Bolludagur - verði ykkur að góðu landar mínir.

Til hamingju með bolludaginn þarna heima.  Hér er víst engar rjómabollur að fá, en ég get svo sem alltaf skroppið á kaffihús og fengið mér kakó með rjóma og rjómatertu.  Ég geri það ef til vill seinna í dag, dóttir mín er í prófi frá kl. 14.00 til 16.00 og þá kemur hún heim, og getur loksins slakað aðeins á.  Við ætlum að eiga tvo góða daga saman áður en ég fer heim. 

En ég sendi ykkur smá bollumynd frá Ísafirði, þetta er hún Rut Tryggvason, hún er heiðursborgari Ísafjarðar alveg frábær yndisleg manneskja, og kraftakona. Hún kom frá Danmörku og þau stofnuðu Gamla bakaríið saman maðurinn hennar og hún.  Og eftir að hann dó, hélt hún áfram rekstrinum og starfar þar enn.  Dugnaðarforkur og góður vinur minn.  Sonur hennar og tengdadóttir hafa að mestu tekið yfir reksturinn.  En hver heima vildi vera án Gamla bakaríisins. 

bolludagur

Myndina fékk ég lánaða úr Bæjarins besta.  Þetta eru einu bollurnar sem ég sé í dag.  Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman að heyra frá þér já það er víst bolludagurinn í dag hafðu það gott þar sem þú ert núna.

Kristín Katla Árnadóttir, 4.2.2008 kl. 11:03

2 Smámynd: Helga skjol

njóttu þess að fá þér kakó og rjómatertu í dag í stað bollunar góðu og takk fyrir kommentinn hjá mér.

kv Helga. 

Helga skjol, 4.2.2008 kl. 11:49

3 identicon

Synd að þú missir af bollum úr besta bakaríinu á landinu Get alveg ímyndað mér að þær séu jafngóðar og allt annað úr þessu bakaríi. Kakó með rjóma og góð rjómaterta kemst sjálfsagt næst þessu.

Ekki vildi  ég vera án þess að koma við þar á sumrin

Kidda (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 12:07

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar mínar.  Já ég hugsa að kakóið og rjóman lagi þetta eitthvað

Takk Katla mín.

Ekkert að þakka Helga mín.

Nei einmitt Kidda mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 12:35

5 identicon

Kæra 'Ija.

 Ég hef verið að lesa ,BLOGGIÐ" þitt fyrir hana Brynju vinkonu mína,og þar eru nokkrir sem spyrja um hana svo hún vill að ég setji inn smá upplýsingar sem hér koma .

Við Brynja kynntumst á Reykjalundi, það var á þeim árum þegar flestir vistmenn unnu nokkra tíma á dag  fyrir utan endurhæfingu.

Þegar ég útskrifaðist og fór í nám, tók Brynja við starfi mínu á símanum svo gerist það árið 1979 að hún verður aðstoðarmaður félagsráðgjafa á sama stað og var það í 26ár .

En sl. 2ár hefur hún unnið sem atvinnu og kynningarfulltrúi hjá Blindrafélaginu.

 

Svanfríður Guðrún Gísladóttir (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 20:27

6 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Bollur í Gamla, kringlur úr Gamla, kókoslengjur úr Gamla, snúðar úr Gamla...mmmmmm! Svona er endalaust hægt að telja, allt gott og hvergi betra að versla en hjá Ruth.

Mig langar í Gamla bakaríið núna!

ÞE 

Þórdís Einarsdóttir, 5.2.2008 kl. 09:53

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mig líka Þórdís mín. 

Takk fyrir þessar upplýsingar Svanfríður mín.  Og ég bið að heilsa Brynju. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 10:48

8 Smámynd: Solla Guðjóns

Ummm..

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband