þeir komi ekki bara á færibandi frá mér núna.  Annars var ég að senda Rósu langan tölvupóst um ættir mínar, það kom henni eitthvað á óvart blessaðri að ég væri gift náfrænda hennar (þremenningar).  Annars þarf ég að fara að útfæra leikskólapistilinn minn eitthvað nánar fyrir F-listafund á morgun.  Bestu kveðjur til ykkar og Þórðar frænda..

Sigríður Jósefsdóttir, 9.3.2008 kl. 21:25

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Sigríður mín auðvitað máttu fá þessa mynd.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 21:47

5 Smámynd: Brynja skordal

Frábær þessi mynd hjá þér af flugvélinni já fátt sem toppar svona Gull stundir með besta fólkinu sínu

Brynja skordal, 9.3.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þessi flugvélamynd er snilld!

Huld S. Ringsted, 9.3.2008 kl. 22:08

7 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Glæsilegar myndir hjá þér

kveðja Halli

Hallgrímur Óli Helgason, 9.3.2008 kl. 22:13

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það væsir ekki um hann pabba þinn

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 9.3.2008 kl. 22:36

9 Smámynd: G Antonia

Njóttu þess að eiga svona stundir með pabba þínum, minn dó 64 ára og það eru 14 ár síðan og ég sakna hans hvern einasta dag <3

Skemmtilegt og myndrænt blogg hjá þér, maður svífur einhvern veginn með :-)

G Antonia, 9.3.2008 kl. 22:38

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi hvað þú átt gott að eiga pabba á lífi ég missti pabba minn  og ég elskað hann mikið hann var svo góður þessi elska. njóttu þess að eiga góðar stundir með pabba þínum.

Knús til þín

Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 22:45

11 Smámynd: Rannveig H

&#39;Olíkt Gústa í Múla að fara ekki á Hlífarsamsæti

Rannveig H, 10.3.2008 kl. 08:07

12 identicon

Sammála Rannveigu, ólíkt Gústa í Múla að fara ekki á Hlífarsamsætið.

dísa (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 08:20

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

já hann Gústi í Múla, það er alveg rétt, hann hefði nú ekki látið sig vanta hér áður og fyrr.  Hann sagðist ekki hafa nennt.

Takk öll, já hún er skemmtileg þessi flugvélamynd ég smellti henni af um leið og hún flaug yfir húsið mitt, þegar ég var að fara í eldamennskuna.  Pabbi minn er skemmtilegur en skapmikill maður.  Hann lætur engan troða sér um tær.  En er alltaf tilbúin til að leggja hönd á plógin þegar þörf er brýn. Hann verður níræður þann 4 ágúst næstkomandi.  Þá ætlum við systkinin að halda honum veglega veislu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 08:30

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Váts hvað mér brá þegar ég sá flugvélamyndina, fannst hún bara vera að hrapa og stefna beint niður, en svo snéri ég tölvunni til hliðar þá flaug hún til hliðar og svo á hvolf þegar ég snéri tölvunni á hvolf..  .. þarna var ljóskan að tala!

Reffilegur karl hann pabbi þinn! ...Ég held alltaf mikið upp á ,,gamla fólkið" síðan ég var að starfa á  Eir og síðan með öldruðum í kirkjunni, reyndar held ég líka upp á unga fólkið og allt þar á milli!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 10.3.2008 kl. 09:37

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahah Jóhanna þú ert frábær.

Takk Búkolla mín. Já við eigum að bera meiri virðingu fyrir þessu gamla fólki sem skóp velmegun okkar daga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband