15.2.2008 | 14:05
Hvaða stefna verður ofan á í Framsóknarflokknum um sjávarútvegsmál.
Kvótakerfinu þarf að breyta segir Guðni, núna loksins, og gott mál að heyra það. Varaformaðurinn aftur á móti var spurð um þetta í Silfri Egils núna s.l. sunnudag, Egill spurði:
"Valgerður! ertu sammála Guðna um að afnema kvótakerfið. Valgerður. hann hefur nú ekki sagt það.Síðar segir hún; en ég er nú ansi treg til að gera miklar breytingar á þessu kerfi. Það hefur fært okkur gríðarlega mikið inn í hagkerfið, og er í raun landsbyggðaratvinnuvegur,sjávarútvegurinn. "
Og ég spyr hvar hefur þessi kona alið manninn, ef henni finnst að sjávarútvegurinn sé lyftistöng fyrir landsbyggðina í dag ? Eða er hagkerfið svokallaða bara ríkið og ríku karlarnir í þjóðfélaginu ?
Ég ætla að biðja fólk um að muna þessi orð hennar í næstu kosningum. Það er sem sagt allt í blóma í sjávarútveginum. Hún er allavega ekki í sömu veröld og ég, og það fólk sem hefur tjáð sig við mig, svo mikið er víst.
Þetta með hagræðinguna, hún er þannig að hún er til að færa örfáum allann gróða á kostnað hins almenna manns. En það er ekki bara svo einfalt, því skuldir sjávarútvegsins hafa vaxið um marga milljarða, og hækka enn.
Þessar skuldir eru að sliga sjávarútveginn, ekki ef til vill kvótagreifana sem hafa eignað sér allan fiskinn í sjónum, og vilja ennþá meira. Nei þær eru að sliga fyrirtækin sem eiga að standa undir veiðum og vinnslu.
Ég vek athygli á því að þessi kona var til skamms tíma iðnaðarráðherra og hafði á sinni könnu hinar dreyfðu byggðir landsins. Hún er samt ekki betur inn í málefnum þeirra en þetta.
Það er skömm að því hvernig illa upplýst fólk kemst til æðstu metorða í okkar litla landi. Það er beinlínis hættulegt þjóðfélaginu. Og það er mál að linni.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 44
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það væri fróðlegt ef þetta blessað fólk útskýrði einhverntíman almennilega fyrir okkur sauðsvörtum almúganum , í hverju þessi dásamlega hagræðing af kvótakerfinu er fólgin, og ekki síður ,hvernig það getur fullyrt að við séum betur stödd í dag vegna þess. Það er einsog þetta fólk haldi að allt hefði staðnað í sjávarútveginum fyrir aldarfjórðungi ef ekki hefði verið sett á þetta víðáttuvitlausa kvótakerfi.
Í landbúnaðinum eru þó foringjar bænda farnir að viðurkenna að kvótakerfið þar sé beinlínis skaðlegt. Enda sér hver heilvita maður að það getur ekki bætt starfsskilyrði nokkurrar greinar að setja inn í reksturinn stórkostlega íþyngjandi nýjan óþarfan kostnaðarlið sem gerir ekkert annað en að veita fjármagni út úr greininni og skuldsetja hana frekar!
Kristján H Theódórsson, 15.2.2008 kl. 14:31
Það er dálítið vandræðanlegt að lesa þennan texta og ég verð bara að viðukenna að ég roðnaði pínulítið fyrir hönd höfundar þegar ég las lokaorðin um illan upplýstan fyrirverandi ráðherra. Það er alltaf heppilegra að fólk kynni sér grundvallaratriði mála áður en það fer að tjá sig um efnið á innblásin hátt og saka annað fólk um fávísi. Ég mæli með því að Ásthildur taki nokkra tíma í hagfræði eða í það minnsta láti einhvern með viti lesa yfir textann. Allt það sem Valgerður sagði í viðtalinu er hægt að staðfesta með gögnum og rímar við það sem spökustu menn sem hafa stúderað fyrirbærið hafa haldið fram í ræðu og riti. Núverandi fyrirkomulag tryggir hámörkun arðsemis greinarinnar sem gagnast öllum þegnum þessa lands. Sjávarútvegurinn er einfaldlega of mikilvæg grein til þess að nota sem eitthvert félagslegt úrræði.
Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 14:34
Jæja, þá er nú best að segja lítið eftir svona komment, vil nú varla láta segja að ég sé illa upplýst. Mér finnst reyndar Valgerður oft tala út og suður og tek undir þetta með þér Ásthildur. Sér fólkið ekki hvernig komið er fyrir sjávarbyggðum landsins?? Að tryggja hámörkun arðsemis greinarinnar er ekki nóg ef peningurinn fer bara á fárra hendur, ekki græðir almenningur á því. Er ekki meiningin að við sitjum við sama borð og aðrir. ?? Góða helgi Ásthildur mín og enn og aftur verð ég að segja að ég er glöð yfir því að þú ert loksins komin HEIM í heilu lagi.
stubburinn og bóndinn örugglega alsælir.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 15:08
"Núverandi fyrirkomulag tryggir hámörkun arðsemis greinarinnar sem gagnast öllum þegnum þessa lands. "
Fólk sem talar svona er annað hvort illa upplýst eða með vísvitandi lygar. Þess vegna skaltu ekki þurfa að bera kinnroða fyrir mér ágæti Stefán. Það vill svo til að ég bý úti á landi og er í góðu sambandi við margt fólk hér. Bæði sem enn eru að reyna að berjast í útgerð, og svo þekki ég líka marga sem hafa misst allt út úr höndunum á sér sitja með húseignir sem eru verðlitlar, og geta hvorki verið né farið. Það er nú nefnilega svo, hvað sem öllum hagfræði- og stærðfræðiútreikningum líður, að þá hefur þetta framseljanlega kvótakerfi rústað bæði einstaklingum og heilu byggðunum, svo margar þeirra eiginlega flestar riða til falls, verði ekkert að gert. Sem ekki er líklegt með þá stjórn sem nú situr, né fyrrverandi ríkisstjórn.
Þar hefur verið haldið fast um kvótakerfi sem er eyðileggjandi í sjálfu sér, þ.e. brottkastkvetjandi, og ég held að fullyrða megi að milljarðar hafa farið í súginn vegna þess að þetta kerfi býður upp á að menn hendi aftur í sjóinn öllum fiski sem ekki passar við línuna sem þeir hafa. Meira að segja veit ég til að þeir hafa hent stórfiski, vegna þess að hann hentar ekki í pakkningarnar.
Svo er þetta kerfi meira að segja ólöglegt, ég vitna hér í blogg Björgvins Guðmundssonar, þar sem hann birtir úr bréfi úr Morgunblaðinu í dag, álitsgerðMannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
http://gudmundsson.blog.is/blog/bjorgvin_gudmundsson/
Föstudagur, 15. febrúar 2008
Kvótakerfið brot á mannréttindumBjörgvin Guðmundsson skrifar grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögninni:Kvótakerfið brot á mannréttindum.Þar segir svo m.a.:
Ísland brýtur mannréttindi með framkvæmd kvótakerfisins í sjávarútveginum.Það er úrskurður Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.Mannréttindanefndin segir, að kvótakerfið sé ósanngjarnt, það hygli þeim,sem upphaflega fengu úthlutað varanlegum kvóta en sumir hafi engan kvóta og geti ekki stundað útgerð og sjósókn þó þeir haf menntað sig til þess og eignast fiskiskip.Tveir sjómenn töldu brotið á sér þegar þeim var synjað um veiðiheimildir og þeir kærðu málið til Mannréttindanefndar Sþ. Nefndin hefur nú fellt úrskurð sinn.Nefndin gagnrýnir m.a. framsalið á kvótunum. Kvótar,sem upprunalegir handhafar nýti ekki lengur, gangi kaupum og sölum á markaðsverði og á leigumarkaði í stað þess að þeir renni til ríkisins á ný og sé úthlutað að nýju með réttlátum og sanngjörnum hætti.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Það er því einhver annar en ég sem er illa upplýst. ==========================================Takk elsku Ásdís mín. Þú er svo góð alltaf.Kristján Það merkilegasta við þetta allt saman er þöggunin, það má ekki tala um þetta og alltof margir halda að þetta sé þjóðhagslega hagkvæmt, þegar vitað er að kerfið er stórgallað og misskiptingin algjör. Hér þarf að upplýsa betur landkrabbana sem sjá gróðann í öllu þessu bröldi, þegar sannleikurinn er að sá gróði endar í örfáum vösum, og svo í nokkra kosningasjóði fyrir kosningar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 16:24
Ég vona nú að Stefánar þessa lands fái nú betra að borða á morgun & framvegis en þessi Stefán Örn Valdimarson fékk að borða í dag & dagana þaráður.
Andlegar iðrakveisur af þessu tagi sem að virka með þessum hætti á miðtaugakerfið & heilastarfsemina má nefnilega oftlega rekja til hættulegs mataræðis.
Steingrímur Helgason, 15.2.2008 kl. 20:46
Já nefnilega, iðrakveisa getur valdið allskonar illþyrmislegum andlegum kvillum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.