9.3.2008 | 16:01
Sunnudagsgöngutúr.
Já ég gerði alvöru úr þeirri hugmynd minni að fara í labbitúr með þeirri stuttu, stubburinn er komin heim af brettaæfingu, og er alveg að ná þessu öllu saman, er farinn í bíó, og bráðum fer minn elskulegi eiginmaður á lúðrasveitaræfingu, og ég bauð pabba í mat heima hjá honum, af því að aðgengið hingað er erfitt. Við fórum á föstudaginn saman út að versla, og nú er komið að því að elda dýrindissteik. Hann er reyndar á Hlífarsamsæti, að skemmta sér sá gamli, en kemur svo heim til sín í veislumat.
Stubburinn kemur heim af brettaæfingu.
Afi amma og Hanna Sól að fara í göngutúr.
Já sumir sitja bara.
Svo skiptist maður á ekki satt.
Mig langar að fá snjó afi. já já, hérna er einn stór ís fyrir þig.
Tilvalið að leika sér smá fyrst maður er komin út á annað borð.
Þá er að drífa í þessu. Hehehehe.. við bökuðum pönnsur í morgun og hún át 7 stykki, og ég er ekki að skrökva mamma litla.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flott hjá þér að fara í göngutúr.Ég ætla að hafa í matinn í kvöld lambahrygg Með öllu tilherandi.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 16:10
Gott hjá ykkur að drífa ykkur. Ég sé að mamma mín hefur ekki verið ein um að telja pönnsurnar ofan í barnabörnin. Þegar Harpa var tveggja ára ákvað mamma að sjá hve margar hún gæti borðað ef hún fengi að ráða. Og þær urðu líka sjö og var lengi haldið til haga. En er ekki fátt eins lystugt og nýbakaðar pönnsur? Miklu skemmtilegra að baka þegar einhver kann vel að meta.
Dísa (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 16:12
Hehehe já Dísa mín, það er nefnilega virkilega gaman að baka ofan í þakklát börn.
Já einmitt Katla mín. Ég ætla að hafa hamborgarahrygg með öllu tillheyrandi. Bregða út af lærinu í þetta sinn. Vegna þess að pápi gamli vildi endilega fara í Bónus að versla, og þar er ekki að fá þýtt ókryddað læri. Bara tilkryddað sem mér líkar ekki. Vil fá að krydda sjálf að mínum smekk og fjölskyldunnar. Þannig að Svínið varð ofaná.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 16:23
Haha mamma telur líka alltaf pönnsurnar ofan í barnabörnin
Ég sé að við erum samstíga með sunnudagsmatinn Ásthildur, Hamborgarhryggur hér líka 
Huld S. Ringsted, 9.3.2008 kl. 16:37
Frábært Huld mín, bæði þetta með að telja pönnsurnar og svo sunnudagssteikina, og ég segi bara verði ykkur að góðu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 16:42
þetta lítur allt vel út, en er snjórinn ekkert að bráðan, ætla að keyra vestur þann 18, hef ekki keyrt í svona miklum snjó í mörg ár !
Blessi þig á sunnudagskvöldi.
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 17:09
Er kúluhúsið þitt alveg að verða að flottu snjóhúsi?
Myndirnar þína eru skemmtilegar og gaman að heimsækja svona síðu.
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 17:47
Skemmtileg sunnudagstemning já! En er farin að velta því fyrir mér hvort myndavélin sé bara partur af daglegum klæðaburði þínum, mín aðlaðandi frú Cesil, hún bara alltaf við höndina!?
Magnús Geir Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 18:05
Sem betur fer fyrir okkur hin þá er Cesil alltaf með myndavélina. Kúlusnjóhúsið er bara flott
Væri alveg til í að baka pönnsur og telja hvað færi ofan í mig sjálfa með sultu og rjóma. Já og með ís
Knús
Kidda (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 18:48
Mikið eru þetta fallegar og skemmtilegar myndir, ekki amalegt að renna sér á sleða eða bretti í svona snjó.
Þetta lítur nú ekki svona út hér á Suðurnesjum, snjórinn að mestu bráðnaður og bara slabbið eftir, en sýnist kyngja niður hvítum flygsum í þessum skrifuðu orðum, ekki óalgeng sjón þennan vetur. En það kemur jú vor - sumar - og haust..... og svo byrjar þetta allt að nýju :-)
G Antonia, 9.3.2008 kl. 20:19
Yndislegar myndir að vanda. Æ, nú fæ ég aldrei mömmu pönnsur oftar, hún bakaði þær bestu í heimi, ekkert betra en ein nýsteikt með púðursykri. Hér var uppáhald eiginmannsins í kvöldmat "grjónagrautur" ég fékk mikið hrós fyrir það. Knús vestur.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 20:24
Nefnilega Búkolla mín
Steinunn mín, það verður örugglega fært, og svo kemurðu í kaffi NOT ?
Sigrún, já það er að verða eins og hinir manngerðu snjóskaflarnir, var einmitt að hugsa það í dag. heheh.
Adda mín að vísu eru pönnsurnar mína næfurþunnar, en samt sem áður sjö stykki er bara töluvert fyrir fjögura ára snót.
Magnús, ég segi og skrifa vélin er orðin partur af sjálfri mér ég get svo svarið það, en það er ykkur að kenna bloggvinum mínu, því ég hef verið hvött áfram í vitleysunni.
Einmitt Kidda mín knús
Guðbjörg Antonía, jamm og nú fer skíðavikan í hönd með öllum sínum skíðaaðdaendum og fjöri, ekki slæmt.
Elsku besta Ásdís mín svona er þetta bara, knús elskuleg mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.