Valentín og fegurð í ýmsum myndum.

Valentínusardagurinn hefur fengið aðra merkingu hjá mér.  Ég svo sem hugsaði ekkert um hann sem slíkan, en fyrir ári síðan þá fékk hann alveg nýja merkingu.   Því þann dag fæddist lítil prinessa, hún fæddist á þessum hjartardegi með tvær Ásthildar í kring um sig, svo hún er svo sannarlega algjör engill.

IMG_2649

Til hamingju litla ljósið hennar ömmu sinnar.

IMG_2651

Afi varð auðvitað að prófa kórónuna líka. 

IMG_2654

Og stóri bróðir gerði sitt líka.

IMG_2643

Annars er fjör aftur að færast í kúluna okkar.

IMG_2634

Fallegt veður á leiðinni heim í gær.

IMG_2638

Ísköld fegurð og æðisleg birta.

IMG_2639

Svo tröllin döguðu uppi á Ströndunum, enda eru þar galdrar og vættir miklar. 

En það er gott að vera komin heim. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Solis

Finar myndir,falleg born

Ásta Björk Solis, 14.2.2008 kl. 20:26

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með skottuna.  Fallegar myndir að venju en heimleiðin kuldaleg. Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 20:31

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Jenný mín heimleiðin var kuldaleg, en samt falleg.

Takk Ásta  mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 20:41

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með litlu dúlluna

Huld S. Ringsted, 14.2.2008 kl. 21:01

5 identicon

Til hamingju með litlu snúlluna

Maddý (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 21:11

6 identicon

p.s. Flottar myndir, alltaf gaman að skoða myndir!!!  

Maddý (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 21:11

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar.  Hún er æði

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 21:23

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þakka fyrir allar góðu kveðjurnar og knúsið mín göfuga frú Á.C.! Fallegt af þér!

Og já til lukku með litla ömmuengilinn!

En einhver tregaskugga ber samt fyrir gleðisól þína í dag sá ég fyrr í dag, svo ég segi þetta við þig.

Þótt falli ljósið fjarri braut,

fjárans myrkrið hrelli.

Láttu eigi lífsins þraut,

leggja þig að velli!

Þetta er svona tilbrigði við stef sem ég hef áður í svipuðum dúr sett á blað.

Magnús Geir Guðmundsson, 14.2.2008 kl. 21:40

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þessi fallegu orð og ljóðið Magnús minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 22:06

10 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Til hamingju með þessa yndislegu stelpu

Sunna Dóra Möller, 14.2.2008 kl. 22:24

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Sunna Dóra mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 22:30

12 Smámynd: Brynja skordal

Til lukku með dúlluna mikið krútt en já myndirnar flottar finnst æði að sjá allar myndirnar að vestan enda bjó ég þarna í 13 ár= Víkinni og á Dóttir sem býr á ísafirði núna hún náði að krækja sér í ísfirðing áður en við fluttum sem er bara gott mál

Brynja skordal, 14.2.2008 kl. 22:57

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ekkert að þakka!

Magnús Geir Guðmundsson, 14.2.2008 kl. 23:13

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Brynja mín nú verður maður dálítið forvitinn

Magnús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 23:57

15 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku Ásthildur. Mikið er gott að vita að þú ert komin heim í heilu lagi.  Fallegar myndir að vanda og til hamingju með litlu stúlkuna.  Hún verður örugglega kjarnakvenmaður eins og amma hennar.  Ég held að Ísafjörður og nágrenni fari að blómstra núna þegar þú ert komin í kúluna þína.  Kær kveðja til þín og þinna 

Ásdís Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 00:15

16 Smámynd: Brynja skordal

jah bæði kallinn minn og tengdasonur bera nafnið Magnús dótlan mín heitir ólafía og er stundum að vinna í krílinu og svo með skólanum á sjúkrahúsinu er að útskrifast sem sjúkraliði eru einhverju nær mín kæra?

Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 00:17

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með stúlkuna í gær

Flottar myndir og geysilega falleg birta

Hrönn Sigurðardóttir, 15.2.2008 kl. 08:53

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elsku Ásdís mín fyrir þessi orð

J'a Brynja mín, það kviknar ljós

Takk Blue mín.

Takk Hrönn mín elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 09:09

19 Smámynd: Brynja skordal

flott

Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 11:40

20 Smámynd: Solla Guðjóns

Til hamingju með ömmukrúttið og hin krúttin.Bóndinn þinn er bara mjög krúttlegur með kórónu.

Solla Guðjóns, 15.2.2008 kl. 11:47

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já finnst þér ekki Solla mín

Takk Brynja mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband