Í Zoom Kindermuseum.

Jæja við stelpurnar og auperin og ég fórum í kindasafnið í dag..... nei hehehe auðvitað ekki það heitir Zoom Kindermuseum.  Þetta er bráðskemmtilegt safn, þar sem foreldrar koma með börnin sín á helgum og leika við þau, eða fá að skilja þau eftir í einn til tvo tíma. 

En fyrst þetta, eins og þeir segja í spaugstofunni.

Barnaleikjasafnið 001

Alþjóðlegt samfélag í gastanknum, Ísland, Rússland og Svíþjóð. 

Barnaleikjasafnið 007

Þetta er hús nýlistasafnsins, þar sem húsið á hvolfi var á mynd hjá mér áður.  Nú tróna þessir karlar og konur á veggnum.

Barnaleikjasafnið 018

Hér erum við komin inn í sjávarsafn barnanna, Ásthildur Cesil er hér í svona speglaskriðgöngum.  Hún var í essinu sínu og reyndar öll börnin sem þarna voru, og ekki síður skemmtu foreldrarnir sér.

Barnaleikjasafnið 022

Hér er margt að skoða og allt miðað við hæð barnanna.

Barnaleikjasafnið 026

Hér er gert að aflanaum, fiskarnir teknir af króknum.

Barnaleikjasafnið 027

Málið er að foreldrarnir líka pabbarnir og afarnir eru ekki síður ánægðir með þetta umhverfi en börnin.  Hér er staðið við stjórann, og siglt beint áfram.

Barnaleikjasafnið 030

En svo er næsta skref, það er búið að taka út leirinn, og hér eru komnar heilmiklar málningargræjur, og nú er Hanna Sól að klæða sig í samafesting til að geta farið að mála.

Barnaleikjasafnið 038

Já og svo er bara málað.

Barnaleikjasafnið 039

Sú stutta var nú ekki alveg á því að láta skilja sig eftir, hún var of lítil í samfesting, en fékk svona bol til að vera í.

Barnaleikjasafnið 047

Sumir nostruðu við sín málverk, og ekki bara stúlkurnar.

Barnaleikjasafnið 052

Vígaleg Ásthildur.

Barnaleikjasafnið 053

Alltaf bætist við málninguna hjá krökkunum.

Barnaleikjasafnið 056

Síðan var málað með fílterboltum, sem drippað var í málningu.

Barnaleikjasafnið 058

Þetta verður sko flott.

Barnaleikjasafnið 060

Síðan var að skilgreina hvaða litur var uppáhalds, og hvað hver litur þýddi.

Barnaleikjasafnið 063

Og svo fékk hver að mála sína mynd.  Hér er Hanna Sól og áhuginn leyndir sér ekki.

Barnaleikjasafnið 066

Hún fékk líka að hjálpa til, af því að hún var vinkona annars leiðbeinandans.

Barnaleikjasafnið 067

Þessi ungi maður tók sína mynd alvarlega, mjög flott hjá honum.

Barnaleikjasafnið 069

Hér hjálpast þær að Christine og Hanna Sól að fullgera málverkið.

Barnaleikjasafnið 071

Svo fékk hún alveg spes fyrirgreiðslu, hún fékk andlitsmálningu.

Barnaleikjasafnið 073

Já lítil mús.

Barnaleikjasafnið 075

Ég á litla mús hún heitir Hanna Sól. Heart

Barnaleikjasafnið 077

Og litla systir alveg steinhissa.

Barnaleikjasafnið 079

Svo var haldið heim eftir skemmtilegan dag. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er gaman hjá ykkur og þetta eru mjög skemmtilegar myndir Ásthildur mín. hafið þið það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 3.2.2008 kl. 19:14

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk elskurnar.  Þetta var svo sannarlega skemmtilegur dagur.  Og þær litlu alveg búnar á því.  Enduðum á Mc Donalds sem er hérna niðri, svo það var lítið um eldamennsku í dag. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.2.2008 kl. 19:19

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásthidlur, það virðist alltaf ríkja taumlaus gleði þar sem þú ert á ferð.  Kveðja á alla og knús á þig mín kæra

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 19:41

4 Smámynd: Ásta Björk Solis

Aedislegar myndir og greynilega voda gaman hja dullunum

Ásta Björk Solis, 3.2.2008 kl. 20:06

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sniðugt þetta ,,kinda" safn  ...  skemmtilegar myndir og þið allar flottar!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 3.2.2008 kl. 20:08

6 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Frábærar myndir Ásthildur mín, hafðu það gott þarna úti.

Kolbrún Baldursdóttir, 3.2.2008 kl. 21:47

7 Smámynd: Ísdrottningin

Þetta eru frábærar myndir, mikið rosalega hefur verið gaman hjá ykkur.

Ísdrottningin, 4.2.2008 kl. 03:11

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta er greinilega algjör ævintýraheimur fyrir börnin!  Takk fyrir skemmtilegar myndir

Huld S. Ringsted, 4.2.2008 kl. 10:37

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er mjög skemmtilegt, og væri alveg til eftir breytni heima.  Allavega í skmmdeginu.  Mér skilst að fólk komi frekar í leiðinlegu veðri.  Þetta er hin besta skemmtun bæði fyrir börn og foreldrana, og afa og ömmur. Ein konan þarna spurði mig hvort ég væri "amma" eða ljósmyndari frá einhverju blaðinu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2008 kl. 10:45

10 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Meiriháttar! Oh hvað þetta hlýtur að hafa verið skemmtilegt! Takk Ásthildur, þetta var virkilega gaman að sjá. Vonandi að þetta kveiki í einhverjum að setja upp svona hér, ekki veitti af í vetrarveðrunum okkar hérna að gera eitthvað svona gaman saman

Bestu kveðjur í útlöndin

Ragnhildur Jónsdóttir, 5.2.2008 kl. 10:30

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já  þetta laðar fram það besta í allri fjölskyldunni.   Það virtust allri hafa góðan áhuga á þessu mamman, pabbinn og börnin, og svo voru líka afar og ömmur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2008 kl. 10:46

12 Smámynd: Solla Guðjóns

Frábært þetta og vert til eftirbreytni.

Solla Guðjóns, 6.2.2008 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2023241

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband