Frændaknús og örbrot af Danmörku.

Jæja loksins komin heim, er að komast inn í daglega rútínu, margt sem þarf að gera.  Hér er rok og rigning, og frekar dapurlegur dagur fyrir mig.   En það er persónulegt. Heart

Blessað ljós ég bið þig nú

að brjóst oss innra fyllir þú

af heitri gleði og hreinni trú.  Megi allir góðir vættir vaka með mínu fólki og vernda.  Knús tíu sinnum HeartHeartHeart

SL730071

Frændaknús, þessi ungi maður var mikið í fótboltanum, yndislegur systursonur minn.

SL730095

Þessi hér er bróðir hans, jafn yndislegur hann barðist í Írak, en kom sem betur fer heill heim. 

2008 heimferð frá Vín. febr. 076

þriðji bróðirinn það var virkilega gaman að hitta þá alla þrjá hjá henni systur minni og manninum hennar. 

2008 heimferð frá Vín. febr. 079

Hér er hann að æfa sig undir afa hlutverkið, hehehe.... hann átti nefnilega bara stráka  með systu sko , og segist ekki kunna neitt á stelpur, svo það er eins gott að æfa sig þegar tækifæri gefst.  Enda dekraði hann við Hönnu Sólina.

SL730050

Hér er svo litla sys, hún er að læra hebresku og grísku auk fleiri tungumála.  Rosalega dugleg.  Takk Sigga mín og þið öll fyrir frábærar viðtökur og gestrisni.

2008 heimferð frá Vín. febr. 064

Hér erum við svo í fjörunni í Köge, hér er hægt að labba ströndina alla leið til Kaupmannahafnar.

SL730065

Stubban eins og blóm í eggi.

SL730089

Hér erum við systur að keppast um að halda á litla frænda okkar Stefáni Eyjólfssyni hennar Sunnu.

2008 heimferð frá Vín. febr. 097

Hér er svo hin nýbakaða hamingjusama fjölskylda.

2008 heimferð frá Vín. febr. 082

Þeir feðgar tóku nokkur lög á gítara, þeir eru bara mjög færir spilara.

2008 heimferð frá Vín. febr. 122

Skoðuðum líka gamla bæinni í Köge, mjög gömul og falleg hús þar mörg.

2008 heimferð frá Vín. febr. 124

Þetta er örugglega sleði jólasveinsins.  Hann er svo gamall.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er gott að þú ert komin heim  Ásthildur mín ég heyri á þér að eitthvað hefur komið fyrir megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.2.2008 kl. 11:59

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Katla mín.  Já stundum ber sorgin að dyrum í ýmsum myndum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 12:22

3 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Velkomin heim. Sendi bænaljós til þín

Ragnhildur Jónsdóttir, 14.2.2008 kl. 13:19

4 Smámynd: Brynja skordal

Velkomin heim í heiðardalin flottar myndir sendi þér knús

Brynja skordal, 14.2.2008 kl. 13:28

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Loksins komin á leiðarenda! alltaf gott að koma heim. Leiðinlegt að heyra að sorgin hafi barið dyra í einhverri mynd, sendi þér góðar hugsanir og knús

Huld S. Ringsted, 14.2.2008 kl. 13:39

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar saman.  Já það er gott að vera komin heim. 

Hallgerður mín

Takk Ragnhildur mín.

Takk Brynja mín og velkominn í vinahópinn minn.

Takk Huld mín, já svona er lífið, upp og niður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 13:42

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gott að fá þig aftur heim og alltaf eru myndirnar þínar jafn skemmtilegar.  Góður Guð gefi þér styrk í sorginni, sendi þér góðar hugsanir.

Jóhann Elíasson, 14.2.2008 kl. 14:38

8 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Gaman að fá að sjá allar þessar myndir, takk fyrir það.

Leitt að heyra að sorgin hafi barið dyra hjá þér, góður Guð styrki þig.

Greta Björg Úlfsdóttir, 14.2.2008 kl. 14:43

9 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

falleg bænin þín kæra cesil.

ég var í köge í dag í dásamlegri sól. köge er fallegur bær !

Ljós og Kærleikur til þín og þeirra sem á þurfa að halda.

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 14.2.2008 kl. 14:48

10 identicon

Vááá - enn einu sinni alveg frábærar myndir. Gott að fá þig heim á klakann aftur. Hlakka til að sjá og lesa meira.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 14:54

11 Smámynd: Helga skjol

Velkominn heim,sendi þér knús og góðar bænir.

kærleikskveðja.Helga. 

Helga skjol, 14.2.2008 kl. 15:26

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul þið eruð svo yndæl og góð við mig.

Takk Jóhann minn.

Ég er að springa af öllum þessum myndum Gréta mín.  Takk.

Steinunn mín, vorið er komið hjá þér greinilega.

Takk Anna mín.

Takk fyrir knúsið Helga mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 15:41

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

 Knús á þig á þessum degi, ekkert annað núna segi.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 14.2.2008 kl. 15:47

14 Smámynd: Halla Rut

Velkomin heim. Er það ekki bara gott?

Halla Rut , 14.2.2008 kl. 15:58

15 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Velkomin heim á ný

Sunna Dóra Möller, 14.2.2008 kl. 16:22

16 identicon

Velkomin heim Ásthildur mín, knús

Maddý (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 16:34

17 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 14.2.2008 kl. 16:51

18 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Velkomin heim Ásthildur mín.  Innilegar kveðjur til þín.      

Þorkell Sigurjónsson, 14.2.2008 kl. 17:07

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Velkomin heim og takk fyrir yndislegar myndir.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 17:35

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk öll sömul, jú það er aldeilis gott að vera komin heim í heiðardalinn.

Nú fer lífið að færast í sama horf og fyrr hjá mér.   

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 17:37

21 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Missý mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 18:00

22 Smámynd: Laufey B Waage

Takk fyrir síðast mín kæra. Virkilega góð stund fannst mér.

Falleg bænin þín. Ég bið líka fyrir þér og þinni fjölskyldu. 

Laufey B Waage, 14.2.2008 kl. 23:38

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Laufey mín þetta var frábær stund sem við áttum þarna saman.  Takk

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 23:56

24 Smámynd: Solla Guðjóns

Gott að þú ert nú komin heim til þín,Fallleg bænin sem vonandi hefur hjálpað.

Myndirar eru æði eins og alltaf og gaman að sjá meira af fjölskyldu þinni.

Solla Guðjóns, 15.2.2008 kl. 11:43

25 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

 Takk Solla mín, það er allt bjartara núna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2008 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023284

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband