Still here.

Já eins og veðrið hefur verið gott hér í henni Reykjavík, þá hefur það verið frekar rysjótt heima, svo ekki var fært að fara heim í dag.  En við höfum samt átt góða daga.

Við fórum á mjög notalegan kínverskan matsölustað í hádeginu í gær.

Í reykjavík febrúar 2008 001

Hanna Sólin og pabbi hennar. 

Í reykjavík febrúar 2008 003

Heimsótti yndislegu barnabörnin mín, sem búa hér í Reykjavík, hér eru þau Júlíana og Daníel með litlu systur sína.

Í reykjavík febrúar 2008 005

Svo bauð Laufey vinkona mín og bloggvinur okkur í mat í kvöld og við áttum ferlega skemmtilegt spjall um gamla daga, Sara var eiginlega með okkur, því þarna eru mörg verk eftir hana, m.a. þessi mynd sem er fyrir ofan okkur.  Myndin greinilega af húsmóðurinni.

Við fengum mjög ljúffengan pönnurétt, og hittum hennar elskulega, hann er jafnvel ennþá flottari en hún hefur lýst honum.

Í reykjavík febrúar 2008 006

Sú litla hafði það líka rosalega nice eins og sjá má, þessi er fyrir mömmu hennar.

Í reykjavík febrúar 2008 007

Við erum sko flottastar, takk elsku Laufey mín fyrir frábært kvöld. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert nú í annarri veröld. Alveg ljóst.  Vona að þú farir að komast heim.  

Ásdís Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 23:25

2 Smámynd: Laufey B Waage

Takk sömuleiðis elsku Ía mín, það var meiri háttar frábært að fá ykkur. Hlakka til að sjá ykkur aftur um helgina (eins gott að það verði flogið).

Laufey B Waage, 12.2.2008 kl. 23:32

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já Laufey mín á þorrablóti er gott að vera og gaman að hitta vini og vandamenn.

Takk Ásdís mín, já ég vona að ég fari að komast heim

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 23:56

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Meiri þvælingurinn á þér kona, svona, drífa sig heim, kúlan bíður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 00:09

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Rík ertu vinkona af ættleggnum þínum.

Ég kemst vonandi líka heim á morgun, flugleiðina, enda þorrablót strendínga um helgina.

B. kv.

Steingrímur Helgason, 13.2.2008 kl. 00:18

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm Jenný nú legg ég í hann.

V'ist er ég rík Steingrímur minn, vonandi komumst við bæði heim.

Það hefði verið gaman ef þú hefðir komið líka Sara mín, þetta var virkilega skemmtileg og notaleg stund sem við áttum.

Takk Inga Brá mín.  'Eg hef það í huga ef ég kem aftur til Boston, ég hef nefnilega gist þar einu sinni, skoðaði gamla verslunarsentrúmið, sem er rosalega flott, og fór svo á barinn sem er innréttaður eins og Cheers og fékk mér rándýrt rauðvín.  Hefði viljað stoppa lengur.  En þetta var bara millilending.

Einmitt Blue mín, eitt af því sem er nauðsynlegt að rækta er fjólkið manns. 

Takk öll sömul, nú er ég að leggja í hann.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2008 kl. 10:11

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Alltaf gaman hjá þér Ásthildur mín hafðu það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.2.2008 kl. 11:10

8 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Það virðist alltaf bjart og skemmtilegt hjá þér Ásthildur og gaman að fá að "ferðast með þér" í gegnum frásagnir og myndir. Góða ferð restina af leiðinni.

Ragnhildur Jónsdóttir, 13.2.2008 kl. 14:29

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mér sýnist nú ekkert væsa um þig í borginni, gangi þér vel á heimferðinni

Huld S. Ringsted, 13.2.2008 kl. 17:24

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú hefur það nú grinilega alveg ágætt þarna

Solla Guðjóns, 13.2.2008 kl. 18:51

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það hefur nú ekki verið fýsilegt að leggja í langferð vestur upp á síðkastið. Vona samt, þín vegna að þú farir að komast! Er alveg sannfærð um að þar eru nokkrir sem sakna þín

Hrönn Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 20:23

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eins og það er nú gaman að ferðast og skoða sig um þá er nú alltaf voða gott að koma aftur heim og sofa í sínu rúmi...góða heimferð Ásthildur mín...ég sá nú hana Laufey á laugardaginn á sýningunni hennar Söru en vissi þá ekkert að þetta væri bloggkona.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 20:37

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Katla mín elskuleg.

Takk Ragnhildur mín, þetta er aldeilis búið að vera ferð í lagi.

Nei Huld það væsti ekki um mig í borginni.  Hitti marga ættingja mína þar.

Solla mín jamm, ég er ánægjupúki

ÉG get sagt þér það Hrönn mín að á Súðavíkurhlíðinni var snjóskriða í hverri skoru, það var dálítið krípí, það get ég sagt þér.

Segðu Katrín mín, það var yndislegt að leggjast á koddann sinn, og dýnuna sem ég er vön.  Laufey og Sara eru báðar bloggarar hér, og ísfirðingar.  Sá mest eftir að hafa ekki komist á sýninguna hennar.  En ég sá fullt af verkum eftir hana hjá Laufeyju.  Svo það var sárabót.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 10:17

14 identicon

Gott að vita að þú ert komin heim í kúluna

Kidda (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 10:45

15 identicon

Elsku Íja mín, gott að vita að þú ert komin heil heim. Skilaðu kveðju minni, ekki síst til fjallanna okkar

Magndís Grímsdóttir (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 11:06

16 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Næst ertu boðin í kaffi hjá mér

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 14.2.2008 kl. 11:22

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín.

Kúluhúsið mitt Hallgerður mín.

Ég skal svo sannarlega skila kveðju frá þér Dísa mín.

Takk Anna mín, hef samband, næst þegar ég stoppa

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.2.2008 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023284

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband