8.3.2008 | 11:14
Hið daglega veður og nokkrar aðra myndir.
Til hamingju með daginn konur. Ég keypti þessa flottu rós í gær.
Það var víst metsala á rósinni hér á Ísafirði. Sjá hér http://bb.is/Pages/26?NewsID=113120
Hið daglega veður.
En svo er hið daglega veður. Það er prýðisveður hér í dag. Eins gott því Úlfur minn á afmæli í dag, hann er 11 ára í dag stubburinn minn, og hér verður haldinn veisla, það verða pizzur og gos. Svo það verður fjör í kúlunni í dag.
Þau Alejandra saman í tölvunni.
Svo er hér ein mynd sem er tekinn spes fyrir hann Jóhannes bloggvin minn og kommúnista.
Þessir tveir félagar eru í svefnherberginu mínu. Og þeim líður báðum held ég bara nokkuð vel.
Eigið svo gleðilegan laugardag.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með drenginn, falleg jesúmyndin, hin veit ég ekki hver er . kveðjur á Ísafjörð og góða helgi
Guðborg Eyjólfsdóttir, 8.3.2008 kl. 11:37
Til hamingju með afmælisbarnið, Ásthildur.
Fallegar myndir.
Hérna í borginni okkar er allt hvítt, og trén líka, sem er skemmtileg tilbreyting frá brúna litnum. Og því miður eru of mörg greni- og furutré líka brún. Við vitum báðar, hvers vegna. En vonandi vaxa þau frá þessu, þar til annar lúsafaraldur geisar.
Senn kemur vorið með sín ljósgrænu blöð á trén.
Við í kórnum okkar, erum að taka á móti kórum frá Húnaþingi í dag, og sennilega verður "sungist á"
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 11:51
Til hamingju með strákinn Ásthildur
Ég keypti líka svona rós í gær, alltaf til í að styrkja gott málefni 
Huld S. Ringsted, 8.3.2008 kl. 12:21
Til hamingju með drengin ykkar hafið góðan afmælisdag sendi knús vestur á ísafjörð
Brynja skordal, 8.3.2008 kl. 12:21
Kúlufjör
Til hamingju með sætasta stubb
Gott að hafa góða í svefnherberginu
Solla Guðjóns, 8.3.2008 kl. 12:36
Guðborg hinn gæjinn heitir Lenin, og er hugmyndasmiður sóséalismans. Held að hann hafi viljað vel, en svo fór bara allt úr böndunum, eins og alltaf gerist.
Já Sigrún mín ég sá það einmitt þegar ég var á ferð þarna um daginn. Ef trén koma út með ný brum, þá lifa þau af, reyndar hefur ekkert tré drepist af völdum lúsarinnar, en eigendur hafa höggvið þau niður vegna þess hve ljót þau voru. En þau jafna sig alveg, og verða sterkari gegn þessum vágesti fyrir vikið. En síðan ætti eitthvað af henni að hafa drepist þegar kuldinn fór upp fyrir 16°- þ.e. lúsin sjálf eggin þola allt upp í 24 °. En vonandi ná þau að jafna sig fljótt og ve.. Það er gaman að fá góða gesti í heimsókn og syngjast á.
Takk Huld mín, já þetta er svo sannarlega gott málefni.
Takk sömu leiðis Brynja mín.
Solla mín já það verður kúlufjör í dag.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 12:41
Til hamingju með stubbinn
Ásthildur mín, þeir eru nú svolítið ólíkir karlarnir í svefnherberginu hjá þér

Góðar kveðjur til ykkar fyrir vestan
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2008 kl. 12:44
Til hamingju með stubbinn og góða skemmtun í kúlunni
Ekki hef ég orðið vör við svona flottar rósir
Kidda (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 12:54
Til hamingju með Úlf!
.. Sólin skín hér fyrir sunnan .... en hún skín full harkalega á rykið hér inni líka hehe.. (ég er ekki mikil tuskukona) .. hef samkvæmt fjölgreindarkenningunni séð það út að ég er ekki með mikla tuskugreind! Var að vísu að kaupa einhverja töfraklúta sem tja.. vonandi þurrka bara af sjálfir... Ég læt alltaf plata mig til að kaupa eitthvað .. og keypti enjo tuskur (tuskugreindarlaus konan).
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.3.2008 kl. 13:04
Innilega til hamingju með stubbinn
knús til ykkar
Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 13:07
Til hamingju með afmælið Úlfar!!!
Megi dagurinn vera frábær fyrir ykkur öll 
Margrét St Hafsteinsdóttir, 8.3.2008 kl. 13:29
Til Hamingju með stuppinn þinn. knús til ykkar.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.3.2008 kl. 13:45
Það er svei mér heimilislegt hjá þér í svefnherberginu.
Þeim kemur greinilega vel saman Jesú bróður besta og félaga Vladimir Ilinovitsh Lenin. Ekki vandamál þar.
Sigurður Þórðarson, 8.3.2008 kl. 13:52
Takk Milla mín, já þeir eru sennilega ágætis félagar Lenin og Ésú.
Hvað ertu að segja Kidda mín, þá er ekki nógu vel staðið að sölunni þarna í borg óttans.
Hehehe Jóhanna, ég kannast við þetta sólarryk, hræðilegt alveg hreint, og svo miskunnarlaust
Best bara að látast ekki sjá það.
Takk Ásdís mín.
Takk Margrét mín
Takk Katla mín
Já það er heimilislegt í svefnherberginu mínu Sigurður minn hehehe. og það er bara vel á með þeim félögum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 13:59
Til hamingju með Úlfinn. Ég kaupi líka rós fyrir málefnið en ég hef enn ekki fyrirgefið Zontakonum fáviskuna þegar þær sendu mér bréf persónulega og báðu mig að láta dóttur mína alls ekki í Heyrnleysingjaskólann, henni væri fyrir bestu að læra bara íslensku og fara í almennan skóla. Ég hlýddi því ekki því ég er ekki viss uma að hún talaði yfirhöfuð í dag ef hún hefði farið í skóla 10 ára eins og til stóð í stað þess að byrja í talkennslu fjögra ár. fólk má hafa sína fávísi en ekki troða henni á aðra.
Dísa (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 16:03
Góða skemmtun í afmælinu hans Úlfs og til hamingju með drenginn!
Jésú bróðir besti og félagi Lenín!! Jú, jú, þeir voru víst báðir "félagshyggjumenn", en eitthvað misfórst áhangendum þeirra beggja að mínu mati!
Sigrún Jónsdóttir, 8.3.2008 kl. 16:25
Til hamingju með afmælið Úlfurinn. Eigið góðan dag.
ÞE
Þórdís Einarsdóttir, 8.3.2008 kl. 17:24
Dísa það er von að þú fyrirgefir ekki svona fábjánahátt. Hvað gekk þeim eiginlega til ? Ótrúlegt alveg.
Takk Sigrún mín, já þeim misfórst víst eitthvað þeim sem áttu að bera merkið áfram, duttu um eigin duttlunga og græðgi víst.
Takk fyrir Úlfinn Þórdís mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 19:50
Gratjúlera þér með myndarlegaömmustráksuppáhaldið þitt & hitteríið líka.
Það vita þeir strákar sem þekkja & reynt hafa, að ekkert er betra en að vera í uppáhaldi hjá ísfirskri ömmu sinni.
Steingrímur Helgason, 8.3.2008 kl. 19:55
Skil þig nákvæmlega Steingrímur minn, hér talar maður með reynslu
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 20:26
Jamm og til hamingju líka með bleika daginn - eða þannig.. Knús á þig vestur!
Tiger, 8.3.2008 kl. 21:15
Takk TíCí minn. Jamm hrollur, hann siglir hratt að fermingu, ætli maður geti talið hann á borgaralega fermingu ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 21:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.