Skógarferð.

Já við fórum í skógarferð í dag.  Það tekur bara fimm mínútur að hjóla út úr borginni og inn í skóginn.

Skógarferð 5.2.08 030

Nóg af hjólum, hjólageymsla tanksins greinilega.

Skógarferð 5.2.08 034

Við erum klárar í slagin og lagðar af stað.

Skógarferð 5.2.08 037

Göngu- og hjólabrú yfir kanalinn, járnbrautarsporin og nokkrar umferðaræðar.

Skógarferð 5.2.08 038

Hátt uppi.

Skógarferð 5.2.08 040

Og komnar út í skóg.  Þetta er steinsnar frá öllu argaþrasinu og umferðinni, og bara kominn inn í kyrrð og ró.

Skógarferð 5.2.08 045

Svo var aðeins stoppað, til að fá sér banana og svoleiðis, það fór vel um þær stuttu í þessari hjólakerru. Sést hvaðan hún er upprunnin. Smile

Skógarferð 5.2.08 052

Sú gamla lét sig ekki muna um að hjóla heldur.

Skógarferð 5.2.08 058

Hnökrarnir eru mistilteinar, þessir sem maður kyssir undir á jólunum.  Mistilteinninn er sníkjuplanta, sem lifir á öðrum trjám.

Skógarferð 5.2.08 067

Hér er svo allslags leiktæki og hvíldarstaðir.  En skógurinn er risastór, og í honum á bambi heima, þau eru hér villt dádýrin.

Skógarferð 5.2.08 072

Það er margt skemmtilegt gert fyrir börnin.

Skógarferð 5.2.08 074

Hér eru Rómína og Trölli.  Rómína býr hjá ömmu sinni í Rússlandi, þar er ekki heitt vatn í húsinu, heldur ekki kalt vatn, þær þvo sér úr ánni sem rennur rétt hjá húsinu, en þær eiga heima í litlu þorpi.

Skógarferð 5.2.08 084

Fallegir fuglar á vatninu, þetta vatn frýs á veturna og er þá notað sem skautasvell.

Skógarferð 5.2.08 089

FLottur.

Skógarferð 5.2.08 092

Og eins og sjá má, þá eru tré og runnar farin að bruma, Jasmín sá ég reyndar í fullum blóma í gær.

Skógarferð 5.2.08 094

Gaman að leika sér við vatnið.

Skógarferð 5.2.08 096

Í þessari fótboltahöll fer heimsmeistaramótið fram í júlí í sumar, risastór og ljósgræn.  Það hefur verið styr um þetta, því það þurfti að fjarlæga einhver gömul tré af öryggisástæðum, svo hægt væri að tryggja öryggi þátttakenda.

Skógarferð 5.2.08 098

Og það er verið að gera fínt fyrir mótið.

Skógarferð 5.2.08 099

Hér er tilbúin snjóbrekka, það er settur í hana tilbúinn snjór, en nú er allt að bráðna og fara, því það er svo hlýtt.

Skógarferð 5.2.08 100

Og allstaðar eru skemmtitæki fyrir börnin.

Skógarferð 5.2.08 105

Og svo þurfti maður náttúrulega að skoða trén, þarna er mikið um eik, birki og hrossakastaníu.  Og svo ávaxtatré, plómur, epli og slík.  Austurríki er mjög gjöfult land fyrir landbúnað.  Hér er mikill raki, sérstaklega upp í fjöllum að allt grær vel og mikið.  Einn frændi minn á hér skammt frá ávaxtabúgarð, sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni austurrískri, ég er að tala um Leó frænda og Ericu.  Þau eru bæði listamenn, en hafa ávaxtagarðinn sem aukabúgrein.  Ég er ákveðin í að heimsækja þau þegar ég kem við aðrar aðstæður en nú er.  Þau búa í Gras.

En nú var haldið heim, enda litlu stúlkurnar orðnar svangar og þreyttar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk stelpur mínar, ég hef mjög gaman af þessu, og gaman af að miðla því sem ég upplifi.  Koma gullkornunum til þeirra sem nenna að lesa það sem ég skrifa.  Svo þeir fái líka nasasjón af hinum ýmsu stöðum og uppákomum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 12:42

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æðislega gaman að fara í skógarferð með þér.  Takk fyrir fallegar myndir.  Hvað er annars heitt hjá ykkur?  Kær kveðja.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 12:49

3 identicon

       Sæl vinkona ,gaman að sjá þig á hjóli .Það var eitt af því skemmtilegasta sem ég gerði.Nú er ég komin með ,,þríhjól" sem ég var með í Súðavík síðast þegar ég var þar.

             Súðavíkur kveðjur til Vín og ástar-þakkir fyrir stuðningin

                                      SVANNA!

Svanfríður Guðrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 12:50

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hér er svona um það bið 17° og hálf sól, mjög gott veður. 

Takk fyrir góðar kveðju báðar tvær,

þríhjólið gerir sitt gagn Svanna mín, það er nú líkast til. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 13:40

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég gæti svosem hjólað út í skóg líka....

.....ef ég færi mjög varlega  En það er hætt við því að mér yrði kalt á bossanum ef ég settist í snjóinn.....

Flottar myndir!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.2.2008 kl. 13:49

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú færir örugglega létt með það Hrönn mín, með þessa leikfimi og göngutúra.  Þá hlýtur þú að vera í toppformi.  En það er hætt við að bossi yrði kaldur, satt er það

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 13:57

7 identicon

Er alveg búin að sjá það að næst þegar þú þarft að aðstoða Báru við barnapössun, þá þarftu andlegan stuðning, þ.e.a.s. mig :):):)

er staðráðin í að heimsækja Báru í nánustu framtíð :):)

 mikið barnafjör hér, úlfurinn og ale jandra gistu, rosa fjör hér allir búnir að fara út að viðra sig eftir nammiátið síðan í gær og í morgunmat!! já þú last rétt nammi í morgunmat, þau leifa sér allt meðan ég er þreytt og kemst ekki á fætur jafnt og þau!! var að vísu búin að hóta þeim í gær að hausar fengju að fjúka ef þau vöknuðu fyrir klukkan 10 því þau fóru að sofa kl 1 !!  þau eru svo vel upp alin að þau að sjálfsögðu hlýddu því! þau eru líka fljót að átta sig á því að þegar nammi er annars vegar, og í svona miklu magni þá þarf ég að taka toll af því :):)

sakn og knús og kram og allt :):)

nammigrísirnir stórholti 11 :)

Tinna tengdó (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 14:00

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Oh hvað ég vildi að ég væri þarna hafðu það gott Ásthildur mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 5.2.2008 kl. 14:04

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær Tinna mín hehehe.... auðvitað þarf að taka toll af namminu  Það hefði verið frábært að hafa þig hér líka elskuleg.  Þú hefðir gaman af að vera hér hjá Báru.

Takk Katla mín.  Já þú hefðir gott af að koma og vera í ró. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 18:09

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 19:37

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 20:43

12 identicon

Vá hvað þetta eru skemmtilegar myndir. Mig langar til útlanda. Þú átt gott - njóttu - knús til ín

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 20:47

13 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hvernig er þetta með þig kona, ertu alltaf á flakki, unir þú ekkert heima hjá þér ?

Fínar myndir & ferðasögur sem ætíð....

Steingrímur Helgason, 5.2.2008 kl. 21:04

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Anna mín, og knús á móti.

Steingrímur ég helst sennilega ekki mjög vel við á skerinu okkar hehehe.. En nú varð ég að fara og hjálpa stelpunni minni svo hún gæti lesið undir erfið próf sem hún var að taka.  Vonandi hjálpaði það henni til að ná þeim, eða allavega að vera betur undirbúin undir endurupptöku.  Hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 21:44

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Dásamlegt.

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023266

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband