4.2.2008 | 15:31
Maskadagurinn í dag.
Ísfirðingar eins gott að muna eftir namminu í kvöld, þegar litlir gestir berja að dyrum og syngja eða bara sníkja nammi.
bb.is | 04.02.2008 | 10:22Maskað í dag
Upp er runninn bolludagur og samkvæmt rótgróinni ísfirskri hefð ganga börn í hús íklædd grímubúningum og sníkja nammi. Þrátt fyrir að aðrir Íslendingar hafi kosið að nota öskudaginn til þessara hluta halda Ísfirðingar sínu striki á bolludaginn. Sá siður að flengja sína nánustu með bolluvendi í því skyni að fá að launum gómsætar bollur hefur einnig löngum verið viðhafður á Vestfjörðum og ekki er líklegt að hann leggist af meðan bollur reynast jafn gómsætar og raun ber vitni en í dag nær bollusala Gamla bakarísins og Bakarans á Ísafirði hámarki. Öllum þeim sem aðfluttir eru og ekki orðnir aðlagaðir siðum og venjum Ísfirðinga er bent á að birgja sig upp af sætindum og undirbúa sig fyrir stórkostlega búningasýningu ísfirskra barna í kvöld.
Þessar verða sennilega ekki að maska í kvöld, því samkvæmt BB er hún fjögurra ára gömul, svo þessar dömur telja sig örugglega of gamlar til að maska.
En ég óska ykkur öllum góðs maskakvölds, og krýlin mín sem eru að maska, afi lumar vonandi á sælgæti fyrir þá sem banka uppá hjá honum.
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 14
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023262
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skemmtilegur siður hjá ykkur á Ísafirði og ég vissum að það gleymist ekki
Kristín Katla Árnadóttir, 4.2.2008 kl. 16:53
Nei vinandi ekki Katla mín, það verður allavega panik þar sem slíkt gleymist
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 17:02
Góða skemmtun.
Jenný Anna Baldursdóttir, 4.2.2008 kl. 17:13
Þessi siður er líka í Færeyjum, þ.e.a.s. að börnin klæða sig upp og ganga um bæinn og banka uppá hjá fólki og biðja um nammi. Það kallast að ganga gríla.
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 4.2.2008 kl. 17:49
Gleðilegan Maskadag!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.2.2008 kl. 17:53
Reyndar er maskað hér líka á þessum degi, var því miður ekki með myndavélina, en hér voru krakkar í maskabúningum að ganga um og falast eftir sælgæti. Hvaðan ætli siður þeirra heima sem maska á öskudaginn sé kominn ?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 18:20
Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá finnst mér þetta nammisníkjudæmi komið út í öfgar. Ég er eiginlega dauðfegin að liðið mitt er orðið svo stórt að þetta er liðin tíð.
En - bið samt að heilsa öllum þessu skrautlegu krílum á Ísafirði - og þér auðvitað líka mín kæra
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 19:36
Ég hafði ekki hugmynd um þennan dag. Óskar öllum Ísfirðingum gleðilegs maskadags.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 19:36
Takk elskurnar. Þegar ég var krakki þá voru gefnar bollur, og svo skemmti fólki sér við að horfa á okkur troða bollunum gegnum búningin, sem í flestum tilvikum var heimatilbúin taubúningur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 19:48
Þetta hljómar smá eins og halloween, syngja börnin fyrir namminu? Örugglega gaman að fá sníkjandi og jafnvel syngjandi börn í heimsókn í lange baner ... Gleðilegan maskadag ...
Maddý (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 20:05
Jamm Madddy mín það er ósköp ljúft.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 20:15
Maska?? Ég er eitt spurningamerki!! Hvað þýðir þetta eiginlega?
Ég er búin að fá mig fullsadda fyrir löngu á krökkum í grímubúningum sem tuldra laglínu og fá nammi fyrir. Þakka guði að þurfa ekki að umbera þau í ár! Hef enda ekkert gaman að börnum
Hrönn Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:05
Hrönnsla pönnsla, börn eru ekki ósvipuð Ljónshjarta, jafn saklaus, jafn tilætunarsöm og alveg jafn krefjandi á athyglina. Elskuleg.´
Blue mín, þetta hefur viðgengist heima hjá mér ég veit ekki hvað lengi, en ég er 63ja ára og hefur verið við lýði allan minn tíma og aldur.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:17
ég veit ég veit - hef samt miklu meira langlundargeð gagnvart ljónshjartanu...... ;) Cesil pesil
Hrönn Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:26
Kristján Logi var að koma inn í sykursjokki með fullann haldapoka af sælgæti :) það gekk greinilega vel að maska.
Við söknum þín
kv matta
matta (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 21:26
Djísús Hrönnsla Pönnsla, hvað mér þykir vænt um þig, þó ég hafi eldrei litið þig augum, bara þessari innri sýn
Úff elsku Matta mín, vona að þú getir sem fljótast falið nammi fyrir litla gaurnum kokkar
Hann er bara frábær, hver neitar svona sjarmör um nammi. Ég sakna ykkar líka 
Það er verið að spá í að ég taki litlu Hönnu Sólina með hem til að létta á Báru minni, við sjáum til, þá gæti dregist aðeins að ég kæmi.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:39
Það eru svo skemmtilegar svona gamlar hefðir eins og öskudagurinn hér á Akureyri. Góða skemmtun
Huld S. Ringsted, 4.2.2008 kl. 21:40
Þú ert nú svosem ekki sem verst sjálf.......
Hrönn Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:41
Já Huld mín, ég hef heyrt af því eins og að slá köttin úr sekknum. Sem betur fer hefur hver sitt. Það væri nú ekki gott mál ef allir væru steyptir í sama mótið.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:42
hlakka til að hitta Sólina :):)
Frændurnir sætu smelltu sér saman að maska of uppskáru fulla haldapoka, Úlfurinn verður hér í nótt, því nú hefst partýið vídeó og nammiát, því frí er í skólanum hjá úlfinum, og daníel og júlíana hér í fríi :)
Óðinn Freyr komst ekki til afa að maska hann var svooooo þreyttur þeir stóru drösluðu honum um allt holtahverfið :):) þannig að þeir tóku með gotterí frá afa í kúlu og fleirum :):)
stubbarnir sætir og rjóðir að hefjast handa við gotterísátið :):)
knús knús :):)
Tinna tengdó (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 21:50
'UBBs Úbbs hehehehe Litli töffarinn hennar ömmu sinnar. Úlfur er í góðum höndum hjá ykkur. Og ég missi af Júlíönu og Daníel í þetta skipti. En það er öruggt að þau eru að skemmta sér rosalega vel. Knús á ykkur öll heima
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 21:54
Já, svona hefðir eru skemmtilegar og gefa lífinu lit!
Nú hef ég bæði lesið og oft hlustað á Árna Björnsson þjóðháttafræðing útlista þessar hefðir, en er alveg búin að gleyma þessu núna! Man þó, að siðurinn með krakkana á Öskudeginum hefur reyndar ekki verið svo útbreiddur lengi, var eitt sinn sem patti staddur í Reykjavík á honum og saknaði þess að vera ekki heima, því þá voru engin Öskudagslið þar,en hitt tíðkaðist að stelpur hengdu öskupoka aftan á stráka og öfugt held ég þarna í höfuðstaðnum!
Held sömuleiðis að bæði þetta hjá ykkur fyrir vestan í dag og svo á Öskudeginum he´rna hafi borist með dönskum kaupmennum eða eitthvað í þá áttina. Sérnorðlenski siðurinn lengi vel og einn sá skemmtilegasti á Öskudeginum, er hins vegar að slá köttin úr tunnunni, það fannst manni nú í gamla daga "mikið sport"!
Magnús Geir Guðmundsson, 4.2.2008 kl. 21:54
Ekki í fyrsta skipti að ég dett í æskuminningar þegar ég heimsæki síðuna þína.,Eg man að það var alltaf svo mikil spenna þegar fullorðna fólkið var að giska á hver var undir maskanum,og allaf átti maður sér uppáhaldstaði til að heimsækja,Vinaminni var þar á meðal.Kveðja.
Rannveig H, 4.2.2008 kl. 21:56
Jamm Rannveig mín, þetta voru góðir tímar
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 22:12
Magnús alveg get ég skilið það að slá köttinn úr sekknum hafi verið spennandi, og Jamm ég held nefnilega að þessir siðir hafi byrjað úti á landi, og þorrablótin og skötuveislurnar og borist þaðan í borg óttans með fólkinu sem flutti þangað.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 22:15
Gleðilegan dag -alla daga
Heiða Þórðar, 4.2.2008 kl. 22:35
Þið verðið að passa vel að þessi skemmtilegi siður á Ísafirði leggist ekki niður.
Jakob Falur Kristinsson, 5.2.2008 kl. 09:06
Já mikið rétt Jakob minn. Gleðilegan dag til þín líka Heiða mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 10:49
Þetta er alveg sami siður og við höfum um allt land á öskudeginum, hann færðist bara til um mest allt land þegar var gerð lagabreyting árið 1917 og frídagurinn færður frá mánudegi til miðvikudags. Ekki veit ég afhverju, né heldur afhverju Ísfirðingar héldu nánast einir í gömlu dagsetninguna.
En þið eruð með óriggínal dagsetninguna á hreinu semsagt :)
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3201
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 16:44
Takk fyrir þennan fróðleik Gunnar. Við höfum reyndar alltaf verið dálítið öðruvísi, til dæmis með Páskana, Skíðavikan hefur verið haldinn næstum alltaf síðan 1937. Með allskonar uppákomum kvöldvökum og böllum, já á Föstudaginn langa og Páskadag byrja böllin kl. oo.2o og eru til fjögur. Hér áður voru rekstrarsjónir en nú skemmtikvöld á Skírdag og laugardaginn, og eru þá búnar kl. hálf tólf. Hér hefur því alltaf verið meira og minna allt opið yfir alla páskana, þegar annarstaðar hefur verið harðlokað.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 18:04
Það þykir mér áhugavert, ég var einmitt að pæla í þessum siðum núna í gær þegar þetta var að bresta á og fór að lesa mér til um hvernig þetta hefur verið í gegn um tíðirnar hér á landi Þetta virðist vera eitt af fáu sem getur talist alveg séríslenskt, það er að segja okkar útgáfa af þessari kjötkveðjuhátíð (þetta er samsa fyrirbærið og carnival, í grófum dráttum - ofát og að slá ketti úr tunnum t.d.!).
Veistu hvort þetta er eins í öðru þéttbýli fyrir Vestan, t.d. Flateyri, eða koma allir bara til ykkar? :)
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 20:33
Þetta er sama á smástöðunum í kring um okkur er ég nokkuð viss um. Veit reyndar ekki hvort þetta er algilt þ.e. til dæmis á Hólmavík og Patreksfirði, en get spurst fyrir um það þegar ég kem heim.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 20:43
Það væri vel þegið, mér þykir alltaf áhugavert að rekja svona siði :)
Gunnar Hrafn Jónsson (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:08
Ekki málið ég skal spyrjast fyrir þegar ég kem heim.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 21:42
Alltaf hef ég heyrt um maskadaginn en hélt satt að segja að átt væri við öskudag.
Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 18:20
Nei Solla mín á Ísafirði er maskadagurinn á mánudeginum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.2.2008 kl. 01:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.