Ammæli.

Já hér var heljarmikið afmæli.  Ég pantaði 10 pizzur með tilheyrandi gosdrykkjum.  Og það hvarf allt eða svo til, ofan í svanga en skemmilega gesti.

IMG_3186

Skvísurnar létu sitt ekki eftir liggja, og píanóið trekkir.

IMG_3191

Líka strákana sko !

IMG_3189
Sumir vildu þó bara klifra í stiganum hennar ömmu.

IMG_3193

Afmælisbarnið var náttúrulega miðpunkturinn eins og vera ber.

IMG_3194

Og pabbi liðtækur við að uppvarta.

IMG_3195

Tvær flottar Heiða Bára frænka og Alejandra frænka.

IMG_3196

En sumir ákváðu að þeir vildu ekki koma inn og vera með, því þeir "þekktu" engan, hehehe þessi kom með frænda Úlfs, og það var reynt að fá hann til að koma inn, en hann þáði þó veitingar í garðskálanum, og var veitt vel. 

IMG_3200

Systir hans var þó alveg á því að koma inn, og vera með í ammælinu.

IMG_3201

Sumir höfðu þó meiri áhuga á því að vera í tölvunni.

IMG_3202

Frændu að skemmta sé saman.

IMG_3203

Hver segir að stákar geti ekki slegist út af bangsa.

IMG_3205

Tvær flottar saman, Tinna tengdadóttir og hún Natalía heimilisvinur.

IMG_3206

Og það þarf að fá sér stórt glas til að drekka úr, þó það sé bara vatn sem maður vill.

IMG_3207

Og þau litlu höfðu bara skotið út af fyrir sig.

IMG_3209

Sumir voru meira spenntir fyrir sjónvarpinu, eða eins og þessi ungi maður sagði við vin sinn til að fá hann inn, þetta er hjá ömmu í kúlu, þar má gera allt, hér eru líka trommur og svo hoppiherbergi. LoL

IMG_3210

Já það var svona standandi borðhald, og allir fengu sér eins og þeir vildu.

IMG_3212

Og svo eru sumir bara alveg æðislega flottir Heart

En stubburinn er ánægður með daginn, og hann vill þakka ykkur fyrir góðar óskir, og að hugsa til hans á þessum merkisdegi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, þú yndislega kona, það hljóta allir að elska þig fyrir vestan. Takk fyrir fallegar myndir, það er glöð börn í afmæli hjá þér.  Kærleikskveðja vestur til þín elskulegust

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 21:39

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku Ásdís mín.  Kærleikskveðja til þín líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 21:43

3 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Manni langar bara í pizzu þegar maður sér þetta  En það hefur greinilega verið mikið fjör í afmælinu hjá ykkur allir svo glaðir.

Guðborg Eyjólfsdóttir, 8.3.2008 kl. 22:02

4 Smámynd: Rannveig H

Til hamingju með daginn stubbur.

Rannveig H, 8.3.2008 kl. 22:10

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Til lukku með þann litla Cesil mín hláturmilda! Hve gamall er svo sveinninn?

Magnús Geir Guðmundsson, 8.3.2008 kl. 22:36

6 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Til hamingju með stubbin  sé að hann er fiskur eins og gulldrengurinn  em verður ekki stubbanafnið að fara fjúka? Annars komast ömmur upp með að kalla mann hvað sem er, ekki satt

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 8.3.2008 kl. 22:47

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Guðborg mín það var mikið fjör hér.

Takk segir stubbur, takk afi og amma fyrir yndislegan dag, sagði hann um leið og hann fór í holuna sína.

Magnús minn, drengurinn er 11 ára í dag.

Hehehe Hulda mín, ömmur komast upp með ansi mikið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 22:50

8 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Við sendum Úlfi og ykkur öllum okkar bestu hamingjuóskir með daginn

Sigríður Jósefsdóttir, 8.3.2008 kl. 23:10

9 Smámynd: Katrín

Bestu hamingjuóskir til stubbsins frá ,,gamla" kennaranum

Katrín, 9.3.2008 kl. 00:16

10 Smámynd: Brynja skordal

það hefur sko verið pizzu fjör í kúlunni í dag yndisleg eru þau öll þarna á myndunum hafið ljúfan sunnudag

Brynja skordal, 9.3.2008 kl. 01:23

11 Smámynd: Tiger

 Food FightÞað var þó gott að blessuð börnin fóru ekki í matarslag, eru svo fjörug oft þegar þau koma svona mörg saman. Alltaf svo mikið stuð í svona hóp. Skemmtilegar myndir og flott lið.

Las um kóngsríki þitt í 24 stundum í dag, laugardag. Það var bara gaman að sjá þetta og lesa um "Fríríkið Vestfirðir" ... *skellihlátur en með virðingu þó".

 P.s. er búinn að vera að gramsa í Íslendingabók í nótt, (smá vaktavinna og hangs á netinu um leið)... og komst að því að Queen Ásthildur of Vestfjarðarríki á Langömmu sem heitir Kristín Matthíasdóttir - og að móðir mín á Langafa sem heitir Sigurður Matthíasson, sem gerir mig að fjarlægum erfingja að krúnu Vestfjarðaríkis ef falla frá nokkrir ættingjar eða svo ... tralllaaalllaaa. Knús á þig frænka (má víst alveg segja þetta sko).





Tiger, 9.3.2008 kl. 06:37

12 Smámynd: Helga skjol

ÆJi þú ert yndisleg,ég er alveg vissum að það sé æði að eiga þig fyrir ömmu,til hamingju með 11 ára gaurinn Ásthildur mín,ég er líka alveg sannfærð um það að þú berð nafn þitt með réttu.

knús til þín elskan.

Helga skjol, 9.3.2008 kl. 09:21

13 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman  Hjá drengnum allt gekk vel þetta hefur verið flott veisla það er alltaf líf og fjör hjá þér Ásthildur mín.

Knús inn í daginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 11:15

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll saman.

Takk Búkollabaular mín, ég þekki eina Búkollu á öðrum stað, ertu ef til vill sú sama

Kveðjur til þín líka Gréta mín.

Takk Sigríður mín, á að koma vestur um páskana ?

Skila því Katrín mín.  Þú varst flottust.

Já Brynja mín pizzufjör, og nóg handa öllum.

Takk Móðir, já það var sko fjör.  Ég er ennþá með hellu

Hehehe TíCí minn, já þeir hringdu í mig frá 24 stundum, og mér er alvara með þetta, og því meira sem ég hugsa um það, þess vissari er ég í minni sök.

Og gaman að því að þú skulir vera frændi minn.  Það er bara flott finnst mér.  Þú ert reyndar ekki allur sem þú ert séður karlinn, og leynir á þér.  Það býr vitur og þroskuð sál á bak við allan galsan.

Takk Helga mín.

Takk Adda mín.

Knús á þig líka elsku Katla mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 11:31

15 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Ég held ekki núna Ásthildur mín, liðið mitt í dalnum er á leið til Canterbury, og eiginmaðurinn á kafi í mastersritgerð.  Einnig er ég sokkin í pólitíkina, þannig að ég held að páskarnir í ár verði bara kærkomið frí heima við.  En ég stefni á að koma helgina eftir hvítasunnu og rokka feitt með ´64 árgangi sem á 30 ára fermingarafmæli.  Sóley Guðmunds og fleiri hressar eru að plana góða helgi fyrir okkur.

Sigríður Jósefsdóttir, 9.3.2008 kl. 14:53

16 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Til hamingju með góðan dag, getur verið að þetta séu frændi minn og frænka þarna, systurdótturbörn mín?

Kveðja

Þ 

Þórdís Einarsdóttir, 9.3.2008 kl. 15:41

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Sigríður mín það er gaman að hittast og spjalla um þá góðu gömlu.  Og svo er notalegt líka að vera bara heima hjá sér.

Þórdís, já víst eru þetta börnin hennar Ólafíu.  Þau eru algjörar dúllur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.3.2008 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband