Hafa skal það sem sannara reynist, segir Svanfríður Gísladóttir. Og það er mikið rétt, enda lýsi ég yfir trausti á henni og hennar málfluttningi.

Ég ætla að setja hér inn færslu frá vinkonu minni henni Svanfríði Gísladóttur.  Þar sem hún ræðír um ósk um inngöngu á Reykjalund.  Læknirinn sem hún talaði við, tilkynnti henni að hún væri orðin of gömul til að á inni.

Hann hefur svo reynt að draga í land og gera hana ótrúverðuga, sem er honum ekki til sóma.  Ég veit að Svanna fer ekki með rangt mál, er alveg sannfærð um það, og ég veit líka að hún er með stálminni.  Þannig að þessi læknir má blása eins og hann vill, en hann á líka að skammast sín.

 

En hér kemur innleggið hennar.

 

Meira um Reykjalund!

 

 Hafa skal það sem sannara reynist!

Í grein sinni í Morgunblaðinu í dag(3.febr.) hefur Magnús Jónasson yfirlæknir á Reykjalundi ekki rétt eftir mér.

Orðrétt skrifaði ég:

Vegna tíðra innlagna út af hjartabilunn, síðast nú um helgina með vatn í lungum,vonaðist ég til að komast enn einu sinni í endurhæfingu á hjartasviði ReykjalundI, ( tilv. líkur) .

Það er breyttur tónn hjá Magnúsi lækni í frétt Mbl. ( í dag sunnudag 3.febr. ) og nú bíð eg bara eftir að hringt verði í mig og og mér boðið pláss, því að ekki er lengur í gildi það aldurstakmark er hann tjáði mér að væri , eða að ég 62 ára væri of gömul til að komast í endurhæfingu á Reykjalundi.

Þegar Magnús læknir hringdi í mig í seinna skiptið  (þá búin að frétta af BLOGGINU mínu) var honum  mikið niður fyrir og viðhafði orð sem engum er sómi af, allra síst manni í hans stöðu.

Rétt er að ég var siðast á Reykjalundi fyrir ca. tveimur árum, en frá þeim tíma hef ég lagst í nokkur skipti inn á Landspítala hjartadeild síðast nú í október sl. er ég datt niður út á götu niður í bæ.

Með þessum orðum lýkur skrifum mínum um um þetta tiltekna mál og með góðum kveðjum til Magnúsar læknis.

Guð blessi Reykjalund og þá starfsemi er þar fer fram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir þessar upplýsingar, það eru margir sem þurfa að bíða lengi, burtséð frá aldri og öllu.

Ásdís Sigurðardóttir, 4.2.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er ekki allt sem sýnist, og menn virðast hafa eiginlega allt of mikil völd til að taka inn sjúklinga, og alka  ef maður spáir í SÁÁ.  Hvernig ætli þessu sé háttað, tekið inn eftir geðþótta eða kunningsskap.  Líka er það hræðilegt ef það eru langir biðlistar inn á sjúkrastofnandir og endurhæfingarstofnanir, hvað er eiginlega að í okkar ríka þjóðfélagi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 13:40

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Hér ríkir einfaldlega stjórnlaust rugl á flestum sviðum og furðulegt hvað lítil samvinna virðist vera á milli hinna mörgu stofnana sem starfa á heilbrigðissviðinu.  Maður fær stundum á tilfinninguna að það sé með vilja gert að hafa alla þessa biðlista í þeirri von að þá fái viðkomandi stofnun aukið fjármagn í reksturinn.

Jakob Falur Kristinsson, 5.2.2008 kl. 09:02

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023260

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband