9.3.2008 | 12:06
Hið Daglega veður og nýr Forstöðumaður á Litla Hrauni.
Það er besta veður hér núna. Ekki sól, en bjart veður eigi að síður, logn og blíða.
Ljúft bara, maður ætti ef til vill að fara í útiföt og labbitúr, myndi gera manni gott, það væri hægt að setja barnið í snjóþotu. 'Eg er að hugsa upphátt núna.
Nýfallin snjór, og hreinleiki. Það er gott.
En ég ætlaði að ræða svolítið um fangelsismál og hana Margréti Frímanns.
Ég heyrði viðtal við hana í útvarpinu um daginn og koms að því mér til mikillar gleði að hún hefði tekið við Litla Hrauni.
Sjá hér:
Margrét Frímannsdóttir skipuð forstöðumaður Litla Hrauns
Fangelsismál Margrét Sæunn Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið settur forstöðumaður fangelsins að Litla Hrauni í stað Kristjáns Stefánssonar sem er á leið í starfsleyfi. Margrét, sem tekur við starfinu hinn 1. febrúar, verður þar með fyrsta konan til að stýra fangelsi hér á landi. Þetta leggst rosalega vel í mig, sagði Margrét í samtali við Gluggann. Fangelsismál eru málefni sem ég hef kynnt mér vel í gegnum árin og haft mikinn áhuga á. Það er mjög gott starfsfólk á Litla Hrauni sem hefur mikinn áhuga á að efla starfsemi fangelsisins og ég hlakka til að fá að vinna við hlið þess. Margrét segir öruggt að ákveðnar áherslubreytingar verði þegar hún komi til starfa, það fylgja alltaf áherslubreytingar nýjum mönnum.
Ég þekki Margréti dálítið hún kenndi mér félagsfræði þegar ég var í Garðyrkjuskólanum, árið 1987. Þá var hún sveitarstjóri á Eyrarbakka, afskaplega skelegg kona. Hún var líka skemmtileg og sagði okkur margar sögur.
Ég hafði síðan nokkrum sinnum samband við hana, einmitt um fangelsismálin á Litla Hrauni, þegar minn drengur var í vítahring þar út og inn. Það var margt sem mér þótti að stjórninni þar, og mannfyrirlitningin í algleymi. Ég veit ekki hvort það hefur átt sinn þátt í því að Margrét fór að kynna sér málefni fangelsisins, en þó er trúlegt að það hafi ekki spillt fyrir.
En Margrét þekkir sem sagt fangelsið utanfrá, og beint frá aðstandendum, og svo núna innviðina. Og ég hef trú á því að Magga komi öllu á betri veg þarna. Ég er sannfærð um að kona hefur aðra sýn á vandamálin, og það verði betur hlúð að föngunum, og málin tekin öðrum tökum. Mér heyrðist líka á henni í viðtalinu, að það væri strax breytingar til batnaðar og meiri umhyggja. Hvað sem segja má um kynin þá er það þannig að konur hugsa oft meira með hjartanu og það er meira innbyggt í konur að hlú að og vernda.
Það sem þarf að breyta er að það á alls ekki að setja fíkla inn í fangelsi, það á að vera til stofnun sem tekur inn fólkið sem er komið í ógöngur, áður en þau grípa til örþrifaráða. Það verður að stoppa þetta ferli með öllum ráðum. Það er ekki langt síðan einn vinur sonar míns, fannst látinn af of stórum skammti, þar áður hafði ung vinkona hans hengt sig á svipuðum slóðum, bara í fyrradag tók ung stúlka sitt eigið líf. Sonur minn sagði við mig um daginn. Mamma ég sá myndir af mönnum sem höfðu stytt sér aldur framan á DV og ég þekkti þá alla. Þetta gengur ekki, en málið er að þegar fólkið okkar er komið á ystu nöf, og sér ekki morgundaginn, þá er þetta úrlausnin. Þau sjá enga aðra, og ég segi og skrifa, það sér það enginn annar heldur. Foreldrar standa ráðalaus, og geta ekkert gert. Kerfið hafnar þeim, og það er ekki bara biðlistar á meðferðarstofnanir, heldur taka þeir ekki við fólki nema það sé mótiverað fyrir því að hætta.
Það er því lítið sem hægt er að gera, og því fer sem fer. Líf þessara ungmenna er því á ábyrgð kerfisins. Það er stjórnvalda að koma á stofn lokaðri meðferðarstofnun, þar sem hægt er að koma þeim ungmennum inn sem misst hafa fótana og komast ekki upp úr farinu. Þar þyrfti líka að vera deild sem væri hægt að dæma afbrotamenn til innlagnar, afbrotamenn sem eru fíklar og hafa ekki stjórn á lífi sínu. Afbrotamenn sem eru gangandi hætta fyrir alla, þar sem þeir eru ekki sjálfráðir, vegna fíkniefna og áunninnar geðveiki.
Hve lengi ætla stjórnvöld að líta til hliðar og neita að takast á við þennan fjanda ? Hve mörg ungmenni þurfa að fara þessa leið, áður en einhver vaknar og fer að vinna í því að opna slíkt heimili ?
Eða skiptir engu hvað verður um þessa einstaklinga ? eru þeir ekki fólk, og nær ekki stjórnarskrá lýðveldisins yfir alla einstaklinga ríkisins ? Eða þarf að vera þrýstihópur sem hefur hátt og krefst þess að eitthvað sé gert ?
Það verður aldrei, því aðstandendur fíkla, eru löngu orðnir brotnir sjálfir, örvæntingafullir og orkulausir af endalausum áhyggjum og baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Með sífelldar áhyggjur af því að barnið gangi fram af stapanum. En við getum ekki sem ein ríkasta þjóð heims horft upp á að hópur sjúks fólks þvælist um,jafnvel heimilislaust, og hefur misst öll tök á lífi sínu. Hér erum við öll samábyrg fyrir því að koma þeim undir læknishendur og inn á stofnun sem tekur á þeirra vandamálum, og hjálpar þeim út í lífið aftur án vímu. Það er hægt, en ekki með því að loka augum og eyrum.
Svo þarf að breyta um kúrs í baráttunni við eitulyf og sölumenn þeirra og innflytjendur efna. En það er allt önnur saga.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fallegar vetra myndir. Ég er alveg sammála þér sem þú ert að tala um en ég treysti Margréti vel að sjá um þessi mál ég veit að hún geri allt til að hjálpa.
Knús á þig
Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 12:24
Góðar hugsanir hjá þér
Ég heyrði líka þetta viðtal við Margréti í útvarpinu og líst vel á hana í þessu hlutverki - eins og reyndar öllu því sem hún hefur tekið að sér!
Pabbi hennar var líka fangavörður þarna í denn, þannig að hún þekkir Hraunið frá mörgum hliðum.
Hrönn Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 13:01
Já Margrét er skelegg kona og ákveðin, og svo er hún líka réttlát, það skiptir ekki svo litlu máli. Ekki skemmir fyrir að vita að faðir hennar var þarna fangavörður. Ég vil bara óska henni góðs gengis.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 13:28
Margrét er frábær. Hef mikla trú á henni í starfinu.
Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 9.3.2008 kl. 14:31
Ég var mjö ánægð á sínum tíma þegar ég heyrði að það væri búið að ráða Margréti í þetta starf, hef tröllatrú á henni og handviss um að framundan séu ekkert nema góðar breytingar í vændum undir hennar stjórn.
Eigðu góðan dag Ásthildur mín
Huld S. Ringsted, 9.3.2008 kl. 14:32
Sammála þér með Margréti, henni virðist vera mikið hjartans mál að gera allt sem hægt er fyrir þá sem þarna þurfa að dvelja. það er kominn tími til að reyna að bæta líf þeirra og reyna að hjálpa, ekki bara að refsa. Líka sammála umræddri gönguferð með Hönnu Sól á þotu. Fátt hressir betur en góður göngutúr í góðu veðri. Vel að merkja, gott veður þarf ekki endilega sól, ef maður fýkur ekki eða drukknar er gott veður. En maður dregur samt ekki barnabörnin út í hvað sem er. Við þurfum of mikið á þeim að halda til að viðhalda barninu í okkur og muna hvernig var að vera lítill.
Dísa (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 15:08
Jenný mín
Takk sömuleiðis Huld mín.
Já Dísa mín, ég fór einmitt í göngutúr með hana litlu mína, og já þau er dýrmæti þessar elskur á margan hátt.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 15:50
Mér líkar vel við Margrét Frímanns og hef líka eins og svo margir - fulla trú á að hún muni geta gert mikið sem forstjóri Litla-Hrauns. Ég er svo mikið sammála þér með að það ætti alls ekki að setja þá sem eru dottnir í vímuefnanotkun í fangelsi, sannarlega ekki. Það ætti skilyrðislaust að koma á fót stofnun sem sérhæfir sig í að vinna með slíka einstaklinga - slík stofnun gæti sannarlega bjargað mannslífum.
Knús á þig Ásthildur mín og njóttu helgarrestar.. *knús*.
Tiger, 9.3.2008 kl. 18:00
Kveðjur til þín.
Sammála, held að Margrét sé að gera góða hluti. Vona bara að þegar fangelsið er orðið snautt eða snauðara af dópi en venja er að séð verði til þess að ekki skorti læknis- og sálfræði aðstoð og að fangaverðir fái handleiðslu.
Það getur myndast mikill óróleiki meðal fanganna enda sumir búnir að vera í daglegri neyslu. Þegar þeim fer að vanta dópið er hætta á pirringi og því mikilvægt að gæta jafnframt vel að öryggisgæslu og öryggi almennt séð þeirra sem þarna vinna.
Kolbrún Baldursdóttir, 9.3.2008 kl. 21:01
Knús á þig líka Tí Cí minn, og já það er gott að bara skella sér út í labbitúr.
Takk Kolbrún mín, já það þarf að endurskoða þessa hluti vel og ég treysti Margréti til að fara í það verk, hún er einfaldlega frábær manneskja.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 21:22
Þar sem Magga er á ferð þarf engar efasemdir.Hún einfaldlega er eðal.Ég e svo virkilega sammála öllu sem þú segir hér og vildi gjarnan tjá mig um það frekar en verð að þjót.....knús og kossar á þig elskukella
Solla Guðjóns, 10.3.2008 kl. 11:02
Knús á þig líka Solla mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.3.2008 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.