Komnar til Reykjavíkur.

Loksins, það var bara gott veður á leiðinni og litla fröken Hanna Sól alveg eins og engill.  Talvan mín er að fyllast af myndum, og batteríið búið, en ég ætla að setja inn þrjár myndir hér núna, en lofa ykkur myndasýningum á næstunni.  Búin að hafa það yndislega gott, hjá Siggu systur minni í Danmörku og fjölskyldu hennar, og svo var mjög gaman að heimsækja Sunnu og skoða litla frænda.  Ég hitti svo Bjössa og litla manninn hér áðan, en ætla að skoða í fyrrmálið hvort ég næ að hitta litlu stelpuna mína hana Júlíönu, ég vil svo gjarnan skoða nýja heimilið hennar.  En ég veit ekki hve lengi hún er í skólanum. 

Við erum orðnar dálítið þvældar og þreyttar ömgurnar.  Pabbi hennar Hönnu Sólar er reyndar hér í heimsókn, og er í þessum skrifuðum orðum að svæfa hana. 

Annars er allt gott, mikið eruð þið elskuleg og yndæl öll saman.  Knús á ykkur.

IMG_2547

Á leiðinni til Damerkur.  Maður er nú heimsdama sko !!!

IMG_2548

Skýjum ofar, þetta er landið sunnan við sól og austan við mána.

IMG_2549

Og á flugvellinum í Köben.  En við erum sum sé komnar á næsta áfangastað.  Heart Takk fyrir öll hlýju orðin og ábendingarnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Velkomin á skerið ...

Steingrímur Helgason, 11.2.2008 kl. 20:53

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Steingrímur minn

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2008 kl. 20:54

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið er nú gott að vita af þér heilli heima á Fróni. Þetta er nú búið að vera mikið ferðalag og þú þarft að safna kröftum heima í kúlunni þinni áður en plönturnar fara að skjóta upp kollinum.  Elska þig hreinlega ljúfa kona.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 21:17

4 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nú gerist það sem þó sjaldan hendir, að ég get heilshugar tekið undir með STeingrími Stjarnhuga,hjartanlega velkomin aftur mín góða vinkona Ásthildur hin ómótstæðilega aðlaðandi!

Vonandi gengur svo lokaferðin heim í kringlótta kærleikshúsið vel og farsælega!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 21:22

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Velkomin heim

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 11.2.2008 kl. 21:27

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Velkomin heim elsku Ásthildur mín ég er búinn að sakna þín.

Kristín Katla Árnadóttir, 11.2.2008 kl. 21:50

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Velkomnar heim !

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.2.2008 kl. 21:52

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehe Inga Brá mín, þrátt fyrir allt er best að vera heima. 

Takk Hulda Bergrós mín.

Takk Magnús minn, elskulegur

Love you too Ásdís mín elskuleg. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2008 kl. 21:53

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Katla mín, ég vona að þú hafir það gott, og sért kát og hraust. 

Takk Jóhanna mín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.2.2008 kl. 21:59

10 identicon

Já ég var að velta því fyrir mér af hverju veðrið varð allt í einu svona þægilegt.   Velkomin á klakann.  Áframhaldandi góða ferð.

Elisabet R (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 23:27

11 identicon

Velkomin heim mín kæra ...

Maddý (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 23:31

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Velkomnar heim og ég bíð spennt eftir myndum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.2.2008 kl. 23:54

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hehehe BetA mín, jamm þetta er náttúrulega bara að ég lofaði að koma heim með góða veðrið.

Takkk Maddý mín.

Jamm elskuleg lofa krúttmyndum mín kæra elskulega Jenný

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 00:38

14 Smámynd: Heiða  Þórðar

Velkomin elskan.

Heiða Þórðar, 12.2.2008 kl. 01:16

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Velkomin elskling.Hlakka til að sjá myndirnar þínar.

Solla Guðjóns, 12.2.2008 kl. 01:21

16 Smámynd: Laufey B Waage

Og á ekki að kíkja í heimsókn? - eða hittast á kaffihúsi? - eða skoða sýninguna hennar Söru? - eða ......? Þú þarft sko ekki að láta þér leiðast í Reykjavík. Ég get verið á lausu til kl 12 í dag.

Laufey B Waage, 12.2.2008 kl. 09:15

17 identicon

Velkomnar heim Vona að ferðin vestur gangi vel.

Kidda (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 10:51

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Heiða mín.

Takk Solla mín.

Knús Blá mín.

Já einmitt Hallgerður, þetta þarna uppi er ævintýraland.

Laufey, ég er til í kaffihús og sýninguna hennar Söru, hef verið að reyna að skoða hvað hún er, en finn það ekki, ekki heldur á blogginu hennar.  Það lítur ekki út fyrir að ég komist heim í dag, því það er spólvitlaust veður heima, mér er farið að líða eins og Túrillu frá færeyjum  Ég ætla að hringja í þig á eftir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 10:51

19 Smámynd: Huld S. Ringsted

Velkomin heim, vonandi kemstu alla leið fljótlega

Huld S. Ringsted, 12.2.2008 kl. 10:57

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Huld mín, já vonandi, heima er alltaf best. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 11:49

21 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

Velkomin til íslands !

Bless í dag

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 13:20

22 identicon

Velkomin heim :):) en þér er ekki ætlað að komast vestur aftur :):)

en við bíðum róleg hér eftir komu þinni :)

mér þætti nú ekkert slor að vera boðin í læri og heimsins bestu sósu um helgina :):)??

snjókveðjur frá Ísó

Tinna Tengdó

Tinna (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 14:44

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar saman.

Já Tinna mín, það verður örugglega hægt að koma því við ef ég kemst þá vestur, er farin að efast um það

BLessun til þín líka Steina mín. 

Jóhanna mín er ánægjan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2008 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023284

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband