Á ferð og flugi, og í stöðugleika.

Takk fyrir hlý orð og kveðjur elskurnar.  Ég ákvað að vera um kyrrt í Kaupmannahöfn, eftir að Elli minn sagði mér að það væri allt ófært, líka til Keflavíkur, eins og reyndar Maddy var búin að tala um.   Systir mín er með nóg pláss, svo ég ákvað bara að bíða þetta af mér og koma ekki heim fyrr en á mánudaginn.  Frétti af íslendingum sem komu í gær um fimmleytið að heiman, voru þá búin að vera að dingla og hringla í flugfélinni og í flugstöðinni frá því kl. 6 um morguninn, biðu 4 tíma út í vél áður en hún fór í loftið.  Og voru orðnir ansi pirraðir á þessu.  Og vélin sem ég átti að fara með, kom víst aldri í gær. 

En ég ætla bara að eiga nokkra góða daga hér í köben, eða í Köge.  FLottur staður og rétt hjá ströndinni. 

Reyni ef til vill að senda ykkur myndir seinna.  Hanna Sólin var eins og engill alla ferðina og hún er eins og ljós, ef þið lesið þetta Bára mín og Bjarki.   Við erum bara að hafa það rosalega notalegt.  Ég er búin að fá staðfestinguna á miðabreytingunni frá Iceland Express.  Ég ef ekki séð fjölskyldunna hennar Siggu systir í átta ár, strákarnir orðnir fullorðnir menn með kærustur.  Fæ að hitta þau öll, áður en ég fer heim.  Hér verður smá knall í kvöld, svo það er dekrað við mig algjörlega. 

Með bestu kveðjum frá mér til ykkar allra þarna úti sem hugsið til mín.  Love you all.  Heart

Blóm í garðskála 22 mars 2007 005

Hér er smá blóm svona inn í allan snjóinn.  Prímúla. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég sakna þín mikið en skemmtu þér vel Köben og hafið þið það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.2.2008 kl. 10:34

2 identicon

Þetta var gáfuleg ákvörðun.  Hér er stormur.  Köben er flottur staður og það sem meira er - rétt hjá Falsterbo!!! Eða ca. klukkutímaakstur yfir brúna og svona.

Góða ferð heim þegar heim er haldið, þangað til góða skemmtun. 

Elisabet R (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 11:52

3 identicon

Glæsilegt hjá þér!  Það er ekkert eins leiðinlegt og að bíða í flughöfnum og flugvélum.  Núna er komin rigning og flóð á leiðinni, þú kemur bara í vor ....

Maddý (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 12:04

4 identicon

Njóttu dvalarinnar, þú losnar við rokið og rigninguna sem spáð er með kvöldinu. Skilaðu kveðju til Siggu ef hún man eftir mér, hún var svo lítil þegar ég fór. Þó ég sé bara sautján enn. Vona að þú fáir gott veður á heimferð svo þú þurfir ekki að hrekjast meira.

Dísa (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 12:08

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta var gáfuleg ákvörðun!! Köge er yndislegur staður.

Hrönn Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 12:45

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sniðug kona, það er ekkert ferðaveður á Íslandi núna! Hafðu það gott í Köben Ásthildur mín

Huld S. Ringsted, 8.2.2008 kl. 12:57

7 identicon

Þetta var hárrétt ákvörðun hjá þér.

Njóttu þess að vera úti á meðan veðrið gengur yfir. Komdu svo með vorið með þér, fyrst að snjórinn á að hverfa.

knús

Kidda (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:39

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú varstu sniðug, ekkert hingað að gera í þessu veðri.  EIn dóttir mín fór til Danm. í gær og var ein af þeim sem sat í vél í 4 tíma. En hún var komin til Söndeborg kl. 9 í gærkvöldi.  Hafðu það rosa gott mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 15:02

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu Köben, er hér allt í stormi og tjóni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.2.2008 kl. 15:02

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk allar saman, já ég er hér eins og blóm í eggi.  Að týna saman minningarbrotinn með henni Siggu systur minn.  Það er mikið hlegið og rabbað hér, svo verður farið á blues í kvöld.  Sendi ykkur góðar kveðjur inn í snjóinn, rokið og rigninguna

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.2.2008 kl. 15:06

11 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Takk fyrir blómin, þau minna mann á að það muni koma betri tíð.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 8.2.2008 kl. 18:07

12 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo framarlega sem ég Þarf ekki að þjóta beint heim, þá mæti ég Sara mín. 

Matthilda mín, já hér er tími prímúlanna og páskaliljanna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.2.2008 kl. 21:10

13 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 9.2.2008 kl. 03:14

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.2.2008 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2023281

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband